Tíminn - 16.09.1973, Side 26

Tíminn - 16.09.1973, Side 26
26________________________ TÍMINN Sunnudagur 16. september 1973 Hér á myndinni sést danski leikmaburinn Jensen (7), sem leikur með Mönchengladbach. Myndin er tekin ileik Mönchengladbach og 1. FC Köln Ibikarúrslitaleiknum. V-Þýzkaland hefur nú tekið við hlutverki Englands sem leið- andi afl í evrópskri knattspyrnu Borussia AAönchengladbach, sem leikur gegn Eyjamönnum í Evrópukeppni bikarmeistara, er talið bezta bikariið Vestur-Þýzkalands. AAeð liðinu leika tíu landsliðsmenn Borussia Mönchen- gladbach, liðið sem leik- ur við ÍBV i Evrópu- keppni bikarmeistara Laugardalsvellinum fimmtudginn 20. sept. n.k. er tvimælalaust eitt bezta knattspyrnulið, sem heimsótt hefuij ís- land. Félagið á þó ekki langa sögu að baki sem topplið i V-Þýzkalandi. Það kom upp i Bundes- liga (I. deild) árið 1965 ásamt öðru félagi, sem nú er einnig orðið heimsþekkt, Bayern Múnchen, og þessi lið tvö hafa fært nýtt lif og nýjan ,,stil” i knatt- spyrnuna.ekki bara i sinu heimalandi heldur um alla Evrópu. V- Þýzkaland hefur nú tek- ið við hlutverki Eng- lands sem leiðandi afl I evrópskri knattspyrnu, og það eru Borussia og Bayern, sem leggja til kjarnann i landslið V,- Þýzkalands. Félögin leggja alla áherzlu á sóknarknattspyrnu, leika fallega, skemmtilega og spennandi knatt- spyrnu og skora mörg mörk. Varnarleikur á ekki upp á pall- borðið hjá þessum þekktu félög- um, enda óttast mótherjar þeirra fáa menn eins mikið og marka- skorarana miklu Muller (Bay- ern) og Heynckes (Borussia), en þeir voru markahæstu i Bundes- liga siðasta keppnistimabil. Borussia Mönchengladbach náði frábærum árangri, á siðasta keppnistimabili, lék til úrslita i þremur bikarkeppnum, en varð hins vegar að láta sér nægja 5. sætið i Bundesliga. 1 UEFA bikarkeppninni lék Borussia við Liverpool i úrslitun- um og fór fyrri leikurinn fram á Anfield Road. Lauk honum með sigri Liverpool, 3:0, en i þeim leik mistókst Heynckes framkvæmd vitaspyrnu og átti það eftir að reynast afdrifarikt i meira lagi. Siðari leikinn vann Borussia nefnnilega 2:0 og hefði þvi unnið bikarinn samanlagt á útimarki, EF Heynckes hefði skorað úr vit- inu. Svona skammt er off á milli sigurs og tapa i knattspyrnunni og Liverpool hampaði bikarnum. t úrslitum Deildabikarsins i V.-Þyzkalandi bættist enn á von- brigði Borussia, þvi líðið tapaði stórt fyrir Hamburger SV 0:4. En loks í úrslitum Bikarkeppninnar kom að þvi, að Borussia kom höndum yfir siIfrið.Mótherjar þar voru leikmenn FC Köln með Overath i broddi fylkingar. Eftir framlengdan leik fór Borussia með sigur af hólmi 2:1, og ieikur þvi hér við Vestmannaeyinga á Laugardals vellinu m . Þessi úrslitaleikur mun lengi vera I minnum hafður i Þýzkalandi, enda talinn bezti leikur ársins og bæði liðin þóttu sýna frábæra knattspyrnu. 70.000 áhorfendur urðu vitni að þessum “ævintýra- leik fullkominnar knattspyrnu”, eins og blöðin lýstu honum, og þeir sáu Gunter Netzer skora sigurmarkið fyrir Borussia. Þetta mark hans var kveðja hans til knattspyrnuunnenda i V- Þýzkalandi, þvi að eftir leikinn hélt hann til Spánar. Mikill er missir Þjóðverja að horfa á bak honum en meiri er þó missir okk- ar islendinga að fá ekki séð þenn- an snilling leika listir sinar á Laugardalsvellinum. Árangur Borussia Mönchengladbach i Evrópukeppnum: 1970/71, Evrópukeppni meistaraliða. Borussia — Larnax (Kýpur) 10-0 og 6-0. Borussia — Everton (England) 1- 1 og l-l, Everton sigraði 4-3 eftir vítaspyrnukeppni. 1971/72, Evrópukeppni meistaraliða. Borussia — Cork Hibernians (Ir- land) 2-1 og 5-0. Berti Vogts th. faðmar Gúnter Zetzer að sér, eftir að Zctzer hafði skorað úrslitamarkið i bikarúrslitun- um.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.