Tíminn - 16.10.1973, Page 10

Tíminn - 16.10.1973, Page 10
10 TÍMINN Þriöjudagur 16. október 1973. Raddir ungra manna Leó E. Löve: HAFNARFJARÐARVEGURINN Ekki veit ég hvort ráða- mönnum um vegagerö hefur þótt allri byggö sunnan Reykjavikur fullkomlega þjónað hvað samgöngur varö- ar eftir aö Reykjanesbraut var lögð, eða þeim þykir um- bætur i umferðarmálum þar fremur mega sitja á hakanum en önnur aðkallandi verkefni. Vissulega vil ég trúa þvi, að siöari ástæðan sé sú sanna, en hvernig sem þessu er farið tel ég ástæðu til að fjalla ögn um málið. Þar sem vegamál umrædds landshluta eru umfangsmikið umfjöllunarefni og nú loks örl- ar á úrbótum á Suðurnesjum ætla ég i þessum dálkum að- eins að fjalla um fjölfarnasta vegarkafla allra þeirra vega, sem frá Reykjavik liggja — Hafnarf jarðarveginn. Umferöarþungi á umræddri leið — milli Hafnarfjaröar og Reykjavikur — er gifurlegur, stundum nær óslitin röö farar- tækja frá bæjarmörkum Hafnarfjarðar að borgar- mörkum Reykjavikur. A þess- ari leiö veröur furðu margt til tafa, vegurinn er hvergi breið- ari en ein akrein i hvora átt, brekkur eru margar og brýr mjóar. Svo er hitt alveg aug- ljóst, að ekki er reiknaö meö þvi að nokkur gangimeðfram- veginum, að undanskildum stuttum spotta, sem teljast má innanbæjarleið i Hafnarfirði. En hvaö veldur ástandinu og hvaö er til úrbóta? Sannast að segja hef ég ekki fundiö aðra sennilegri ástæðu til athafnaleysis en peninga- leysi, sem alls staðar virðist hiö sigilda svar við spurning- um sem þessum. Alla vega er skortur á landrými ekki mikiö vandamál, það sjá allir, sem fara þessa leið. Það sem gera þarf viröist hins vegar liggja alveg i augum uppi, einkum eftir aö hinn nýi Suöurlands- vegur, með sinum sérstöku akreinum fyrir hægfara um- ferð var opnaður. Sé aftur á móti hugsað til umbóta, sem yröu til frambúðar, má hugsa sér bflabrýr á nokkrum stöð- um. En nú skulum við, lesandi góður, hugsa okkur aö viö sé- um aö aka frá Hafnarfirði til Reykjavikur og velta fyrir okkur þvi, sem okkur finnst umferðin gefa tilefni til. Viö skulum bara hafa það eitt hug- fast, að löngum hefur þaö ver- ið talið erfitt aö þræöa mjóa veginn... 1 upphafi ferðarinnar erum við ósköp fegin þvi aö vera ekki að koma úr Norðurbæn- um i Hafnarfirði, þvi aö þá er eins vist aö við værum aftast I löngu röðinni við veginn. Hvaö skyldi annars valda þvi að þetta nýja hverfi fær ekki eins finar brýr og þjóna umferð nýju hverfanna i Reykjavik? Það verður þó svipað að stærð. En viö megum nú ekki vera að þvi aö hugsa um það, viö erum rétt að komast út fyrir bæjarmörkin og nú sjáum við niður i Engidalinn, en hér er það sem Reykjanesbraut sameinast Hafnarfjaröar- veginum. Einmitt þegar viö erum að láta frihjóla niður brekkuna tekur stór vörubill hlaöinn gjalli af stað af Reykjanesbrautinni. Þarna er nokkur halli upp I móti og við höfum hér með orðið okkur úti um trygga en hægfara leiö- sögn