Tíminn - 13.03.1974, Side 20
1 m . . \./éá GSÐI fyrir yóóan mat
—1— ^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
skáta nætt kominn
Hópur
í Krossá í ofsaveðri
Björgunarsveitir frá Vík og Hellu björguðu þeim
BJÖRGUNAKSVEITIN Vikverji
i Vik i Mýrdal og flugbjörgunar-
sveit á Hellu höföu ærnu aö sinna
á laugardaginn var. Barst þá
neyðarkali frá fólki úr hjálpar-
sveit skáta i Reykjavik, sem fest
haföi bila sina i Krossá á leiö inn i
Þórsmörk.
Skátarnir, sem i ánni lentu,
voru á tveim bilum, alls um
sextán manns, þar á meðal
nckkrar stúlkur. Drap annar bill-
inn á sér i Krossá miðri og seig
fljótlega á hliðina. Freistaöi þá
einn mannanna i honum að vaða i
land með streng, en flaut fljótlega
upp i straumkastinu, en gat hald-
ið sér i strenginn. Varð þá að
leggja hinn bilinn i ána til þess að
ná honum. Festist sá bill þá einn-
>g-
Þegar svo var komið, var kall-
að á hjálp i gegnum talstöð og
neyðarblysum skotið á loft.
Björgunarsveitin Vikverji í Mýr-
dal hélt þegar af stað á vettvang á
jeppa, og vörubil á beltum, sem
raunar komst aldrei alla leiö, og
flugbjörgunarsveitin á Hellu, sem
stödd var við æfingar á Rangár-
völlum brá einnig þegar við, er
hún vissi, hvers kyns var.
Vikverjar urðu á undan á stað-
inn, og var þá komið kvöld, enda
var vegurinn inn hjá Merkurbæj-
um undir Eyjafjöllum afartorfær
vegna aurbleytu. Rok var hið
mesta inni á Krossáraurum, og
voru svo snarpar hrinur af jöklin-
um og Fimmvörðuhálsi, að varla
gat heitið stætt. Tóku Vikverjar
stúlkurnar i bil sinn og héldu með
þær til byggða. Biðu sumir skát-
anna, sem eftir voru, á aurunum,
er Hellumenn komu á staðinn, en
aðrir voru enn i bil úti i ánni.
Þarna voru einnig nokkrir Vik-
verjar, sem höfðu haft meðferðis
froskmannabúning, og urðu eftir,
þegar félagar þeirra héldu til
byggða með stúlkurnar.
Hellumenn höfðu á leiðinni inn
eftir útvegað trukk með spili, sem
kom til þess að draga bflana upp
úr ánni. Tóku þeir hina hröktu
menn i bila sina, þar sem þeir
áttu neyðarmat i kössum, næröu
þá og hlýjuðu þeim. Var siðan
haldið til byggða. En þá voru bil-
ar lagðir af stað austur, bæði úr
Reykjavik og Hafnarfirði.
Starrinn er far-
inn að verpa
Verpir fyrstur landfugla hérlendis
-JH-Reykjavik — Þó að hrafinn
verpi aö sögn niu nóttum fyrir
sumar, þá er hann ekki fugla
fyrstur til varps hér á landi. Af
landfuglum er þaö háifgcrður
nýliöi, starinn, scm verpir fyrstur
allra, enda mjög harðgerður
gugl, sem breiðist ört út siðan
hann náði hér fótfestu.
Sænska frystihúsið er að veröa
að hálfgerðu fuglabjargi, og eru
þar þegar komin eitthvað tiu
starrahreiður. Að visu er starinn
ekki bjargfugl, heldur verpir
hann i bæjum og byggðum,
einkanlega þar sem hann finnur
holur eða augu undir upsum húsa
eða getur smogið inn i einhverjar
smugur eða afkoma.
— Tvær tegundir sjófugla verpa
fyrstar allra islenzkra fugla,
sagði Þorsteinn Einarsson
iþróttafulltrúi, er við spurðum
hann um þetta. Þetta eru skarf-
urinn og súlan, sem eiga sér
varpstöðvar i eyjum og stöpum,
en kippa sér ekki upp við það, þótt
svalan geti blásið.
Solsjenitsyn
í Sviss
NRB-Bern. Sovézki rit-
höfundurinn Aiexsander
Soisjenitsyn hefur ákveðið
aö setjast aö I Sviss, segir i
tilkynningu frá svissnesku
rikisstjórninni. Soisjenitsyn
hefur hug á að setjast að i
Zurich.
Solsjenitsyn var visað úr
Sovétrikjunum 13. febrúar
siöast liðinn, en siðan hefur
hann heimsótt Vestur-
Þýzkaland, Danmörku og
Noreg. Rikisstjórnir margra
landa hafa boðið rithöfundin-
um landvist. Solsjenitsyn
býr nú i stórri ibúð i Zurich.
