Tíminn - 28.05.1974, Qupperneq 11

Tíminn - 28.05.1974, Qupperneq 11
Þriðjudagur 28. mai 1974. TÍMINN n Útgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.), Jón Helgason, Tómas Karlsson, Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Rit- stjórnarskrifstofur i Edduhúsinu við Lindargötu, simar 18300-18306. Skrifstofur i Aðalstræti 7, simi 26500 — af- greiðslusimi 12323— auglýsingasími 19523. Blaðaprent h.f. ____________________________ Kosningaúrslitin tJrslit bæjar- og sveitarstjórnarkosninganna eru óneitanlega mikill sigur fyrir Sjálfstæðis- flokkinn. Sá sigur á sér ýmsar ástæður, sem flokkurinn á ekki sjálfum sér að þakka, heldur eiga sér aðrar orsakir. Þar kemur fyrst hin mikla sundrung á vinstri væng stjórnmálanna, sem m.a. leiddi til slita stjórnarsamstarfsins, þegar þrir þingmenn Hannibalista skárust úr leik. Fyrir Sjálfstæðisflokkinn var þetta tilvalið tæki- færi til að hampa enn einu sinni glundroðagrýl- unni með góðum árangri i sambandi við borgar- stjórnarkosningarnar i Reykjavik. Með veru- legum rétti má þvi segja, að þeir, sem staðið hafa fyrir klofningsstarfseminni á vinstri væng stjórn- málanna, hafi fært Sjálfstæðisflokknum sigurinn á silfurbakka. Við þetta bætist svo, að efnahags- þróunin hefur verið andstæð rikisstjórninni siðustu mánuðina og það haft sin áhrif, þar sem stjórnin hafði ekki heldur starfhæfan meirihluta til að styðjast við. Þá hefur það vafalitið haft nokkur áhrif, að margir vilja fara gætilega i meðferð varnarmálanna og óttuðust ranglega, að kommúnistar gætu haft óeðlileg áhrif á fram- vindu þeirra. Um sigur Sjálfstæðisflokksins er hins vegar óhætt að fullyrða það, að hann er ekki að þakka eigin verðleikum frekar en sigur Glistrups i Dan- mörku. Svo ábyrgðalaus og stefnulaus hefur Sjálfstæðisflokkurinn verið á þessu kjörtimabili, einkum þó i efnahagsmálum. Flokkurinn hefur lika verið klofinn i hinum stærstu málum, saman- ber landhelgissamninginn við Breta. Það mega leiðtogar Sjálfstæðisflokksins hins vegar eiga, að þeir hafa vel kunnað að nota sér valdabrask þeirra Gylfa Þ. Gislasonar og Hannibals Valdi- marssonar og þannig lagt flokka þeirra i rúst i Reykjavik. Framsóknarflokkurinn getur að sjálfsögðu ekki verið ánægður yfir hinum óvænta sigri Sjálf- stæðisflokksins, þótt hann haldi að mestu leyti velli og sé áfram næststærsti flokkurinn i kaup- stöðunum. Þótt flokkurinn missti borgarfulltrúa i Reykjavik, hélt hann næstum óbreyttri atkvæða- tölu miðað við siðustu borgarstjórnarkosningar. Viða út um land tókst flokknum heldur ekki að gera betur en að halda velli. Þetta minnir óneitanlega á, að margir eru of fljótir að gleyma. Alltof margir virðast vera búnir að gleyma at- hafnaleysinu, sem rikti i málum landsbyggðar- innar meðan viðreisnarstjórnin fór með völd. Þeir eru búnir að gleyma gengisfellingunum, kjaraskerðingunni, atvinnuleysinu, verk- föllunum, landflóttanum og aðgerðaleysinu i landhelgismálinu, sem einkenndi siðasta kjör- timabil viðreisnarstjórnarinnar. Að sjálfsögðu eru úrslit bæjar- og sveita- stjórnarkosninganna ekki nema takmörkuð vis- bending um úrslit þingkosninganna 30. júni. Þá verður kosið um ýms önnur mál og aðra menn. Eigi að siður eiga úrslit bæjar- og sveitastjórnar- kosninganna að vera Framsóknarmönnum hvatning um að herða nú sóknina og láta ekkert ógert til að vinna að sigri flokksins 30. júni og tryggja þannig áhrif hinnar ábyrgu stefnu hans og forustu eftir kosningar. Þ.Þ. Forustugrein úr The Times: Solzhenitsyn og Sakharov deila Gamalt og nýtt ágreiningsefni Rússa í baráttu þeirri, sem háð hefur verið heima fyrir i Sovétrikjunum fyrir auknu frelsi og mannréttindum, ber hæst nöfn tveggja manna, skáldsins Solzhenit- syns og visindamannsins Sakharovs. Þeir eru hins vegar ekki sammála, nema að takmörkuðu leyti, uin markmið og leiðir. Þannig hefur Sakharov nýlega and- mælt vissum skoðunum Solzhenitsyns í enska stór- biaðinu Times. 