Tíminn - 13.03.1974, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 13. marz 1974.
TÍMINN
7
Kvenréttindafélag íslands:
Jafnari skipting
auðæfa
K.R.F.Í. hefur nýlega haldið
aðalfund sinn. Það kom m.a.
fram i skýrslu formanns, að fund-
ur alþjóðafélagsins, sem haldinn
var i Nýju Delhi i Indlandi i
nóvember s.l., hefði haft að kjör-
orði sinu: „Framfarir með sam-
starfi”.
Fundurinn beindi þeim tilmæl-
um til aðiidarfélaga sinna, en
K.R.F.I. er eitt þeirra, að þau
vinni að jafnari skiptingu auðæfa
heimsins, og að þau noti vel
kvennaárið 1975 og hvetji konur
um viða veröld til þess að láta
ekki sinn hlut eftir liggja til að
efla framfarir á sviði félags- og
stjórnmála. 1 framhaldi af þessu
sagði formaður, að stjórn
K.R.F.I. hefði ákveðið að skipa
nefnd i tilefni af alþjóðakvenna-
árinu, og yrði leitzat við að hafa
samvinnu um þetta við kven-
réttindasamtök annars staðar á
Norðurlöndum. En þau hafa ein-
mitt i undirbúningi samnorrænan
fund, sem haldinn verður i Finn-
landi i júni n.k.
Að þessu sinni átti að ganga úr
stjórn K.R.F.l. varaformaður,
sem kosinn er til tveggja ára i
senn. Fráfarandi varaformaður,
Asta Björnsdóttir, baðst ein-
dregið undan kosningu, enda hef-
ur hún árum saman verið i stjórn
félagsins eða gegnt þar öðrum
trúnaðarstörfum. Stjórnin er nú
þannig skipuð: Guðný Helgadótt-
ir, formaður, Brynhildur
Athugasemd
heimsins
Kjartansdóttir, varaformaður,
Lára Sigurbjörnsdóttir, Sigriður
Anna Valdimarsdóttir og Þóra
Brynjólfsdóttir og einnig Ganney
Long Einarsdóttir, Guðrún Gisla-
dóttir, Margrét Einarsdóttir og
Valborg Bentsdóttir, sem eru til-
nefndar af landsfundi K.R.F.I.
Stjórn K.R.F.l. hefur ákveðið
að gangast fyrir gjöf i Menningar-
og minningarsjóð kvenna til
minningar úm Aðalbjörgu
Sigurðardóttur. Þeir félagsmenn.
sem óska að eiga hér hlut að máli.
geta afhent framlag sitt á skrif-
stofu K.R.F.I., að Hallveigastöð-
um, á þeim timum sem hún er
opin, sem er þriðjudaga, fimmtu-
daga og föstudaga kl. 15-17.
Engey RE 1 kom til Reykjavlkur á laugardaginn, en þessi skuttogari er smlðaður i Póllandi, og eigandi
hans er Einar Sigurðsson, ásamt Ingvari Vilhjálmssyni. Togarinn er 785 rúmlestir að stærð og með 3
þús. h.a. aðalvél, sem knýr skipið um 16.5 sjómilur. Skipstjóri á Engey er hinn kunni aflamaður Arin-
björn Sigurðsson. — Timamynd: Róbert.
Þjóðhátíð á Akranesi í júnílok
ÞJÓÐHATÍÐARNEFND Akra-
ness hefur undirbúið nokkurra
daga hátiðahöld á Akranesi siðast
i júni i tilefni af 11 alda afmæli
byggðar i landinu. Þjóðhátiðin á
Akranesi hefst föstudagskvöldið
28. júni, en þá verður opnuð iðn-
sýning I Gagnfræðaskólanum.
Sýndur verður þverskurður af
framleiðslu bæjarbúa i iðnaði og
sjávarútvegi. Þá verður jafn-
framt opnuð listsýning þetta
kvöld, en hún verður væntanlega
til húsa i barnaskólanum. Báðar
þessar sýningar verða opnar i
viku.
Dagana 29. og 30. júni verður
efnt til iþróttahátiða á vegum 1A.
Verður þar keppt bæði i einstakl-
ings- og flokksiþróttum.
Um helgina 30. júni er stefnt að
þvi að opna nýtt byggðasafnshús
á Akranesi, en það hefur verið i
byggingu i nokkur ár. Byggða-
safn hefur verið starfrækt i 15 ár á
Akranesi, og hefur það fengið inni
i gamla Garða-húsinu.
1 sumar á að ljúka fyrsta
áfanga húsasamstæðu, sem á að
rúma byggðasafnið i framtiðinni,
og er byggingin svo langt komin,
að gert er ráð fyrir þvi, að vigsla
og opnun safnsins i nýjum húsa-
kynnum geti fallið inn i þjóð-
hátiðardagskrá.
Þá hefur komið til tals, að írar
færi Akurnesingum minninga-
stein um landnám Ira á Akranesi.
