Fréttablaðið - 03.12.2004, Blaðsíða 57

Fréttablaðið - 03.12.2004, Blaðsíða 57
45FÖSTUDAGUR 3. desember 2004 Það er ekki á hverjum degi sem manni berst ný hiphop-tónlist sem heillar mann að einhverju ráði. Oftast vilja menn fara sömu leið og gaurarnir í R&B-mynd- böndunum sem eru umvafnir hálf allsberum stúlkukindum, lúxus- bifreiðum, seðlum og flottheitin gjörsamlega skera mann í augun. Tónlistin sjálf er oftar en ekki mjög þunnur þrettándi og lítið sem ekkert í hana lagt. Bizzart býður hins vegar upp á mjög ferska strauma í sköpun sinni hvort sem litið er á tónlistina eða textasmíði. Á Ear Drung er ekki þetta dæmigerða „nigga- pull-tha-trigga“ eða „bitches'n hoes“-kjaftæði. Hér er oft á tíðum farið mjög smekklegar leiðir í gerð tónlistarinnar þar sem raf- og lifandi tónlist er fléttað saman og hugleiðingar Bizzart fljóta með. Í lögum eins og Stock Options On The Inner Recon- strucion of Man má t.d. finna breiða flóru af hljóðfærum sem skilar þéttari heildarútkomu. Ef raftónlistin hefði verið látin standa berskjölduð hefði þetta orðið frekar tómlegt. Það er einna helst þagnirnar sem eru mér ekki að skapi. Þær verða oft í lengra lagi þótt stund- um þjóni þær sínum tilgangi. Það er hins vegar tilraunamennskan sem ég fagna mest enda löngu orðið tímabært að stokka upp í þeirri gerilsneyddu hiphop-flóru sem endalaust dynur hvað hæst í heiminum. Bizzart er með skemmtilega sýn á hiphop og á Ear Drung heyr- ist glögglega að það er hægt að gera fullt af spennandi hlutum í þessari tegund tónlistar þó svo að yfirborðið sé jafn ónýtt og raun ber vitni. Bizzart er kjörinn lista- maður fyrir unnendur hiphops sem vilja heyra eitthvað öðruvísi. Smári Jósepsson Ekkert „bitches'n hoes“- kjaftæði BIZZART EAR DRUNG NIÐURSTAÐA: á Ear Drung heyrist glögglega að það er hægt að gera fullt af spennandi hlut- um í þessari tegund tónlistar þó svo að yfir- borðið sé jafn ónýtt og raun ber vitni. Bizzart er kjörinn listamaður fyrir unnendur hiphops sem vilja heyra eitthvað öðruvísi. [ TÓNLIST ] UMFJÖLLUN ■ SPIL „Næstum þriðjungur tveggja ára barna á Íslandi hefur lélegan járnbúskap eða litlar sem engar járnbirgðir í líkamanum, samkvæmt niðurstöðum nýlegrar rannsóknar. Inga Þórsdóttir, prófessors í næringarfræði við HÍ og forstöðumanns Rannsóknastofu í næringarfræði við LSH segir að líklegt sé að járnforði barna fari batnandi með breyttum áherslum í næringarráðgjöf. Engu að síður er járnskortur hjá ungbörnum margfalt algengari hér á landi en í nágrannalöndunum“ Morgunblaðið 02.12.2004 Járnþörf barna er skv. Manneldisráði Íslands: Ungbörn að hálfs árs aldri: 5 mg Börn hálfs árs til 6 ára: 8 mg Börn 7-10 ára: 10 mg Járnskortur meðal ungra barna Járn ætti ekki að taka inn um leið og mjólkur er neitt, mjólk getur dregið úr frásogi járns og komið í veg fyrir nýtingu þess. Järnkraft er bragðgóð járnmixtúra með tvígildu járni sem fer betur í maga en annað járn. Mixtúran er með sólberjabragð. Æskilegt er að ráðfæra sig við lækni áður en börnum eru gefin bætiefni. ná t t ú r u l e g a Jólaplatan Stúfur er nýkomin í búðir. Þar spila níu ungar hljóm- sveitir jólalög. Þrjú þeirra eru frumsamin; eftir Hermigervil, Hjaltalín og bob, en hin sex eru nýjar útgáfur af eldri lögum. Atli Bollason stendur fyrir út- gáfu plötunnar. Hann segir að hugmyndinni að plötunni hafi slegið niður í höfuðið á sér. „Það er stór tónlistarsena á Íslandi sem maður heyrir ekki í. Mig langaði til að heyra þessi bönd saman á einum diski. Það eru engar smá- skífur gefnar út hér á landi og því eru safnplötur eini vettvangurinn til að hlusta á þær,“ segir Atli. „Jólin voru að nálgast og mér fannst það góð hugmynd að fá böndin til að taka jólalög.