Tíminn - 28.05.1974, Side 4

Tíminn - 28.05.1974, Side 4
4 TÍMINN Þriðjudagur 28. mai 1974. Heldur Ijósmyndafyrirsæta en kvikmyndaleikkona 1 Englandi, og reyndar viða.um heim, er oft talað um Sherlock Holmes eins og raunverulegan mann, sem hafi verið öllum leynilögreglumönnum snjallari og sérkennilegur i háttum sin- um á margan hátt. Ennþá er fólk að skrifa til hans bréf, bæði til að biðja hann að aðstoða sig við einhver mál, eða aðeins að tala um hrifningu sina á honum, en annars segja þessir aðdáend- ur hans, að hann sé vist hættur störfum og stundi nú á efri árum biflugnarækt i Sussex i Eng landi! — Það er ekki öll vitleys- an eins, t- og skyldi rithöfund- inn Sir Arthur Conan Doyle nokkurn tima hafa rennt grun i hverju hann var að koma af stað, þegar hann byrjaði með sögur sinar um Sherlock Holm- es. Þessi sögupersóna varð brátt svo lifandi, að fólk talaði um hann sem hvern annan lif- andi merkan mann og alla hans háttu. T.d. var talið, að hann hafi ekki verið neitt sérlega hrifinn af konum, eða félags- skap þeirra, en unað sér bezt með sinum góða vini Watson, pipunni sinni og fiðlunni i friði og ró i Baker Street. Nýlega var farið að búa til kvikmynd um einkalif hans, sem annarra frægra manna, og þá var nú samt þessi fallega stúlka látin leika vinkonu hans, — liklega til að hressa svolitið upp á mynd- ina, þvi að óneitanlega er hún augnayndi. Stúlkan heitir Caro- line Munro og aðalatvinna hennar er að sitja fyrir hjá ljós- myndurum, og það segir hún að sér liki betur en að leika i kvikmyndum, þó að hún hafi fengið mörg tilboð um hlutverk. Hún er ein mest ljósmyndaða kona i heimi og hefur nú siðustu árin (hún varð fræg sem fyrir- sæta aðeins 17 ára að aldri) ver- ið á forsiðum frægustu tizku- blaða og vikublaða viða um heim. Hún ferðast mikið i sam- bandi við starf sitt, og nú sem stendur dvelst hún i Asiu, þar sem hún vekur mikla hrifningu. Hún er tvigift, seinni maður hennar er bandariskur söngv- ari, sem er vel þekktur. Judd Hamilton heitir hann og er nú búsettur i Englandi. Hann segist vera ósköp einmana, þvi áð kon- an sé á stöðugum þveitingi um allan heim, og hann sé þá einn i ibúðinni i Chelsea i London og eigi fáa vini. Hún verður auðvit- að að hugsa um framgang sinn i sinu starfi, segir hann svo dapur i bragði. — Að sjálfsögðu kæri Judd! — myndi Sherlock Holm- es segja. "'&'cfoei- —Verður þú aldrei fyrir þvi að eitthvað komi þér úr jafnvægi...? — Jú, ég er húsbóndinn á heim- ilinu — en það er bara titill sem ég hef. — Til hvers heldur þú að mottan sé'í i 7<***£*~_Í 3-/5 I © DENNI DÆAAALAUSI Þetta er mátulegt á mig mamma, úr þvi ég þurfti að skilja litina mina eftir, þar sem fólk gat stigið ofan á þá, er það ekki mamma?

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.