Fréttablaðið - 03.12.2004, Blaðsíða 22
22
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
(WHO) hefur hvatt til aðgerða gegn
hugsanlegum fuglaflensufaraldri.
Haraldur Briem er sóttvarnarlæknir hjá
Landlæknisembættinu.
Hvað er fuglaflensa?
Fuglaflensa er inflúensa af a-stofni
sem er af svipaðri gerð í okkur mönn-
unum og fuglum.
Hvenær varð hennar fyrst vart?
Flensan kom fyrst upp á sjötta ára-
tugnum á Vesturlöndum. Á síðari
árum fer hún hins vegar að hafa áhrif
á fólk sem vinnur með kjúklinga. Í
Asíu er þetta erfitt því það gengur illa
að uppræta hana í fuglunum og
menn sýkjast beint af þeim.
Er flensan hættuleg?
Um sjötíu prósent þeirra sem sýkjast
deyja. Ef langur tími líður áður en
tekst að eyða flensunni kann hún að
stökkbreytast svo að hún berst frá
manni til manns. Þar með getur farið
af stað heimsfaraldur.
Er hægt að koma í veg fyrir sjúk-
dóminn?
Menn reyna að stöðva hann í
kjúklingaeldinu en það gengur illa. Ef
hann smitast á milli manna verður
mjög erfitt að eiga við hann því ekkert
mótefni er til. Ef þetta verður faraldur
þarf kannski að beita gamaldags að-
ferðum eins og sóttkví og einangrun.
Er ástæða fyrir Íslendinga að hafa
áhyggjur?
Það er ekki sérstakt tilefni nú til að
hafa áhyggjur. Við vitum ekki hvort
heimsfaraldur sé í aðsigi.
HARALDUR BRIEM
Mjög há dánartíðni
FUGLAFLENSA
SPURT OG SVARAÐ
Samræmdu prófin eiga rætur að rekja
til fimmta áratugarins þegar landsprófin
voru við lýði. Samræmdu prófin í núver-
andi mynd voru tekin upp í lok áttunda
áratugarins og voru fyrst aðeins tvö, svo
fjögur, loks sex, aftur fjögur og nú velja
nemendur í 10. bekk hversu mörg og í
hvaða fögum þeir taka próf eftir því
hvaða framhald þeir hyggja á í námi og
starfi. Samræmd próf í fjórða og sjö-
unda bekk voru tekin upp 1996.
Til hvers eru þessi próf?
Samræmdu prófin eiga að veita nem-
endum, forráðamönnum og skólum
upplýsingar um stöðu nemenda. Við-
miðunarramminn í skólunum er þröng-
ur. Nemandi sem stendur illa í þröng-
um hóp getur komið verr út í þeim við-
miðunarramma en í samræmdum próf-
um. Mismunandi er eftir skólum hverjar
eru forsendurnar fyrir námsmati. Þá get-
ur það verið stuðningur fyrir kennara að
fá utanaðkomandi mat í sínu náms-
mati.
Er þetta ekki spurning um í
hvaða framhaldsskóla nemend-
ur komast eða hvort þeir kom-
ist yfir höfuð í framhaldsskóla?
Þarna skipta samræmdu prófin í tíunda
bekk vissulega máli en það skiptir líka
máli að krakkarnir standi sig vel í skóla-
prófunum. Þegar framhaldsskólinn tek-
ur inn nemendur vega skólaeinkunnir
og samræmdar einkunnir jafnt. Þetta
getur styrkt stöðu krakkanna því að
með þessu fá þau umsögn úr tveimur
áttum. Ákveðnir skólar eru eftirsóttir og
eru ástæðurnar ýmsar, t.d. orðstír skól-
ans, félagslífið, öll ættin hafi gengið í
viðkomandi skóla o.s.frv. Þessir skólar
fleyta rjómann ofan af með því að velja
inn nemendur sem standa betur en
aðrir til frekara náms.
Af hverju ekki að breyta sam-
ræmdu prófunum?
