Fréttablaðið - 03.12.2004, Page 46
Ari Trausti Guðmundsson er 56
ára í dag. Hann heldur ekki hefð-
bundna afmælisveislu heldur opn-
ar, ásamt konu sinni, Maríu G.
Baldvinsdóttur, nýtt gallerí á
Laugavegi 40. Tímamótin slógu á
þráðinn til Ara Trausta í tilefni af
afmælinu og opnun gallerísins
„Yst“.
„Þótt ég segi sjálfur frá, þá er
þetta einhver fallegasta listversl-
un landsins.Þetta er nýtt hús,
byggt eftir brunann sem öllum er
í fersku minni. Yst er ekki hefð-
bundið sýningagallerí og ekki
heldur smágjafaverslun. Við sýn-
um í upphafi verk eftir tvo lista-
menn, Tolla og föður minn heitinn,
Guðmund Einarsson frá Miðdal.
Hér verður umsjónarmaður að
skjóta inn ofurlitlum fróðleik um
Guðmund frá Miðdal. Hann má
með sanni teljast brautryðjandi í
íslenskri hönnun, leirlistaverk
hans prýða víða íslensk heimili og
sumir muna hans eru meðal eftir-
sóttustu listgripa tuttugustu ald-
ar. En jafnframt því sem Guð-
mundur starfrækti Listvinahúsið
á Skólavörðuholti var hann mik-
ilsverður málari og teiknari.
Hann lærði við Akademíuna í
Kaupmannahöfn og lagði stund á
höggmyndalist í Munchen.
Myndefni hans voru oft úr ís-
lenskri náttúru.
„Þetta er hefðbundin desem-
beruppákoma Tolla en eftir föður
minn eru málverk, kolateikning-
ar og ýmis dæmi um listhönnun
hans sem ekki hafa mikið verið
sýnd seinni árin. Þetta eru m.a.
krúsir og vasar ýmis konar, úr
leirsmiðju hans í Listvinahús-
inu.“
Umsjónarmaður getur ekki
stillt sig um að spyrja jarðeðlis-
fræðinginn Ara Trausta hvort
hann hafi fylgst með síðasta
Grímsvatnagosi.
„Nei, ekki nema á netinu. Ég
var nefnilega með hóp ferða-
manna á Nýja-Sjálandi. En það
kemur gos eftir þetta gos.“ ■
34 3. desember 2004 FÖSTUDAGUR
JOSEPH CONRAD, RITHÖFUNDURINN
FRÆGI, FÆDDIST ÞENNAN DAG 1857.
Hann var reyndar pólskur, fæddur í Úkraínu.
Opnar gallerí á afmælisdaginn
ARI TRAUSTI: ÞETTA ER EKKERT SMÁGJAFAGALLERÍ
Trú á yfirnáttúrulegan uppruna hins illa er
ekki nauðsynleg – mennirnir einir eru
uppspretta alls ills.
Conrad var tvítyngdur, á pólsku og frönsku, en skrifaði höfuðrit sín
á ensku. Á legsteini hans í Kantaraborg í Englandi eru þrjár ritvillur.
timamot@frettabladid.is
Eitt versta mengunarslys sögunn-
ar átti sér stað þennan dag fyrir
tuttugu árum í Bhopal í miðju
Indlandi, þegar efnaleki varð í
verksmiðju bandaríska iðnfyrir-
tækisins Union Carbide. Efnið
sem lak er skylt blásýru og afleið-
ingarnar urðu skelfilegar. Tvö
þúsund manns dóu strax,
600.000 urðu fyrir skaða og að
minnsta kosti sex þúsund hafa
dáið síðan af afleiðingunum.
Verksmiðjan framleiddi skordýra-
eitur. Mjög skorti á nauðsynlegar
varúðarráðstafanir á staðnum.
Ekki var brugðist við þegar lekinn
hófst og starfsliðið var vanþjálfað.
Þá hafði íbúum í Bhopal og heil-
brigðisstarfsfólki ekki verið kennt
að bregðast við en vitað er að
margir hefðu bjargast með því
einu að halda rökum klút fyrir
vitin. Indverska stjórnin fór í
skaðabótamál við Union Carbide
og samdi að lokum 470 milljóna
dala bætur. Vegna þess hve gífur-
legur fjöldi íbúa varð fyrir skaða
kom sáralítið í hlut hvers, að
meðaltali 550 dalir. Dánarbætur
voru 1.300 dalir. Indverska stjórn-
kerfið, sem frægt er fyrir spillingu
og seinagang í stjórnsýslu, hefur
enn ekki greitt út nema um
helming bótanna. Union Carbide
hætti starfrækslu verksmiðjunnar
en lauk aldrei við hreinsun svæð-
isins og stöðugt lekur eitur og
óþverri úr verksmiðjurústunum.
