Tíminn - 13.03.1974, Síða 13
Mi&vikudagur 13. marz 1974.
TÍMINN
13
Umsjón og ábyrgö: Samband ungra framsóknarmanna.
Ritstjórar og ábyrg&armenn fyrir hönd stjórnar SUF: Ólafur Ragnar
Grimsson, Pétur Einarsson.
AÐ GEFNU TILEFNI
Af gefnu tilefni þykir rétt að
birta hér i heild hina itarlegu
skýrslu rannsóknarnefndar
SUF, sem skipuð var vegna
kæru Baldurs Kristjánssonar og
fleiri um lögbrot við undirbún-
ing og framkvæmd aðalfundar
FUF i Reykjavik 24. október s.l.
t nefndinni voru sex stjórnar-
menn i SUF, sem allir eru utan
af landi og komu hvergi nærri
téðum aðalfundi. Þessa menn
þekkja framsóknarmenn um
allt land vel, en til nánari upp-
lýsinga má geta þess, að fjórir
þeirra eru formenn i öðrum
stofnunum innan flokksins:
Eggert Jóhannesson er formað-
ur Framsóknarfélags Selfoss,
Ingvar Björnsson er formaður
Kjördæmissambands
framsóknarmanna i Reykjanes-
kjördæmi, Jóhann Antonsson er
formaður Framsóknarfélagsins
á Dalvik, og Guðmundur W.
Stefánsson er formaður
Framsóknarfélagsins i Hvera-
geröi. Pétur Einarsson og Frið-
rik Georgsson eru i miðstjórn
Framsóknarflokksins eins og
aðrir nefndarmanna.
Eins og kunnugt er hefur ver-
iö ákveðið, i samræmi við þessa
skýrslu, að halda nýjan aðal-
fund, og hefur hann þegar verið
auglýstur, en hann verður 25.
marz n.k.
Ómar Kristjánsson hefur sent
SUF-siðunni athugasemdir við
skýrsluna, og hefur veriö
ákveöið að birta hana, en vegna
þeirra takmarkana á rúmi SUF-
siðunnar i Timanum, sem
flokksforystan hefur sett, verð-
ur birting hennar aö biða, og
sömuleiðis ýmislegt annað að-
sent efni.
Skýrsla SUF-nefndarinnar
A fundi sinum 15. nóvember
1973 kaus stjórn SUF nefnd til að
rannsaka meint brot varðandi
aðalfundFUFi Reykjavik, sem
haldinn var 24. október 1973. í
nefndina voru kosnir: Eggert
Jóhannesson, Selfossi, for-
maður, Ingvar Björnsson,
Hafnarfirði, Friðrik Georgsson,
Keflavik, Jóhann Antonsson,
Dalvik, Guðmundur W. Stefáns-
son, Hveragerði og Pétur
Einarsson, Kópavogi.
Tilefni þess, að stjórn SUF
kaus umrædda nefnd, var kæra
Baldurs Kristjánssonar og
fleiri dags. 25.10. 1973.
Akæruatriðin eru i fjórum lið-
um.
Ómar Kristjánsson hefur bæði
i skriflegri greinargerð og
munnlega á fundum nefndar-
innar skýrt viðhorf sin til
umræddra ákæruatriða. Einnig
hefur Baldur Kristjánsson tjáð
sig um ýmis atriði, og ýmsir
borið vitni fyrir nefndinni.
Fyrsta ákæruatriðið hljóðar
svo:
„Spjaldskrá félagsins var
fölsuð á þann hátt, að inn á hana
var bætt nöfnun manna, án þess
að þeir hefðu verið teknir inn i
félagið Við höfum rökstuddan
grun um, að svo hafi verið um
a.m.k. 119 menn. Samkvæmt
lögum FUF i Reykjavik skulu
inntökubeiðnir berast stjórn
félagsins a.m.k. viku fyrir aðal-
fund, og vera samþykktar á
félagsfundi, sem fram fer á
undan aðalfundi. Hvorugt þess-
ara skilyrða var uppfyllt varð-
andi þá 119 menn, sem bætt
hafði verið inn á félagsskrána”.
