Tíminn - 01.02.1974, Page 5
Föstudagur 1. febrúar 1974.
TÍMINN
5
0 Skákmótið
viðtalinu, sem hann er sagð-
ur ætla að hafa við Sæmund
Pálsson, vin og lifvörð
Fischers, meðan á Islands-
dvölinni stóð. Og ameríska
koniakið handa Friðrik virt-
ist vera helber „blaða-
mannauppspuni.”
Báðir hafa þeir Vasili
Smyslov og Davið Bronstein
helgað sig skáklistinni og
tekið þátt I fjölmörgum mót-
um. — 011 skákmót eru erfið,
sagði Smyslov, þegar við
spurðum hann, hvort þetta
mót hér I Reykjavik yrði
honum ekki leikur einn.
Smyslov kvaðst stundum
flytja fyrirlestra um skák, en
sagði Bronstein bæði skrifa
um skák og kenna hana. —
Ég reyni að gera skáklistina
að skemmtun fyrir
almenning, sagði Bronstein.
Smyslov varð heimsr
meistari 1957-1958. Bronstein
er ekki siður snjall
skákmaðuij þótt hann hafi
ekki hlotið heimsmeistara-
titil, enda gerði hann jafn-
tefli við Botvinik I heims-
meistarakeppni 1951.
Erlendu skákmennirnir
búa á Hótel Holt, meðan
skákmótið stendur yfir. Niu
Islendingar taka þátt i
þvi,einn Norðmaður og sex
skákmenn frá Austantjalds-
löndum. A laugardag verður
dregiðum röð
skákmannanna, en 1 og 16
tefla saman i fyrstu umferð.
Loðnan:
Bræla í gær og fyrrinótt
— komið gott veður undir kvöldið og skipin byrjuð að kasta
—hs—Reykjavik. — Bræla var á
loðnumiðunum við Ingólfshöfða i
fyrrinótt og fram eftir deginum I
gær, og höfðu mjög fá skip til-
kynnt um afla. Um kl. 19 i gær var
heildaraflinn orðinn 91 þús. lestir
og vestasti löndunarstaðurinn var
Keflavik, en þangað fór Guð-
mundur RE með 770 lestir.
Frá kl. 19 i fyrradag og til
miðnættis tilkynntu þessi skip um
afla: Magnús 180, Þórkatla II.
220, Harpa GK 40, Jón Garðar 270,
Höfrungur III 230, Börkur 740 og
Ásgeir 300. Magnús, Jón Garðar
og Börkur munu hafa fengið afl-
ann úr hinni nýju göngu við
Eystra-Horn.
Eftir miðnættið tilkynntu tveir
bátar um afla, Jón Finnsson 300
lestir og Keflvikingur 130 lestir,
en seinni partinn i gær byrjuðu
bátarnir að kasta aftur, enda
komiðágætis veður. Fyrsti bátur-
inn til að tilkynna um afla var
Harpa RE, 250 lestir, sem hún
Virkjanir í Skaga-
firði að sumri
A FUNDI sinum þ. 15. janúar s.l.
samþykkti bæjarstjórn Sauðár-
króks eftirfarandi:
„Bæjarstjórn Sauðárkróks
skorar á orkumálaráðherra og
þingmenn kjördæmisins að beita
sér fyrir, að virkjunarfram-
kvæmdir á Norðurlandi vestra
verði hafnar á næsta sumri, til
þess að bæta úr núverandi orku-
skorti á svæðinu.
Bendir bæjarstjórnin á, að full-
komin hönnun liggur fyrir á
virkjun Svartár við Reykjafoss og
Þverár við Skeiðsfoss og þurfi
þær framkvæmdir þvi ekki að
taka lengri tima en nemur af-
greiðslufresti vélabúnaðar.
Bæjarstjórn hvetur til þess, að
jafnframt verði hraðað rannsókn-
um, hönnun og undirbúnings-
framkvæmd virkjunar i Jökuls-
ám I Skagafirði, eðaannarrar.
stórrar virkjunar á Norðurlandi,
sem leysir á hagkvæman hátt úr
orkuþörf á Norðurlandi i framtið-
inni.
