Tíminn - 22.03.1974, Page 7
Föstudagur 22. marz 1974.
TÍMINN
7
Veitingastofan Halti haninn að Laugavegi 178 hefur nú verið opnuð að nýju eftir gagngerar breytingar.
Smiðaðar hafa verið nýjar innréttingar og öll aðstaða i eldhúsi og sal bætt til mikilla muna. Er salurinn
nú orðinn einhver glæsilegasti veitingasalur af þessu tagi, sem fyrirfinnst i Reykjavik, og þö viðar væri
leitað. t Halta hananuþr vérður hægt að fá keypta alla almenna grillrétti, svo og hina frægu sérrétti,
sem þar hefur lengi'verið Jiægt að fá, ítalska pizzu. Þá hefur sú nýbreytni verið tekin upp, að hafa
hreindýrasteikur á b.óðstóinum og verður það áreiðanlega vinsælt meðal hinna mörgu viðskiptavina
Halta hanans, sem beðið háfa i heilan mánuð eftir þvi að staöurinn opnaði aftur. Þessi mynd er tekin í
Halta hananum i gær af eigendunum Birgi Jónssyni og frú og starfsfólki þeirra. (Timamynd Gunnar)
Æskulýðs-samkomurd Akranesi
UNDIR yfirskriftinni IIVER ER
JESUS? munu K.F.U.M. og K. á
Akranesi gangast fyrir fjórum
æskulýðssamkomum dagana 21.-
24. marz og hefjast þær kl. 20,30
hvert kvöld.
Samkomurnar verða i
Akraneskirkju, nema föstudaginn
22. marz verður verið i félags-
heimilinu Rein við Suðurgötu.
Sérstök áherzla verður lögð á
fjölbreyttan söng og hljóðfæra-
slátt. í þeim tilgangi munu þrir
sönghópar taka þátt i samkomun-
um.
Æskufólk mun segja frá trúar-
legri reynslu sinni.
Fluttar verða frásagnir, sem
eiga sérstakt erindi til unglinga.
Hvert kvöld mun ræðumaður
hugleiða efni tengt yfirskriftinni.
Að lokinni hverri samkomu
verður ,,opið hús” i félagsheimili
K.F.U.M. og K., þar sem hægt
verður að rabba saman, taka
lagið og fá sér hressingu.
öllum er heimill aðgangur að
samkomum þessum, en þær eru
miðaðar við hæfi æskufólks og
þess sérstaklega vænzt að það
fjölmenni.
Bœndur
y|®l“ "V KASTDREIFARINN ER
fl/lCOlO EKKI neinn venju-
VU LEGUR DREIFARI
Áburðartrektin,
sem tekur 400
er úr Polyster
harðplasti - og
tærist því ekki
Dreifibúnaður er úr
ryðfríu stáli -
og ryðgar því ekki
Dreifibreidd 6-8 m eftir
kornastærð
Ryð og tæring áburðardreifara
hafa verið vandamál - þar til nú
AAJÖG HAGSTÆTT VERÐ
Gerið pöntun tímanlega
FYRSTA SENDING VÆNTANLEG
TILKYNNIR:
HÚSGAGNADEILD
í húsgagnadeildinni eigið þér kost á að velja úr
mesta húsgagnaúrvali landsins. Sófasett,
sófaborð, hillusamstæður, borðstofuhúsgögn,
svefnherbergishúsgögn — og til fermingar-
gjafa: Skrifborð, skatthol, kommóður,
svefnbekkir, táningasettið og f leira og f leira —
og allt á gamla, góða verðinu.
TEPPADEILD
Þérgetiðvaliðúr miklu úrvali, bæði
innlendra og erlendra teppa.
islenzk teppi frá Álafossi,
Axminster, Teppi og Últíma. Auk
þess innflutt teppi frá Ameríku,
Belgíu, Danmörku, Englandi og
Frakklandi, Skozku ryamotturnar
eru f yrirliggjandi í flestum
stærðum — og munið, allt á gamla
verðinu.
Opið til 10 í kvöld
í öllum deildum. — Athugið! Vegna hinna nýju kjarasamninga
verða allar deildir framvegis lokaðar d laugardögum
ALLT Á GAMLA GÓÐA VERÐINU
LÁGMÚLI 5. SlMI 81555
Jörðin Búland
i Austur-Landeyjum er laus til ábúðar i
næstu fardögum. Upplýsingar hjá
ábúanda jarðarinnar.
Simi um Hvolsvöll.
Vélskóla
<yV> íslands
Námskeið fyrir starfandi vélstjóra, er lok-
ið hafa prófi frá rafmagnsdeild skólans
eða 4. stigi, verður haldið 20. mai til 1. júni
1074.
Kennsla fer fram i eftirtöldum greinum:
STÝRITÆKNI: Þar á meðal vökva- og
loftþrýstifjarstýring, grundvallarhugtök
og aðferðir stillitækninnar, og gangráðar.
RAFEINDATÆKNI: Þar á meðal frum-
atriði um transistora og dióður, einfaldar
rásir og rökrænar rásir.
RAFMAGNSFRÆÐI: Þar á meðal um
rafmagnsvélar, mótora og rafala, Ward-
-Leonard kerfi, um rafmagnsteikningar
og mælingar á rafkerfum.
Kennsla verður bæði bókleg og verkleg.
Kennt verður frá kl. 8 árdegis til kl. 15 sið-
degis mánudaga til föstudaga.
Þátttaka tilkynnist bréflega til Vélskóla
islands, pósthólf 5134, Reykjavik, fyrir 15.
mai.
Skólastjóri