Margir eru þeirrar skoðunar að slæmt
sé fyrir nemendur að fara í framhalds-
skóla á þeirri forsendu að þeir standi
betur en þeir gera. Það er talið auka lík-
urnar á því að þeir hrökklist úr námi og
því er tregða til að breyta samræmdu
prófunum í vor til samræmis við það
námefni sem kennararnir komast yfir.
Allir nemendur komast hvort sem er
inn í skóla.
Prófunum ekki breytt þrátt fyrir verkfall
FBL GREINING: SAMRÆMD PRÓF
3. desember 2004 FÖSTUDAGUR
Fjársvikamálið stórfellda sem
upp er komið í Noregi teygir anga
sína til Íslands. Á annað hundrað
Íslendinga létu gabbast af loforð-
um um skjótfenginn gróða og
lögðu fé í svikamylluna, samtals
um þrjátíu milljónir króna.
Noregsmet í fjársvikum
Mikið hefur verið fjallað um mál
pýramídafyrirtækisins The Five
Percent Community (T5PC) í
norskum fjölmiðlum enda eru
fjársvikin talin þau um-
fangsmestu í norskri sögu.
Áætlað er að forsprakk-
ar þess hafi haft að
minnsta kosti ellefu
milljarða íslenskra
króna upp úr
krafsinu þegar
þeir ginntu ríf-
lega 70.000
manns til að
leggja fé
í fyrir-
tækið,
ý m i s t
með sölu á hlutabréfum eða ann-
ars konar varningi.
Þegar Jim Wolden og félagar
hans stofnuðu T5PC árið 1993 var
hugmyndin að fá fólk til að kaupa
sig inn í fyrirtækið svo að það
gæti selt varning af ýmsu tagi í
beinni sölu. Þeir hófust strax
handa við að afla hluthafa
að fyrirtækinu en varn-
ingurinn lét hins vegar
bíða eftir sér. Með ár-
unum urðu hluthafar
þess áskynja að að-
aláherslan var á
að fá enn fleiri
hluthafa í hóp-
inn en á hinn
bóginn var
l á t i ð
liggja á
m i l l i
hluta
a ð
koma vörunum til þeirra sem
greitt höfðu fyrir þær. Skráning á
almennum hlutabréfamarkaði var
alltaf handan við hornið en aldrei
varð neitt úr henni. Þegar T5PC
var lýst gjaldþrota 18. nóvember
síðastliðinn gerðu menn sér fyrst
ljóst hvílík svikamylla var þarna á
ferðinni og hófst lögreglurann-
sókn í framhaldi af því. Ellefu
manns hafa verið handteknir og í
gær var höfuðpaurinn Jim
Wolden yfirheyrður en hann flúði
til Spánar í kjölfar gjaldþrots-
ins.
Stærstur hluti milljarð-
anna ellefu er talinn hafa
fengist með sölu á hluta-
bréfum. Ekki er ljóst
hvað hefur orðið um
alla þessa fjármuni.
Höfuðpaurarnir
sem helst mök-
uðu krókinn
bárust tals-
vert á en
jafnframt
er tal-
ið að
tals-
verður hluti fjárins hafi verið
lagður inn á svissneska banka-
reikninga. Fjárfest var í dularfull-
um fyrirtækjasamsteypum í Mið-
Ameríkuríkinu Belís og á Kýpur
en einnig höfðu forsprakkar T5PC
áform um að setja á fót spilavíti.
Íslendingar bitu á agnið
Norskir fjölmiðlar birtu í vikunni
lista yfir þá sem hafa verið
blekktir í pýramídasvindlinu en á
honum er að finna fjörtíu þúsund
nöfn einstaklinga og fyrirtækja. Á
listanum eru vel á annað hundrað
Íslendinga sem búsettir eru
víða um landið. 52 Reykvíkingar
keyptu hlut í T5PC, átján Eyja-
menn, og fimmtán Garðbæingar.
Tólf Kópavogsbúar létu gabbast,
svo og níu Hafnfirðingar en ein-
ungis tveir Akureyringar. Athygli
vekur að Flúðamenn voru áhuga-
samir um kaup á bréfum í T5PC,
nöfn sjö þeirra eru á listanum.
