Tíminn - 16.09.1973, Page 10

Tíminn - 16.09.1973, Page 10
10 TtMiNN ‘ ■ ■ SunnudagurlB.septembfer 1973' Harmar það eitt að hafa ekki drepið de Gaulle HINN SANNI SJAKALI A KAPUSIDU eintaks mlns af bók Frederick Forstyh, „Dagur Sjakalans” (sem nú hefur verið kvikmynduð með Edward Fox i aðalhlutverki) stendur eftirfar- andi efnislýsing: „Hlutverk hans: að myrða Charles de Gaulle, forseta.” „Dulnefni hans: Sjakalinn” „Verð hans: hálf milljón bandariskra dala” „Krafa hans: algjör leynd, jafnvel gagnvart yfirboðurun- um. ” Síðar segir, að Sjakalinn sé „hár, Ijóshærður Englendingur, með grá augu — drápsmaður á hátindi starfsferils sins”. Nú vill svo til, að hinn raun- verulegi „Sjakali” — það er að segja maðurinn, sem í raun reyndi að drepa de Gaulle, er lág- vaxinn, hálfsköllóttur Frakki, með skær blá augu og gleraugu. Dulnefni hans var Max, verð hans var ekki ein einasta króna og krafa hans var, að herinn tæki völdin og Alsfr yrði áfram franskt land. Raunverulegt nafn hans er Alain de Bougrenet de la Tocnaye. Það fór eins hjá honum og „Sjakalanum”, að morðtil- raunin mistókst, en hins vegar var hann ekki drepinn. Hann var handtekinn, dæmdur til dauða, en fékk dómnum breytt i lifstiðar- fangelsi. Árið 1968 var hann, ásamt öðrum pólitiskum föngum i Frakklandi, náðaður. Hann býr nú I tveggja herbergja ibúð i skugga Eiffel turnsins og rekur litið vöruflutningafyrirtæki. Ég hitti hann nýlega fyrir milligöngu vina. Hann var óánægður með þá blöndu af staðreyndum og imynd- un, sem einkennir „Sjakalann”, þar sem morðtilraun de la Tocn- aye er lýst sem undanfara þess, að Sjakalinn var leigður til verks- ins. Hann samþykkti að segja sögu sina „svo sannleikurinn liggi ljós fyrir”. Meginatriðið er, að morðtilraunin i Petit Clamart, sem de la Tocnaye stóð fyrir, og sem er itarlega lýst i skáldsög- unni, gerðist i raun og veru, en þegar hún mistókst, þá voru ekki gerðar frekari tilraunir til þess að leigja launmorðingja, hvorki inn- lendan né erlendan. I. Glæpurinn 22. ágúst 1962 var kaldur, skýjaður dagur i Paris, likari haustdegi en sumri. Um morgun- inn kom Charles de Gaulle til borgarinnar frá sveitasetri sinu i Colombey-les-deux-Eglises til þess aö stýra rikisstjórnarfundi. Allt frá þvi að sprengja, sem var falin i sandi við vegkantinn, hafði sprungið á leið þeirri, er hann fór um, án þess þó að valda skaða, hafði sú venja verið upp tekin, að forsetinn færi þessa leið bæði i bifreið og þyrlu. Honum var ekið frá Colombey til flugvallarins i Saint-Dizier, sem er 40 milna leið. Þaðan var flogið til herflug - vallarins i Villacoublay, en þang- að voru 150 milur, og loks ekið þá átta milna leið, sem eftir var til Elysée hallarinnar. Meginefni rikisstjórnarfundar- ins var Alsirmálið. Alsir hafði lýst yfir sjálfstæði sinu i júli eftir átta ára nýlendustrið. Mikil óvissa rikti i landinu, og hundruð þúsunda franskra manna ákváðu að fara úr landi og heim til Frakklands. Fundinum lauk siðla um daginn og forsetinn ákvað að halda aftur til Colombey. Kl. 7.35 að kvöldi opnuöust hlið forseta- ha.llarinnar, og tvær svartar Citroen-bifreiðar óku á brott i fylgd tveggja lögreglumanna á bifhjólum. Fimm minútum siðar var mað- ur, sem kallaöi sig Didier, kallað- ur I simann á kaffihúsi i úthverf- inu Meudon. Didier var sagt i simann, að de Gaulle væri