Tíminn - 13.03.1974, Blaðsíða 1

Tíminn - 13.03.1974, Blaðsíða 1
AuglýsingadeiSd TÍMANS Aðalstræti 7 KÓPAVOGS APÓTEK Opiö öll kvöid til kl. 7 Laugardaga til kl. 2 Sunnudaga kl. 1 til 3 Sími 40-102 - - Lögregluaðgerðir eru nú í aðsigi JH—Reykjavík. — Ueitan um kittisvcrksmiöjuna I Hveragerði er aö haröna, og er ekki ósenni- legt, aö rikisvaldiö iáti til skarar skriöa í dag, þar eö forráðamenn hennar hafa ekki enn fulinægt ákvæöum regiugeröar um mengunarvarnir, svo sem vera ber, áöur en ráöizt er i framkvæmdir viö byggingu siikr- ar verksmiöju. Sýslumaðurinn i Arnessýslu skarst i þetta mál á fimmtudag- inn var, aö fyrirlagi heilbrigðis- ráðuneytisins, en þá var forráða- mönnum verksmiðjunnar veittur frestur fram á mánudag til þess að fullnægja ákvæðum reglugerð- arinnar. Þessi frestur var enn framlengdur, á mánudaginn fram á daginn i gær. Lögfræðingur fyrirtækisins, Ólafur Þorgrimsson, heldur þvi aftur á móti fram, að ákvæði mengunarreglugerðarinnar seu vfðtækari en lögin.sem hún er byggö á, gefi heimild til. 1 heilbrigðisráðuneytinu var Timanum skýrt svo frá I gær, að Ólafur hefði á föstudaginn snúið sér til eins manns i eiturefna- nefnd og óskað eftir áliti hans á kittisverksmiðjunni, en hann hefði svarað þvi til, að hann gæti ekki lagt málið fyrir nefndina, nema það færi rétta boðleið i gegnum heilbrigöismálaráðu- neytið. Virðist nú ekki nema tvennttil: Annaöhvort verða for- ráðamenn verksmiðjunnar að fallast á, að stööva framkvæmd- ir, meðan rannsókn fer fram og máliö er útkljáð af réttum yfir- völdum eða lögregluvörður verð- ur settur um staðinn til þess að koma i veg fyrir frekari fram- kvæmdir. Þá var okkur tjáð, að forráða- menn Hveragerðishrepps hefðu hugsanlega gerzt brotlegir við lög um hollustuhætti og heilbrigöis- eftirlit, þar eð hún hafði ekki i þessu máli fullnægt öllum þeim skyldum, sem þau leggja henni á herðar. Nokkur ótti er nú við það i Hveragerði, að hreppurinn kunni að verða skaðabótaskyldur vegna meðferöar þessa máls, og er þess beðið með vaxandi athygli, hverju fram vindur. 85 b!ys voru borin I heiöursgöngu, sem farin var aö heimili Þórbergs I gær. Mannfjöldinn sem þar safnaðist saman hyllti meistarann og söng og Pétur Pétursson ávarpaöi rithöfundinn. Þorbergur hylltur á 85 dra afmælinu Þórbergur Þóröarson á áttræöisafmæli sfnu. Meö honum eru þær tvær konur, er staöiö hafa honum næst, eiginkona hans, Margrét Jónsdóttir og Lilia Hegg, sem Sálmurinn um blómiö var skrifaöur um. Hún er orö- in fullorðin kona, gift og á þrjú börn. Hiö elsta er Þórbergur, 11 ára gamall, hin börnin eru 9 og 5 ára. Myndin er tekin á heimili rit- höfundarins um þaö leyti I gærkvöldi, sem Þórbergsvaka var aö hefjast i útvarpinu og er Þórbergur meö sérstök heyrnartæki til aö hlusta á þaö sem þar var Hutt, en heyrnin er oröin dauf en andinn hress. Tima- myndir Gunnar. Oó-Reykjavik.Hátið var haldin á túninu sunnan við Hringbraut 45 i gær. Þar var sungið um Sel- tjarnarnesið er litið og lágt, Tumma Kukka og International- inn og lúðrasveit lék. A efstu svöl- um hússins stóð Þórbergur Þórðarson, kona hans Margrét Jónsdóttirog Lilla Hegga, sem nú er gift kona og þriggja barna móðir, en á túninu stóð mann- fjöldinn og söng undir blaktandi blysum, og hyllti meistara sinn 85 ára. Blysförin til heiðurs Þórbergi lagði upp frá Vonarstræti og var gengið að heimili rithöfundarins undir leik Lúörasveitar verka- lýðsins. Er Þórbergur gekk út meö fyrrgreindu föruneyti var honum fagnað