Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.12.2004, Qupperneq 52

Fréttablaðið - 03.12.2004, Qupperneq 52
40 3. desember 2004 FÖSTUDAGUR Við óskum... ...varnarmanninnum sterka Kristjáni Erni Sigurðssyni til hamingju með að vera orðinn nýjasti atvinnumaður okkar Íslendinga í fótboltanum. Kristján Örn skrifaði undir þriggja ára samning við norska liðið Brann. „Það er svo sannarlega gaman að vera skemmtilegt hér í kvöld.“ Einar Bollason á góðri stundu í NBA–boltanum fyrir mörgum árum nokkru eftir miðnætti. sport@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 21 22 23 24 25 26 27 Laugardagur SEPTEMBER HANDBOLTI KA-maðurinn Halldór Jóhann Sigfússon hefur heldur betur látið til sín taka í DHL- deildinni í handbolta í vetur en hann kom heim fyrir þetta tíma- bil eftir tveggja ára dvöl hjá þýska liðinu Friesenheim. Halldór Jóhann er langmarka- hæsti leikmaður deildarinnar það sem af er og hefur skorað 89 mörk í tíu leikjum sem gerir 8,9 mörk að meðaltali í leik. Akureyringar hafa verið sjóð- andi heitir í deildinni í vetur því Þórsarnir Aigars Lazdins og Árni Þór Sigtryggsson koma næstir. Litháinn Lazdins hefur skorað 72 mörk í tíu leikjum en Árni Þór 67 mörk. Hinn síungi Zoltan Belányi, sem leikur með ÍBV, er í fjórða sæti með 63 mörk í níu leikjum og landsliðsmaðurinn Ingimundur Ingimundarson, sem leikur með toppliði ÍR, er síðan í fimmta sæti með 61 mark í níu leikjum. Halldór Jóhann sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að hann væri sáttur við eigin spila- mennsku í vetur. „Ég hef fundið mig vel, sjálfstraustið er í lagi og ég hef sennilega aldrei verið í betra formi heldur en núna,“ sagði Halldór Jóhann. Hann sagðist hafa æft mjög vel úti í Þýskalandi og náð að fylgja því vel eftir þegar hann kom heim til Íslands í maí. „Ég hef haldið dampi, æfði mjög vel í sumar og það hefur skilað sér,“ sagði Halldór og var ekki í vafa um að Þýskalandsdvölin hefur gert hann að betri leikmanni. „Ég hafði mjög gott af því að fara út, fékk dýrmæta reynslu þar og það kemur að gangi núna þegar ég er einn af reynslumestu mönnum KA-liðsins.“ Halldór Jóhann sagðist lítið hugsa um landsliðið en játti því að það væri auðvitað markmið hans. „Það er fultl af góðum leik- mönnum í minni stöðu en ég verð að sjálfsögðu klár ef kallið kem- ur. Ég ætla hins vegar ekki að fara að væla í fjölmiðlum ef ég er ekki valinn. Viggó veit hvað hann er að gera og þarf ekki mína hjálp til þess að velja liðið.“ HALLDÓR JÓHANN SIGFÚSSON Hefur skorað 8,9 mörk á meðaltali fyrir KA-menn í DHL-deildinni í vetur. Fréttablaðið/Pjetur Aldrei verið í betra formi en nú KA-maðurinn Halldór Jóhann Sigfússon er markahæsti leikmaður DHL-deildar karla í hand- bolta með 89 mörk í tíu leikjum.■ ■ LEIKIR  19.00 Þór Ak. og Þór Þorlákshöfn mætast í Höllinni á Akureyri í 1. deild karla í körfubolta.  19.15 Stjarnan og Selfoss leika í Ásgarði í suðurriðli DHL-deildar karla í handbolta.  19.15 KA og FH mætast í KA- heimilinu í norðurriðli DHL- deildar karla í handbolta.  19.15 Grótta/KR og ÍBV mætast á Seltjarnarnesi í suðurriðli DHL- deildar karla í handbolta.  20.00 Ármann/Þróttur og Valur mætast í Laugardalshöllinni í 1. deild karla í körfubolta.  20.00 Afturelding og HK mætast á Varmá í norðurriðli DHL-deildar karla í handbolta. ■ ■ SJÓNVARP  17.45 Olíssport á Sýn.  18.00 Upphitun á Skjá einum.  19.00 Motorworld á Sýn.  19.30 Race of Champions 2003 á Sýn.  20.30 Meistaradeildin í fótbolta á Sýn. Fréttaþáttur um meistaradeildina í fótbolta.  