Tíminn - 13.03.1974, Síða 17
Miðvikudagur 13. marz 1974.
TÍMINN
17
ar uppi ráðagerðir til úrbóta i
þessum efnum. Deildin hefur
staðið fyrir ýmsum nýjungum i
iþróttalifi borgarinnar, m.a.
endurvakið hið gamla Tjarnar-
boðhlaup, sem nú fer árlega
fram. Einnig hefur verið efnt til
Laugardalshlaups og árlega er
E.Ó.P.-mótiðhaldið til minningar
um Erlend 0. Pétursson, fyrrver-
andi formann K.R. Formaður
frjálsiþróttadeildar er úlfar
Teitsson.
GLÍMUDEILD
Gróska er i starfi glimudeildar
K.R. og árangur glimumanna
góður á siðasta ári. Þar bar hæst
sigur Jóns Unndórssonar i ts-
landsglimunni og einnig náðu
ungir glimumenn góðum árangri
á siðasta ári. Að venju tók deildin
þátt i nokkrum glimusýningum á
sl. ári, m.a. á þjóðhátiðardaginn
17. júni. Formaður glimudeildar
er Elias Arnason.
HANDKNATTLEIKS-
DEILD
Meistaraflokkur félagsins varð
að bita i það súra epli að falla nið-
ur i 2. deiid á siðasta keppnis-
timabili, og i dag litur út fyrir, að
dvölin þar verði einu ári lengri en
ætla hefði mátt. Árangur annarra
flokka var misjafn, aðeins einn
sigur vannst i íslandsmóti, en það
var I 4. flokki þar sem K.R. á
mjög sterku liði á að skipa, sem
miklar vonir eru bundnar við.
Júgóslavneska handknattleikslið-
ið Zagreb kom hingað til lands á
vegum deildarinnar og heppnað-
ist sú heimsókn mjög vel. For-
maöur handknattleiksdeildar er
Kristján örn Ingiberg.
KNATTSPYRNU-
DEILD
Deildin er elsta deildin innan
K.R. og i margra augum eins
konar andlit félagsins, þ.e.a.s.
árangur K.R. sem heildar er oft
metinn i ljósi árangurs knatt-
spyrnumanna og þó einkum
meistaraflokks deildarinnar.
Þrátt fyrir þróttmikið og árang-
ursrikt unglingastarf undanfarin
ár hefur árangur meistaraflokks
á sama tima verið langt frá þvi að
vera viðunandi að mati stjórnar-
deildarinnar. Hefur þvi nýlega
verið ráðinn þekktur enskur
þjálfari fyrir meistaraflokk og
bindur deildin miklar vonir við
starf hans að þvi marki að koma
K.R. aftur i fremstu röð meðal is-
lenskra knattspyrnuliða. Deildin
hélt sinn fyrsta knattspyrnudag á
sl. hausti og var aðsókn að K.R.-
svæðinu fádæma góð þann dag.
Undirbúningur sumarstarfsins er
nú i fullum gangi, þjálfarar hafa
verið ráðnir fyrir alla flokka og
æfinga- og keppnisferðir innan-
lands og utan eru fyrirhugaðar.
Formaður knattspyrnudeildar er
Sveinn Jónsson.
KÖRFUKNATT-
LEIKSDEILD
Árangur körfuknattleiksmanna
var góður á siðasta ári sem fyrr
og ber þar hæst enn einn sigur
meistaraflokks i Bikarkeppni
KKt, en að auki sigraði flokkur-
inn i Reykjavikurmótinu.
tslandsmeistaratitillinn gekk lið-
inu enn einu sinni úr greipum á
siðustu stundu. 1 ár er ílokkurinn
staðráðinn i að bæta þeim titli við
þá tvo sem hann hefur varið frá
siðasta keppnistimabili og áður
eru nefndir. Árangur yngri flokka
var og góður á siðasta ári og yfir-
leitt mikil gróska i starfi deildar-
innar. K.R. notfærði sér ekki rétt
sinn til þátttöku i Evrópukeppn-
inni i körfuknattleik, en fór þess i
stað i keppnisferð til Irlands i
haust sem leið og svo aftur nú i
febrúar. Nokkrir K.R.-ingár léku
með islenska landsliðinu á árinu.