Reykvíkingur nokkur sem
keypti hlut í T5PC sagði í samtali
við blaðið að fyrir rétt rúmu ári
hefðu Norðmenn komið hingað til
lands og kynnt hugmyndina. Ekki
vissi maðurinn hvers vegna Norð-
mennirnir hefðu haft samband við
sig en engu að síður leist honum
vel á hugmyndina og var því tilbú-
inn að reiða fram um 800 evrur,
tæpar sjötíu þúsund krónur. Var
greiðslan innt af hendi með
kreditkorti. Bjóst maðurinn við að
þegar skráningu á hlutabréfa-
markaði lyki færi fjárfestingin að
borga sig en þegar ekkert gerðist
fóru að renna á hann tvær grímur.
Féð er að líkindum með öllu tapað
og útilokar maðurinn ekki að hann
muni reyna að leita réttar síns.
Hluturinn í T5PC var yfirleitt
seldur á 0,45 evrur. Algengt er að
Íslendingarnir hafi skráð sig fyrir
1777 hlutum, um það bil 69.000
krónum en dæmi eru um mun
hærri fjárhæðir, allt upp í rúmar
fjórar milljónir króna. Íslensku
hluthafarnir virðast hafa sett í
það minnsta þrjátíu milljónir
króna í T5PC.
Fjármálaeftirlitið aðhafðist
ekki
Fjármálaeftirlitið hefur í
mörgum tilvikum varað sér-
staklega við fyrirtækjum af
þessu tagi en það var ekki
gert í þessu tilviki. Páll
Gunnar Pálsson,
forstjóri Fjármála-
eftirlitsins, telur
ástæðu þess að
ekki var birt
t i l k y n n i n g
vegna T5PC
vera þá að
sennilega
b á r u s t
engar
kvart-
anir á sínum tíma út af fyrirtæk-
inu eða ábendingar þar að lútandi.
Þar sem fyrirtækið er þegar orðið
gjaldþrota á hann ekki von á að
málið verði skoðað af eftirlitsins
hálfu. Páll ítrekar hins vegar að
Fjármálaeftirlitið varar almennt
við fyrirtækjum á borðið við
T5PC.
Málið minnir um margt á fjár-
plógsstarfsemi sænska fyrirtæk-
isins Sprinkle network sem komst
í hámæli hérlendis síðastliðinn
vetur. Fjöldi fólks taldi sig hafa
verið hlunnfarinn og námu bóta-
kröfur á annað hundrað milljónir
króna en fáir fengu eitthvað end-
urgreitt frá Svíunum. ■
„ÞRÆLSKEMMTILEGUR
KVEÐSKAPUR“
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
„Andræði er sérstök ljóðabók
þar sem gömlu og nýju
formi er blandað saman
svo úr verður nýr og
ferskur kveðskapur sem
baunar á nútímann.“
– Soffía Bjarnadóttir, Víðsjá Rás 1
SIGFÚS BJARTMARSSON: ANDRÆÐI
SVEINN GUÐMARSSON
BLAÐAMAÐUR
FRÉTTASKÝRING
NORSKI FJÁRPLÓGS-
PÝRAMÍDINN
KORTIÐ STRAUJAÐ
Einfalt var að inna greiðslur af hendi til
T5PC. Erfiðara verður að fá endurgreitt
PÁLL GUNNAR PÁLSSON
Fjármálaeftirlitið varaði ekki við starfsemi
fyrirtækisins hérlendis.
Íslendingar lögðu þrjátíu
milljónir í norska svikamyllu
Ágóði höfuðpauranna í stærsta fjársvikamáli sem komið hefur upp í Noregi nemur tíu milljörð-
um króna. Fjölmargir Íslendingar létu gabbast og er fé þeirra að öllum líkindum tapað.
NORSKI PÝRAMÍDINN TEYGÐI ANGA SÍNA VÍÐA Höfuðpaurar T5PC höfðu 11 milljarða króna upp úr krafsinu.
22-23 (360) 2.12.2004 19:38 Page 2