Tíminn - 16.10.1973, Page 20

Tíminn - 16.10.1973, Page 20
20 TÍMINN Þriöjudagur 16. október 1973. Sigmundur Ó. Steinarsson skrifar um ensku knattspyrnuna: Leeds vann upp tveggja marka forskot Leic- ester City Áhangendur Burnley rifjuðu upp gamlar endurminningar. Liðið fylgir fast d eftir Leeds í toppbardttunni Macari settur á sölulista Billy Bremncr, hinn baráttu- glaði fyrirliði Leeds var held- ur betur i essinu sinu á laugar- daginn, þegar Leeds mætti Leicestcr. Bremner dreif félaga sina áfram með dugn- aði slnum og hann skoraði einnig jöfnunarmarkið gegn Leiccster. I.eicester byrjaði vel og komst i 2:0 gegn Leeds á heimavelli sinum. Á 10. min scndi Frank Worthington knöttinn i netið og á 19. min. bætti Alan Birchenall öðru marki við við gcysileg fagnaðarlæti hinna 37 þúsund áhorfenda, sem komu að sjá leikinn. Leeds varekki á þeim buxunum að gcfast upp, og var Bremner i broddi fylking- ar. Hann átti mikinn þátt i fyrra marki Lceds, sem Mikc Jones skoraði og siðan jafnaði hann sjálfur 2:2. Og Lccds var nær þvi að vinna leikinn, það var landsliðsmarkvöröurinn snjalli Peter Shilton, sem kom i veg fyrir sigur toppliðsins. Hann varði oft snilldarlega i ieiknum og sýndi það, að hann verður Pólverjum erfiður á Wambley annað kvöld I heimsmeistarakeppninni. Þjálfari Póllands, sagði fyrir stuttu, að það væru þrir leik- menn i enska landsliðinu, sem hann væri hræddur við, það væru þeir Peter Shilton, Alan Clarke og Martin Chivcrs, cn tveir þeir siðarnefndu eru mjög markasæknir framlinu- spilarar. En hvað um þaö, við skulum nú lita á úrslitin i Eng- landi á laugardaginn og spjalla um þau i stuttu máli. Birmingham—Wolves 2-1 Burnley—QPR 2-1 Chelsea—Ipswich 2-3 Everton—West Ham 1-0 Leicester—-Leeds 2-2 Man.Utd.—Derby 0-1 Newcastle—Man. City 1-0 Norwich—Coventry 0-0 Southampton—Liverp. 1-0 Stoke—Sheff. Utd. 1-2 Tottenham—Arsenal 2-0 Tommy Docherty, hinn snjalli framkvæmdastjóri Manchester United, hefur nú sett Lou Macari á sölulista, en það er ekki langt siðan að Docherty keypti þennan litla miðherja frá Celtic á 200 þús. pund. Macari hefur þjáðst af heimþrá og hann hefur heldur ekki fallið inn i United-liðið. Docherty batt miklar vonir við þennan snjalla skozka landsliðsmann, en hann hefur litiö dugað hjá United og hefur hann skorað mjög fá mörk. Macari hefur einnig verið erfiður og nú fyrir stuttu neitaði hann að leika með United-liðinu. Þá sprakk blaðran og Docherty sagðist ekkert hafa við leikmenn að gera, sem færu ekki eftir sett um reglum og þeim agaregl- um, sem hann setti. Manchester United lék gegn Derby á laugardaginn á Old Trafford. Heppnin var ekki með United gegn hinu geysi- sterka Derby-liði. T.d. áttu leikmenn United skot i stangir og þverslá — knötturinn vildi alls ekki i netið fara. En þegar Derby-liðið nær sér á strik, þá geta fá lið i Englandi staðizt þvi snúning, og það geta leik- menn United sætt sig við. Derby lék vel á laugardaginn og sigurinn var sanngjarn. Það var Kevin Hector, sem skoraði eina mark leiksins, strax á fjórðu minútu. Og það voru fleiri lið i rauð- um búningum, sem töpuðu á laugardaginn. Arsenal átti slakan leik gegn nágrannalið- inu Tottenham, og það er nú orðið óskiljanlegt, hve þessu fræga liði sem hefur valinn mann i hverju rúmi, hefur gengið illa á þessu keppnis- timabili. Það er greinilega eitthvað meira en litið að hjá „barónunum frá London”. Það var ekki fyrr en undir lok leiksins, að Tottenham tryggði sér sigur. Alan „gamli” Gilze- an kom Spurs á bragðið með góðu marki og stuttu seinna bætti fyrirliðinn Martin Peters öðru marki við og innsiglaði þar með góðan sigur Totten- ham. „Rauði herinn” frá Liver- pool heimsótti hafnarborgina frægu Southampton, sem er á suðurströnd Englands. Dýrlingarnir sýndu skemmti- lega knattspyrnu á The Dell og þegar þeir eru i ham, er vont að heimsækja þá. Mark Dýrlinganna skoraði hinn markheppni Mike Channon, 102. mark hans fyrir Southampton, úr vitaspyrnu, sem var dæmt á Larry Loyd. Það er eitthvað að hjá Liver- pool, eins og hjá Arsenal. En það má einnig taka það til greina, að meistararnir na sér ekki alltaf á strik. — Liver- pool-liðið, sem tryggði sér Englandsmeistaratitilinn á glæsilegan hátt sl. keppnistimabil, leikur nú ekki eins góða knattspyrnu og þá. Burnley heldur sinu