Formaður körfuknattleiksdeildar
er Jón Otti ólaísson.
LYFTINGADEILD
Deildin er ung að árum og býr
viðerfiða æfingaaðstöðu, en með-
limir hennar hafa synt mikinn
dugnað og fórnfysi við endurbæt-
ur á æfingasal deildarinnar. Þrátt
fyrir aðstöðuna hefur árangur af
þátttöku I mótum verið mjög góð-
ur, og státar deildin bæði af ís-
lands- og Reykjavikurmeisturum
BEZTU FRJÁLSÍÞRÓTTA-
AFREK ÍSLENDINGA 1973:
O
O
Miklarframfarir
í 800 m hlaupi...
— KR-ingar eiga beztu sprett-
og millivegalengdarhlauparana
greinum og öllum
aldursf lokkum. Næstu
vikurverður rætt um af-
rek i einstökum greinum
og 10. beztu birt í hverri
grein.
í dag verður fjallað um 100,
200, 400 og 800 m. hlaup. Þeir
einstaklingar, sem mesta at-
hygli vekja i þessum greinum
eru Vilmundur Vilhjálmsson
og Halldór Guðbjörnsson. Vil-
mundur stórbætti sig i 400 m.
hlaupi og Halldór i 800 m. Ánn-
ars eru margir efnilegir milli-
vegahlauparar að hasla sér
völl og eiga eftir að láta veru-
lega að sér kveða á næstunni,
jafnvei I sumar. Má þar nefna
Jón Diðriksson, Júiius Hjör-
leifsson, Gunnar Jóakimsson
o.fl.
Það sem ánægjulegast er
við 800 ml hlaupið er aukin
breidd og meðaltimi 10 beztu
er 1:59,7 mín. og það er rúmur
áratugur, siðan breidd hefur
verið jafnmikil i þessari ann-
ars skemmtilegu grein. Von-
andi verða framfarirnar enn
meiri i sumar og e.t.v. fáum
við tima undir 1:50,0 min., en
hver skyldi það verða?
A
10 beztu afrekin:
100 m hlaup.
sek.
BjarniStefánsson KR 10.7
Vilm. VilhjálmssonKR 11.0
Sigurður Jónsson HSK 11.0
Karl. W. Frederiksen
UMSK 11.2
Valmundur Gislason HSK 11.2
Róbert Óskarsson HSH 11.2
Elias Sveinsson 1R 11.4
Sigurður Sigurðsson Á 11.4
Guðmundur Jónsson HSK 11.4
Felix Jósafatsson UMSE 11.4
200 m hlaup.
sek.
Bjarni Stefánsson KR 21.4
Vilm. Vilhjálmsson KR 22.2
Sigurður Jónsson HSK 22.5
Valbjörn Þorláksson Á 23.2
Stefán Hallgrímsson KR 23.6
SigurðurSigurðsson A 23.9
Trausti Sveinbjörnss.
UMSK 23.9
Guðmundur Jónsson HSK 23.9
Gunnar Einarsson FH 24.0
Hilmar Pálsson HVÍ 24.0
400 m hlaup.
sek.
Vilm. Vilhjálmsson KR 49.0
BjarniStefánssonKR 49.4
Sigurður Jónsson HSK 50.0
Stefán Hallgrimsson KR 50.4
Július Hjörleifsson IR 51.8
Agúst Asgeirsson IR 52.0
Borgþór Magnússon KR 52.5
jón Hermannsson Á 52.7
Gunnar P. Jóakimsson IR 52.8
Elias Sveinsson IR 53.0
VILMUNDUR VILHJALMSSON.