i aftur- sæti á Citroen DS 19, sem hefði skrásetningarmerkið „5349 HU 75”, og væri frú de Gaulle við hlið hans, við stýrið væri bifreiða- stjóri frá hernum, Marroux, og við hlið hans tengdasonur og að- stoðarmaður forsetans, Alain de Boissieu, ofursti. I hinum svarta DS 19 bilnum væri ökumaður, herlæknir, Degans að nafni, og 2 „górillur” eða öryggisverðir, Puissant og Djouher. A eftir bflunum væru tveir lögreglumenn á Triumph bifhjólum. Tvær leiðir liggja frá Elysée til Villaboublay-flugvallar. önnur er meðfram hægri bakka Signu, yfir Sévres brúna og gegnum Meudon- skóginn. Hin liggur meðfram In- valides, upp Anvenue du Maine, inn á Leið 306 gegnum Porte de Chatillon og yfir vegamótin við Petit Clamart. Fimm minútum eftir áðurnefnt simtal var aftur hringt i Didier og honum tjáð, að forsetinn hefði farið siðarnefndu leiðina. Didier hélt út úr kaffihúsinu, stóð á stéttinni og veifaði dag- blaði. Tólf menn komu út úr byggingu þar skammt frá og óku af stað i fjórum bifreiðum að vegamótunum við Petit Clamart, sem eru við enda langrar, beinn- ar leiðar, sem kallast Avenue de la Libération. Þessi vegur er meðfram einbýlishúsum, fjölfar- inn. Didier lagði bifreið sinni, gekk yfir Avenue de la Liberation og staðnæmdist við strætisvagna- biðstöð.' Peugeot bifreið var lagt þar skammt frá. 200 metra i burtu var Renault bifreið lagt meðfram limgerði, og snéri framhlið hans frá Paris. Siðasta bifreiðin, svartur Citroen með hvitt þak, hafði verið lagt i hliðargötu við Avenue de la Liberation, um 300 metra frá biðstöðinni, þar sem Didier stóð. ökumaður Citroen- bifreiðarinnar var lágvaxinn, skolhærður maður, sem kallaði sig Max. Hann og tveir aðrir menn i bifreiðinni renndu glugga- rúðunum niður og skoðuðu vél- byssurnar, sem lágu við hlið þeirra. Um kl. 8.10 siðdegis, þegar komin var súld, sá Didier bifreið- ar forsetans nálgast og veifaði þvi á ný dagblaði sinu. Slæmt skyggni varð til þess, að bílstjóri Renaultsins 200 m ofar sá ekki Didier gefa merki. Fáeinum sekúndum siðar sá hann tvær svartar bifreiðar um 30 metra i burtu á hraðri ferð og hann kall- aði til mannanna tveggja, sem voru aftan i bifreiðinni, „Skjót- ið”. Mennirnir skutu úr léttum vélbygsum á bifreið de Gaulles um leið og hún fór framhjá þeim, og skutu einnig á eftir henni. Enn ofar heyrði Max skothrið- ina og taldi öruggt, að hann hefði nægan tima til að komh bifreið sinni fyrir þvert á Avenue de la Liberation og stöðva þannig bif- reið forsetans. En vegna þeirrar tafar, sem varð vegna þess, að merkið sást ekki, varð Max of seinn. Hann kom að aðalgötunni um leið og bifreið de Gaulles þaut framhjá ásamt fylgdarliði. Max ákvað að elta, og komast inn á milli siðari bifreiðarinnar og bif- hjólanna. Skotmaðurinn við hlið hans I bilnum skaut um leið og Max skellti bifreiðinni inn i bila- lestina. Afturrúðan i bifreið for- setans brotnaði, og höfuð forset- ans hvarf. „Þú hittir hann”, hrópaði Max. Max setti bensingjöfina i botn og reyndi að komast framhjá fyldarbifreiðinni og að forsetabif- reiðinni, en bifreiðin, sem hann De Gaulle, leikinn af Adrien Cayla, i kvikmyndinni Dagur Sjakalans. Hér er verið aö (aka þann kafla myndarinnar, þar sem Sjakalinn gerir tilraun til aö myröa forsetann fyrir utan Gare de Montparnasse.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.