21.00 World Series of Poker á Sýn. Intersportdeildin KEFLAVÍK–SKALLAGRÍMUR 94–67 FJÖLNIR–SNÆFELL 100–81 Stig Fjölnis: Darrel Flake 31 (14 frák.), Nemanja Sovic 28 (8 frák.), Jeb Ivey 23 (8 stoðs.). Stig Snæfells: Desmond Peoples 22 (9 frák.), Magni Hafsteinsson 18 (7 frák., 7 stoðs.), Hlynur Bæringsson 16 (9 frák., 5 stoðs.), Sigurður Þorvaldsson 15. Ekkert stig af bekknum hjá Snæfelli annan leikinn í röð. TINDASTÓLL–NJARÐVÍK 85–95 ÍR–KR 92–83 HAUKAR–HAMAR/SELFOSS 88–93 KEFLAVÍK–SKALLAGRÍMUR 94–67 1. deild kvenna í körfu: Stærsta tapið í fyrsta leik Kanans KÖRFUBOLTI Njarðvíkurkonur unnu 37 stiga sigur á KR, 89-52, í mikil- vægum leik í botnslag 1. deildar kvenna í fyrrakvöld en það sést kannski á mikilvægi leiksins að bæði lið tefldu fram nýjum er- lendum leikmanni í honum. Það er óhætt að segja að hinn nýi serbneski bakvörður Njarð- víkinga, Vera Janjic, hafi byrjað vel en hún skoraði 22 stig og stal 9 boltum í sínum fyrsta leik auk þess að eiga 5 stoðsendingar og taka 5 fráköst. Hinn banda- ríski leikmaður liðsins, Jamie Woudstra, naut góðs af liðsstyrkn- um því hún gat einbeitt sér að þeim hlutum sem hún er best í og uppskeran var 31 stig, 13 stig og 8 stoðsendingar hjá henni. Cori Williston spilaði sinn fyrsta leik með KR en þessi bandaríski bak- vörður byrjaði ekki vel, skoraði reyndar 12 stig en liðið mátti þola stærsta tap tímabilsins og á enn langt í land með því bæta sína stöðu í deildinni. ■ LEIKIR GÆRDAGSINS Dregið í enska deildarbikarnum í knattspyrnu: Chelsea og United mætast SIGURMARKINU FAGNAÐ Leikmenn Manchester United sjást hér fagna sigurmarki Davids Bellion gegn Arsenal á miðvikudagskvöldið. FÓTBOLTI Í gær var dregið í undan- úrslitum enska deildarbikarsins í fótbolta en Manchester United og Liverpool tryggðu sér sæti í þeim á miðvikudagskvöldið með því að leggja Arsenal og Tottenham að velli. Manchester United bar sigurorð af Arsenal, 1–0, þar sem Frakkinn David Bellion skoraði sigurmarkið eftir aðeins nítján sekúndur. Bæði lið stilltu upp varaliði sínu en Manchester United var sterkari aðilinn og átti sigurinn skilin. Venju samkvæmt, þegar þessi lið spila, fór allt í háaloft og var Hollendingurinn Robin van Persie hjá Arsenal heppinn að sleppa með gult spjald fyrir aðför sína að Kieron Richardson, leikmanni Manchest- er United, á lokamínútunum. Leikur Tottenham og Liverpool var gífurlega spennandi en það var ekki fyrr en í fram- lengingunni sem mörk litu dagsins ljós. Jermain Defoe kom Tottenham yfir á 108. mínútu en Florent Sinama Pongolle jafnaði metin úr vítaspyrnu þegar þrjár mínútur voru til leiksloka. Freddy Kanoute og Michael Brown brenndu síðan af vítum fyrir Tottenhma í vítaspyrnukeppninni og Pongolle skoraði úr síðasta vítinu sem tryggði Liverpool sigur. Áður höfðu Chelsea og Watford tryggt sér sæti í undan- úrslitunum. Chelsea og Manchester United mætast á Stamford Bridge í og Watford sækir Liverpool heim á Anfield Road í fyrri leikjunum í undanúrslitum. Ray Lewington, knattspyrnu- stjóri Watford, var hæstánægður með dráttinn jafnvel þótt hann eigi ekki góðar minningar frá síðasta leik sínum á Anfield Road í deildarbikarnum. Það var árið 1986 en þá tapaði lið hans Fulham, sem var þá í þriðju deildinni, 10–0. Lewington sagði allt geta gerst og er viss um að margir öfunda Watford að þeirri stöðu sem liðið er í. „Ef við komumst í úrslitaleikinn þá gætum við verið öruggir með Evrópusæti,“ sagði Lewington. ■ 52-53 (40-41) SPORT 2.12.2004 21:28 Page 2
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.