“ Atli, sem er í hljómsveitinni Norton, á sjálfur eitt lag á plötunni sem nefnist Ristaðar kastaníur. Segir hann það melankólíska og naum- hyggjulega útgáfu af gömlu jóla- lagi. Upplag plötunnar er 300 eintök og mun allur ágóði renna óskiptur til Mæðrastyrksnefndar, sem m.a. hjálpar fátækum fjölskyldum að halda jólin hátíðleg. „Flytjendur gefa alla vinnu sína og hér eru engar týndar milljónir,“ segir Atli og hlær. Hann segist aldrei hafa ætlað að græða á útgáfunni. „Það hefði verið hálf illa gert, bæði gagnvart hljómsveitunum og alþýðu lands- ins. Það er fullt af öðru fólki sem hefur meira við peningana að gera en ég.“ ■ Níu hljómsveitir á jólaplötu LAGALISTINN: 1. Ókind - Jólakötturinn 2. Hermigervill - Jólasull 3. Topless Latino Fever - Göngum við í kringum 4. Doddi - White Christmas 5. Lokbrá - Ó, helga nótt 6. Atli &- Ristaðar kastaníur 7. bob - Clowns in Christmastown 8. Isidor - Jóla - jólasveinn 9. Hjaltalín - Mamma kveikir kertaljós ATLI BOLLASON Atli Bollason á eitt lag á jólaplötunni Stúfur. Brian Wilson, fyrrum forsprakki The Beach Boys, verður heiðraður á næstunni af bandarísku upptöku- samtökunum. Þetta eru sömu sam- tök og veita Grammy-verðlaunin frægu. Verðlaunin nefnast MusiCares og verður Wilson heiðraður fyrir framlag sitt til tónlistarinnar og góðgerðarstarf sitt í þágu krabba- meinsrannsókna. Carl, yngri bróðir Wilsons, lést úr krabbameini árið 1998. Fjölmargir tónlistarmenn munu koma fram á tónleikum í Los Ang- eles í febrúar á næsta ári þegar verðlaunin verða afhent. ■ Wilson heiðraður BRIAN WILSON Brian Wilson, fyrrum for- sprakki Beach Boys, verður heiðraður á næstunni. ■ TÓNLIST Fyrsta opna Íslands- meistaramótið í Popp- punkti, nýja tónlistar- spilinu, verður haldið á efri hæð Grand Rokks laugardaginn 11. desember kl. 16. Um er að ræða út- sláttarkeppni þar sem keppt er í einstaklings- flokki. Sigurvegarinn fær stórfengleg verð- laun: Poppunktsspilið og glæsileg verðlaun frá Máli og menningu og Grand Rokki. Dr. Gunni, höfundur spils- ins, hvetur alla til að skrá sig í á netfanginu ppspil@hotmail.com. ■ Íslandsmót í Popppunkti POPPPUNKTUR Hvað eru mörg „p“ í Popppunkti? Trommari Mötley Crue, TommyLee, lét það út úr sér á dögunum að hann kjósi tónlist fram yfir kynlíf - vegna þess að tónlistin endist lengur og er kraftmeiri. „Tónlistin gefur mér svo miklu meira. Kynlíf er skemmti- legt en það er ekkert frábært, skiljiði? Og það tekur stuttan tíma. Kynlíf er svona, ókei, þetta var gaman. Tónlist finnst mér miklu kraftmeiri,“ sagði Tommy, sem er nú orðinn 42 ára. Hann hefur verið giftur bæði Heather Locklear og Pamelu And- erson og segist lifa fyrir að spila fyrir áhorfendur. „Það er ekkert betra en að spila fyrir framan aðdáendurna.“ 56-57 (44-45) Skripo 2.12.2004 20:06 Page 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.