Fréttablaðið - 03.12.2004, Page 10
10 3. desember 2004 FÖSTUDAGUR
IVANOV Í NÝJU DELÍ
Sergei Ivanov, varnarmálaráðherra Rússlands,
kom til Nýju Delí, höfuðborgar Indlands, í
gær til að ganga frá samningum um sam-
skipti ríkjanna. Meðal þess sem samið var
um voru geimferðamál og leiga Indverja á
tveimur kjarnorkuknúnum kafbátum.
Hæstiréttur Svíþjóðar sneri við dómi undirréttar:
Morðingi Lindh ekki geðveikur
SVÍÞJÓÐ, AP Morðingi Önnu Lindh,
fyrrverandi utanríkisráðherra
Svíþjóðar, verður að sitja af sér
lífstíðarfangelsisdóm samkvæmt
dómi Hæstaréttar Svíþjóðar. Þar
með sneri Hæstiréttur við dómi
undirréttar sem hafði dæmt hinn
25 ára Mijailo Mijailovic ósak-
hæfan og því bæri að vista hann á
geðsjúkrahúsi en ekki í fangelsi.
Mijailovic myrti Lindh þann 10.
september í fyrra. Hann játaði að
hafa ráðist á hana með hnífi en
sagðist ekki hafa ætlað að drepa
hana. Raddir í höfði hans hefðu
hins vegar sagt honum að gera það.
Í dómi Hæstaréttar segir að þó
að Mijailovic eigi við sálræna erf-
iðleika að etja geti hann ekki talist
geðveikur. Hæstiréttur hafnaði
enn fremur kröfu verjenda um að
Mijailovic yrði dæmdur fyrir
manndráp af gáleysi en ekki morð
að yfirlögðu ráði.
Mikael Nilsson, lögmaður
Mijailovic, sagði í gær að skjól-
stæðingur hans hefði farið fram á
að fá að afplána dóminn í Serbíu-
Svartfjallalandi en hann er
serbneskur ríkisborgari. Talið er
að Mijailovic óttist að verða fyrir
einelti annarra sænskra fanga. ■
Ráðstöfunarfé eykst
hröðum skrefum
Landsbankinn gerir ráð fyrir að lánaveisla bankanna leiði til þess að
einkaneysla hækki um 0,5-1 prósent næstu tvö ár og að veislan endi með
verðbólguskoti allt að sex prósentum um áramótin 2006-2007.
EFNAHAGSMÁL Bylting hefur orðið á
fasteignalánamarkaði. Ekki er
langt síðan Íbúðalánasjóður fór að
bjóða íbúðalán til 40 ára og eru nú
um 80 prósent tekinna lána til 40
ára. Við það hefur greiðslubyrði á
hverri milljón lækkað, fjölskyld-
urnar hafa skuldsett sig til lengra
tíma og eignamyndun orðið hæg-
ari og minni. Heimilin skulda sem
nemur um 180 prósentum af ráð-
stöfunartekjum sínum á einu ári.
Bankarnir eru farnir að bjóða upp
á veðlán án skilyrða um fasteigna-
viðskipti og valmöguleikar eru
fleiri, t.d. tegund lána, lánstími og
vaxtafyrirkomulag.
„Almenningur hefur mögu-
leika á að endurfjármagna lán til
að lækka greiðslubyrði og auka
sparnað eða neyslu. Fólk getur
bætt jafnóðum við sig veðlánum
til að innleysa hagnaðinn ef fast-
eignaverð hækkar mikið. Í Lands-
bankanum gerum við ráð fyrir að
einkaneysla aukist um 0,5-1 pró-
sent á ári næstu tvö árin vegna
þessa, fasteignaverð hækki um 15
prósent umfram það sem þegar er
orðið og að heimilin auki skuldir
sínar um allt að 15 prósentum. Við
gerum líka ráð fyrir aukinni hag-
ræðingu í bankakerfinu. Saman-
tekið tel ég að þessi kerfisbreyt-
ing sé mikil heillaþróun en að hún
komi á versta tíma með tilliti til
stöðu efnahagsmála,“ segir Edda
Rós Karlsdóttir, forstöðumaður
greiningardeildar Landsbanka
Íslands.
