Tíminn - 18.01.1974, Qupperneq 24

Tíminn - 18.01.1974, Qupperneq 24
SLS-IOHUU SUNDAHÖFN GBÐI fyrirgóóan mai ^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS 30 manns fórust af völdum óveðurs — margra til viðbótar saknað NTB-London — Meira en 30 manns fórust i ofsaroki i gær á Ermarsundi og beggja vegna þess. Atta skip fórust, tré rifnuðu upp með rótum og rafmagns og simalinur slitnuðu og lokuðu ak- vegum á austurströnd Bretlands. 011 áhöfn skipsins „Prosperity” frá Kýpur, átján manns, er talin af. Skipið sökk út af Guernseyju á Ermarsundi, en það strandaði á miðvikudagskvöldið og brotnaði i tvennt. I gærkvöldi höföu fundist 16 lfk. Atta menn drukknuðu og þriggja er saknað af danska skip- inu „Marc Enterprise”, sem hvolfdi undan Devonströnd. Fjór- ir fiskimenn drukknuöu i höfninni i franska bænum Brest, er bát þeirra hvolfdi, og 16 ára stúlka fauk I sjóinn af skipi rétt utan við Brest. Libanska skipið „Cordelia” og „Marta” frá Kýpur lentu I nauð- um við strönd Hollands og einn maöur drukknaði af „Mörtu”. Utan við Emmerich við Rin sökk litill hollenskur bátur og skip- stjórinn og ársgamalt barn hans drukknuöu. Eiginkonan synti i land, ófrisk á áttunda mánuði og var lögð inn á sjúkrahús með taugaáfall. Eins manns er saknað eftir árekstur tveggja skipa á Elbu. 1 Widelburg á Walcher- en-skaga brotnaði iþróttahöll i spón. Hótuðu að myrða móður og þrjú börn NTB-Belfást — öþekktir hryðju- verkamenn rændu i gær n-irskum mótmælanda og hótuðu að myrða konu og þrjú börn. Tveimur klukkustundum eftir að mann- ránið var framið, hringdi maður, sem ekki sagði til nafns, til dag- blaðs i Belfast og sagði, að lög- reglan myndi finna lik á af- skekktum flugvelli. FYRSTA LOÐNAN KOMIN Á LAND skipin flykkjast d miðin StiLAN frá Akureyri landaði fyrstu loðnunni á þessari vertið á Kskifirði i gær, uin 300 tonnum, scin fcngust i 2 köstum seinni- partinn i fyrrinótt. Börkur NK fékk þá einnig 150-160 tonn og er nú sanitals koininn með eitthvað á 3. Iiundrað tonn. Aðrir bátar sem þarna voru fengu eitthvað minna, cn þcir voru Magnús NK, Kylkir NK og Kldborgin, sem koin undir birtinguna. Að sögn Andrésar Finnboga- sonar hjá loðnunefnd lögðu 15 skip af stað á miðin i gærmorgun, eftir þvi sem hann vissi bezt, og reiknaði hann með þvi, að mjög mörg skip væru i þann veginn að leggja af stað. 1 gærdag urðu skipin vör við nokkra loðnu, en hún stóð djúpt og var heldur dreifð, að sögn Hjálm- ars Vilhjálmssonar fiskifræðings. Þeir á Arna Friðrikssyni ætluðu næst að leita I suðvestur, nær landinu.en fram að þessu hafa þeir aðallega haldið sig 45-65 mil- ur frá landi. Hjálmar sagði, að á þvi væri ekki vafi, að mikið magn væri i þessari göngu og taldi jafnvel tlmabært að endurskoða fyrri umsagnir sinar um, að loðnu- magnið yrði minna á þessari ver- tið en i fyrra. Allgott veður var á miðunum i gærdag. Spáð hafði brælu, en ekk- ert virtist ætla að verða úr þvi. —hs— Maðurinn sem hringdi, kallaði sig kaptein Black og kvaðst vera I frelsissamtökum Ulsters. Stórir hópar lögreglumanna hófu þegar leit á flugvellinum og við hann, en I gærkvöldi hafði enn ekkert lik fundizt. Maðurinn, sem rænt var, er tal- inn vera Robert nokkur Bell, sem I fyrra var ákærður fyrir ólög- lega meðferð skotvopna. Hann hefur gengið laus siðan, en veriö undir eftirliti. Talið er, að öfga- samtök mótmælenda gruni hann um samvinnu við lögregluna. 