1 greinargerð sinni lýsir ómar
Kristjánsson þvi yfir, að honum
sé ekki kunnugt um, að ekki hafi
verið fariö eftir formlegum
reglum um inntöku fólks i FUF
fyrir nefndan aðalfund.
Baldur Kristjánsson hefur
lýst þvi yfir, að hann hafi þrem
dögum fyrir aðalfundinn farið
yfir spjaldskrá félagsins og
borið hana saman viö kjörskrá
félagsins frá 1971. Hafi þá
komiö i ljós, að nöfn 119 manna
hafi hvorki fundizt á félaga-
talinu frá 1971 né i skrám um
nýja félaga, sem gengið hafa i
félagiö frá þeim tima fram aö
aðalfundinum 1973. Kveður
Baldur þetta hafa orðið tilefni til
þess, að hann tölusetti öll þau
spjöld, sem i spjaldskránni voru
með sérstökum tölusetningar-
stimpli. Þegar rofiö var innsigli
á spjaldskrá félagsins,
upplýstist, aö a.m.k. 10 spjöld
voru ónumeruð. Engin skýring
hefur komiö fram á þvi hvers
vegna.
Baldur Kristjánsson hefur
lagt fram vottorö þriggja
manna, þeirra Rögnvaldar
Óðinssonar, Péturs Jónssonar
og Hrafnkels Óðinssonar. Hafa
tveir þeir fyrrnefndu komið
fyrir rannsóknarnefndina og
staðfest vottorö sin.
I vottorði Rögnvaldar óöins-
sonar frá 23.10 1973 segir m.a.
svo:
„Fimmtudaginn 18 þ.m. haföi
einn af félagsmönnum FUF i
Reykjavik samband við mig og
stakk upp á þvi við mig, aö ég
gengi i félagið. Daginn eftir,
föstudaginn 19. október, mætti
ég á skrifstofu Sigurðar
Gizurarsonar hrl. Þar var nafn
mitt skrifað niður i bók ásamt
nöfnum Péturs Jónssonar,
Teigagerði 1, og Hrafnkels
Óðinssonar, Heiðargerði 32.
Hvorugur þeirra var viðstadd-
ur, en ég var búinn að tala við
þá um að ganga i félagið
skömmu áður. Þar var mér
tjáö, að enginn félagsfundur
yrði haldinn fyrir aðalfund til
að taka nýja félaga inn i félagið,
en hins vegar yrðu nöfn okkar
færð inn á félagaskrá, þannig
að við gætum mætt með fullum
atkvæðisrétti á aðalfundinum
hinn 24. þ.m., og var lagt rikt á
við mig að mæta og sjá um, að
hinir tveir mættu á aðalfund-
ínn .
Vottorð hinna tveggja eru
efnislega á sömu leið.
Baldur Kristjánsson hefur
bent á að nöfn tviburasystranna
Onnu Margrétar og Hlifar
Guðmundsdætra, til heimilis að
Bakkagerði 1 i Reykjavik, sem
fæddar eru hinn 16. september
1959, séu á spjaldskránni. Sam
kvæmt þvi hafi þær ekki haft
aldur til þess að gerast félags-
menn fyrr en hinn 16. september
s.l. Eftir þann tima var aðeins
einn félagsfundur haldinn i
félaginu fyrir aðalfund, og á
þeim félagsfundi voru inntöku-
beiðnir þeirra ekki bornar upp
eða samþykktar. Hljóti þvi
nöfnum þeirra að hafa verið
bætt á spjaldskrána án þess að
formskilyrðum um inntöku
þeirra i félagið væri fullnægt.
Báðar þessar stúlkur hafi mætt
á aðalfundinum hinum 24.
október, og ennfremur vottorðs-
gefendurnir þrir.
Omar Kristjánsson hefur
mótmælt lista Baldurs
Kristjánssonar með nöfnum
þeirra 119 manna, sem Baldur
telur hafa verið sett ólöglega
inná félagaskrána. Ómar hefur
bent a nöfn þriggja manna á
lista Baldurs, sem hann telur
sig geta fullyrt, að hafi gengið
löglega i félagiö, þeirra Braga
Guðbergssonar, Jónasar R.
Jónssonar og Sigurðar
Þórarinssonar. Ómar hefur ekki
bent á aðra menn meö sama
hætti.