striki. A laugardaginn átti liðið ekki i vandræðum með Lundúnalið- MIKE CHANNON... skoraði mark Dýrlinganna úr vitaspyrnu gegn Liverpool. ið Queens Park Rangers á Turf Moor. Burnely leikur tvimælalaust skemmtilegustu knattspýrnuna á Bretlands- eyjum, sumir leikmenn Burn- ley eru hreinir galdramenn með knöttinn, — geta gert nær allt við hann, nema að láta hann tala. Nulty skoraði fyrsta mark leiksins undir lok siðari hálfleiksins og þá brut- ust út mikil fagnaðarlæti og stemmning komst i áhorfend- ur. Hinir tryggu áhangendur Burnley, fengu svo sannarlega að rifja upp gamlar endur- minningar á laugardaginn. Á 16. min. siðari hálfleiks jafna Q.P.R. 1:1 og það var enginn annar en fyrrum Turf Moor- kóngurinn Tómas, sem Brunley seldi til Q.P.R. á sl. keppnistimabili, sem jafnaði fyrir Lundúnaliðið. Thomas var mikið átrúnaðargoð i Burnley og þessi ungi snjalli knattspyrnumaður var látinn fara frá félaginu, sem hann unni svo mikið, enda rifjaðist upp fyrir áhangendum þess félags setningin, sem Thomas sagði fyrir tveimur árum: „Mitt hjarta er Burnley”, ég gæti ekki hugsað mér annað félag”. En áfram með leikinn. Stuttu eftir jöfnunarmarkið, náöu leikmenn Burnleys snilldarsókn, sem hinn ungi Ray Hankin, batt enda á, með góðu marki, og sigurinn var skoraði tvö góð mörk fyrir Ipswich, þegar staðan var 1:1. Fyrsta mark .Ipswich skoraði Bryan Hamilton, en Tommy Baldwin, jafnaði. John Hollis tók siðan að minnka muninn i 3:2. Coventry tapaði dýrmætum stigum i Norwich, þegar liðið gerði jafntefli við heimamenn. Þetta var eina jafnteflið i 1. deildinni á laugardaginn. Malcolm MacDonald, eða „Super Mac” eins og hann er kallaður, er nú heldur betur á skotskónum, hann skorar mark i nær hverjum leik fyrir Newcastle. Og það kom eng- um á óvart, þegar fréttist að Newcastle hefði unnið Manchester City 1:0, að hann hefði skorað markið. Skotinn Joe Harper leikur svipað hlutverk hjá Everton og „Super Mac” hjá Newcastle. Hann skoraði sigurmark Everton gegn West Ham og þar með er Lundúna liðið komið á botninn i ensku 1. deildinni. Þvi bjuggust fáir við á yfirstandandi keppnistimabili. Það er greinilegt, að það er ekki Lundúna-ár i ár. fyrir Sheffield United á heimavelli sinum. Þar með skauzt Sheff. United upp i ni- unda sæti i deildinni. Staðan er nú þessi I 1. deild: Burnleys 2:1. Brunley fylgir Leeds 11 8 3 0 23-7 19 nú fast á eftir Leeds i barátt- Burnley 11 7 3 1 21-11 17 unni um toppinn og hefur hlot- Derby 12 6 3 3 16-10 15 ið 17 stig en Leeds 19. Coventry 12 6 3 3 14-9 15 Birmingham vann sinn Everton 11 5 4 2 13-9 14 fyrsta sigur á keppnistimabil- Newcastle 11 5 3 3 18-13 13 inu, þegar Úlfarnir komu i Liverpool 11 5 3 3 12-10 13 heimsókn. Markakóngur Eng- Leicester 11 3 7 1 13-11 13 lands og Wolves, John Sheff.Utd. 11 5 2 4 14-13 12 Richards, skoraði fyrsta mark Ipswich 11 4 4 3 18-19 12 leiksins og einnig sitt fyrsta Arsenal 11 5 1 5 13-14 11 mark á keppnistimabilinu. Man. City 11 4 3 4 13-14 11 Hann skoraði 33 mörk sl. Southamptonll 4 3 4 14-17 11 keppnistimabil. En ekki dugði QPR 11 2 6 3 15-16 10 þetta fyrsta mark hans, þvi að Tottenham 11 4 2 5 14-15 10 Trevor Franchis jafnaði fyrir Chelsea 11 3 2 6 16-17 8 heimamenn og Burns skoraði Stoke 11 1 6 4 11-13 8 sigurmarkið. Gary Sprake, Man. Utd. 11 3 2 6 9-13 8 markvörðurinn sem Birming- Wolves 11 3 2 6 13-19 8 ham keypti frá Leeds fyrir 100 Norwich 11 1 5 5 9-16 7 þús. pund., meiddist i leiknum Birmingham 11 1 3 7 10-23 5 og þurfti að yfirgefa leikvöll- West Ham 11 0 4 7 10-20 4 „SUPER MAC”.... er heldur betur á skotskónum um þessar mundir. Hann skoraði sigurmark Newcastle. inn. Miðherjinn Bob Latchford, sem er þekktur fyrir að skora mikið af mörk- um, fór i markið og hélt þvi hreinu. Menn könnuðust við hið unga og efnilega Ipswich-lið á laugardaginn. þegar það kom i heimsókn á Stamford Bridge, heimavöll Chelsea. Ipswich vann sanngjarnan sigur 3:2. Það var David Johnson, sem var maður leiksins, hann Úrslitin i 2. dield urðu þessi: Bolton—Aston Villa i-o Cardiff—Blackpool i-o Luton—Swindon 2-1 Middlesbro—Hull i-o Millvall—Bristol C. 0-2 Notts Co.—Fulham 2-1 Orient—Nottm. For. 2-1 Oxford—C. Palace 1-1 Preston—Sunderland í-o Sheff. Wed,—Portsmouth 1-2 WBA—Carlisle 1-1

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.