1 tilefni af þvi birti Times cftirfarandi forustugrein: DEILURNAR, sem geysa meðal sovézkra mennta- manna, siast venjulega út i af- ar strjálum brotabrotum. Sú yfirborðskennda og ófullnægj- andi hugmynd liggur næsta beint við, að meginágrein- ingurinn sé einkum milli opin- bera stjórnkerfisins og þeirra, sem eru þvi andsnúnir i nafni mannréttinda. Veruleikinn er miklu marg- slungnari og merkilegri, eins og augljóst hlýtur raunar að vera, þegar höfð er hliðsjón af gifurlegri viðáttu landsins og margbreytileika gamalla hefða þjóðanna, sem það byggja. Þá, sem standa sam- an i baráttunni fyrir einstak- lingsfrelsinu, greinir alvar- lega á um, hvaða stefnu þjóð- inni beri að taka. DOKTOR Sakharov svaraði Solzhenitsyn i Times 16. april og þar gafst vestrænum mönnum tækifæri til að kynn- ast hluta rökræðnanna. Þess- ar rökræður eru i beinu fram- haldi af deilum slavasinna og vesturvonenda á nftjándu öld. Solzhenitsyn vill, að Sovét- menn láti innfluttar kenningar marxismans lönd og leið, hverfi frá byltingarkenndum skuldbindingum erlendis og hætti að keppa að mjög örum ábata heima fyrir. í þess stað vill hann láta þjóðina snúa sér að hinum afar frjóa, rúss- neska jarðvegi, bæði andleg- um og efnislegum. En þrátt fyrir þetta .ákallar hann Rómarklúbbinn og bergmálar ýmsar vestrænar kenningar um hægan hagvöxt, mikinn einfaldleika, mjög ódýrt ibúðarhúsnæði, lifrænan áburð og hina afar brýnu þörf þess að gera vélarnar manninum undirgefnar. SAKHAROV dáir Solzhenit- syn sem „berserk i baráttunni fyrir virðuleika mannsins”, en lýsir eigi að siður allt öðrum skoðunum i sumum efnum. Hann vill ekki láta Sovétmenn gerast innhverfa, heldur að þeir liti i auknum mæli til ann- arra þjóða, og heldur meðal annars fram, að innlendum vanda sé meira að segja þann veg varið, að sumt verði ekki leyst nema með auknum að- gangi að erlendum viðskiptum og tækni. Hann bendir á, að framfarir og magnaukning sé sitt hvað, er sammála Solzhenitsyn um brýna nauðsyn þess að varð- veita umhverfið, en telur þá nauðsyn einmitt auka á mikil- vægi framsóknar i visindaleg- um rannsóknum. SAKHAROV og Solzhenit- syn greinir á i afstöðunni til lýðræðisins. Solzhenitsyn heldur fram, að Sovétmenn séu ekki undir lýðræði búnir og verði að sætta sig við ein- ræðisvald. Hann sættir sig við þetta með þvi furðulega barnalega skilorði, að ein- ræðisskipanin hvili á Sakharov „náunganskærleikanum” og viðurkenni hugmynda- og trú- frelsi en ekki valdabaráttu, eins og unnt væri að greina völd og hugmyndir ótvirætt að i þessu sambandi. Sakharov segir aftur á móti, að hann telji „lýðræðislega framþróun eina heillavænlega ferilinn sérhverri þjóð til handa”. NOKKUR hluti af svari Sakharovs fjallar um þann háska, sem kunni að felast i annars vel meintum skoðun- um Solzhenitsyns, og er þessi hluti svarsins raunar einna merkilegastur. Um þetta segir Sakharov meðal annars: „Meðal mikils hluta rúss- nesku þjóðarinnar og sumra leiðtoga hennar leynist draumur um mikilleika, nærð- ur á rússneskri þjóðernis- stefnu, en undir niðri vakir óttinn við að verða háður Vesturveldunum, ásamt kviðanum fyrir lýðræðislegum breytingum. Glapráð Solzhenitsyns kynnu að verða að háskalégum gróðri i slikum jarðvegi”. Skoðanir Solzhenitsyns falla með öðrum orðum i sama far- veg á vissum sviðum og skoðanir þess hluta almenn- ings og stjórnmálamannanna, sem andsnúinn er þeirri tak- mörkuðu vesturopnun, sem Brézjneff hefir fengið áorkað. Sé þetta rétt ályktað öðlast fordæming rússneskra blaða á Solzhenitsyn nýtt umfang sem opinbert svar til áhrifamikilla andstæðinga þeirrar stefnu. sem valdhafarnir fylgja. ÞEGAR betur er að gáð verður átaka milli slavasinna og vesturvonenda viða vart i Sovétrikjunum, meira að segja i stefnu núverandi vald- hafa. Rökræður Solzhenitsyns og Sakharovs eru þvi annað og meira en deilur tveggja ein- staklinga eða fulltrúa tveggja hópa andmælenda. Þessar deilur lýsa grund- vallarágreiningi, sem á sér langan aldur i sögu Rússlands og er enn við lýði með breyti- legum hætti, meira að segja meðal stjórnmálaleiðtoga. Lakast er, að þennan ágrein- ing er ekki unnt að rökræða fyrir opnum tjöldum i Sovét- rikjunum.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.