Er vonazt til að afhjúpun steins-
ins geti orðið liður i hátiðahöldun-
um.
Landnámið á Akranesi er að
þvi leyti sérstakt, að þar námu
einungis kristnir menn, irskir
land.
Að lokinni helginni 30. júni er
fyrirhugað að eitthvað verði á
dagskrá vikuna út, þótt ekki hafi
verið gengið frá einstökum atrið-
um. Þar munu koma við sögu
kirkjukór Akraness, hestamenn
staðarins og skátar, svo eitthvað
sé nefnt. Og eitt kvöldið munu
Akurensingar fagna komu „kútt-
ersins”, sem Kiwanisklúbbur
Akraness hefur keypt i Færeyj-
um, og ætlar að gefa byggðasafn-
inu. Fyrirhugað er að taka hátið-
lega á móti „kútternum” á
hafnargarðinum.
Þá eiga Akurnesingar von á
öðrum góðum grip, sem
Lions-menn hafa greitt fyrir, en
það er gamli Ford, árgerð 1918,
svokallað T-model. Er nú verið að
gerabilinn upp i Reykjavik, og
verður honum ekið um Akranes-
bæ, áður en honum verður ekið að
Görðum, þar sem hann verður
geymdur.
Nefna má, að i undirbúningi er
útgáfa sérstaks hátiðarrits á
Akranesi.
Gert er ráð fyrir þvi, að hátið-
inni á Akranesi ljúki föstudaginn
5. júli, en daginn eftir stendur
þjóðhátið að Reykholti, sameigin-
leg hátið Borgfirðinga, Mýra-
manna og Akurnesinga.
Undirritaður vill taka skýrt
fram, að orðum var aukið i við-
tali, sem Timinn átti við hann,
fimmtudaginn 7. marz, undir
fyrisögninni „Umræður um rétt-
indi og lánamál”.
Ber þar helzt að nefna, að tóm
rökleysa var höfð eftir undir-
rituðum varðandi ósamstöðu og
framtaksleysi garðyrkjubænda.
Einnig var ekki lagður réttur
skilningur i það, sem sagt var um
ómenntaða garðyrkjubændur, þvi
i þeirra hópi eru margir mjög
duglegir garðyrkjumenn og fyrst
og fremst átt við það, að i fram-
tiðinni nyti menntun garðyrkju-
fræðinga fullra réttinda.
Reykjum, Olfusi, 8. marz 1974.
Björn Jónsson, formaður
skólafélags garðyrkjunema.
Ég, undirritaöur blaðamaður
Timans, vil taka fram eftirfar-
andi varðandi leiðréttingu Björns
Jónssonar:
1 leiðréttingu Björns segir:
„Ber þar helzt að nefna, að tóm
rökleysa var höfð eftir undir-
rituðum varðandi ósamstöðu og
framtaksleysi garðyrkjubænda.”
Það er ekki mál undirritaðs,
hvort Björn Jónsson fer með
tómarökleysu i samtali við blaða-
mann. Um það atriði verður hann
að sakast við sjálfan sig og engan
annan.
Aftur á móti, ef Björn Jónsson
heldur þvi fram, að blaðamaður-
inn hafi gert sin orð að hans, þá
skal það sem rétt er, koma fram.
Þegar undirritaður átti tal við
Björn Jónsson, spurði ég hann,
hverjar væru orsakir þess, að
réttindi þeirra væru svo litil sem
raun ber vitni. Svaraði Björn og
sagði: „Þú mátt hafa það eftir
mér, að ég tel, aö framtaksleysi
og ósamstaða garðyrkjubænda
séu aðalorsakir þess...”
Hvort ofangreind orsök er hin
eina og sanna, skal ég ekki tjá
mig um, enda litt kunnur rétt-
indamálum garðyrkjunema.
Varðandi hitt atriðið, sem
Björn nefnir, visa ég til viðtals-
ins, en þar segir:
,, — Það kann ekki góðri lukku
að stýra fyrir ylræktarbuskapinn
i landinu, þegar mikið af ólærðu
fólki hefur veg og vanda af garð-
yrkjumálum.”
Virðingarfyllst
Gunnar Salvarsson,
blaðamaður.
Verksmidju
Höfum opnað útsölu á lítið gölluðum
vörum frú verksmiðjum okkar
AÐ SNORRABRAUT 56 — REYKJAVÍK
Selt verður: Prjónagarn — Gluggatjaldaefni —
Áklæði — Teryleneefni — Tweedefni —
Ullarteppi — Svefnpokar — Gallabuxur —
Peysur — Úlpur — Frakkar — Herraskór —
Kvenskór — Unglingaskór — Inniskór —
Safariskór — Knattspyrnuskór og margt fleira
EINSTAKT TÆKIFÆRI TIL AÐ KAUPA GÆÐAVÖRU Á GÆÐAVERÐI
GEFJUN
Verksmiðjurnar
— HEKLA -
Akureyri
IÐUNN