1 Portadown, sem er um 50 km sunnari við Belfast, réðust þrir menn inn á heimili frú Roshin Fox, ásökuðu hana um samstarf viö lögregluna og hótuðu að myrða hana, ef hún hefði ekki yfirgefiö N-lrland innan tveggja sólarhringa. Arásarmennirnir bundu frú Fox, rökuðu af henni hárið, börðu hana i kviðinn og köstuðu einu barninu i vegg. Sið- an hótuðu þeir að myrða alla fjöl- skylduna, en fóru við svo búið. Laxórvirkjun vill annast virkjun Kröflu KINS og kunnugt er er Laxár- virkjun sá aðiii sem allt frá fyrstu tið hefur annazt orkuöflun fyrir hið svonefnda Laxársvæði, sem nær frá Dalvik og austur til Raufarhafnar. Af þessum sökum var þvi Laxárvirkjun eðlilega sá aðili, sem tók að sér að reisa og reka fyrstu jarðgufuaflstöðina á ts- landi, sem framleiðir raforku til almenningsnota. Nú þegar lagt hefir verið fram frumvarp til laga um frekari jarðgufuvirkjun á svæðinu, þ.e. virkjun við Kröflu, þá er ekki minnzt á Laxárvirkjun i þvi sam- bandi, heldur væntanlegri Norðurlandsvirkjun falið verk- efnið, en undirbúningur að stofn- Framhald á bls. 8. Enn vanfar tvo erlenda skákmenn Helzt er rætt um Hartstone, Haman, Vestrinen, Jacobsen og Pfleger EFTIR rúmar tvær vikur hefst alþjóðlega skákmótið i Reykja- vik, þ.e. mánudaginn 3. febrúar. Af sjö erlendum skákmönnum, sem keppa eiga, hefur enn ekki tekizt að tryggja tvo. Að sögn Hólmsteins Steingrimssonar, rit- ara Skáksambands islands, telur Larsen sig alls ekki geta tekiö þátt i mótinu. Var reynt við hann I annaö sinn á miðvikudag, og var það Friörik Óiafsson, sem talaöi viö hann. Þeir sem' helzt er nú reynt að ná i eru Ilartstone, brezkur, og Ilaman I Danmörku. Einnig eru þeir á dagskrá Vestrinen frá Finnlandi og Jacobsen frá Dan- mörku, ef Haman fæst ekki. Auk þess hefur v-þýzki skákmaðurinn Pfleger komið til greina. — Bent i önnum vegna skólaskákar Að sögn Friðriks Ólafssonar getur Bent Larsen ekki komið á mótið vegna þess, að hann er önn- um kafinn við samningu bóka eða „kúrsusa” i sambandi við skák i dönskum skólum. — Hann sagði, að það eina, sem hróflað gæti við sér, væri mót i Mexikó, sem verður haldið i marz n.k. Þar eru góð verðlaun i boði. Ég hef einnig ætlað mér á þetta mót, en ekki enn fengið skriflega staöfestingu frá þeim. I ljós kom, að hann haföi ekki fengiö stað- festingu heldur, og þótti það held- ur skritið. Þeir eru rólegir I tiö- inni Suðurlandamenn, sagði Frið- rik. Vestursalurinn teppalagður? Þaö var leiður og fáránlegur prentvillupúki, eða öllu heldur missögn, i blaðinu um daginn, þar sem sagt var, að alþjóðaskák- mótið yrði liklega haldið á Hall- veigarstöðum (!). Auðvitaö átti það að vera „á Kjarvalsstöðum”. Þetta er raunar ákveðið, og hefur Skáksambandið tekið vestursal hússins á leigu i febrúarmánuöi. Það má segja, að þetta hús, Kjarvalsstaðir, sé ekki alveg ókunnugt erlendis, þar sem fund- ir þeirra Nixons og Pompidou fóru þar fram i sumar. Einkum hafa þó farið þar fram listsýning- ar, svo sem eðlilegt er. Hvort sýn- ingarstjórn Kjarvalsstaða litur á skákina sem listgrein, vitum við hins vegar ekki. Viðargólf er i þessum sal, sem all hátt lætur i, þegar gengið er um. Hefur þvi verið talað um að teppaleggja salinn fyrir skákmót- ið. —Step NIXON ALDREI ÓVINSÆLLI NTB-Washington— Meirihluti þeirra Bandarikjamanna, sem hafa myndað sér skoðun, eru á þvi, að nú sé svo komið fyrir Nixon, að hann sé ekki lengur fær um að stjórna land- inu svo vel fari. Það eru 47% af landsmönnum, samkvæmt Louis-Hauris könnun sem gerð var dagana 7. til 10. janúar. Aðeins 42% telja, að Nixon eigi að gegna embætti áfram, en 11% hafa ekki tekið afstöðu til málsins. I fyrstu skoðana- könnun, sem stofnunin birtir á árinu og tekur til allra Banda- rikjanna, kemur i ljós, að vin- sældir Nixons hafa aldrei ver- iðeins litlar og nú. Aðeins 30% finnst hann sinna starfi sinu nægilega vel, en 68% gefa hon- um slæma einkunn. Þetta er i fyrsta sinn, sem meirihluti i skoöanakönnun vill að hann segi af sér embætti. I könnun i nóvember voru tölurnar 45 á móti 44, Nixon i vil. Heathóákveðinn ? NTB-London Edward