1 simaviðtölum við blaða-
menn á Vesturlöndum sagði
frú Solsjenitsyn, aö hún vissi
ekki enn, hvenær hún og börn
hennar færu til Sviss. Hún
hafði ekki heyrt um
ákvörðun svissiiesku rikis-
stjórnarinnar fyrr en blaða-
mennirnir hringdu.
Frú Solsjenitsyn sagði, að
Renin-bókasafnið hefði veitt
henni leyfi til að taka með
sér skjöl Solsjenitsyns,
þegar hún færi úr landi, en
hún hefði án árangurs beðið
um skriflegt leyfi frá yfir-
völdum.
Rændi flugvél
með 426 farþega
NTB-Tókió. Japanska lögregian
handtók í gær mann, sem rændi
farþegaflugvéi af gerðinni Boeing
747 meö 426 manns. Maöurinn
rændi flugvélinni rétt áöur en hún
átti aö lenda á eynni Okinawa.
Flugvélin kom frá Tókió, og
lcndingin gekk vel.
162 farþegar fengu að yfirgefa
flugvélina á Okinawa, en ræning-
inn hélt 247 farþegum, ásamt 20
manna áhöfn, áfram um borð i
flugvélinni.
Ræninginn krafðist 55 milljón
dollara og 22 milljón yena i lausa-
fé. (i allt samsvarar þetta 4560
milljónum islenzkra króna).
Þ jóða ratk væða-
greiðsla um EBE
NTB-London. Hin nýja ríkisstjórn
Brctlands ætlar aö gcra grund-
vailarbreytingar á aöild Bret-
lands aö Efnahagsbandalaginu.
Þetta var eitt af aöaiatriöunum i
hásætisræöu, sem Elisabet
drottning flutti i neöri deild
brezka þingsins i gær.
I ræðunni sagði, aö áframhald-
andi aðild yröi borin undir
þjóðaratkvæðagreiðslu.
A stefnuskrá rikisstjórnar Wil-
sons eru einnig niöurgreiöslur á
matvörum til aö haida verði niöri.
Rikisstjórnin ætlar að hækka eft-
irlaun og aöra opinbera styrki.
Rikisstjórnin hyggst beita sér
fyrir lausn efnahagsvandans, en i
hásætisræðunni sagði, að hann
stafaði af hækkandi verði og
óhagstæðum vöruskiptajöfnuði.
Einnig sagði I ræöunni, aö rikis-
stjórnin ætlaði að breyta vinnu-
löggjöfinni og auka oliuvinnsluna
I Norðursjó, frá þvi sem áætlað
er.
Enginn veitinga-
rekstur verður á
Selfossi í sumar
TVISVNT er, hvort nokkur
veitingarekstur verður á Sel-
fossi i sumar. Seifosshreppur
hefur keypt Tryggvaskála,
þar sem Brynjólfur Gislason
og Kristin Arnadóttir, kona
hans, hafa lengi haft greiöa-
sölu, ásamt tilheyrandi lóö og
mannvirkjum, á rúmar sex
milljónir króna, og munu þau
hætta veitingarekstri sinum,
og leigutakar I Hótel Selfossi
liafa sagt upp leigunni og
hætta störfum i apriilok.
Eina greiðasalan á Selfossi
veröur þvl innan tiðar hjá
Steinunni Hafstað i Hótel
Þóristúni, sem er gististað-
ur.en ekki veitingahús.
Tillaga hefur komið fram i
hreppsnefnd Selfosshrepps
þess efnis, að leitað verði eftir
samvinnu hótelféiags, sem
þar er til, um byggingu
veitinga- og gistihúss og
félagsheimilis. Slik fram-
kvæmd hlýtur þó að eiga sér
alllangan aðdraganda. Þess
vegna hefur sú hugmynd
einnig skotið upp kollinum, að
samkomulag kunni að geta
oröið um það, að félög á
Selfossi geri i sjálfboðavinnu
þær endurbætur á Tryggva-
skála, sem mjög er farinn að
láta á sjá, að þar sé unnt að
hafa veitingasölu i sumar.
Þykir slfkt nauðsynlegt sjálft
þjóðhátiðarsumarið.
Þáttaskil í daqvist-
unarheimilamálum
Reglugerð bíður endanlegrar staðfestingar
Gsal-Rvik— A ráöstefnu um mál-
efni yngstu borgaranna á Hótel
Sögu, sem hófst s.l. þriöjudag,
var m.a. rætt um þátttöku rikis-
ins I byggingu og rekstri dag-
vistunarstofnana. Haföi Stefán
Ól. Jónsson stjórnarráösfulltrúi
framsögu um máliö.
Stefán 01. Jónsson hefur unnið
að lagasetningu um hlutdeild
rikisins i byggingu og rekstri dag-
vistunarheimila, ásamt þeim
Guðrúnu Jónsdóttur félagsráð-
gjafa, Gyðu Sigvaldadóttur for-
stööukonu, Þóru Þorleifsdóttur og
Svövu Jakobsdóttur.
