Tíminn - 13.03.1974, Page 4
4
TÍMINN
Miövikudagur 13. marz 1974.
Hefur ofnæmi
fyrir vatni
Illa er komið fyrir leikaranum
og söngvaranum Dean Martin,
hann hefur ofnæmi fyrir vatni.
Hann burstar ekki tennurnar
upp úr öðru en dýrum frönskum
vlnum, aðallega Chateau
d’Yquim, helzt árgangi 1959,
sem er bezti árgangur þessarar
aldar. Vinið er honum sent sér-
staklega frá Bordeaux og kostar
litlar fimm þúsund krónur
flaskan.
— Ég er búinn að fá ofnæmi
fyrir vatni, segir leikarinn. Ég
er dauðhræddur við þennan
viðbjóðslega lyktar og litlausa
vökva. Það er eins gott,að hann
hefur efni á þvi, eða upp úr
hverju skyldi hann baða sig?
Ovenjulegt
heimilisdýr
Kventigrisdýrið Dina frá
Súmatra, nú i dýragarðinum i
Alma Ata, Kazakhstan, neitaði
alveg að gegna móðurhlut-
verkinu eftir að hafa fætt 3 af-
kvæmi. Tvö þeirra dóu. Þvi
þriðja var komið fyrir hjá
hjónunum, Lidiu og Enver
Sarynous, bæði doktorar að
mennt. Heimili þeirra var á 2.
hæð i háhýsi og þangað
fluttu'þau Lipochku,eins og litla
tigrisdýrið vgr nefnt. Þar urðu
alls konar vandræði. T.d. varð
köttur, sem átti að fóstra
„barnið”, dauðhræddur og forð-
aði sér. Þá varð Sarynov fjöl-
skyldan að taka við „barnaupp-
eldinu”. Lipochku var séð fyrir
öllu, sem venjuleg ungbörn eru
talin þurfa með. En það var ekki
svo einfalt, hún neitaði t.d. alveg
að nota pela. Þá varð að taka til
annarra ráða, binda á henni
fæturna og nota dropateljara til
að fæða hana. Nú eru mestu
erfiðleikarnir liðnir hjá.
Lipochka er orðin fimm
mánaða. Hún þrifst vel og hefur
góða matarlyst, leifir engu af
matarskammtinum frá dýra-
garðinum : 12 kg. af nýju kjöti,
egg, mjólk og græn-
meti.Lipochka er uppáhald
allra, ljúf i lund og leikur sér vift
fólk og við hvolpinn Katya. En
hún þolir illa einveru og kann
ekki við að vera skilin ein eftir i
ibúðinni. Og gleði hennar er
augljós, þegar einhver úr fjöl-
skyldunni skilar sér heim aftur.
Eftir þvi sem dýrafræðingarnir
segja, þá getur það farið að
verða hættulegt að hafa
Lipochku öllu lengur á
heimilinu, svo að nú er verið að
undir. búa flutning hennar I
dýragarð.
★
★
★
Erum við ekki sæt-
ar og útskeifar?
Þessar ungu dömur eru mjög
alvarlegar á svipinn, enda eru
þær að byrja nám i listdansi og
þá er mikilsvert að fara að öllu
með nákvæmni og taka kennsl-
una alvarlega. Þær eru i skóla,
sem er rekinn af leik- og dans-
sýningarhúsi i Moskvu. Þetta
leikhús er i sambandi við stór-
fyrirtæki, sem heitir Hamar og
Sigð, og er það risastórt stál-
vinnsluver i Moskvu, þar sem
vinnur aragrúi fólks. Dansskóli
þessi er ekki talinn standa jafn-
fætis atvinnudansaraskólum, en
það eru gerðar miklar kröfur til
hæfni þeirra, sem eru teknir i
þannig skóla i Sovétrlkjunum,og
stendur listdans þar með mikl-
um blóma, svo sem alkunna er.
Þessi skóli er talinn undirbún-
ingsskóli og einkum til þess fall-
inn að glæða áhuga barna og
unglinga á listdansi.
/ ' '/■ ' j1? ;■ 'J / C Y
1 m m •íN d
E l|r 3 a
DENNI
DÆMALAUSI
Skildu trommuna eftir fyrir utan.
í dag verðurðu að fara vel að