Afrekaskrá I s'-
lendinga í frjálsum
iþróttum 1973 vitnar um
augljósar framfarir á
árinu. Þegar litið er yfir
beztu afrekin kemur i
Ijós/ að í 20 greinum
karla, boðhlaupum og
ýmsum aukagreinum er
sleppt/ lítur dæmið
þannig út, að i 14 grein-
um er hann betri, en í 5
lakari. Kvenna-
greinarnar eru svipaðar
af 13 greinum er
árangurinn betri í 9, sá
sami í 2 og lakari í 2
greinum. Hér er um
umtalsverðar framfarir
að ræða og það ánægju-
legasta er þó það, að
„breiddin" hefur einnig
aukizt mjög, sérstak-
lega í hlaupagreinunum.
íslenzk met voru bætt
172. sinnum og annað
eins metaflóð hefur
aldrei verið sett á einu
ári, en þessi met eru sett
bæði í karla- og kvenna-
HALLDÓR GUÐBJÖRNSSON.
BJARNISTEFANSSON.
800 m hlaup.
mín.
Halldór Guðbjörnsson
KR 1:51.9
Agúst Ásgeirsson IR 1:53.7
Július Hjörleifsson 1R 1:55.5
Jón Diðriksson UMSB 1:58.6
Gunnar P. Jóaskimss.
ÍR 1:59.3
Einar Óskarsson UMSK 2:02.4
Markús Einarsson
UMSK 2:03.6
Viðar Halldórsson FH 2:03.7
Erlingur Þorsteinss.
UMSK 2:03.7
SigurðurP. Sigmundss.
FH 2:04.6
Víða-
vangs-
hlaup
Víðavangshlaup tslands fer
fram sunnudaginn 24. marz,
keppt verður i karla-kvenna-
sveina og drengjaflokki og
piltaflokki. Skriflegar þátt-
tökutilkynningar verða að
hafa borizt til skrifstofu FRl
eða i pósthólf 1099 í siðasta
lagi mánudaginn 18. marz.
Keppnisnúmer verða siðan
afhent laugardaginn 23. marz
kl. 10-12 á skrifstofu Frjáls-
iþróttasambandsins i iþrótta-
miðstöðinni Laugardal.
Þátttökugjald á mann er kr.
50.00.
Þátttökutilkynningar, sem
berast eftir 18. marz, verða
ekki teknar til greina.
Lands-
flokka-
glíman
Landsflokkagliman 1974 verð-
ur háð laugardaginn 30. marz
n.k. i Leikfimisal Vogaskólans
i Reykjavik og hefst kl. 14.
Glirnt verður i þremur
þyngdarflokkum fullorðinna,
og auk þess i unglinga-
drengja- og sveinaflokki.
I flokki fullorðinna er
skiptingin þannig:
Fyrsti þyngdarflokkur glimu-
menn yfir 84 kg að þyngd
Annar þyngdarflokkur glimu-
menn 75-84 kg að þyngd
Þriðji þyngdarflokkur glimu-
menn undir 75 kg að þyngd
I sveinaflokki er aldurinn 14
og 15 ára
I drengjaflokki er aldurinn 16
og 17 ára
1 unglingaflokki er aldurinn 18
og 19 ára
Ákveðið er, að landsflokka-
glimunni verði sjónvarpað af
myndsegulbandi.
Þátttökutilkynningar þurfa
að berast mótanefnd GLI i
pósthólf 997 fyrir 17. marz
n.k., með nákvæmum upp-
lýsingum um aldur og þyngd
keppenda.
Mótanefnd.
ÍSLANDS-
MÓT í
KNATT-
SPYRNU
INNAN-
HÚSS
tslandsmótið i knattspyrnu
innanhúss verður haldið i
iþróttahöllinni i Laugardal,
Reykjavik, um næstkomandi
páska. Þ.e. dagana 11. 13. og
15. april. Keppt verður að
venju i karla- og kvennaflokki.
Tilkynningarfrestur er til 20.
marz, 1974, og verður tilkynn-
ingin ekki tckin gild, nema
þátttökugjald fylgi, en það er
kr. 1.000.00 fyrir hvern flokk.
Niðurröðun mótsins verður
send þátttökuaðilum fyrir 5.
april 1974.
Þetta tilkynnist yður hér
með.
Mótanefnd K.S.t.
llelgi Danielsson, formaður.
Ragnar Magnússon, ritari.
Páll Bjarnason, meðstjórn-
andi.