Heath, for- sætisráðherra Breta, hafði enn ekki ákveðið i gær, hvort hann myndi rjúfa þing og efna til nýrra kosninga til að reyna að leysa vandamál atvinnuveganna i land- inu. Sérfræðingar hafa áður talið, að ef til kosninga kæmi, yrðu þær haldnar 7. eða 14. febrúar, en það þykir nú varla koma til mála lengur. Heath sagði i neðri málstofu brezka þingsins i gær, að ekki væri útilokað, að haldnir yrðu ný- ir fundir með TUC-leiðtogum til að ræða kröfur námaverkamanna um hærri laun. Umræður um málið fara fram á þinginu á mánudaginn, en það kemur i veg fyrir, að hægt verði að rjúfa þing nægilega snemma fyrir kosning- ar i fyrri hluta febrúar. Ekki er nauðsynlegt fyrir Heath að efna til kosninga fyrr en 1 júli á næsta. ári. Skoðana- kannanir, sem gerðar hafa verið undanfarið, sýna, að ihalds- flokkurinn bæri sigur úr býtum, ef kosningar færu fram nú. Vínarviðræðunum miðar ekkert: Allir halda fast við sína skoðun NTB-VIn — Samningaviðræður um fækkun herja i MiðEvrópu hófust að nýju i Vin i gær. Ekkert bendir til þess, að gengið hafi saman með aðilum, siðan þeir tóku sér jólaleyfi fyrir fimm vik- um. Vestrænir fulltrúar segja Nato og Varsjárbandalagið enn halda fast við þær tillögur, sem lagðar voru fram i upphafi viðræðnanna 30. október sl. Formaður tékknesku nefndar- innar, Klein, sagði á blaða- mannafundi i gær, að tillaga Nato, um að aðeins skyldi fækka i herjum Bandarikjanna og Sovét- rikjanna, væri órökrétt og óraun- hæf. Hann sagði ennfremur, að styrkleikahlutföllin, eins og þau væru nú, væru góður grundvöllur undir stöðugleika i Evrópu. Nato heldur þvi fram, að Var- sjárbandalagsrikin hafi 150 þús- und hermönnum fleira i Evrópu en Nato, og að skriðdrekaher þeirra sé einnig mun stærri. Engar nýjar tillögur voru lagð- ar fram á fundinum i gær. Nitján lönd taka þátt i umræðunum, og nokkur eiga áheyrnarfulltrúa. ALLT UR SKORÐUM í UMFERÐINNI — ef snjó festir á götum Reykjavíkur Klp-Reykjavik. Þar sem umferð er mikil, eins og hér I Reykjavik og nágrenni, þarf oft Htiö útaf að bera til að allt fari úr skorðum i umferðinni. Ef snjó festir á götunum, verð- ur borgin eins og hálf lömuö, þvi það er eins og enginn geti komizt ferða sinna nema á sinum eigin bil. Lagt er af stað, hvernig sem viðrar og hvernig svo sem billinn er útbúinn. Yfirleitt endar ferðin með þvi, að billinn festist i næsta skafli, eða kemst ekki lengra fyr- ir öðrum bil, sem er fastur á miðri götunni. t gærmorgun kyngdi niður snjó á Suðurlandi, og urðu fiestar göt- ur þungfærar i Reykjavik og næsta nágrenni. Þá var um tima ófært úr Breiðholtshverfi og ill- fært úr Arbæjarhverfi, en það lagaðist, er á daginn leið og búið var að koma á brott biLum, sem festst höfðu hér og þar. Mikið var um árekstra I gær- morgun eða „klór”, eins og lög- reglan kallar það. Voru það engir stórárekstrar, en mikið um smá- óhöpp, og hafði lögreglan i Reykjavik afskipti af 15 til 20 árekstrum á skömmum tima. Auk þess var i mörgum tilfellum alls ekki kallað á lögreglu. Slys varð sem betur fer aðeins i einu tilviki. Þegar tveir bilar rák- ust á á Laugarásvegi, slasaðist kona, sem var farþegi i öörum þeirra. Loðnuverð óákveðið enn — Verðlagsráð sjávarútvegsins svarar FFSÍ FUNDUR var hjá Verðlagsráði sjávarútvegsins i gær, en ekki tókst að ganga frá loðnuverðinu. Annar fundur verður i dag, og enn liefur ekki veriö tekin ákvörðun um að visa málinu til yfirnefndar, sem myndi að likindum tefja málið eitthvað. Eins og kunnugt er hélt Far- manna- og fiskimannasamband Islands fund i fyrradag með yfir- mönnum á loðnuskipum. Voru á þeim fundi samankomnir yfir 40 yfirmenn, og samþykkti fundur- inn nokkrar ályktanir, þar sem Framhald á bls. 8.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.