Fréttablaðið - 03.12.2004, Page 66
54 3. desember 2004 FÖSTUDAGUR
FRÁBÆR SKEMMTUN
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.15
Sýnd kl. 5.15 og 7.15 m/ísl. tali.
Sýnd kl. 6, 8 & 10
SÝND kl. 3.40, 5.45, 8 og 10.15
SÝND kl. 4, 6, 8 og 10 b.i. 16
SÝND Í LÚXUS kl. 4, 6, 8 og 10
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15 Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15 b.i. 14 Sýnd kl. 4
MINDHUNTERS KL. 8.20 & 10.30 B.I. 16 ára
Sýnd kl. 8.20 B.I.14 ára
HHH kvikmyndir.com
HHH1/2 kvikmyndir.is
HHH kvikmyndir.com
HHH
HL Mbl
HHH Balli / Sjáðu PoppTV
Kolsvört jólagrínmynd
Sama Bridget. Glæný dagbók.
Fór beint á toppinn í USA
Frá leikstjóra Mr Deeds kemur gamanmynd
sem fær þig til að missa það algjörlega.
r l i tj r r r
f r i til i l j rl .
THE GRUDGE kl. 10.30 B.I.16 ára
"Snilldarþriller! Skuggalega hrollvekjandi!"
- Variety
"Nístir inn að beini!"
- Elle
"Upplifun! Meiriháttar!"
- Leonard Maltin
Garde á Vue (í varðhaldi)
Sýnd kl. 10
Film Noir Kvikmyndahátíð
(allar myndir með enskum texta)
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10 B.I.12 ára
CINDERELLA STORY kl. 4 og 6
HHH Ó.Ö.H DV
HHH
S.V. Mbl
JÓLAKLÚÐUR KRANKS
HHH
S.V. Mbl
Óttist endurkomuna
því hann er mættur aftur
vígalegri enn nokkru sinni fyrr!!
Sýnd kl. 4, 6.10, 8.20 & 10.30
Sýnd í LÚXUS VIP kl. 8.20 og 10.30
Sýnd kl. 4 og 6.10 m/ísl. tali.
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 & 10.10 m/ens. tali
Sama Bridget. Glæný dagbók.
HHH kvikmyndir.com
HHH
HL Mbl
HHH1/2 kvikmyndir.is
LADDER 49 SÝND KL. 10.10
SHALL WE DANCE? SÝND KL. 5.50 & 8
"Snilldarþriller! Skuggalega
hrollvekjandi!"
- Variety
"Nístir inn að beini!"
- Elle
Sýnd kl. 6, 8 & 10
Jólamyndin 2004
Jólamyndin 2004
FRÉTTIR AF FÓLKI
■ TÓNLIST
■ KVIKMYNDIR
Ungt kærustupar fer í frí til
Bahamaeyja. Þau kaupa sér ferð
til að stunda köfun úti á rúmsjó,
en svo óheppilega vill til að áhöfn
bátsins gleymir þeim skötuhjúum
og stingur af í land án þeirra. Þau
bíða svo þess sem verða vill með-
an hákarlar, marglyttur og margs
konar viðbjóður gerir þeim lífið
leitt.
Þessi saga sækir innblástur í
atburði sem áttu sér stað í raun og
veru en ungt par í Ástralíu lenti í
sömu aðstöðu og söguhetjurnar.
Myndin er afar raunsæ og persón-
urnar haga sér eins og maður
ímyndar sér að venjulegt fólk
myndi gera undir þessum kring-
umstæðum. Þau eru engar hetjur
heldur rífast og reyna að kenna
hvort öðru um. „Ég vildi fara á
skíði!“ öskrar Susan á kærasta
sinn, Daniel. Myndin er einnig
kvikmynduð á lygilegan hátt en
leikararnir voru í stálbrynju und-
ir þurrbúningum sínum og svöml-
uðu allan tímann í kringum alvöru
hákarla. Þetta er ódýr mynd og á
ekkert skylt við hefðbundna
hákarlatrylla. Hún á meira sam-
eiginlegt með heimildamyndinni
Touching the Void. Bjargarleysi,
þorsti og tilhugsunin um lötur-
hægan dauðdaga eru mun sterk-
ari andstæðingar í þessari mynd
en nokkur lifandi óvinur. Þessi
mynd var töluvert ódýrari í fram-
leiðslu en flestar íslenskar bíó-
myndir en hefur slegið í gegn á
kvikmyndahátíðum sem og al-
mennum markaði í Bandaríkjun-
um. Myndin er alls ekki gallalaus
en eftir stendur samt frumleg
saga sem á köflum er bæði hrika-
lega spennandi og skelfilega átak-
anleg. Að lokum má þess geta að
þýðing myndarinnar er sérlega
vönduð, hvort sem um er að ræða
orðalag eða tímasetningu.
Einar Árnason
Allt í grænum sjó
OPEN WATER
LEIKSTJÓRI: CHRIS KENTIS
AÐALHLUTVERK: BLANCHARD RYAN,
DANIEL TRAVIS
NIÐURSTAÐA: Myndin er alls ekki gallalaus en
eftir stendur samt frumleg saga sem á köflum
er bæði hrikalega spennandi og skelfilega átak-
anleg.