Baldur hefur ekki mótmælt
þvi sérstaklega, að umræddir
þrir menn hafi gengið löglega i
félagið.
Fyrir aöalfundinn voru
félagsmönnum afhent félags-
skirteini með viðfestum
aðgöngumiða að fundinum, sem
skráö var á nafn viðkomandi
félagsmanns. Umræddir að-
göngumiðar voru strax við
innganginn settir i kassa og
kassinn siðan innsiglaöur af
deiluaðilum að aðalfundinum.
Rannsóknarnefndin gerði
margitrekaöar tilraunir til þess
að fá kassa þennan opnaöan, og
tókst það að lokum I febrúar s.l.
Formaöur rannsóknarnefndar-
innar var viöstaddur viö opnun
kassans. I ljós kom, þegar nöfn
þau, sem kassinn hafði að
geyma, voru borin saman við
spjaldskrá félagsins i þvi formi,
sem hún nú er, að i honum voru
a.m.k. nöfn 6 manna, sem ekki
funduzt i spjaldskránni, en hafa
engu að siður setiö aðalfundinn.
Ennfremur hefur veriö upplýst
af formanni fulltrúaráðs fram-
sóknarfélaganna I Reykjavik,
Kristni Finnbogasyni, að i
vörzlum dyravarða veitinga-
hússins að Lækjarteig 2, en þar
var aðalfundurinn haldinn, séu
um 80 spjöld, sem hann vinni nú
að að fá afhent. 1 kassanum
voru 359 spjöld, þegar upp úr
honum var talið.
Annar liðurinn i kæru Baldurs
Kristjánssonar hljóðar svo:
„Félagsskráin var ennfremur
fölsuð á þann hátt, að nöfn
fjölda löglegra félagsmanna
höfðu verið tekin burt af
félagsskránni. Þessir löglegu
félagsmenn voru þar með svipt-
ir öllum réttindum félags-
manna, og margir þeirra þar
með i reynd reknir úr
Framsóknarflokknum, þar eð
nöfn þeirra eru ekki til á neinni
annarri félagaskrá
flokksins....”
Baldur hefur lagt fram lista
með nöfnum rúmlega eitt
hundrað manna, sem hann telur
að hafi verið tekin út af spjald-
skrá félagsins með ólöglegum
hætti,og miðar þá við kjörskrá
félagsins eins og hún var 1971.
Ómar hefur mótmælt
umræddum nafnalista sem röng
um. Hann kveðst hafa boðizt til
þess við Baldur fyrir aðal-
fundinn að færa þá menn inn á
ný i félagaskrá, sem sannarlega
hefðu verið teknir af henni af
vangá. Baldur viðurkennir, að
Ómar hafi boðið sér þetta.
Baldur hefur vitnað til laga
FUF um það, á hvern hátt menn
gætu verið teknir af félagaskrá.
Um þetta atriði segir svo i
greinargerð ómars: „Nokkrar
leiðréttingar voru gerðar á
félagaskránni fyrir aðalfund,
m.a. voru nöfn þeirra manna
numin af félagaskránni, sem
náð höfðu fullra 35 ára aldri.
Einnig skal þess látið getið, að
fyrir siðasta stjórnarfund FUF
I fráfarandi stjórn hinn 23.
október s.l. var lögð fram um-
sögn stjórnar Fulltrúaráðs
framsóknarfélaganna i
Reykjavik. 1 henni var þvi
haldið fram, að samkvæmt
réttri skýringu á lögum FUF i
ljósi reglna Fulltrúaráðs fram-
sóknarfélaganna .1 Reykjavik
ættu þeir einir atkvæöisrétt á
fundum FUF i Reykjavik, sem
ættu lögheimili i Reykjavik.
Baldur og félagar hans and-
harölega þessari umsögn, sem
andstæðri lögum FUF i
Reykjavik, og vildu ekki beygja
sig fyrir henni. Meirihluti
stjórnar FUF,semsvoofthefur
reynt að koma til móts viö
Baldur og félaga hana,
samþykkti þvi að gera nokkrar
breytingar á. Var lögð fram
málamiðlunartillga þess efnis,
að menn gætu ekki verið félagar
i FUF með atkvæðisrétti, ef þeir
væru jafnframt félagar i fram-
sóknarfélögum annars staöar.”
