Fréttablaðið - 03.12.2004, Síða 8
3. desember 2004 FÖSTUDAGUR
ÁTVR segir að rekstur vínbúðar í Hveragerði hafi ekki verið boðinn út:
Stórfréttir fyrir bæjarstjórann
MÁLAFERLI „Þetta eru stórfréttir
fyrir okkur að þetta hafi ekki ver-
ið útboð,“ segir Orri Hlöðversson,
bæjarstjóri í Hveragerði, um
staðhæfingu forsvarsmanna
Áfengis- og tóbaksverslunar rík-
isins að rekstur vínbúðar í bænum
hafi aldrei verið boðinn út.
„Þetta var meðhöndlað ná-
kvæmlega eins og útboð hér. Það
er alveg ljóst að þetta ferli verður
að vera gegnsærra en það hefur
verið fyrst þeir halda þessu fram
núna. Þetta er mjög illa unnið hjá
þeim. Ef þetta var ekki útboð
hvers vegna var þá verið að óska
eftir því að fulltrúi fjármálaráðu-
neytisins yrði viðstaddur þegar
tilboðin voru opnuð? Ég skil það
ekki.“
Orri segir að í ljósi þess að
þetta hafi ekki verið útboð sé eðli-
legt að spurt sé að því hver við-
miðin séu.
„Hvernig er gefið í þessum
málum? Áttu hinir sem sóttust
eftir þessari starfsemi á móti
Essó aldrei möguleika á að fá
reksturinn til sín? Fyrst ÁTVR
taldi sig ekki bundið af því að taka
lægsta tilboðinu, hvers vegna var
ekki haft samstarf við bæjarfé-
lagið? Það er ekkert óeðlilegt við
það að ríkisfyrirtæki taki þátt í
uppbyggingarverkefnum sveitar-
félaga.“ - th
SÝKINGAR Fornleifafræðingar eru
margir hverjir uggandi vegna
miltisbrands, sem kann að leynast
í jarðvegi hér á landi, að
sögn Steinunnar J. Kristjánsdótt-
ur fornleifafræðings. Megi leiða
líkur að því að svokallaðir álaga-
blettir, sem finnast víða um land,
séu einmitt nefndir svo eftir að
þar hafi verið huslaðar skepnur,
sem sýkst hafi af miltisbrandi.
Sigurður Sigurðarson dýra-
læknir hefur lagt á það áherslu, að
merkja þurfi svæði, þar sem milt-
isbrandssýktar skepnur hafi verið
urðaðar til að koma í veg fyrir að
hróflað verði við sýktri jörð.
Komi miltisbrandssýktar dýra-
leifar upp á yfirborðið geti sýkl-
arnir borist í dýr og menn.
„Fólk er byrjað að ræða þessa
hættu sín í milli núna,“ sagði
Steinunn. „Þetta hefur meðal ann-
ars verið rætt í sambandi við
þessa svokölluðu álagabletti sem
eru út um allt og við erum oft að
grafa í. Það er talið að þetta séu í
mörgum tilfellum staðir sem leif-
ar af miltisbrandi geti leynst í.
Þessar hugmyndir um álagablett-
ina eru oft fólgnar í því að skepn-
ur drepist af að bíta gras á þeim.
Margir vilja halda því fram, að
það hafi gerst í raun og veru og
hafi þá tengst miltisbrandi.“
Steinunn sagði að full ástæða
væri fyrir fornleifafræðinga að
hafa þessa hugsanlegu hættu í
huga. Álagablettirnir tengdust oft
rústum eða svæðum. Því væri
þetta enn varasamara fyrir forn-
leifafræðinga, sem oft væru að
vinna á slíkum stöðum.
Málið verður tekið upp á aðal-
fundi Fornleifafræðingafélagsins
sem verður á milli jóla og nýárs, að
sögn Steinunnar. Hún sagði að mál-
ið hefði ekki verið rætt formlega
áður, en nú væri kominn tími til.
