Tíminn - 16.09.1973, Blaðsíða 24

Tíminn - 16.09.1973, Blaðsíða 24
24 TÍMINN Sunnudagur 16. september 1973 Hans Fallada: Hvaðnú.ungi maður? 80 w Þýðing Magnúsar Asgeirssonar eftir henni þrammar eigin- maöurinn, seint og þunglamalega Nú er hann ekki konungur lengur, heldur lítilmótlegur banka- gjaldkeri eins og áður, sem aldrei getur fengið af sér aö hreyfa við annarra manna eign. Þegar þau ganga niður strætið troðfullt af fólki — hún hnarreist, ung og stælt, þóttafull í sinni frumrænu fyrirlitningu á öllum borgara- legum lögum, en hann hrukkóttur, grár og samanskroppinn, eins og hann sjái allt auðnuleysi fram- tiðarinnar blasa við sér — sést það enn, að hann er afburða mikill leikari. Hún þegir, en reiðin sýður niður I henni: hún gengur með fýlusvip og hatar — en skyndilega breytir hún til og ætlar að reyna við hann einu sinni enn. Þau sitja inni i Iburðarmiklu veitingahúsi og borða dýrindis krásir fyrir siðustu skildingana. Hún blossar upp aftur af ástúð og yndisleik og kveikir lika I honum, þangað til hún segir allt i einu: ,,A morgun gerir þú það aftur — fyrir mig!” Þá er eins og hún steypi honum niður i hyldýpi vonlausrar, lam- andi angistar. Hvernig fer svo? Já, hvernig ætti annað eins eiginlega að fara? Sjálfboðaliðinn er enginn auðkýf- ingur, siður sen svo. Hann neitar, — hann segist alls ekki geta hald- ið þvi áfram að lána, eða öllu heldur gefa gjaldkeranum, vini slnum, peninga. En gjald- keravesalingurinn er svo ringlað- ur, að peningarnir eru nú ekki lengur efst i huga hans, heldur hitt, að geta trúað einhverjum fyrir þrengingum sinum. Hinn litli, óreyndi heili hans getur blátt afram ekki afborið þetta einn lengur. Þess vegna segir hann vini sinum, hvers vegna sér liggi á peningum, og hvað konan sin haldi um sig. Sjálfboðaliðinn hlær og það kemur girndarglampi i augun á honum. Re'ft á eftir kem- ur hann aftur til gjaldkerans og fær honum stóran vöndul af seðlum og segir um leið eins og gamni slhlæjandi: ,,Þú verður að kynna mig fyrir konunni þinní!” Og þetta fer alveg eins og það hlaut að fara: Frúin og sjálfboða- liöinn hittast. Hjón og einn mað- ur til. — Sjálfboðaliðinn verður ástfanginn af konu vinar sins, en hún villhvorki heyra hann né sjá. Maðurinn hennar er henni allt og eitt, gjaldkerinn, þessi hrausti, hugdjarfi konungur, sem lætur sér ekkert i augum vaxa vegna hennarog er orðinn ævintýrahetj- an I lifi hennar. Sjálfboðaliðinn verður afbrýðisamur. Er það ekki mannlegt, úr þvi að hann veit hvernig i öllu liggur? Enn einu sinni sitja þau saman við borð á næturknæpu, hann og hún, og meðan þau eru ein, að eins stundarkorn, segir hann henni allt eins og það er um mann hennar og peningana. Þetta er þá allt saman ekkert ævintýri, held- ur bara hversdagsleg saga um peningalán. Þegar maður hennar kemur aftur að borðinu, hlæja þau bæði upp i opið geðið á hon- um, einkum þó hún. Hlátur henn- ar er ósvifnislegur og fullur af sárkaldri og háðslegri fyrirlitn- ingu. Og þessi hlátur hannar flett- ir ofan af öllu, sem honum hefur dulizt hingað til, ótryggð konunn- ar og svikráðum vinar hans, og andlit hans gerbreytist. Augun stækka og tvö tár koma fram i þeim, þrútna og velta niður hrukkóttar kinnarnar. Varirnar titra eins og á barni með ekka. En þau hlæja. Hann horfir á þau, bara horfir. Ef til vill hefði hann á þessari stundu getað gert allt