Þriðji liðurinn I kæru Baldurs
Kristjánssonar hljóðar svo:
„Meirihluti fráfarandi
stjórnar meinaði nokkrum hluta
löglegra félagsmanna aö greiða
atkvæði á aðalfundinum á
þeirri forsendu, að þeir væru
einnig meölimir i öðru félagi
ungra framsóknarmanna. Þeir
mættu þó sitja fundinn, enda
ekki verið teknir burt af félaga-
skrá, en þeir heföu ekki at-
kvæðisrétt. Meirihluti fyrrver-
andi stjórnar færði engin rök
fyrir þessum úrskuröi sinum.
Ýmsir þeirra, sem þannig var
meinað að greiöa atkvæöi á
aðalfundinum, hafa aldrei verið
félagar i neinu öðru félagi ungra
framsóknarmanna en FUF i
Reykjavik. Þar að auki skal
þess getið, að félagsmönnum
Framsóknarflokksins er
heimilt að vera i fleiri en einu
flokksfélagi, og ráða þeir þvi
sjálfir i hvaða félagi þeir neyta
atkvæðisréttar sins, en at-
kvæðisréttar geta þeir aðeins
neitt i einu félagi. Þótti meiri-
hluti fráfarandi stjórnar hafi
ekki nefnt siðasta lögheimili
ákvörðun sinni til staðfestingar,
skal á það bent, að samkvæmt
lögum FUF i Reykjavik nær
félagssvæði þess til Reykja-
vikurog nágrennis, og ennfrem-
ur geta þeir, sem dvelja i
Reykjavik langdvölum, verið
félagsmenn i félaginu, þótt þeir
hafi lögheimili annars staðar”.
Lögð hefur verið fram
svohljóðandi yfirlýsing:
,,,Við undirritaðir stjórnar-
menn i FUF i Reykjavik mót-
mælum þvi á formlegan hátt, að
eftirtöldum mönnum, sem eru
að okkar mati fullgildir félags-
menn i félaginu, er ekki helypt
inn á aðalfund félagsins 24.
október 1973, sem fullgildum
félögum: Ólafur R. Grimsson,
Hallgrimur Guðmundsson,
Stefán Karlsson, Björn Teits-
son, Sigriður Skaftadóttir,
Sigriður Jóna Eggertsdóttir og
Jóhannes Sn. Jónsson”.
Ómar kvað Ólaf R. Grimsson
hafa verið tekinn af kjörskrá i
samræmi við stjórnarsamþykkt
FUF frá 23. október s.l. Um
aðra þá, sem eru á framan-
greindum lista, gegni þvi máli,
að þeir hafi ekki verið á
kjörskrá félagsins, og þvi aðeins
fengið aðgang að aðalfundinum,
en ekki atkvæðisrétt.
1 greinargerð sinni lýsir
ómar þvi, að það aö meina
nokkrum hluta félagsmanna að
greiða atkvæði hafi verið i
samræmi við tilvitnaða
samþykkt stjórnar FUF, sem
hafi verið þess efnis aö menn
gætu ekki veriö félagar i FUF i
Reykjavik með atkvæöisrétti, ef
þeir væru jafnframt félagsmen
i framsóknarfélögum annars
staöar. ómar kveður ólaf R.
Grlmsson hafa verið virkan
félaga i „Framsóknarfélagi i
Reykjaneskjördæmi,” og enn-
fremur verið i „fulltrúaráöi
framsóknarfélaganna á Suður-
nesjum”. Samkvæmt þessu hafi
Ólafi R. Grimssyni verið
meinaöur atkvæðisréttur á
aðalfundinum.
ómar lagði ekki fram gögn né
yfirlýsingar hvaö snerti aðra
menn á lista þessum.