alla leiö til höfuöborgar- innar, nema við séum svo heppin, að unnt sé að fara fram úr, en það má þó ekki gera fyrr en komið er á beina veginn að Arnarnesi. Nú, á leiðinni upp úr Engi- dalnum, höfum við nægan tima til að hugsa. Við verðum bara að hafa gluggana vel lok- Leó E. Löve. aöa, þvl aö stybban frá puð- andi vörubilnum er megn. Okkur kemur sjálfsagt I hug, aö hvergi á 50-100 metra vegarkafla á landinu hrjóti ökumönnum jafn mörg blóts- yrði af vörum og hér. Það eru nefnilega ekki bara vöru- bilarnir, sem fara hægt hér upp, heídur er að sjálfsögöu erfitt fyrir alla biia að ná um- talsverðum hraöa úr kyrrstöö- unni við stanzskiltiö, upp brekkuna. En upp komumst viö og niö- ur næstu brekku, Hraunsholts- hæðina, ökum við með vax- andi hraða. Mikið erum við fegin að nýju „umferðar- mannvirkin” I brekkunni skuli ekki tefja okkur nema þegar viö ökum I gagnstæða stefnu viö þá sem við nú ökum. Hins vegar fer ekki hjá þvi,að við kviöum þvi nokkuð aö þurfa að þræða þessa torfæruleið ef við skyldum þurfa að fara suður- eftir I hálku. En þar sem brekkan sú arna er vega- geröarsnillingum að sjálf- sögðu eins kunn og okkur, hljóta þeir að luma á ein- hverju hálkumeðali, þvi að jafnvel þeir hljóta að vita, að þaö er stundum enn erfiöara aö aka krókaleiðir i hálku en beina braut! Okkur dettur svo sem ekkert sérstaktihug þann spotta sem eftir er I gegn um byggðina þarna I Garðahreppnum. En strax og henni sleppir má sjá blessuð börnin úr Arnarnesinu og frúrnar, sem ekki eiga „búðabil”, arka á mjórri mal- borinni ræmu meöfram vegin- um, með djúpan skurð á aðra hlið, þunga og hraða umferð á hina. Og þegar komið er að mjóum brúm, verður að sæta lagi og skjótast inn á akbraut- ina, en það getur orðið löng biö og alls ekki hættulaust að skjótast yfir brú, þegar um- feröarhraðinn á götunni er 60 km /klst. Ein brekka enn, og við sjá- um niður i Kópavoginn. Þessi brekka,sem við höfum nú kom- izt klakklaust upp, er ein hál- asta brekkan á leiðinni á vetr- um. En liklega hefur aldrei komið til tals aö breikka veg- inn þarna og ekki er heldur að þvi er virðist mikill áhugi á aö hjálpa Arnarnesbúum til að komast inn á Hafnarfjaröar- veginn, liklega hugsa ráða- menn sem svo, aö þeir sem þar búa eigi svo kraftmikla bila, að þeir geti bara „tekiö sjensinn”! Við nálgumst nú Kópavog- inn niöur Arnarneshálsinn. Fram undan er enn ein brú — þaö hefur engu verið eytt til aö hafa hana óþarflega breiða og fótgangendur geta sjálfsagt haft handriöið alveg fyrir sig, (geta t.d. æft linudans) — það er að segja ef einhver bilstjór- inn hefur ekki einmitt rennt bil sinum á það, eins og virðist vera i tizku þarna. Enn ein bilalest biöur á Fifuhvammsvegi eftir að komast inn á Hafnarfjaröar- veginn. En þetta er orðin svo vanaleg sjón, að við kippum okkur ekki upp við það. Aö lokum nálgumst við mann- virkin I Kópavogi, þar sem bæjarfélag reynir af veikum mætti aö bægja hættu