Tíminn - 16.10.1973, Síða 21

Tíminn - 16.10.1973, Síða 21
Þriðjudagur 16. október 1973. 21 Nokkrar af konumyndum Flóka. Sýning Alfreðs Flóka SB-Reykjavík. — Alfreð Flóki opnaði á sunnudaginn sýningu i Bogasal Þjóðminjasafnsins. Sýnir hann 37 myndir, rauö- og svartkritarmyndir og penna- teikningar. Mikil aðsókn var að sýningunni á sunnudaginn og i gær og höfðu 16 myndir selzt sið- degis i gær. Verð myndanna er frá 20 til 37 þúsund krónur. Siðasta sýning Alfreðs Flóka hérlendis var fyrir þremur árum. Hann mun sýna i vor i Kaup- mannahöfn, en hann hefur tals- vert unnið við myndskreytingar bóka undanfarið. Sýningin i Bogasalnum verður opin til 21. október frá kl. 14 til 22 daglega. Það leynir sér ekki, að eitthvað athyglisvert hangir á veggnum. (Timamyndir Gunnar). Það var margtum manninn i Bogasa'num á sunnudaginn. ■V Námskeið í Evrópurétti í Háskóla íslands Lagadeild Háskólans efnir til námskeiðs i Evrópurétti i október. Aðalkennari verður dr. H.G. Schermers prófessor, for- stöðumaður Evrópustofnunar Háskólans i Amsterdam, og mun hannhafa kennslu 22.-27. október, siðdegis alla dagana. Aður eru ráðgerðir 2 umræðufundir til undirbúnings. Námskeið þetta er einkum ætlað lögfræðingum og laganemum. Nánari upplýsingar veita Þór Vilhjálmsson prófessor og Páll Skúlason bókavörður, Lögbergi, og taka þeir einnig við þátttökubeiðnum. Áttavita- nómskeið fyrir rjúpna- skyttur og ferðamenn Eins og undanfarin 7 ár, gengst Hjálparsveit skáta i Reykjavik fyrir námskeiði i meðferð átta- vita og landabréfa fyrir rjúpna- skyttur og ferðamenn. Einnig verða veittar leiðbeiningar um fr ðafatnað og ferðaútbúnað al- mennt. Ætlunin er að halda tvö námskeið, ef næg þátttaka fæst. Hið fyrra 17. og 18. okt. n.k., og hið siðara 24. og 25. okt. Námskeiðin taka tvö kvöld, fyrra kvöldið er kennsla, en sið- ara kvöldið eru leiðbeiningar um ferðaútbúnað og klæðnað, og sið- an er farið i stutta verklega æf- ingu aðeins út fyrir bæinn, og munu bilar sveitarinnar sjá um þann akstur. Námskeiðin verða haldin i Armúlaskóla, Armúla 10- 12, og hefjast kl. 20.00. bæði kvöldin. Þátttökugjald er kr. 200.00, og er innifalið i þvi akstur til og frá verklegum æfingarstað. Nánari upplýsingar er hægt að fá i Skátabúðinni við Snorrabraut, simi 12045. Þar liggur einnig frammi þátttökulisti fyrir þá, sem ætla að taka þátt i námskeið- unum. Þótt námskeið þessi séu eink- um ætluð rjúpnaskyttum, eru all- ir velkomnir, sem áhuga hafa á að læra notkun áttavita og landa- bréfa, eða vilja hressa upp á og bæta kunnáttu sina i þessum efn- um. Undanfarin ár hafa nám- skeið þessi verið fjölsótt, og er það von okkar, að svo verði einnig nú, þvi það orkar ekki tvimælis, að góð kunnátta i meðferð ásamt réttum útbúnaði getur ráðið úrslitum um afdrif ferða- eða veiðimanns, ef veðraskipti verða snögglega. tslenzk vetrarveð- rátta hefur oft leikið ýmsa veiði- menn grátt og valdið aðstand- endum þeirra, sem heima biða, miklum kviða og áhyggjum. Það ætti þvi einnig að vera áhugamál fjölskyldunnar að eiginmaður, sonur eða bróðir, sem til veiða fer, hafi þá kunnáttu, sem til þarf til að komast leiðar sinnar, hvernig sem veður skipast. Hcskólafyrirlestur um lögfræði Dr. Knud Waaben, prófessor i refsirétti við Háskólann i Kaup- mannahöfn og formaður danska refsilagaráðsins, er væntanlegur I boði Háskóla Islands. Ifann flytur tvo fyrirlestra. Sá fyrri verður miðvikudaginn 17. oklóber n.k. kl. 17.30. i I. kennslustofu Háskólans. Fjallar fyrirlesturinn um efnið: „Nyere udviklings- linier i kriminalpolitikken”. Siðari fyrirlesturinn verður föstu daginn 19. október kl. 11.00 árdegis i stofu 102, Lögbergi. Fjallar sá fyrirlestur um efnið: „ökónomiske forbrydelser”. öllum er heimill aðgangur.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.