Nefndin var skipuð af mennta-
málaráðherra, samkvæmt
ákvæði i málefnasamningi rikis-
stjórnar Ólafs Jóhannessonar.
Frumvarp nefndarinnar var af-
greitt sem lög frá Alþingi 21. april
1973.
Stefán Ói. Jónsson sagði m.a. á
ráöstefnunni: „Með löggjöf þess-
ari verða þáttaskil i dagvistunar-
málum hér á landi, þótt of
snemmt sé ennþá að segja til um,
hve viðtæk áhrif þessarar lög-
gjafar verða þar sem hún er
raunar ekki komin enn til fram-
kvæmda, en sýnt er þó, að hún
hefur þegar örvað áhuga ýmissa
á stofnun og rekstri dagvistunar-
heimila. ...Ekki var það skoðun
nefndarinnar, að dagvistunar-
heimili ættu aö. koma i staö upp-
eldis á heimilum, heldur ættu vel
búin og vel rekin dagvistunar-
heimili að veita foreldrum
ómetanlega aðstoð við uppeldi
barna i nútima þjóöfélagi, þar
sem við dagvistunarheimili starf-
aði sérmenntað fólk, sem beitti
þekkingu sinni til þess að skapa
börnunum þroskavænlegt um-
hverfi og búa þau undir skóla-
nám”.
Nefndinni var falið aö gera til-
lögur að reglugerð, og sendi hún
menntamálaráðherra þær, 20.
febrúar 1974. Þær eru nú til at-
hugunar hjá ráðuneytinu. Rikis-
framlagið er háð ýmsum skilyrð-
um, og gerir nefndin grein fyrir
Frh. á bls. 15
Nixon til
Egyptalands?
NTB-Kairó. 1 háifopinberu mál-
gagni egypzku stjórnarinnar
sagöi i gær, aö Nixon Bandarlkja-
forseti kæmi i heimsókn tii
Egyptalands einhvern tlma milli
10. og 15. mai til aö ræöa viö Sadat
forseta. Engin staöfesting á frétt-
inni hefur enn veriö birt opinber-
lega.
Frá Tel Aviv bárust þær fréttir,
að Israel hefði dregið úr vig-
búnaði á Golanhæðum. Vegir
hafa aftur veriö opnaðir fyrir
venjulegri umferö, og bændur
hafa aftur snúið til vinnu sinnar á
ökrunum.
„ÉG TÍUNDA ÞAÐ EKKI
I ÖÐRUM SÓKNUM",
— sagði „Lindsey borgarstjóri", sem látið hefur af
umsjónarmannsstarfi í Ölfusborgum eftir tíu ár
JH-Reykjavik. Eriendur
Guömundsson, sem veriö hef-
ur umsjónarmaöur i ölfus-
borgum frá upphafi vega, alls
i hálft ellefta ár, hcfur nú látiö
af störfum og mun hafa i
hyggu aö flytjast út i Vest-
mannaeyjar. Orsökin mun
ágreiningur um kaup og kjör.
En mörgum mun þykja skarö
fyrir skildi viö brottför Er-
lends, sem kunningjarnir hafa
i gamni kallaö Lindsey
borgarstjóra.
Umsjón i ölfusborgum, er
mjög erilsöm, þar sem jöfnum
höndum þarf að svara i síma,
sinna margvislegri þjónustu
viö gesti, hirða tún og bletti og
annast húsin, sem alls eru
þrjátiuog sex. Þar við bætist,
að hvað annasamast er um
helgar, þvi að þá er skipt um
orlofsgesti i húsunum. Hefur
blaðið fyrir satt, aö þessi
þjónustumaður orlofsgesta
hafi sjálfur aðeins fengið
örfáa daga i sumarleyfi öll
þau ár samanlagt, er hann
hefur gegnt umsjónarmanns-
starfinu.
— Ég svara eins og Jón
Hreggviðsson, að ég tíunda
þaö ekki I öðrum sóknum,
sagði Erlendur, er Timinn átti
tal viðhann um þetta. Um hitt
getur verið ágreiningur,
hversu mikla þjónustu á að
láta orlofsgestum i té, og mér
hefur ekki fundizt hægt að
hlaupa burt þótt klukkan væri
orðin þetta eða þetta og láta
gestina leysa sin vandamál
sjálfa. Og þvi er ekki heldur að
leyna að siðasti vetur varð
erfiður, er skyndilega kom
hingaö mikill fjöldi fólks á
flótta undan gosinu i Eyjum.
En ég eignaðist marga vini
meðal Eyjafólksins i ölfus-
borgum, og það er rétt, að ég
ætla að flytjast út i Eyjar,
endahefég veriðþaráður. Ég
vil ekkert um það segja, hvort
ég geri þetta af þvf, að for-
ráöamenn ölfusborgar séu
nánasarlegir við mig —
kannski er það ég, sem er
frekur. Það verður hver að
hugsa sitt um það, sagði hann
að lokum.