Tíminn - 28.10.1973, Page 28

Tíminn - 28.10.1973, Page 28
28 TÍMINN Sunnudagur 28. október 1973. Frægar byggingar: Undanfarið hefur þetta hús verið meira á vörum fólks en nokkru sinni áður. Það er ekki aðeins vegna þess að mesta stórveldi heimsins er stjórnað þaðan, en einnig vegna þess, að húsið er heimili eins umdeildasta forseta Bandarikjanna fyrr og siðar, Richards Nixon. Hér er sagt nokkuð frá sögu Hvita hússins og lifi þvi sem lifað er innan veggja þess. Hve lengi viltu biöa eftir fréttunum? VÍSIR flytur helgar- fréttirnar á mánu- dogum. Degi fyrr en önnur dagblöð. ^ (gerist áskrifendur) ÞAÐ STENDUR i grænuni garði mitt i hinni iðandi umferð Washingtonborgar — skinandi hvitt með hreinum, sigildum linum og griskum súlum. Það er hálffalið að baki blómstrandi runna og trjáa og umhverfis eru grænar sléttur. Á ytra borðinu virðist þetta gott dæmi um ró og friðsemd, en inni fyrir er eilif iðandi hringrás framkvæmda og finheit, sem hægt er að likja við það, sem gerðist á dögum sól- konunganna frönsku. Banda- rikjum Norður-Ameríku er sem sé stjórnað frá þessu húsi og það er hingað, sem mikilmenni heimsins koma til að leita eftir aðstoð og samstarfi, eða ræða um pólitisk deilumál við forsetann. Margir telja Bandarikjaforseta valdamesta mann heimsins, ekki vegna persónu sinnar, heldur embættisins, sem er hið æðsta i auðugasta landi heimsins. Fyrsta opinbera byggingin Þaðvar „faðir Bandarikjanna” George Washington, sem árið 1972 valdi hæðina við þorpið Georgetown við Potomac-ána, sem staðinn er byggja skyldi „Hús forsetanna” Það var einnig hann, sem saþykkti endanlega verðiaunatéikningu irska arki- tektsins James Hoban úr sam- keppninni um húsið. Hús forsetanna var fyrsta opinbera byggingin, sem reist var i hinu unga riki og það átti að vera miðdepill nýju höfuðborgarinnar, ásamt þinghúsbyggingunni, sem risa skyldi á Capitol-hæðinni. Til heiðurs fyrsta forsetanum var höfuðborgin skirð Washington. En George Washington er hinn eini af 37 forsetum Bandarikj- anna, sem aldrei bjó i Hvita húsinu. Kjörtimabil hans rann út og hann lézt áður en húsið var fullgert og stjórnin fluttist frá Philadelphiu til Washington. Gagnstætt þvi sem er með konungshallir og forsetabústaði i Evrópu, sem staðið hafa svo til óhreyfð frá byggingu, hefur Hvita húsið sifellt verið að breytast bæði að utan og innan fyrir tilstilli nýrra forseta, sem til skamms tima höfðu allfrjálsar hendur með hvernig þeir innréttuðu hibýli sin i húsinu. Forsetaibúðin var ekki alveg tilbúin, þegar John Adams, annar forseti Bandarikjanna flutti inn, 1. nóvember 1800. Það var kalt inni og rakt, engin húsgögn voru þar og veggirnir berir. Lýsingin var kertaljós og oliulampar og upphitunin eingöngu frá opnum eldstæðum. Það var ekki svo undarlegt, að fyrstu ibúarnir komust svo að orði, að þarna gætu búið tveir keisarar, páfi og Stór- Lama og haft hver sina hirð. Frú Abigail Adams notaði hinn ófull- gerða danssal (Austursalinn) sem þurrkherbergi fyrir stór- þvottinn sinn. Endurbygging Fjórtán árum eftir vigsluna brenndu enskir herir Hvita húsið til grunna, en þeir hertóku Washington 24. ágúst 1814. Þeir ensku kveiktu i öllum opinberum byggingum og það var aðeins stórrigning og þrumuveður, sem bjargaði þeim frá algjörri útrýmingu. Ytra múrverk Hvita hússins stóð uppi og það var látið mynda ramma um endur- bygginguna, sem var höfð mjög lik hinni fyrri að innan. Næstu hálfa aðra öldina bjuggu 26 forsetafjölskyldur i Hvita húsinu og það fór að láta allmikið á sjá. Þá var tekið til við að berja það og banka, byggt var við og rifið niður, boruð göt i veggi og grafinn kjallari undir — og i takt við timann varð það að vera, svo lagt var inn vatn, gasljós, holræsi, miðstöðvarhiti, rafmagn og búið til baðherbergi og sett inn loftræsting. Eftir allar þessar tilfæringar fór að braka og bresta i sam- skeytum hússins. Það var Truman forseti, sem fyrstur uppgötvaði það — januardag einn árið 1948, á meðan yfir stóð mikil veizla i bláa salnum. Þá sá hann aö stóra kristalsljósakrónan titr aði iskyggil. mikið. Sérfræðingar voru kallaðir til og dómur þeirra var á þá lund, að húsið hefði raunar átt að vera hrunið fyrir löngu. „Það stendur bara aí JT FVrstur meö ¥TI' fréttimar ^ i 1 ■■ i Svefnherbergi Lincoins er opinbert gestaherbergi, einkum fyrir er- le.nda þjóðhöfðingja, sem hljóta þann heiður, að fá að búa í Hvita hús- inu sjálfu, venjulega búa tignir gestir I Blair House.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.