Tíminn - 29.05.1974, Blaðsíða 4
4
TÍMINN
Miövikudagur 29. mai 1974.
Barnastjörnur
Tvær barnastjörnur urðu
skyndilega frægar fyrir leik
sinn i kvikmyndum, þær Linda
Blair, fyrir leik sinn i myndinni
The Exorcist”, og Tatum
O’Neal, (dóttir Ryan O’Neal úr
„Love Story”) fyrir leik sinn i
mynd Peters Bogdanovich,
„Paper moon”, en þar lék hún
sigarettureykjandi smá-
svindlara, og kom meira að
segja til greina sem Óskars-
verðlaunahafi fyrir leik sinn i
myndinni. En i Hollywood er nú
erfitt uppdráttar fyrir barna-
stjörnur. Litlir möguleikar eru
fyrir þær að ná öðrum eins vin-
sældum i i kvikmyndum og t.d.
Shirley iemple gerði. En bæði
Shirley Temple og Mickey
Ronney fengu sérstaka „minni
útgáfu” af óskarsverðlaunum á
þritugasta áratugnum, þegar
myndir þeirra voru hvað
vinsælastar. Seinna fengu aðrar
barnastjörnur álika verölaun,
og meðal þeirra voru t.d. Judy
Garland, Deanna Durbin,
Margaret O’Brien og Peggy
Ann Garner. En siðan Hayley
Mills fékk verðlaun fyrir
„Pollýönnu” árið 1960, hefur
engin barnastjarna náð eins
langt. Meðan börn hafa auðgazt
og öðlazt frægð á ýmsum sjón-
varpsþáttum, þá eru erfiðir
timar fyrir börn, sem vilja fá
kvikmyndahlutverk. Samt sem
áður er augljós vöntun á barna-
stjörnum i Hollywood — börnum
með hæfileika, sem skjóta upp
kollinum i mynd eftir mynd og
verða milljónerar áður en þau
verða 10 ára. — Ein af
ástæðunum er, að „fullorðins”
— myndir eru nú hvað vin-
sælastar i Hollywood. Fjöl-
skyldumyndir Disneys eru þó
undantekningar, en jafnvel þeir
hafa enga samninga við barna-
stjörnur. Leikarar, sem hófu
feril sinn sem barnastjiirnur,
hafa litið sem ekkert gott að
segja um þá reynslu. Hvernig
væri að spyrja Elizabeth
Taylor, Natalie Wood, Mickey
Ronney eða Patty Duke, hvort
þau hefðu ekki heldur viljað
alast upp i eðlilegri æsku, eða
hvort þau vilji, að þeirra eigin
börn fari að leika i kvik-
myndum? Flestar hafa barna-
stjörnurnar komizt yfír þessa
reynslu, en aðrar ekki náð sér
eftir slika æsku, og hafa aldrei
beðið þess bætur að fá ekki að
alast upp eins og önnur börn.
Robert Blake lék i kvikmyndum
frá fimm ára aldri til tiu ára
aldurs, en þá fór hann að neyta
eiturlyfja, og læknaðist ekki af
þvi fyrr en hann var kominn yfir
tvitugt. Honum tókst þó að ná
langt sem fullorðinn, en segir
sjálfur, að æska sin hafi verið
hræöileg, og að hann hafi aldrei
fyrirgefið foreldrum sinum að
hafa rænt hann eðlilegri
bernsku. Samt sem áður: Hann
komst yfir þetta, en það gerðu
aðrir ekki. Vandamálin, sem
urðu Judy Garland að aldurtila,
má áreiðanlega rekja til þess
þrýstings, sem hún leið undir
sem barn. Börn eignast þó enn
milljónir við myndagerð, en
ekki i venjulegum biómyndum.
Barnastjörnur nútimans eru
flestar frá sjónvarpinu. Johnnie
Whitaker hóf kvikmyndaleik
sex ára í myndinni „Rússarnir
koma, Rússarnir koma”, og tók
einnig þátt i þrem Disney-
myndum, en það var sjón-
varpið, sem gerði hann að
alþjóðlegri stjörnu og
milljónera.
Fer Konstantín
aftur til Grikklands
sem konungur
landsins?
Nýir erfiðleikar steðja að i
Grikklandi. Hópur herforingja i
norðurhluta landsins neitar að
hlýða herráðinu og óskar eftir
að konungdómur verði tekinn
upp aftur. Orðrómurinn gefur
jafnvel i skyn, að herforingj-
arnir muni með uppreisn reyna
að steypa stjórninni i Aþenu
og fá Konstantin aftur. I j'úní
i fyrra steypti Giorgios Papa
dopoulos Konstantin af stóli,
eftir misheppnaða tilraun flot-
ans til að koma konungi að
aftur. Eftir þetta flutti
konungur sig til Rómaborgar
með fjölskyldu sina, og siðan til
Englands, en hann telur sig enn
konung Grikkja. Hinn norð-
griski her hefur bækistöðvar
sinar i Saloniki, Kozani og
Vernis. Verkefni hersins er að
verja Grikkland gegn hugsan-
legri árás frá Júgóslaviu eða
Rússlandi. Það var hluti af
þessum hér, sem aðstoðaði
Konstantin i hinni misheppnuðu
tilraun hans á móti Papa-
dopoulosi i desember 1967. Jafn-
hliða fregninni um að Konstant-
in sé að reyna að snúa aftur, er
sagt, að Dimitrios Ioannidis
hershöfðingi sé að auka völd sin.
Hann er yfir maður hinnar al-
ræmdu herlögreglu ESA, sem er
likt við Gestapo, og hefur nú
verið útnefndur yfirmaður al-
mennu lögreglunnar og öryggis-
lögreglunnar. Það var Ioanni-
dis, sem steypti Papadopoulosi
af stóli 25. nóvember i fyrra.
Ioannidis og Phaedon Gizikis
hershöfðingi berjast nú um
völdin i Grikklandi, en Gizikis
er fylgjandi þvi, að Konstantin
snúi aftur sem konungur
Grikklands. ,
kennt hundinum að hata mig!
— Þegar þú svo loksins vinnur
eitthvað i happdrætti, þá þurfti
það auðvitað aö vera Happdrætti
Búnaðarfélagsins.
CAIRO
60TEB0H&
CUSTUMS
ZOLL
— Hann skrökvar ekki.... þetta er
olia!
— Hann borðaöi það.!
DENNI
DÆMALAUSI
Hann meinar ekki allt sem hann
segir, en það sem hann meinar,
það meinar hann.