Tíminn - 01.02.1974, Síða 24

Tíminn - 01.02.1974, Síða 24
Föstudagur 1. febrúar 1974. ULPUR g:-:ði fyrirgódan mat ^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS Ekki ástæða til að rengja Dean — hvað sem Nixon segir NTB-Washington — Leon Jaworski, rannsóknardómari Watergatemálsins, er ekki sam- mála Nixon og öðrum leiðandi mönnum innan repúblikana- flokksins um,að John Dean, fyrr- um lögfræðiráðunautur forset- ans, hafi logið, er hann skýrði frá samtölum sinum og forsetans sumarið 1972. Einn af nánustu samstarfs- mönnum Jaworskis, Richard Davis lögfræðingur, sagði i gær, að ekki væri nein ástæða til að ætla, að Dean hefði logið. Ekki eru heldur uppi neinar áætlanir um að sækja hann til saka fyrir meinsæri. Dean sagði á sinum tima, að hann hefði það á tilfinningunni, að Nixon hefði vitað um umfang Watergatemálsins löngu fyrr en i marz 1972. Dean hefur allan tim- ann haldið þvi fram, að segul- bandsupptökur af samtölunum myndu staðfesta þetta. Siðar kom þó i ljós, að ekki eru til neinar upptökur af þessum samtölum. Nixon hefur opinberlega mót- mælt framburði Deans og hefur einnig sýnt leiðandi repúblikön- um segulbandsspólur, sem eiga að sanna, að Dean ljúgi. Ekki fylgdi fréttinni, hvort viðkomandi repúblikanar fengu lika að hlusta á spólurnar. Við skulum bara gleyma Watergate — sagði Nixon í stefnuræðu sinni NTB-Washington — Nixon Bandarikjaforscti flutti árlega stefnuræðu sina i þinginu i fyrrinótt. Lagði hann þar áherzlu á, að hann ætlaði að sitja áfram i embætti, og mæltist mjög til þess, að stein- hætt yrði að rannsaka reiður Hvita hússins i sambandi við Watergate-málið. Nixon bað þingið og þjóðina að gleyma Watergatemálinu og snúa sér i staðinn að þvi að leysa aðkallandi innan- og utanrikismál. Hann lofaði þó að sýna samstarfsvilja við rannsókn, sem fram þarf að fara sem undirbúningur fyrir rikisréttarmálshöfðun gegn honum. Þingmenn fögnuðu mjög þeirri ákvörðun Nixons að að- stoða dómsmálanefnd full- trúadeildar þingsins. Þá kom Nixon með óvænt tíðindi i ræðu sinni, er hann sagði, að arabiskir leiðtogar hefðu lofað að halda fund i náinni framtið. um að aflétta oliubanninu á Bandarikin. Mörgum sinnum klöppuðu þingmenn ákaflega fyrir for- setanum á þeim 45 minútum, sem ræða hans tók, og tvisvar sinnum risu þeir úr sætum og fögnuðu. Viðbrögð þingmanna þóttu svo yfirmáta vinsamleg, að sérfræðingar eru farnir að ef- ast um, að til þess komi, að forsetanum verði stefnt fyrir rikisrétt. 70 þús. manns til ísraels í ár NTB-Jerúsalem — Rúmlega 14.700 Gyðingar hafa flutzt til israels,siðan striðið skall á i októ- bcr i fyrra. Meðan striðið stóð yf- ir, komu þangað 4200 sovézkir Gyðingar. Allt árið i fyrra fluttu 33.600 sovézkir Gyðingar til Israels, og voru þeir tveir þriðju hlutar af öllum þeim, sem þangað fluttust. Talið er, að i ár muni um 70.000 manns flytjast til Israels. 50 milljónir vinnu- daga hafa glatazt — í tíð brezku íhaldsstjórnarinnar mgunV.baráttunni Hrapaði í lendingu 90-100 manns fórust NTB-New York — Boeing 707- þota með 101 mann um borð hrapaði i gær, er hún var að undirbúa lendingu á Pago Pago á Samoa eyjum. Flugvélin var i eigu Pan American, og sagði talsmaður félagsins, að ekki væri vitað, hvort einhverjir hefðu farizt. 1 siöari fréttum sagði hins vegar, aö flugvélin hefði steypzt logandi til- jarðarog flest allir farizt. Mjög slæmt veður var á svæðinu, slag- Dularfulli ísraelinn steinþegir NTB-Kaupmannahöfn — Ég vil ekki tala við neinn, og sár min eru til komin af þvi, að ég gekk gegn- um gierrúðu, sagði dularfulli israelsmaðurinn, sem talið var, að stunginn hefði verið með hnffi á Kastrupflugvelli á þriðjudags- kvöldið. Hann neitaði hreinlega að segja lögreglunni nokkuð nema þetta, en enn hefur ekki tekizt að hafa uppi á brotinni rúðu á Nörrebro, en þar átti óhappið að hafa orðið. Lögreglan var þeirrar skoðun- ar i upphafi, að gerð hefði verið tilraun til að myrða manninn, en nú rlkir sú skoðun, að afbrýði- semi sé um að kenna. Að öllum likindum verður maðurinn send- ur heim til Israels. veður með þrumum. Óstaðfestar fregnir herma, að 10 manns hafi komizt lifs af. Vélin var á leið til Nýja Sjálands frá Los Angeles og átti að millilenda á Pago Pago. NTB-Singapore — Hópur manna, sem segjast tilheyra skæruliða- samtökunum japanska rauöa