„Við þurfum oft að grafa okkur
í gegnum yngri lög í jarðvegin-
um,“ sagði hún. „Sem dæmi má
nefna, að á Skriðuklaustri, þar
sem ég er að vinna núna komum
við niður á hrosshræ sem hafði
verið huslað í rústunum sem við
vorum að grafa í. Það sama gerð-
ist í Viðey. Þar var hræ af hrossi
sem hafði drepist og verið grafið í
rústunum. Það er því vissulega
ástæða fyrir okkur að velta þessu
fyrir okkur.“
jss@frettabladid.is
■ BANDARÍKIN
ORRI HLÖÐVERSSON
Bæjarstjóra Hveragerðis finnst röksemda-
færsla Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins
vera mjög veik.
KÍNA, AFP Tugir manna réðust á
skrifstofur borgaryfirvalda í
Tongchuan í Kína eftir að tilkynnt
var að 166 kolanámumenn hefðu
látist í gassprengingu í kolanámu.
Um 800 ættingjar og samstarfs-
menn hinna látnu efndu til mót-
mæla fyrir framan ráðhúsið og
kröfðust þess að fá að ræða við
embættismenn. Þegar engir slíkir
létu sjá sig réðust nokkrir til inn-
göngu.
„Þeir eru mjög reiðir. Þeir vilja
berja alla sem þeir sjá,“ sagði Yan
Mangxue, ritari kommúnista-
flokksins í nærliggjandi þorpi.
Hann var lokaður inni í bygging-
unni ásamt 25 embættismönnum
meðan mennirnir sem ruddust inn
brutu húsgögn og tækjabúnað. ■
Aðstandendur látinna:
Brutust inn í ráðhúsi
HORFT Á SKEMMDIRNAR
Reiðir mótmælendur brutu rúður þessa bíls.jólagjöf
Hugmynd að
fyrir hann
Smáralind
Sími 545 1550
Glæsibæ
Sími 545 1500
Kringlunni
Sími 575 5100
www.utilif.is
Deluxe álkerra
Afar sterk tvöföld
rörgrind. Vatnsbrúsi og
skorkortahaldari fylgja.
Verð áður 9.990 kr.
30% afsláttur.
Verð6.990kr.
Ambassador
kerrupoki
Sérlega vel hannaður
poki með mörgum vösum.
Verð áður 14.990 kr.
50% afsláttur.
Verð 7.490 kr.ÍSLENS
KA
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
2
66
32
12
/2
00
4
UPPGRÖFTUR
Fornleifafræðingar vilja, að svæði sem hugsanlega geta verið sýkt af miltisbrandi, verði
merkt. Myndin er ekki tekin í tengslum við fréttina.
Grunur um miltisbrand
í álagablettum hérlendis
Fornleifafræðingar leiða getum að því að miltisbrandur geti leynst í
svokölluðum álagablettum. Oft séu þeir kallaðir til vegna dýra sem hafi
drepist eftir að hafa bitið gras á þessum blettum.
„Innrásin í Írak - ekki í okkar nafni“
Söfnunarsími 90 20000 Söfnunarreikningur
1150-26-833 (kennitala: 640604-2390)
Þjóðarhreyfingin - með lýðræði
www.thjodarhreyfingin.is
GIFTAST SÍÐAR EN ÁÐUR Banda-
ríkjamenn eru talsvert eldri þeg-
ar þeir ganga í sitt fyrsta hjóna-
band nú en fyrir rúmum þrjátíu
árum. 1970 voru brúðir að meðal-
tali tæplega 21 árs og brúðgumar
rúmlega 23 ára. Nú eru brúðir
rúmlega 25 ára og brúðgumar 27
ára.
NÝTA EKKI EIGIN ÞJÓNUSTU Eng-
inn stjórnenda almenningssam-
göngukerfisins í Washington og
nágrenni notar neðanjarðarlestir
eða strætisvagna daglega sam-
kvæmt frétt Washington Post.
Meirihluti þeirra notar þjónust-
una aldrei eða gat ekki rifjað upp
hvenær þeir ferðuðust síðast með
lest eða strætisvagni.
8
JÓLATRÉ Í HVÍTA HÚSINU
Laura Bush sýndi fjölmiðlum í gær jóla-
skreytingarnar í Hvíta húsinu. Þar mátti
meðal annars sjá þetta mikla jólatré.
08-09 fréttir 2.12.2004 19:58 Page 2