Tíminn - 16.10.1973, Page 5

Tíminn - 16.10.1973, Page 5
Þriðjudagur 16. október 1973. TÍMINN 5 TÆKI SEM SEGIR SJÖ Þér finnst nú kannske, að hér sé dálítið einkennilega að orði komist, en málið skýrist. — Bæði er það, að menn eru að verða hálfþreyttir á SEX(!?) eftir allt það SEX tilstand, sem yfir hefur gengið síðustu miss- eri, og eins er hitt, að SJÖ er mjög þýðingarmikið í sambandi við tæki þetta, eins og reyndar öll GRUN- DIG sjónvarpstæki. Ástæða þess er sú, að við gefum viðskiptavinum okkar kost á að sannreyna mynd- og tóngæði GRUNDIG sjónvarpstækjanná i einmitt SJÖ daga án endanlegra skuldbindinga. Við vitum sem er, að allir sjónvarpstækjasalar lýsa kostum tækja sinna æði fjálglega fyrir væntanlegum viðskiptavin- um, og getur því verið erfitt fyrir menn að átta sig á hlutunum. Þess vegna tökum við af skarið og bjóð- um fólki SJÖ daga skilyrðislausan skilarétt (þú getur jafnvel skilað tæki, ef þér finnst, að það passi ekki i stofuna hjá þér, þegar til kemur), og viljum við á þennan hátt veita viðskiptavinum okkar tækifæri ti! að sannreyna fullyrðingar sölumanna okkar um á- gæti GRUNDIG sjónvarpstækjanna. Myndskýrleiki og tóngæði eru auðvitað mikilvæg atriði, en við gleymum heldur ekki hinu, að ending og örugg fram- búðar afnot hafa ekki síður gildi. Við getum að vísu ekki boðið SJÖ ára ábyrgð á GRUNDIG sjónvarps- tækjunum, en hins vegar bjóðum við ÞRIGGJA ára ábyrgð, eða þrefalt lengri.ábyrgð, en nokkur annar sjónvarpstækjasali býður. — Er nokkru við þetta að bæta? NESCO HF LEIÐANDI FYRIRTÆKI Á SVIÐI SJÓNVARPS-, ÚTVARPS- OG HLJÓMTÆKJA. LAUGAVEGi 10. SÍMAR: 19150 - 19192

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.