[ KVIKMYNDIR ]
UMFJÖLLUN
Maður sem var sakaður um aðsitja um söngkonuna Sheryl
Crow í 15 mánuði og brjótast inn í
tónleikahöll þar sem hún æfði lögin
sín hefur verið sýkn-
aður af öllum
ákærum. Maður-
inn hafði einnig
haft samband
við fjölskyldu
Crow og beð-
ið hana um
að koma á
fundi með
goðinu sínu.
Sagðist hann
vera andlegur
tvíburi söng-
konunnar.
Ínýjum þætti með gröllurunum íSouth Park er gert óspart grín að
kynlífsmyndbandinu sem lak út með
hótelerfingjanum Paris Hilton og
fyrrverandi kærasta hennar, Rick
Salomon. Þátturinn nefnist „Stupid
Spoiled Whore Video“ og fjallar um
táningsstúlkur sem dýrka Hilton.
Hvetja þær kærasta sína til að búa til
kynlífsmyndbönd með sér.
Óskarsverðlaunahafinn GeoffreyRush hafnaði tvisvar sinnum að-
alhlutverkinu í nýrri kvikmynd um
ævi gamanleikarans Peter Sellers,
The Life & Death of Peter Sellers.
Rush taldi sig ekki rétta manninn
fyrir hlutverkið vegna þess að hann
er frá Ástralíu en Sellers hafi verið
enskur og líka
miklu minni en
hann. Eftir að Rush
lék í Pirates of the
Caribbean fékk
hann aukið sjálfs-
traust vegna hlut-
verksins og skipti
um skoðun.
Ellefu hljómsveitir skipaðar 12-18
ára ungmennum halda tónleika í fé-
lagsmiðstöðinni Frostaskjóli í
kvöld kl. 19:00 til 23:00. Um það bil
helmingur þessara sveita á það
sameiginlegt að vera úr vesturbæ
Reykjavíkur. Þetta er í fjórða
skipti sem þessi tónlistarhátíð fer
fram og fer hún stækkandi með
hverju ári.
Hljómsveitirnar sem stíga á
stokk í kvöld eru: Bertel, Ofurdós,
Svefnþorn, Lalli and the Love
Triangle, The Russian Sterio
Group, Royal Fanclub, Genocide,
Savage Solution, Still Stone, Hello
Norbert og A Living Lie. ■
Frostrokk í fjórða sinn
FROSTROKK Það verður
rokkað og rólað í Frosta-
skjóli í kvöld.
Safnplata frá Curver
Tónlistarmaðurinn Curver er að
senda frá sér safndisk þessa dag-
ana með upptökum frá árunum
1991-1994. Diskurinn heitir Sær
(1991-1994). Í tilefni af útgáfunni
ætlar Smekkleysa að standa fyrir
sérstakri forhlustun í Plötubúð
Smekkleysu í dag klukkan 17.
Búðin er til húsa í kjallara Kjör-
garðs að Laugavegi 59.
Þar ætlar eini meðlimur hljóm-
sveitarinnar Curver, fjöllistamað-
urinn Birgir Örn Thoroddsen, að
veita áheyrendum leiðsögn.
Þar verður jafnframt hægt að
skoða Smekkleysusýninguna
Humar eða frægð.
Einnig spilar rokkhljómsveitin
Klink í plötubúðinni. Klink, sem
er meðal annars skipuð tón-
listarmönnum úr Bisund heitinni
og Mínus, hefur ekki leikið mikið
síðustu ár. Sveitinni bauðst hins
vegar að fara í tónleikaferðalag
með harðkjarna-sveitinni Deicide
um Evrópu og Skandinavíu og
mun því kveðja landið um sinn. ■
Næsta kvikmynd leikstjórans
James Cameron verður að öllum
líkindum The Dive. Fjallar hún
um ævi franska kafarans Audrey
Mestre sem stundaði köfun undir
leiðsögn Francisco Ferreras, sem
síðar varð eiginmaður hennar.
Mestre lést á sorglegan hátt fyrir
tveimur árum þegar hún var að
reyna að bæta heimsmet sitt í
köfun án súrefniskúts.
Cameron virðist vera hug-
fanginn af hafinu og leyndardóm-
um þess því ein af frægari mynd-
um hans er The Abyss frá árinu
1989. Einnig gerðist síðasta kvik-
mynd hans, Titanic, úti á regin-
hafi auk þess sem heimildar-
myndin Aliens of the Deep er
væntanleg frá honum á næsta
ári. Fjallar hún um köfunarleið-
angur í Atlants- og Kyrrahafi
sem sjávarlíffræðingar og vís-
indamenn Nasa fóru í ásamt
Cameron.
Heimildarmynd í leikstjórn
Cameron, Ghosts of the Abyss,
kom að auki út sex árum á eftir
Titanic. Fjallaði hún um leiðang-
ur sem var farinn til að skoða
Titanic-flakið. Leikarinn Bill
Paxton var þar með í för. ■
■ TÓNLEIKAR
GHOSTS OF THE ABYSS Heimildarmyndin Ghosts of the Abyss er ein af þeim fjöl-
mörgu sjávarmyndum sem James Cameron hefur búið til.
Cameron í
köfunarleiðangri
BIRGIR ÖRN THORODDSEN Curver kynnir safnplötu sína i Plötubúð Smekkleysu.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/H
AR
I
66-67 (54-55) Bio-husin 2.12.2004 19:34 Page 2