frá hin- um mörgu börnum sfnum og greiða um leið fyrir umferð- inni. Hinni þröngu leið er nú lokiö og hérna er það sem for- ráðamenn fara óðum að gleyma. En ef þeir klippa nú þennan greinarstúf út úr blað- inu, geta þeir rifjað upp eins oft og þeir vilja. Þótt þessi hugsaða ökuferð okkar hafi verið I gamansöm- um dúr, þá var það ekki sizt gert meö það i huga, að fá þig, lesandi góður, til að fylgjast meö alla leið. Og vonandi ertu mér sam- mála um þaö, að þarna a.m.k. sé þörfin fyrir vegabætur brýn, svo brýn, að ekki megi bfða. Ef svo er ekki, staldraðu þá viö á þeim stöðum, sem ég hef nefnt og ihugaðu málið. Þaö gerir ekkert til þótt nýju vegirnir frá Reykjavik til ann- arra landshluta séu hafðir i huga um leið. Hver veit nema við eigum svo eftir að sjá stórvirkar vinnuvélar leysa vandann að vori? KOSIÐ I NEFNDIR Á ÞINGINU í GÆR — Bjarni Guðnason úr öllum nefndum neðri deildar — nema einni A fundum i gær i sameinuðu þingi og I báðum deildum voru kjörnar fastanefndir þingsins. Nokkrar breytingar uröu á nefndaskipan frá þvi i fyrra. Sæti Björns Jónssonar ráðherra, (SFV) tóku eftirtaldir þingmenn: Bjarni Guðbjörnsson (F) I Sam- göngunefnd, Björn Fr. Björnsson (F) i Landbúnaðarnefnd, Helgi Seljan (AB) i Sjávarútvegsnefnd, Páli Þorsteinsson (F) i Félags- málanefnd, Geir Gunnarsson (AB) I Heilbrigðis- og trygginga- nefnd og Asgeir Bjarnason (F) i Menntamálanefnd. 1 neðri deiid urðu þessar breytingar: Hannibal Valdimarsson (SFV) tók sæti Karvels Páimasonar (SFV) i Samgöngunefnd og einnig sæti Vilhjálms Hjálmarssonar (F) i Landbúnaðarnefnd. t Féiags- máianefnd og Menntamálanefnd tók Hannibal Vaidimarsson sæti Bjarna Guðnasonar, en Vilhjálm- ur Hjálmarsson (F) tók sæti Bjarna i Iðnaðarnefnd og Jón Skaftason (F) tók sæti I Alls- herjarnefnd. Bjarni Guðnason er nú þvl aðeins I einni nefnd, þ.e. Heilbrigðis- og trygginganefnd i sinni deild. Breytingar I nefndum sameinaðs þings urðu þessar: t stað Bjarna Guönasonar i Utanríkisnefnd kom Magnús T. Ólafsson (SFV), sem aðaimaður, en hann var áður varamaöur i nefndinni, sem Hannibai Vaídi- marsson skipar nú. Steingrimur Hermannsson (F) kemur i stað Asgeirs Bjarnasonar (F) I At- vinnumáianefnd og Hannibal Valdimarsson (SFV) tekur sæti Karvels Pálmas. (SFV) i sömu nefnd. Enn ein breyting varö á nefndaskipan, Ingólfur Jónsson (S) tók sæti Gunnars Thoroddsen (S) i Iðnaðarnefnd neðri deiidar. I sameinuðu þingi: 1. Fjárveitinganefnd: Agúst Þor- valdsson (F), Ingvar Gislason (F), Vilhjálmur Hjálmarsson (F), Geir Gunnarsson (AB), Karvel Pálmason (SFV), Jón Arnason (S) Matthias Bjarnason (S), Steinþór Gestsson (S) og Jón Armann Héðinsson (A). 2. Utanrikismálanefnd: Aðal- menn: Eysteinn Jónsson (F), Þórarinn Þórarinsson (F), Gils Guðmundsson (AB), Magnús Torfi ólafsson (SFV), Jóhann Hafstein (S), Matthias A. Mathie- sen (S), Gylfi Þ. Gislason (A), Varamenn: Jón Skaftason (F), Steingrimur Hermannsson (F), Magnús Kjartansson (AB), Hannibal Valdimarsson (SFV), Geir Hallgrimsson (S), Friðjón Þórðarson (S), Benedikt Gröndal (A). 