Tíminn - 16.10.1973, Blaðsíða 1
fóðurvörur
ÞEKKTAR,
UM
LAND
ALLT
WOTEL LOFTim/fí
VEITINGABÚD
„Hótel Loftleiðir" er nýjung í hótel-
rekstri hérlendis, sem hefur náð skjót-'
um vinsældum. Góðar veitingar, lipur
þjónusta, lágt verð — og opið fyrir allar
aldir!
BÝÐUR NOKKUR BETUR!
----
Edward Heath, forsætisráöherra Breta bauö Ólaf Jóhannesson, forsætisráöherra hjartanlega velkominn i Downingstræti númer tiu i gærmorgun (UFI-mynd)
Fundur Ólafs Jóhannessonar og Edwards Heath í gær
Afturkippur í viðræðurnar eftir
fund Heaths með útgerðarmönnum
TK—Reykjavik — Svo viröist
sem brezkir útgeröarmenn beiti
mjög áhrifum sinum til aö koma i
veg fyrir, aö brezka rikisstjórnin
gefi eftir í fiskveiöideilunni viö
islendinga. Viröast áhrif brezkra
útgeröarmanna á afstööu rikis-
stjórnar Edward Heaths mjög
mikil, ef marka má gang viö-
ræöna forsætisráðherra islands
og Bretlands, þeirra Edward
Heathsog Ólafs Jóhannessonar, i
gær. Aö sögn ólafs Jóhannes-
sonar, forsætisráöherra, kom
aftur kippur i viðræöurnar eftir
að Heath haföi átt fund meö full-
trúum brezkra útgeröarmanna
um þau efnisatriöi, sem fram
höföu komið á fundum forsætis-
ráöherranna i gærmorgun. Þeir
ræddu saman frá kl. 10.45 til kl. 1
i gærdag en komu aftur saman
til fundar kU 5 siödegis. Þá hafði
Heath setið fundi með útgeröar-
mönnum og var þá komið annaö
hljóð i strokkinn.
Timinn átti simtal viö Ólaf
Jóhannesson, forsætisráöherra,
kl. 6 i gærdag að loknum siöari
viðræðufundi þeirra Edwards
Heaths, forsætisráðherra Breta i
gær. Ólafi Jóhannessyni, for-
sætisráðherra, sagðist svo frá:
Fundur okkar Heaths hófst kl.
10.45 og ræddumst við fyrst við
einslega nokkra hrið en siðan
voru til kallaðir embættismenn
okkar. Þessar viðræður stóðu til
kl. 1, en þá var gert hlé á þeim og
Var embættismönnum falið að
kanna nánar viss atriði, sem
fram höfðu komið i viðræðum
okkar Heaths. Minir fulltrúar i
þeirri athugun voru þeir Hans G.
Andersen. Hannes Jónsson, og
Niels P. Sigurðsson.
Ég verð að segja það, að mér
fannst Edward Heath allur af
vilja gerður til að reyna að finna
þann flöt á málinu, sem gæti orðið
að bráðabirgðasamkomulagi til
lausnar deilunni. Fóru viðræður
okkar mjög vinsamlega fram og
hafði skapazt gott andrúmsloft
okkar á milli.
Kl. 2 e.h. voru svo fulltrúar
brezkrar togaraútgerðar og fisk-
iðnaðar boðaðir á fund með Heath
og munu þeir hafa setið á fundi
fram eftir degi. Kl. 5 siðdegis
hittumst við Heath svo aftur. Var
þá greinil. af viðbrögðunum, að
viðhorfin höfðu breytzt verulega
við fundinn með útgerðarmönn-
Framhald á bls. 23.
Riðuveiki í sauðfé færist í vöxt
Riðuveiki barst
hingað til landsins
með innfluttum hrút-
um eftir miðja 19. öld.
Frá þeim tíma hefur
mismunandi mikið
borið á veikinni. Ekk-
ert lyf er til og veikist
kind af riðuveiki, er
henni dauðinn vis.
Veikin er misjafn-
lega skæð á þeim bæj-
um þar sem hún
finnst. Sums staðar
veikjast aðeins fáar
kindur, sérstaklega
þar sem þess er gætt
að fjarlægja jafnharð-
an þær sem veikjast.
Annars staðar geta
um 20-30% fjárins
veikst á einu ári.
Páll Agnar Pálsson
yfirdýralæknir, hefur
staðið fyrir rannsókn-
um á veikinni hér á
landi, og i seinni tið i
náinni samvinnu við
erlenda vísindamenn.
Veikin hefur lengst
af verið bundin við
ákveðna bæi i fáum
sveitum á Norður-
landi, en virðist hafa
Framhald á bls. 23.