Tíminn - 28.10.1973, Page 4
Hæsta bygging á Norðurlöndum
t Stokkhólmi er talin vera hæsta
bygging Norðurlanda. Hún er
kölluð Kaknás-turninn og er 508
feta hár. I 426 feta hæð er veit-
ingahús, sem þykir skemmti-
legt og sérstætt. Fyrir utan það
bezta i mat og drykk, þá hefur
það upp á að bjóða fallegasta
útsýni, sem hugsazt getur út
yfir allan Stokkhólm og eyjar og
sund. Kaknásturninn er mikið
auglýstur i ferðamannapésum
og auglýsingum. Ef þið eruð á
ferð i Stokkhólmi, þá getum við
upplýst ykkur um það, að til
þess að komast þangað er gott
að taka vagn nr. 69 frá Norr
malmstorginu. Veitingahúsið
er opið frá klukkan 9 á morgn-
anna og til miðnættis. Að
gangur 2 krónur fyrir fullorðna
og 1 króna fyrir börn. Og sagt er
að þarna gangi hraðasta lyfta
Evrópu upp og niður allan
daginn. Óneitanlega virðist út-
sýnið vera geysilega fagurt
þarna, en liklega er ekki nota-
legt að vera þar i roki og rign-
ingu, svo maður tali nú ekki um
þrumuveður — já eða jarð-
skjálfta!
Sunnudagur 28. október 1973.
Lagt upp í langferð
Tveir rauðskinnar, Chris og
Jack, ákváðu nýlega að leggja
af stað riðandi i kring um hnött-
inn. Ferðin hófst i Paris,
og áður en lagt var af stað fengu
þeir sér góða máltið i veitinga-
salnum i Effelturninum. Hér
eru rauðskinnarnir svo komnir
á hestbak fyrir neðan turninn,
og með þeim má sjá aðstoðar-
menn þeirra með farangurs-
vagninn. Góða ferð!
Yul Brynner, sem nú er tæplega
fimmtugur, hefur ekki mikið
kemið fram i kvikmyndum
undanfarin ár. Mörg ár eru
siðan hann fór að starfa á
vegum Flóttamannastofnunar
Sameinuðu þjóðanna, og honum
fellur starfið vel, að sögn. —
Þetta er starf, sem aldrei tekur
enda segir hann, að minnsta
kosti ekki á meðan til eru tvö
lönd í heiminum, sem berjast.
Þegar Yul Brynner hætti að
leika i kvikmyndum fluttist
hann frá Hollywood. Hann
fluttist til Evrópu með konu
sinni og dóttur. Hann gerði það
vegna þess, að hann vildi hlifa
dóttur sinni við að þurfa að
vaxa upp i hinu óheilnæma
andrúmslofti kvikmyndaheims-
ins.
Starf sem ekki
tekur enda
DENNI
DÆMALAUSI