3. Atvinnumálanefnd: Steingrim- ur Hermannsson (F), Björn Páls- son (F), Hannibal Valdimarsson (SFV), Ragnar Arnalds (AB), Ingólfur Jónsson (S), Pétur Sigurðsson (S), Pétur Pétursson (A). 4. Allsherjarnefnd: Björn Fr. Björnsson (F), Jón Skaftason (F), Jónas Arnason (AB), Bjarni Guðnason, Lárus Jónsson (S), Ragnhildur Helgadóttir (S), Stefán Gunnlaugsson (A). Þá var kjörið i þingfarakaups- nefnd og eiga eftirtaldir sæti i henni: Agúst Þorvaldsson (F), Bjarni Guðbjörnsson (F), Björn Jónsson (SFV), Jónas Arnason (AB), Gunnar Gislason (S), Sverrir Hermannsson (S), Eggert G. Þorsteinsson (A). i efri deild: 1. Fjárhags- og viðskiptanefnd: Bjarni Guðbjörnsson (F), Páll Þorsteinsson (F), Ragnar Arn- alds (AB), Björn Jónsson (SFV), Geir Hallgrimsson (S), Magnús Jónsson (S), Jón Armann Héðins- son (A). 2. Samgöngunefnd: Asgeir Bjarnason (F), Páll Þorsteinsson Framhaid á bls. 23 Á ALÞINGII gær voru lögð fram tvö lagafrumvörp og þrjár þings- ályktunar tillögur. Stjórnarfrumvarp til staðfestingar á bráða- birgðalögum Bráðabirgðalög þessi voru sett 26. júni i sumar og fjalla um framhald banns við botnvörpu- og flotvörpuveiðum til loka þessa árs. Frumvarpið var lagt fram I fyrra, en komst ekki i gegn vegna anna og þvi voru bráðabirgða- lögin sett I sumar. Bannið hefði að öðrum kosti fallið niður 1. júli 1973. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um tollskrá Bjarni Guðnason leggur fram þetta frumvarp, og fjallar það um, að svipta ráðherra og sendi- ráðsstarfsmenn hlunnindum I sambandi við bilakaup. Tillögur til þingsályktana: Um stofnun Sjó- minjasafns: Flutningsmenn eru Gils Guðmundsson og Geir Gunnars- son. Tillagan er á þessa leið: Alþingi ályktar aö fela rikis- stjórninni að hefja nú þegar, I samráði við þjóðminjavörö, undirbúning að stofnun sjóminja- safns, Skai leita eftir samvinnu við Hafnarfjarðarbæ um hentugt landssvæði fyrir slikt safn, svo og um byggingu þess og rekstur. Um aukinn stuðning við varan- lcga gatnagerð I þéttbýli og ryk- bindingu vega. Flutningsmenn eru Helgi Seljan og Jónas Árnason. Aðal- efni: Alþingi ályktar að skora á rikisst jórnina að gera þegar i staö róttækar ráðstafanir til þess að auövelda sveitarfélögum að standa að varanlegri gatnagerð. Stefnt verði að gerð 5 ára fram- kvæmdaáætlunar á sviði varan- legrar gatnagerðar, sem taki til allra þéttbýlisstaða með 200 ibúa eða fleiri. Um öryggismál tslands Flutningsmenn eru fimm þing- menn Alþýðuflokksins. Hún fjallar um það hvort Island geti orðiö óvopnuð eftirlitsstöð I sam- bandi við Nato, en síðar á vegum S.Þ., og hvort Islendingar geti með fjárhagslegri aðstoð Nato komið upp sveit fullkominna en óvopnaðra eftirlitsflugvéla svo og nauðsynlegum björgunarflug- vélum. —hs—

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.