Íslensk heimili skulduðu 813
milljarða í lok júní. Edda Rós seg-
ir að verði helmingi af skuldum
heimilanna skuldbreytt með veð-
láni með 4,15 prósenta vöxtum án
þess að lánin séu lengd lækki
greiðslubyrðin um 13 prósent. „Ef
lánstíminn yrði hins vegar lengd-
ur um fimm og hálft ár við skuld-
breytingu, helmingurinn til 40
ára og hinn helmingurinn til 25
ára, lækkaði greiðslubyrðin um
19 prósent. 13 prósentum lægri
greiðslubyrði þýðir þriggja pró-
senta hækkun á ráðstöfunarfé
heimilanna. Kaupmáttur heimil-
anna hefur verið að aukast um eitt
prósent á ári undanfarin 20-30 ár
þannig að þarna er um verulegar
upphæðir að ræða,“ segir Edda
Rós.
ghs@frettabladid.is
Siðmennt:
Andstaða við
þingtillögu
MANNRÉTTINDI Stjórn Siðmenntar,
félags um borgaralegar athafnir,
hefur mótmælt tillögu meirihluta
fjárlaganefndar Alþingis um að
skerða framlög til Mannréttinda-
skrifstofu Íslands og hvetur þing-
menn til að hafna henni.
Í tilkynningu frá félaginu segir
að við þetta kunni starfsemi skrif-
stofunnar að lamast. Hún hafi alla
tíð verið óháður álitsgjafi í álita-
málum er snerta mannréttindi. Á
Íslandi hafi Mannréttindaskrifstof-
an verið fremst í flokki við að verja
mannréttindi og skyldur sem kveð-
ið sé á um í mannréttindayfirlýs-
ingu Sameinuðu þjóðanna. - ghg
MIJAILO MIJAILOVIC
Morðingi Önnu Lindh hefur farið
fram á að fá að afplána dóminn í
Serbíu-Svartfjallalandi.
MORGUNVERÐARFUNDUR
Félag MBA-HÍ nema stóð fyrir fundi á Grand hótel þar sem Gylfi Magnússon dósent og
Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans, fluttu erindi. Mynd-
in er af nokkrum fundarmönnum.
EDDA RÓS KARLSDÓTTIR
„Samantekið tel ég að þessi kerfisbreyting sé
mikil heillaþróun en að hún komi á versta
tíma með tilliti til stöðu efnahagsmála,“ segir
Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður grein-
ingardeildar Landsbanka Íslands.
SKATTAMÁL Forsjárlausir og tekju-
litlir einstaklingar sem greiða
meðlag með nokkrum börnum eru
í þeim hópi sem hvað minnst
græðir á skattalækkunum ríkis-
stjórnarinnar. Sem dæmi má
nefna að forsjárlaus faðir, sem
greiðir meðlag með tveimur börn-
um og hefur um 200 þúsund
krónur í tekjur á mánuði fær að-
eins rétt rúmlega 100 þúsund
krónur útborgaðar þegar hann
hefur greitt meðlag og skatta.
Stefán Úlfarsson, hagfræðingur
hjá ASÍ, segir að slíkur einstakling-
ur njóti ekki barnabóta. Tekjurnar
séu ekki háar og því lækki
tekjuskatturinn ekki mikið frá
því sem nú er. Persónuafslátturinn
hækki um átta prósent eða í takt
við verðbólguna. Börn viðkomandi
njóti góðs af hærri barnabótum en
ekki hann sjálfur. Vaxtabætur
lækki og hann tapi vaxtabótum
ef hann skuldi mikið við húsnæðis-
kaup. Viðkomandi njóti ekki
góðs af hátekjuskattslækkuninni
og eignaskatturinn fari eftir eign-
um.
„Ég hef á tilfinningunni að mið-
að við þetta dæmi komi viðkom-
andi ekkert sérstaklega vel út úr
þessu,“ segir hann. - ghs
Skattalækkanir:
Forsjárlausir græða lítið
STEFÁN ÚLFARSSON
Forsjárlausir og tekjulitlir einstaklingar
koma illa út úr skattabreytingum ríkis-
stjórnarinnar, ekki síst ef þeir greiða með-
lag með börnum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
fiÚ
FÆ
R‹
G
JA
FA
BR
ÉFI
N
OK
KA
R
Í K
R I
NG
LU
NN
I
HE
LG
IN
A 3
.-5
. D
ES
EM
BE
R
Nordica Loftlei›ir Flughótel Flú›ir Rangá Klaustur Héra›
Komdu vinum og vandamönnum skemmtilega á óvart
me› flví a› gefa fleim gjafabréf á Icelandair Hotels,
NordicaSpa, Hótel Eddu e›a VOX restaurant í jólagjöf.
Gjafabréfin okkar eru gjöf sem slær í gegn.
mi›ast vi› tveggja manna
herbergi me› morgunver›ar-
hla›bor›i á Icelandair hóteli
a› eigin vali.
4.550 kr.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
14
12
2
Ver›dæmi:
á mann
Gisting á Icelandair hóteli gefur
punkta í Vildarklúbbi Icelandair.
Einnig er hægt a› bóka í síma 444 4000 e›a á www.icehotels.is
10-11 fréttir 2.12.2004 19:57 Page 2