það, sem hún hafi vænzt og krafizt af honum, fremur en að láta steypa sér af konungsstóli sinum. En nú er það um seinan. Héðan af er ekkert hægt að gera. Siðan snýr hann baki við þeim og stjáklar út úr veitingasalnum, smáfættur, mjóleggjaður og bog- inn i baki, og hverfur út vindu- dyrnar. ,,Pús;.er”, hvislar Pinneberg. „Pússer”, segir aftur og þrýstir fastar hendi hennar og dregur hana að sér i myrkrinu. „Þetta er hræðilegt allt saman. Og við er- um öll svo einmana”. Pússer þrýstir fingrum hans og kinkar kolli framá við. „En við eigum þó hvort annað að”, segir hún. Kvikmynd og hversdagsllf. KniIIi frændi nemur Jachmann á brott. Það gat ekki heitið nein gleði- veizla, sem fór á eftir bióferðinni. Þrátt fyrir allt góðgætið, sem Jachmann hafði keypt, veitist þeim öllum þremur þó erfitt að komast i viðeigandi skap. Jach- mann hefir nokkrum sinnum gert árangurslausar tilraunir til að lifga þau upp, en það er ekki fyrr,en Pússer er búim að bera af borðinu og ætlar að fara að gefa Drengsa að sjúga, að hann segir með dálitilli óþolinmæði: „Börnin góð, þetta dugar ekki. Þið getið þó ekki verið þeir dauð- ans einfeldningar að þið þurfið að láta venjulega bióvitleysu gera ykkur alveg utan við ykkur”. Pinneberg reynir að bera af sér þá ásökun að hann sé einfeldningur, en Pússer vill koma til dyranna eins og hún er klædd. ,,,Svo ég segi nú eins og er. Jachmann, þá erum við bæði hrædd ennþá, Hannes og ég. Við vitum auðvitað, að kvikmynd og veruleiki er sitt hvað. En það, sem kemur manni til að hugsa um atburðina i mynd eins og þessari er það, að fólk eins og við verðum i raun og veru alltaf að vera slhrædd. Ef eitthvað raknar úr fyrir okkur öðru hvoru, er það i raun og veru kraftaverk. En við hinu verður alltaf að búast, að eitthvað misjafnt komi fyrir. Tilvera okkar smælingjanna er öll svo ótrygg, við erum alveg varnarlaus og verðum að taka öllu, sem að höndum ber. Og það er sjaldnast að það sé gott”. Jachmann reynir að eyða þessu. „Þetta er allt undir manni sjálfum komið”, segir hann. „Auðvitað verður maður að taka þvi, sem að höndum ber. En hvers vegna ætti maður að vera að kvelja sjálfan sig með kviða og hræðslu fyrir fram? Hefði ég ver- ið eiginmaðurinn þarna i mynd- inni, hefði ég látið kerlinguna sigla sinn sjó og fengið mér aðra, yngri og laglegri!----En nú legg ág til að við förum út og lyftum okkur dálitið upp. Klukkan er orðin yfir hálf-ellefu og laukur Atvinna Ung kona óskar eftir vinnu fyrir hádegi, má vera til kl. 1. Helzt sem næst vesturbæn- um. Er vön afgreiðslu og saumaskap. Margt annað kemur til greina. Upplýsingar i sima 25967. 1502 Lárétt 1) Æki.- 5) Segja,- 7) Leit.- 9) Dugleg,- 11) Trygg,-13) Svar.- 14) Bókar,- 16) Lita.- 17) Blundar,- 19) Meira sykrað.- Lóðrétt 1) Óþýðra.- 2) Hasar,- 3) Tala.-4) Galti,- 6) Fótaveika.- 8) Púki.- 10) Nýlegur.- 12) TJt- hafi.- 15) Legg frá mér.- 18) Tónn,- Lóðrétt 1) Ununar.- 2) Dr.- 3) Nóa.- 4) Arða.- 6) Algert.- 8) Vef,- 10) Argar.- 12) Illa.- 15) Sól.- 18) MU,- HVELL G ættarinnar virðist loksins vera orðinn sæmilega syfjaður og mettur.