Fréttablaðið - 03.12.2004, Qupperneq 26
26
HVAÐ KOSTAR ÞAÐ?
ÓLÖF DEBONT
Umfjöllun rýrir
framlög fólks
STYRKTARTÓNLEIKAR
KRABBAMEINSSJÚKRA BARNA
SJÓNARHÓLL
Ástarvikan sem haldin var í Bolungarvík
í ágústlok bar tilætlaðan árangur, því nú
eiga að minnsta kosti tvær konur í
plássinu von á sér með vorinu, að sögn
Soffíu Vagnsdóttur bæjarfulltrúa. Þá
voru farnir ástargöngutúrar, 200 ástar-
blöðrum var hleypt upp í loft og fleiri
örvandi atriði voru í gangi.
„Fólk var hvatt til að eiga svolítið meira
samband svo við gætum fjölgað
Bolvíkingum,“ sagði Soffía. „Og það er
farið að glitta í árangur.“
Hún sagði að nú væri verið að leggja
drög að næstu ástarviku. Hún hefði
bent bæjarstarfsmönnunum á að panta
dálítið ríflega af rauðum
jólaljósaseríum, því þegar til hefði átt
að taka í ágúst hefði ekki fengist ein
einasta snúra í öllu landinu.
„Það voru ekki nema sjö börn sem
settust í 1. bekk í skólanum í haust,
þannig að það veitir ekki af fjölgun,“
sagði Soffía. Spurð um brottflutning
íbúa sagði hún að nokkuð væri um
það. Íbúatalan væri nú í kringum 950
manns.
„Nú erum við á fullu að leita að nýjum
atvinnutækifærum,“ sagði hún. „Það er
ágætis uppbygging við höfnina og í
sjávarútveginum. En okkur vantar ný
störf.
Þá hefur verkefnið heilsubærinn
Bolungarvík verið hér á fullu um árabil
og þar er ekkert lát á.
Hins vegar vantar hér betri aðstöðu til
félagslífs. Félagslegi þátturinn hefur
dofnað vegna ýmissa áfalla. Við þurfum
að taka á menningarmálunum, laga
félagsheimilið okkar og skapa aftur
aðstöðu til að geta hist meira og talað
saman. Þetta verðum við að laga svo
mannlífið dafni og blómgist.“ ■
Farið að glitta í árangur ástarviku
EFTIRMÁL: SOFFÍA VAGNSDÓTTIR:
3. desember 2004 FÖSTUDAGUR
Reykti um borð
þrátt fyrir bann
Flugstjórar reyktu óáreittir um borð í flugvélum Flugleiða þó að reyk-
ingar hefðu verið bannaðar. Björn Thoroddsen flugstjóri er í hópi
þeirra síðustu sem reyktu um borð.
REYKINGAR Björn Thoroddsen flug-
stjóri er síðasti maðurinn eða með
þeim síðustu sem reyktu um borð
í flugvélum Flugleiða. Hann telur
að þeir hafi verið þrír til fjórir
flugmennirnir sem komust upp
með að reykja í flugstjórnarklef-
anum síðustu árin þó að reykingar
væru bannaðar um borð. Björn
reykir pípu. Hann hætti að fljúga
fyrir þremur árum.
„Flugleiðir ákváðu að verða
reyklaust félag og ári síðar var
það fest í lög. Þegar ákvörðun
Flugleiða var kynnt FÍA var mér
sagt að formaður félagsins á þeim
tíma hefði bent á að það væru
nokkrir flugstjórar sem væru
ólæknandi nikótínistar og spurt
hvað ætti að gera við þá? Sagan
segir að stjórnendur fyrirtækis-
ins hafi sagt að þeir yrðu látnir í
friði. Við vorum þrír eða fjórir
nefndir til sögunnar og það má
segja að það hafi verið þegjandi
samkomulag. Ég afsakaði mig
alltaf á þessu,“ segir Björn
Thoroddsen flugstjóri.
Björn kveðst aldrei hafa heyrt
neitt frá fyrirtækinu um reyk-
ingabann til flugmanna eða
áhafna og ekki hafi komið nein
sérstök fyrirmæli til flugstjór-
anna um að hætta að reykja í flug-
stjórnarklefanum. Aðstoðarflug-
mennirnir hafi sagt sér að reyk-
ingarnar færu ekkert í þá. „Það
kvartaði enginn. Ég reyndi að púa
fram í nefið á vélinni en það kom
fyrir að reykurinn fannst í eldhús-
inu aftast. Loftræstingin var
þannig. Það kom fyrir að flug-
freyjurnar héldu að einhver væri
að reykja á klósettunum og rifu
upp hurðirnar aftast en fundu
ekki neinn.“
Nokkuð var um það síðustu
árin að farþegar lokuðu sig inni á
klósetti til að reykja. „Við fengum
bréf um að við ættum að labba
aftur í, skrifa niður sætisnúmerið
og skoða vegabréfið, ræða við far-
þegann og biðja um að lögregla
væri tilbúin til handtöku við lend-
ingu. Síðan átti að stinga farþeg-
anum inn og hann sektaður. Ég
vissi dæmi þess að flugstjórar
gerðu þetta. En svo voru stöðvar-
stjórarnir orðnir hundleiðir á því
að láta lögregluna handtaka far-
þega.“
Björn tilkynnti aldrei reyking-
ar farþega á klósettum og bætir
við að sér finnist hræðilegt að fólk
geti hvergi reykt um borð í flug-
vélum. „Það ætti að vera einhver
staður í flugvélum fyrir þá sem
reykja.“ ghs@frettabladid.is
UM HVAÐ ER SLÚÐRAÐ ÞARNA?