hernum, spréngdu i gær oliu- birðageymslu i Singapore og tóku sex gisla út i bát, sem var i gær- morgun á alþjóðasiglingaleið ut- an við borgina. Hótuðu þeir að drepa gislana og sjálfa sig með, FrBj—Reykjavik. Nú eru að hefj- ast framkvæmdir við gerð iþróttavallar á Höfn I Hornafirði. Hann á að vera á milli barnaskól- ans og nýja gagnfræðaskólahúss- ins á staönum. Búið er að mæla NTB-London — Búizt er við, að 269.000 kolanámumenn i Bret- iandi munu samþykkja með yfir- gnæfandi meirihluta að gera al- gjört verkfall i námunum. At- kvæðagreiðsla um verkfallstil- löguna hófst i gær og lýkur i dag. Þó er talið, að enn séu möguleikar á,að komið verði I veg fyrir verk- fallið, þar sem Heath hefur boðað leiðtoga námumanna og verka- lýðssambandsins á sinn fund i dag. fengju þeir ekki að fara frjálsir ferða sinna á brott. Talsmenn japanskra yfirvalda segja, að Palestinuskæruliðar séu við máliðriðnir. Margir arabiskir oliuráðherrar,. þar á meðal Yamani frá Saudi-Arabiu, voru staddir i Singapore, þegar látið fyrir vellinum, að sögn Aðalsteins Aðalsteinssonar, fréttaritara Timans á Höfn, og er ætiunin að ljúka við nokkurn hluta vallarins á þessu ári, þótt ekki verði honum lokið endanlega. Unnið er aö hönn vailarins undir stjórn Þorsteins Einarsson- ar, iþróttafulltrúa rikisins. Völlurinn á að vera af fullkom- inni stærð, og þar verður. meðal annars 400 m hlaupabraut. Iþróttavöllur sá, sem nú er á Hornafirði, er mjög ófullkominn, og nánast enginn iþróttavöllur, og er þvi gerð þessa nýja vallar mjög knýjandi. Miklar byggingaframkvæmdir hafa staðir yfir á Höfn undanfar- Tilgangurinn með þvi að draga stór verkalýðsfélög inn i deiluna um laun kolanámumanna, er að sögn vel upplýstra heimilda sá, aö tryggja, að þær launahækkan- ir, sem kolanámumenn kunna að fá, verði ekki til þess, að aðrir verkamenn geri sömu kröfur. Kolanámuverkamenn hafa krafizt 30 til 50% launahækkana, en það sprengir þann ramma, sem rlkisstjórnin hefur sett sér var til skarar skriða. Enginn slasaöist I sprengingunni. Stjórn Singapore ákvað siðdegis I gær aðleyfa mönnunum að fara frjálsum. öryggi gislanna væri fyrir öllu. Lögð var áherzla á, að enginn hefði meiðzt i aðgerðunum og skemmdirnar á oliutönkum Shell væru litlar. ið. Þar eru nú 35 ibúðarhús i smiðum, 5 raðhús, og auk þeirra hafa verið reist þar 20 Viðlaga- sjóðshús, eins og fram hefur kom- ið i fréttum áður. Tvö fjölbýlis- hús er enn fremur verið að byggja þar. Vegna þessara byggingafram- kvæmda er mjög mikil þörf á auknu skipulagi á Höfn, svo hægt sé að halda áfram enn frekari nýbyggingum. Er unnið að skipu- laginu á vegum skipulagsstjóra rikisins, og er það i framhaldi af þvi svæði, sem nýbyggingarnar eru nú að risa á. Land mun vera fremur kostnaðarsamt i vinnslu sem byggingarland vegna litils yfirborðshalla og mikils jarðdýp- is. Enn fundur með sótta- semjurum f dag SJ-Reykjavik. Fundi lauk kl. hálf átta i gærkvöldi. Alþýðusambandsins og 1 dag starfa nefndir og siðan Vinnuveitendasambands ts- verður nýr fundur með lands með sáttasemjurum sáttasemjurum kl. fjögur. Hryðjuverk í Singapore: Sprengdu olíugeyma og tóku sex gísla Gerð fullkomins íþrótta- vallar hafin ó Hornafirði Stjórn rikisreknu kolanámanna hefur með samþykki rikis- stjórnarinnar boðið námumönn- um upp á 16,5% launahækkun. Alls hafa 50 milljónir vinnu- daga tapazt vegna verkfalla i Bretlandi,siðan ihaldsstjórnin tók við völdum I júni 1970. Þetta kem- * ur fram I opinberri skýrslu, sem birt var i gær. Það er um það bil helmingi meira en á öllu valda- tlmabili verkamannaflokks- stjórnarinnar, sem stóð frá 1964 til 1970. A sl. ári áttu 1,5 milljónir verkamanna hlut að 2.854 verk- föllum, sem leiddu til rúmlega 7 milljóna tapaðra vinnudaga. Er það lægsta tala síðan 1969 og minna en helmingur af meðaltali þriggja næstu ára á undan. 1972 glötuðust 24 milljónir vinnudaga, sem er hæsta tala siðan 1924. Flest verkföllin 1973 urðu i bila- iðnaðinum. Verkföll I kola- iðnaðinum jukust um 34% i fyrra'. Blaðburðar fólk óskast Tlmann vantar fólk til blaðburðar i eftirtalin hverfi: Suðurgötu, Laugar- nesveg, Stórholt, Stangarholt, Háteigs- veg, Skeiðarvog, Sogaveg, Kapla- skjólsveg og Meistaravelli. Ennfremur vantar SENDLA fyrir hddegi SÍMi 1-23-23

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.