-----I kvöld skuluð þið að minnsta kosti ekki fá ástæðu til þess að vera allt of svartsýn á til- veruna”. Pússer og Pinneberg langar eiginlega ekkert til að fara út að skemmta sér eftir þessa áhrifa- miklu kvikmynd. Þau draga það á langinn og reyna að losna við fleiri áhrif frá lifinu innan sinna eigin fjögurra veggja. En Jach- mann sættir sig alls ekki við það, að þau hlaupist nú undan merkj- um. Það er auðséð, að hann er ákveðinn i þvi að skemmta þeim reglulega vel þetta kvöld, og Pússer fellst á það að lokum, að fara i laglegasta útikjólinn sinn, meðan Pinneberg er sendur út á hornið eftir bil. Pinnéberg leggur af stað hægt og dræmlega, en þegar Jachmann kemur hlaup- andi á eftir honum og stingur nokkrum seðlum og silfurpening- um i lófann á honum, getur hann ekki lengur spyrnt á móti 1Í 11 ifilÍðÍÍ | , SUNNUDAGUR 16. september 8.00 Mogunandakt Herra Sigurbjörn Einarsson biskup flytur ritningarorð og bæn. 8.10 Fréttir og veðurfregnir. 8.15 Létt morgunlög Tékkneskir listamenn flytja þjóðlög og dansa frá Slóvakíu og Bæheimi. 9.00 Fréttir. Útdráttur úr for- ustugreinum dagblaðanna. 9.15 Morguntónleikar (10. 10. Veðurfregnir) a. Frá Bach- tónlistarkeppni i Leipzig I sumar. 1. Sónata i Es-dúr op. 7 eftir Beethoven. Winfried Apel, sem sigraði i pianósamkeppninni, leikur. 2. Pianókonsert i g-moll op. 25 eftir Mendelssohn. Jean- Louis Steuermann, sem varð annar, og hljómsveit Tónlistarskólans i Leipzig leika: Rolf Reuter stj. — Soffia Guðmundsdóttir kynnir. b. Fiðlukonsert i e- moll op. 64 eftir Mendels- sohn. Heins-Helmut Klinge og Sinfóniuhljómsveit út- varpsins i Austur-Berlin leika: György Lehel stj. 11.00 Messa i Dómkirkjunni i Reykjavik. Prestur: Séra Þórir Stephensen. Organ- leikari: Ragnar Björnsson. 12.15 Dagskráin Tónleikar. 12.25 Frettir og veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.15 Mér, datt það i hug-Björn Bjarman rabbar við hlustendur. 13.35 tslenzk einsöngslög Stefán Islandi syngur. Fritz Weisshappel leikur undir. 14.10 Þúsund eyja landið. Ingólfur Kristjánsson rit- höfundur talar um Álands- eyjar og kynnir tónlist það- an, — álenzka söngva og dansa. 15.00 Miðdegistónleikar: Frá sumartónleikum i Maltings Sinfóniuhljómsveit brezka útvarpsins leikur tónverk eftir William Walton, Eric Coates, Suppe, Lanner, Strauss og Ziehrer: Ashley Lawrence stj. 16.10 Þjóðlagaþáttur i umsjá Kristinar ólafsdóttur. 16.55 Veðurfregnir. Fréttir. 17.00 Barnatimi: Margrét Gunnarsdóttir stjórnar a. Frásagnir af göngum og réttum Flytjendur auk um- sjónarmanns: Margrét Grétarsdóttir og Sólveig Theódórsdóttir. b. útvarps- saga barnanna: „Knatt- spyrnudrengurinn” Höfundurinn, Þórir S. Guð- bergsson, byrjar lesturinn. 18.00 Stundarkorn með þýzka orgelleikaranum Markusi Rauschner 18.30 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.20 Fréttaspegill. 19.35 tslenzk utanrikismál 1944—51: fjórði samtals- þáttur Baldur Guðlaugsson ræðir viö Eystein Jónsson alþingismann. 20.00 islenzk tónlist. Sinfóniu- hljómsveit Islands leikur lagasvitu úr „Gullna hlið- inu” eftir Pál Isólfsson: Páll P. Pálsson stjórnar. 20.30 Vettvangur. Sigmar B. Hauksson stjórnar samtals- þætti um útihátiðarhöld. Auk hans koma fram: Garðar Viborg, Haukur Hafstað, Hjörtur Þórarins- son og Ómar Valdimarsson. 21.20 Kórsöngur. Karlakór Reykjavikur syngur lög eftir Arna Thorsteinsson. Einsöngvari: Svala Nielsen. Stjórnandi: PállP. Pálsson. 21.45 „Blaðaviðtal”, smásaga eftir Svein Bergsveinsson Höfundur les. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Eyja- pistill. Bænarorð. 22.35 Danslög 23.25 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.