Fjórða ákæruatriðið hljóðar
svo:
„Fyrir aðalfundinn haföi
meirihluti fyrrverandi stjórnar
FUF dreift út um borgina
félagsskirteinum og atkvæöa-
seðlum, sem gilda áttu á
félagsfundinum. Fjöldi þeirra,
sem fengu inngöngu á aðal-
fundinum, komu meö félags-
skirteini og atkvæöaseðla utan
ilr bæ. Sög'ðu þeir i votta viður-
vist, aö þeir heföu ekki þurft að
greiða félagsgjald til að fá skir-
teinin, og beinlinis veriö boðin
þau endurgjaldslaust að fyrra
bragði. Aðrir urðu hins vegar að
ganga fyrir meirihluta fyrrver-
andi stjórnar, sem sat i anddyri
fundarhússins, til að krefjast
sinna félagsskirteina og at-
kvæðaseðla. og greiða sin
félagsfjöld. Þannig hafði meiri-
hluti fyrrverandi stjórnar getað
afhent hverjum sem var úti i bæ
félagsskirteini og atkvæða-
seðla.þar eð ekkert eftirlit var
með þeim, sem höfðu þessi gögn
undir höndum, þegar þeir komu
inn i húsið”.
1 greinargerð stjórnar Ómars
segir svo um þetta ákæruatriði:
Stjorn FUF vill vegna þessara
ummæla taka fram, að það er
ekkeri einsdæmi, að sá háttur sé
hafður á að afhenda félagsskir-
teini áður en fundur hefst. Ef af-
henda hefði átt félagsskirteini
við innganginn, hefði allt
kvöldið farið i það. t þvi er
fólgin mikil og sjálfsögð hag-
kvæmni að afhenda skirteinin
áður. Það er hins vegar úr lausu
loft gripið, aö mönnum hafi ver-
ið boðin skirteini að fyrra bragði
endurgjaldslaust. Að visu er það
ávallt svo, þegar veriö er að
safna nýjum félögum i stjórn-
málaflokk, að þeir félagsmenn,
sem að söfnun nýrra félags-
manna, eigi iðulega frumkvæði
að þvi að nýja fólkið gangi i
flokkinn. Er ekkert óðelilegt við
það. Þannig hefur þjóðmála-
barátta ávallt farið fram. Ef
maður fellst á að ganga i FUF,
verður hann að hafa meðmæli
tveggja fullgildra félagsmanna,
svo að hann geti fengið
inngöngu i flokkinn. Þessu
skilyrði var fullnægt.”
Um það ákæruatriði, að at-
kvæðaseðlum hafi verið dreift
til maf.iia fyrir aðalfundinn,
segir ;f’o i greinargerð Ómars:
„Hér gegnir sama máli. At-
kvæðaseðlum var dreift til
hagræðisauka. Þeir, sem
félagsskirteinin fengu við
innganginn, tóku hins vegar við
atkvæðisseðlum sinum þá með
félagsskirteininu. Framkvæmd
sú, sem hér var höfö á, átti ekki
aö geta leitt til misnotkunar, t.d.
aö einn maður yrði sér úti um
tvo eða fleiri atkvæðaseðla.
Þeir, sem fóru inn á fundinn,
urðu að afhenda afrit af félags-
skirteinum, sem látiö var i
lokaðan atkvæðakassa. Ef
menn vildu eftir á rengja at-
kvæðatölur, var ofur einfalt að
gera saman fjölda greiddra at-
kvæöa og afritin i atkvæöa-
kassanum. Fyrirkomulag þetta
átti að tryggja, aö ekki ætti sér
misferli stað”.
Forsendur að úrskurði
Hér að framan hefur mála
vöxtum verið lýst i
meginatriðum og helztu
málsástæ&ur aðila greindar.
Skal nú nánar vikið að ein-
stökum atriðum, sem fram hafa
komið i rannsókninni, og verður
jafnframt gerö grein fyrir
helztu lagarökum og áliti nefnd-
arinnar.
Fjórða grein laga FUF i
Reykjavik, sem fjailar um
inntöku nýrra félagsmanna,
hljóðar svo:
„Meðlimur getur gerzt hver
framsóknarmaður á aldrinum
14-35 ára, sem búsettur er i
Reykjavik og nágrenni eða
dvelur þar langdvölum.
Inntökubeiðni skulu fylgja
meömæli tveggja félagsmanna,
og erhlutaöeigandi þálöggiltur
meölimur félagsins, er félags-
fundurhefur samþykkt inntöku-
beiðni hans. Inntökubeiðnir
Frh. á bls. 15