Bæjarstjórn leggur til, að Raf-
orkumálanefnd Norðurlands
vestra fái heimild til þess að láta
rannsaka virkjunarmöguleika i
Jökulsám I Skagafirði.”
ætlaði með til Neskaupstaðar.
Þetta var um kl. 19 i gær, og
bjuggust þeir hjá loðnunefnd við
þvi, að tilkynningarnar færu að
berast i stórum stil hvað úr
hverju.
Veiðisvæðið, sem bátarnir voru
byrjaðir að kasta á seinni partinn
i gær, var um 20 sjómilur vestan
við Ingólfshöfða.
Bjarnarf jörður:
Flugmaður vísaði
á útigöngukindur
UM miðjan janúar fundust tvær
kindur frá Svanshóli i Bjarnar-
firði i svoncfndu Hvannastóði
scm er torfær hliðarflái fram með
Goðdalsá, milli Hestaklcifargils
og Svartagils, sem er fram úr
Goðdal. Var þetta ær með hrút-
lambi.
Daginn áður hafði Þórólfur
Magnússon flugmaður flogið
áætlunarflug að Gjögri, og kom
hann þá auga á kindurnar og lét
þegar vita um þær.
1 fyrstu var talið, að þær væru i
Sunnudal, og fóru menn frá
Svanshóli og Odda i Bjarnarfirði
að leita þeirra, en fundu ekki
neitt. Daginn eftir fengu þeir
Ingimundur á Svanshóli og
Baldur I Odda Kristján
Guðmundsson á Stakkanesi með
sig á vélsleða fram Sunndal og
yfir á Trékyllisheiði, og fundu
þeir þá kindurnar þar, sem áður
segir. Smágrastoppar voru þar,
sem kindurnar höfðust við, en
annars var iseyði allt i kringum
þær. Ærin var samt merkilega vel
á sig komin, en lambið orðið
grannt og nokkuð ullétið.
— Sú hjálp, sem flugmenn veita
mönnum og málleysingjum er
ómetanleg, segir Ingimundur á
Svanshóli, og vil ég sérstaklega
biðja Timann að færa Þórólfi
Magnússyni þakkir okkar, enda
er þetta ekki i fyrsta skipti, sem
hann visar okkur á fé fjarri
mannabyggðum.
verzlið á 5 hæðum í
-húsinu
husiö
kynnlr nýjasta sófasettlð
1. hæð: BYGGINGAVÖRUKJÖRDEILD: Veggfóður, málningarvör-
ur, gólfdúkar, veggdúkar, gólfflísar, veggflísar og aðrar byggingar
vörur í miklu útvali.
TEPPADEILD: Innlend og erlend teppi í miklu úrvali að ógleymd-
um rýjamottum á lækkuðu verði.
Eldúsborð og stólar í fjölbreyttu úrvali, einnig gjafavörur.
III. hæð: HÚSGAGNADEILD: Borðstofusett, símaborð, skrifborð,
skatthol, kommóður, sófasett og sófaborð.
V. hæð: HUSGAGNADEILD: Svefnherbergishúsgögn i miklu úr-
vali, hjónarúm, einsmannsrúm, svefnbekkir, svefnsófar, hlaðrúm-
in vinsælu, snyrtiborð, fataskápar, rúmteppi, rúmfatnaður o.m.fl.
IIIJÖN LOFTSSON HF
bhmi Hringbraut 121 @ 10 600
opið tii ki.io
II. hæð. RAFTÆKJADEILD: Rafljós í fjölbreyttu úrvali. Hraðsuðu-
katlar, brauðristar, vöfflujárn, djúpsteikingarpottar, hárþurrkur,
borvélar o.m.fl. Hér eru einnig Aton-ruggustólar og Atonsófasett-
in í miklu úrvali.
IV. hæð: HUSGAGNADEILD: Hér eru sófasett og sófaborð i
geysilegu úrvali að ógleymdum hvíldarstólunum.
Cafeterian á
IV. hæð er ávalt opin á verzlunartíma