Enn er haldið uppi mótmælum á
www.bhopal.net gegn stöðu
mála. ■
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1739 Steinn Jónsson Hólabisk-
up deyr.
1818 Illinois verður 21. ríki
Bandaríkjanna.
1857 Hvirfilbylur brýtur niður
bæjarhús að Kollsvík við
Patreksfjörð. Kona og tvö
börn farast.
1907 Mary Pickford og Cecil B.
DeMille leika saman á
Broadway.
1944 Borgarastríð brýst út í
Grikklandi eftir að Þjóð-
verjar hörfa þaðan.
1967 Læknirinn Christian Barn-
ard framkvæmir fyrstu
hjartaígræðsluna á sjúkra-
húsi í Suður-Afríku.
Hjartaþeginn dó 18 dög-
um seinna en læknirinn
varð heimsfrægur.
Mesta efnamengun aldarinnar
Eins og venja er mun þekktur stóð-
hestur dvelja í vetur í Fjölskyldu-
og húsdýragarðinum. Í gær, þriðju-
daginn 30. nóvember, kom stóðhest-
urinn Hamur frá Þóroddsstöðum í
garðinn.
Hamur er undan Galdri frá
Laugarvatni og Hlökk frá Laugar-
vatni. Hann er rauðstjörnóttur,
vindhærður, það er að hann er rauð-
ur á skrokkinn með stjörnu á enni
og grásprengt (vindhært) fax og
tagl. Hann er fæddur árið 1992 og
er því á 13. vetri. Hamur er í eigu
Bjarna Þorkelssonar og Hrossa-
ræktarsambands Vesturlands.
Hamur hlaut hæstu einkunn í
kynbótadómi á Landsmóti hesta-
manna á Melgerðismelum árið
1998. Aðaleinkunn var 8,50. ■
Nýr stóðhestur í húsdýragarðinum
STÓÐHESTUR GAGNAST HRYSSU
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Sigurður Magnússon
Frá Þórarinsstöðum, Seyðisfirði, áður til heimilis að
Kirkjuvegi 57, Vestmannaeyjum,
Þórunn Sigurðardóttir, Finnur Jónsson, Magnús Helgi Sigurðsson,
Inger Helgadóttir, Ásdís Sigurðardóttir, Sveinn Valgeirsson, Ólafur Már
Sigurðsson, Sigrún K. Ægisdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
verður jarðsunginn frá Seyðisfjarðarkirkju laugardaginn
4. desember kl. 14.00.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir
og amma,
Sigrún Einarsdóttir
Heiðarhjalla 35, Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi sunnudaginn 28. nóv-
ember. Hún verður jarðsungin frá Digraneskirkju þriðjudaginn
7. desember kl. 11.00.
Jón Kristfinnsson, Guðrún Björk Jónsdóttir, Kristrún Jónsdóttir,
Jón V.Guðmundsson, Einar Kjartan Jónsson, Drífa Björk Landmark
og barnabörn.
MARÍA G. BALDVINSDÓTTIR OG ARI TRAUSTI GUÐMUNDSSON
Einhver fallegasta listverslun landsins.
3. DESEMBER 1984 Tvö þúsund
manns deyja úr efnamengun á
Indlandi.
AFMÆLI
Hafsteinn Hafsteinsson,
forstjóri Landhelgisgæslunn-
ar, er 65 ára í dag.
Hilmar Thors stjórnmálafræðingur er 39
ára í dag.
ANDLÁT
Margrét Arngrímsdóttir lést mánudag-
inn 29. nóvember.
Sigrún Einarsdóttir, Heiðarhjalla 35, Kópa-
vogi, lést sunnudaginn 28. nóvember.
Magnús Jónsson vélstjóri, Tjarnarbraut
25, Hafnarfirði, lést þriðjudaginn 30.
nóvember.
JARÐARFARIR
13.00 Sigríður E. Halldórsdóttir frá Hnífs-
dal, Þrastarási 6, Hafnarfirði, verð-
ur jarðsungin frá Víðistaðakirkju í
Hafnarfirði.
13.00 Stefán Reynir Ásgeirsson verður
jarðsunginn frá Grafarvogskirkju.
13.30 Jóhann Kristinsson, fyrrv. fram-
kvæmdastjóri, Ránargötu 9, Akur-
eyri, verður jarðsunginn í Akur-
eyrarkirkju.
14.00 Hinrik Albertsson, Framnesvegi
20, Keflavík, verður jarðsunginn
frá Keflavíkurkirkju.
15.00 Guðlaug Sveinsdóttir, Urriðakvísl
23, Reykjavík, verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju.
Tilkynningar um merkisatburði,
stórafmæli, andlát og jarðarfarir
í smáletursdálkinn hér að ofan
má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma
550 5000.
46-47 (34-35) Timamot 2.12.2004 15:58 Page 2