Fréttablaðið - 03.12.2004, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 03.12.2004, Blaðsíða 18
18 3. desember 2004 FÖSTUDAGUR Uppgjör Tryggingastofnunar: Um 24 þúsund manns fá endurgreitt LÍFEYRISMÁL Tæplega 24 þúsund lífeyrisþegar fá eingreiðslu frá Tryggingastofnun fyrir jólin, eða rúmlega helmingur allra lífeyrisþega, samkvæmt upplýsingum frá stofnuninni. Við endurreikning bótaréttar ársins 2003 kom í ljós að 23.578 lífeyrisþegar eiga inneign hjá TR sem greidd verður út í desember. 10.773 lífeyrisþegar hafa fengið ofgreitt á árinu og þær fjárhæðir verða innheimtar eftir áramót. Heildarfjárhæð inneigna nemur rúmum milljarði króna og kröfurnar nema svipaðri fjárhæð. Inneignir eru í flestum tilvikum innan við 50 þúsund krónur en tæplega 8 þúsund lífeyrisþegar eiga minna en 10 þúsund krónur hjá TR. Skuldir eru flestar undir 50 þúsundum króna. Kröfur sem eru 3 þúsund krónur eða lægri verða felldar niður. Í þeim hópi eru 1.175 lífeyrisþegar og fjárhæðin nemur samtals rúmri hálfri annarri milljón króna. Hjá um 6 þúsund lífeyrisþegum þarf ekki að gera neinar leiðréttingar. Alls voru 41.724 bætur lífeyrisþega endurreiknaðar, en þær námu um 27 milljörðum króna á árinu 2003. -jss Borgaði 90 þúsund fyrir íþróttagalla Íslenskur ferðamaður á Kanaríeyjum borgaði 90 þúsund krónur fyrir níu þúsund króna íþróttagalla. Kvittaði undir reikninginn og því ekkert hægt að gera. Sviðsstjóri hjá Visa brýnir fyrir fólki að hafa augun vel opin. VIÐSKIPTI Nokkur dæmi eru um að svindlað hafi verið á íslenskum ferðamönnum á Kanaríeyjum. Mar- ía Guðmundsdóttir, verslunarkona á Kirkjubæjarklaustri, keypti íþróttagalla í verslun á Ensku ströndinni fyrr á þessu ári sem átti að kosta um níu þúsund krónur. Hún endaði með að borga 90 þúsund. „Þetta var í Yumbo-verslunar- miðstöðinni sem er nálægt Klöru- bar,“ segir María. „Ég var að kaupa íþróttagalla á dóttursyni mína tvo. Þeir áttu að kosta 101 evru en þegar ég kom heim og opnaði Visa-reikn- inginn sá ég að ég hafði borgað 1001 evru fyrir gallana.“ María segist hafa hringt í Visa á Íslandi og spurt hvort það væri ekki hægt að bakfæra þetta en henni hafi verið sagt að það væri ekki hægt þar sem hún hefði kvittað undir reikning- inn. María segist vita af öðrum Íslendingi sem hafi lent í sömu reynslu og fengið sömu svör. „Mér var reyndar líka sagt að hafa samband við verslunina úti og biðja um að þetta yrði leiðrétt. Ég gerði það en þá fékk ég bara þau svör að ég hefði verslað fyrir þessa upphæð, sem er náttúrlega bara della. Auðvitað þykir mér þetta ansi hart. Það var augljóslega verið að svindla á mér með því að bæta ein- um aukastaf við töluna. Ég áttaði mig bara ekki á því þegar ég kvitt- aði.“ Þórður Jónsson, sviðsstjóri kort- hafasviðs, segir vissulega dæmi um að svona lagað gerist þó það sé ekki algengt. „Auðvitað eru alltaf einhverjir óprúttnir menn einhvers staðar í heiminum sem gera svona,“ segir Þórður. „Þetta er algengast á stórum ferðamanna- stöðum. Það er mjög erfitt fyrir okkur að bregðast við þessu því gögnin sem liggja fyrir bera það ekki með sér að um eitthvert svindl sé að ræða. Hins vegar er fylgst með því hvort svona mistök eða svindl séu alltaf að koma upp hjá sömu versluninni. Ef sú er raun- in getur viðkomandi átt von því að missa samninginn við Visa. Ég held að besta lausnin til varnar þessu sé að brýna fyrir fólki að hafa augun vel opin þegar það kvittar.“ trausti@frettabladid.is IBM, Sony og Toshiba taka höndum saman: Ný byltingarkennd tækni fyrir heimili JAPAN, AP Nýr byltingarkenndur tölvukubbur og örgjörvi verður notaður í nýja heimilismiðlara fyrir breiðbandstengingar og há- gæðasjónvarpssendingar sem Sony ætlar að bjóða til sölu árið 2006. Kubbinn, sem kallaður er Sellan eða Cell, segir Sony einnig verða notaðan í næstu kynslóð leikjatölva sem er í smíðum. IBM, Sony og Toshiba hafa unnið saman að þróun kubbsins síðustu þrjú ár. Í tilkynningu fyrirtækjanna í gær kom fram að örflagan geri tölvum og heimilis- tækjum kleift að vinna gífurlegt magn vídeóstreymis og annarra stafrænna gagna á miklum hraða. Tæknileg útfærsla Sellunnar verður kynnt á ráðstefnu ör- gjörvaframleiðenda í San Francisco í Bandaríkjunum í febrúar, en í kjarnann er búnað- urinn búinn 64 bita örgjörva, auk hliðarörgjörva sem sjá eiga um gagnasendingar til breiðbands- tækja, svo sem tölvuleikja- streymi, kvikmyndir og annað stafrænt efni. IBM hefur frum- framleiðslu kubbsins á fyrri helmingi næsta árs fyrir tölvu sem Sony er að búa til. Toshiba ætlar að hefja framleiðslu á há- gæðasjónvarpi (high-definition TV) sem byggir á nýju tækninni árið 2006. - óká UM HELMINGUR LÍFEYRISÞEGA FÁ EINGREIÐSLU FYRIR JÓLIN Heildarfjárhæð inneigna bótaþega nemur rúmum milljarði króna og kröfurnar nema svipaðri fjárhæð. FERÐAMENN Á KANARÍEYJUM Þórður Jónsson, sviðsstjóri hjá Visa, segir algengast að óprúttnir verslunarmenn á stórum ferðamannastöðum reyni að svindla á ferðamönnum. Smáauglýsingasíminn er 550 5000 auglysingar@frettabladid.is FORSTJÓRI TOSHIBA Yoshihide Fujii, forseti og aðalforstjóri Tokyoba Digital Media Network, kynnti á blaða- mannafundi í Tókýó í Japan í gær að Toshiba hefði stuðning fjögurra stjóra kvikmynda- framleiðenda í Hollywood í Bandaríkjunum, Paramount Pictures, Universal Studios, Warn- er Bros. og New Line Cinema, við næstu kynslóð DVD-tækni fyrirtækisins. M YN D /AP 18-19 fréttir 2.12.2004 18:35 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.