Tíminn - 16.10.1973, Blaðsíða 19
Þriöjudagur 16. október 1973. TÍMINN_______________________________________________________________________________T9
GEGN
GOTT
GEGN
í HM
□ rdalshöllinni.
munurinn yrði
léku mest fyrir sjálfa sig, og
gerðu lítið til að opna fyrir
öðrum. Þaö er greinilegt, að
það er ekki nóg að hafa lið
eingöngu skipaö langskyttum,
það þarf einnig að liafa leik-
menn i liðinu, sem leika fyrir
liðið.
Bezti maður islenzka liösins
var óiafur Jónsson, sem var
mjög góður I vörninni og trufl-
aði oft sóknarleik itaiska Iiðs-
ins. Hann skoraði flest mörk-
in, eða sjö, tvö ineð lang-
skotum, eitt af linu, eitt með
gegnumbroti og þrjú úr hrað-
upphlaupum. Hörður Sig-
marsson, hinn ungi Icikmaður
úr Haukum, kom einnig vel
frá leiknum. Það er greinilegt,
að þarna er mikið efni á ferð-
inni, leikmaður sem á eftir að
leika fjölmarga landsleiki.
Hann skoraði f jögur mörk, eitt
með langskoti, eitt með
gegnumbroti og tvö úr lirað-
upphlaupum. Annars skoruðu
þessir leikmenn: Ólafur 7,
Hörður 4, Axel Axelsson 3(öll
viti), V'iðar Simonarson 3 (tvö
viti), Einar 2, Jón Iijaltalin 2,
Gunnsteinn 2, Auðunn 2 og Jón
Karisson eitt. §OS
AUDUNN ÓSKARSSON.....sést hér verða sér úti um eitt af vitunum, sem hann var svo iðinn viö I
leiknum.
HÖRÐUR SIGMARSSON....á leiðinni að marki.
VIÐAR SÍMONARSON....skorar eftir að hafa brotizt I gegnum vörnina.