innilega. Pétur Pétursson, útvarpsþulur, ávarp- aði Þórberg, likti honum við Vidalin, Espólin og Chaplin i einni og sömu persónu, og þakkaði hon- um ævistarfið i þágu islenzkrar alþýðu og menningar, og Mar- gréti fyrir að stoppa i vixlspor fjárveitingarvaldsins og taka á sinar herðar biröar veraldlegrar og stundlegrar áhyggju til að skáldið fengi að sinna timafrek- um verkum sinum. Bókaherbergi Þórbergs var fullt af blómum, sem bárust stanzlaust allan daginn og sagði Margrét að ótöiulegur fjöldi skeyta hafi borist og mikill fjöldi vina komiö viö á heimilinu til að óska afmælisbarninu til ham- ingju. Er Tímamenn litu inn eftir blysförina var umskiptingastofan full af blómum og vinum og Þór- bergur ljómaði af ánægju, en hafði helzt áhyggjur af þvi, að geta ekki heyrt útvarpsdag- skrána, sem var að hefjast. En bætt var úr þvi og komu útvarps- menn með sérstök heyrnartæki og fylgdist gamli maðurinn af áhuga með. Margrét sagði, að gestir hafi byrjað að koma á heimilið þegar kl. 11 um morguninn. Komu þá nemendur einnar deildar úr háskólanum, 32 talsins. Fengu þeir fri til aö heimsækja Þórberg og sungu þeir fyrir utan húsiö og var siðan boðið inn. Siðan komu átta prófessorar með skjal upp á að Þórbergur væri orðinn heiðursdoktor, og afhentu honum það. Eftir hádegi og framúr var mikill gestagangur. Þeir sem fylgdust með Þór- bergsvöku i gær heyrðu að enn er andlegt fjör i karli, en heyrnin er orðin dauf og hann á erfitt um gang og er studdur milli her- bergja, en Margrét er kvik eins og hind og manni sinum stoð og stytta, eins og endranær. Útbrotsmenn á Litla-Hrauni: LOGÐU A RAÐIN UM MANNRÁN OG LAUSNARGJALD? FANGARNIR fjórir sem geröu tilraun til útbrots af Litla-Hrauni sunnudaginn 24. febrúar s.l., áttu erindi úr prisundinni, þvi þeir höföu uppi miklar ráöageröir um þaö hvernig þeir ætluöu aö verja frelsinu, sem þeim tókst þó ekki Aðalfundur miðstjórnar hefst 26. apríl Aðalfundur miðstjórnar Framsóknarflokksins hefst i Reykjavik, föstudaginn 26. april n.k. Búast má við, að fundurinn standi i þrjá daga. Þess er vænzt, að þeir miðstjórnarmenn, sem ekki geta setið fundinn tilkynni það með góðum fyrirvara, svo að hægt sé að boða varamenn i þeirra stað. að höndla þaö sinnið. Eins og sagt var frá i Timanum réðust fangarnir á fangavörö og yfir- unnu liann, en voru gripnir áöur en þeir komust út. Yfirheyrslur hafa staðið yfir i þessu máli allt'siðan, og komið mun fram, að tilbúin hafi verið áætlun um fjáröflunar- og undan- komuleið. Samkvæmt henni átti aö byrja á að taka bil traustataki og fara til Reykjavikur. Þar átti að vopnast, og næsta stórvirki fjórmenninganna átti að vera að ræna manni. Ekki liggur alveg ljóst hver fórnarlambið átti að vera, en gildur þjóðfélagsþegn skyldi það vera, þvi til stóð að krefjast hálfrar milljónar dollara lausnargjalds. og geta menn velt fyrir sér, hvern þeir Litla- Hraunsmenn meta til þess verðs. og hvaða aðili er liklegastur til að greiða það af hendi. Framhald áætlunarinnar þarf vart að rekja. Sá þáttur hennar. sem hér er rakinn. er svo gamal- kunnur af tiltektum röskra manna i útlöndum, að sömu leikreglur hljóta aö gilda um undankomu úr landi og tiðkaðar eru meðal vopnaöra manna. sem þurfa að bregöa sér bæjarleið um loftin blá. Ótalið er afrek, sem piltunum tókst að framkvæma innan fang- elsisveggjanna,. Þeir lögöu nefni- lega i og brugguðu til þess að stytta sér stundirnar viö afplánun dóma.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.