Talsverðar líkur eru á að fjarstaddir vinnu-
félagar séu umræðuefnið.
Umræðuefni á vinnu-
stöðum:
Karlar
slúðra meira
en konur
KÖNNUN Karlmenn slúðra meira í
vinnunni en konur. Þetta eru nið-
urstöður sænskrar rannsóknar
sem sagt er frá á heimasíðu Verzl-
unarmannafélags Reykjavíkur.
Könnun Svíanna leiðir í ljós að
karlar slúðra meira um vinnu-
félaga sína en kollegar þeirra af
kvenkyninu. Sænskar konur tala
aftur á móti meira um mat og
börn í vinnunni en karlarnir.
Eftirlætisumræðuefni kvenn-
anna eru í þessari röð vinnan,
fréttir, frí, eldamennska, börn,
matur, sjónvarpsþættir, síðasta og
næsta helgi, vinnufélagar og
menning. Karlarnir ræða hins
vegar mest vinnuna, fréttir, elda-
mennsku, vinnufélagana, sjón-
varpsþætti, íþróttir, frí, síðustu og
næstu helgi, laun og þjálfun.
-shg
SÍÐASTUR TIL AÐ REYKJA Í FLUGVÉLUM
Björn Thoroddsen flugstjóri var í hópi síðustu manna sem fengu að reykja óáreittir um
borð í flugvélum Flugleiða. Reykingarnar fóru fram í flugstjórnarklefanum og því urðu far-
þegarnir ekkert varir við þær.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
ALÞINGISHÚSIÐ
Hollustan í fyrirrúmi.
Mötuneyti Alþingis:
Salatbar
í dag
MATARÆÐI Þingmenn og aðrir
starfsmenn Alþingis gæða sér á
salati, hrísgrjónagraut og nýbök-
uðu brauði í mötuneyti þingsins í
hádeginu í dag. Ekki er að undra
að léttmeti sé á borðum, hamborg-
arhryggur með viðeigandi með-
læti var á matseðli gærdagsins.
Þá var kaldur búðingur með
rjóma í eftirrétt. „Jólin eru bara
komin,“ varð einum þingmanni að
orði eftir kræsingarnar í gær.
Fagnaði hann því um leið að fá kál
og gulrætur í dag. -bþs
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
REYKINGAR Guðjón Arngrímsson,
upplýsingafulltrúi Icelandair,
segir að bann hafi verið sett um
1990 við reykingum um borð í
flugvélum Flugleiða til og frá
landinu. Þar með hafi flugstjórn-
arklefinn verið gerður reyklaus.
Reglur hafi verið og séu skýrar,
bæði hjá félaginu og í opinberum
reglugerðum, það sé bannað að
reykja um borð.
„Ég þekki ekki hvort Björn
komst upp með það að reykja um
borð eða ekki. Ef hann segir það
sjálfur þá er það ekki mitt að
rengja það. En það er bannað að
reykja um borð og það hefur ver-
ið bannað. Það eru engar undan-
tekningar gerðar á því. Farið er
með brot á þessum reglum eins og
brot á öðrum reglum sem öryggis-
mál í flugi,“ segir hann. - ghs
Icelandair:
Ekki mitt að rengja
GUÐJÓN ARNGRÍMSSON
„Ef hann segir það sjálfur þá er það ekki
mitt að rengja það,“ segir Guðjón um
reykingar Björns Thoroddsen í flugvélum
Flugleiða eftir að bannið var sett á.
BÆJARFULLTRÚINN
Soffía Vagnsdóttir bæjarfulltrúi ásamt syni
sínum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
KOMUGJALD Á SLYSA- OG BRÁÐA-
MÓTTÖKU LANDSPÍTALA - HÁSKÓLA-
SJÚKRAHÚSS ER 3.210 KRÓNUR
Greiða þarf aukalega fyrir aðra þjónustu, til
dæmis myndatökur og blóðprufur.
„Það er óþarfi að blása málið svona
út og gera að gróusögum og ágrein-
ingi,“ segir Ólöf deBont, sölumaður
hjá Bros auglýsingavörum, um um-
fjöllun um kostnað og launa vegna
styrktartónleika í Hallgrímskirkju.
„Ég hef verið báðum megin borðsins.
Ég er listamaður, hef sjálf lært söng
og er búin að fara með milljónir í
nám, og svo hef ég verið móðir lang-
veiks barns sem lést. Ég þekki því
málin beggja vegna borðsins. Það
þarf bara að vera meiri heiðarleiki í
hvernig svona samkomur fara fram:
Að þær séu til styrktar og ágóðinn
þegar búið er að borga kostnað renni
til viðkomandi málefnis.“
Ólöf segir að með umfjölluninni síð-
ustu daga sé búið að hleypa illu í
góðgerðarmálefni. „Það er óþarfi að
fjalla um svona mál á þennan hátt.
Það særir alla og niðurstaðan verður
neikvæð.“ segir Ólöf. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
26-27 (24kls 2.12.2004 15.56 Page 2