Tíminn - 29.05.1974, Blaðsíða 13

Tíminn - 29.05.1974, Blaðsíða 13
Miövikudagur 29. mai 1974. TÍMINN 13 Moníka á Merkigili að hætta búskap * Monika Helgadóttir „KONAN i dalnum,” Monika Helgadóttir sem nú hefur búið á Merkigili i Austurdal I Skagafirði nær fjóra áratugi, er I þann veginn að hverfa frá búskapnum og vill selja jörð sina, enda orðin háöldruð og farin að heilsu. Ekki eru líkur til þess, að nein dætranna niu taki þar við búsfor- ráðum, er hana þrýtur. Monika hefur búið á stað, þar sem yfir meiri torfærur hefur verið að sækja en á flestum öðrum bæjum hér á landi, og það breyttist ekki fyrr en nú fyrir fáum árum, er Jökulsá i Austur- dal var brúuð. Búskapinn hefur hún stundað af dugnaði, byggt og ræktað, ekki siður en aðrir, og er það raunar hetjusaga, er varð al- þjóð kunn, þegar Guðmundur G. Hagalin skrifað bók sina, Konan i dalnum og dæturnar niu. — Ég hef verið á sjúkrahúsi i átta vikur, sagði Monika, er við töluðum við hana i gær, og þó að ég sé komin heim, er þetta að verða mér ofviða. Seljist jörðin, get ég farið héðan i vor, ef svo vill verkast, en það gæti lika komið til greina, að ég yrði hér áfram, ef um það semdist við kaupandann. Ég ætlast til þess, að þeir, sem kaupa vilja, geri mér tilboð, og nú sé ég hverju fram vindur. Stjórnarmyndun í Frakklandi Paris—NTB — Ráðherralisti Valery Giscard d’Estaing var birtur i gær, og hefur vakið mikla undrun og umtal, en þó mest út- nefning utanrikisráðherrans, en hann er Jean Sauvangargues, nú ambassador i Bonn. Fjármála- ráðherrann nýi er lika úr röðum utanlandsstjórnmálamanna. Jean-Pierre Fourcade. Einn af nánustu ráðgjöfum fórsetans, Michel Poniatowski var útnefnd- ur til innanrikisráðherra, en varnarmálaráðherra, Jacques Soufflet. Nýja stjórnin hefur einn kvenmann, Simone Veil sem heil- brigðismálaráðherra. Frá siðasta landsmóti skáta að Ilreðavatni 1970. Fjölmennasta landsmót — haldið 14. — 21. júlí gb—Rvik — Sestánda landsmót skáta verður haldið að Úlfljóts- vatni dagana 14.-21. júli i sumar, og mun það verða fjölmennasta landsmót, sem hér hefur veriö haldið, en reiknað er mcð, að á þriðja þúsund skáta verði á mótinu. Þar af verða um 250 út- lendingar flestir frá Norður- löndunum, en einnig frá Græn- landi, Færeyjum Frakklandi, Sviss, Englandi, Þýzkalandi og USA. „Landnám” hefur verið valið sem rammi mótsins til að ísraelar framleiða helming hergagna sinna SAMKVÆMT upplýsingum útvarpsstöðvar I ísrael hefur verið cytt sem svarar 375 mill- jörðum íslenzkra króna til hermála á þessu fjárhagsári, og reiknað er með, að ekki verði minni upphæð varið til landvarna á næsta ári. Israelar framleiða sjálfir um helming þeirra hergagna, sem þeir þurfa á að halda, og einnig selja þeir úr landi umtalsvert magn hergagna. T.d. selja þeir fyrir um 20 milljarða islenzkra króna til landa i Mið- og Suður- Ameriku. Það eru einkum fjögur vanda- mál, sem Israelar hafa i sam- bandi við herbúnað sinn: að útvega fé til að greiða hinn gifur- lega kostnað, að vera sifellt viðbúnir stórfelldum átökum við nágranna sina óvissan um hvort Bandarikjamenn halda áfram að selja þeim nauðsynleg vopn, og að siðustu skortur á sérhæfðum vinnukrafti i hergagnaiðnaðinum Hreinsun Suezskurðar vel á veg komin Kairo NTB — Þyrilvængjur bandariska flotans, sem unnið hafa að hreinsun á sprengjum i Súezskurðinum, munu Ijúka þvi verki n.k. sunnudag, var tilkynnt af talsmanni flotans i Kairo i gær. Tólf þyrilvængjur draga á eftir sér sérstakan útbúnað, sem gerir AAiklar byggingafram- kvæmdir á Dalvík Dalvik HD — óvenjú snemma mun byrjað á byggingarfram- Bændur Við seljum dráttar- vélar búvélar og allar tegundir vörubila bílasalan Bræöraborgarstig 22 Simi 26797. Auglýsið í Tímanum kvæmdum á Dalvik I ár, venju- lega hefur það ekki verið hægt fyrr en fram i júnl-mánuö er komið. Er það aö þakka óvenju góðu tiðarfari, sem rikt hefur á Norðurlandi i allt vor. Dalviking- ar fyrirhuga byggingu þrjátiu ibúða i sumar, bæði einbýlis- og raðhús. Vegir eru nokkuð góðir i grennd við Dalvik, þó eru þeir fremur þurrir og harðir. Skuttogarinn Björgvin landaði bæði á föstudag og laugardag hundrað tonnum. Nýr skuttogari mun i byggingu i Póllandi og er eigandinn Aðalsteinn Loftsson. Vélstjórarnir eru þegar farnir erlendis til að taka við skipinu en það verður formlega afhent um mánaðamótin júní-júli. að verkum, að sprengjur I skurðinum springa. Súezskurður- inn hefur verið lokaður siðan i júni 1967. Þó mun þátttöku Bandarikjanna i hreinsun skurðarins langt frá þvi að vera lokið. Um eitt hundrað hermenn munu dveljast áfram i Egypta- landi til leiðbeiningar Egyptum um endanlega hreinsun skurðarins. Og i viðbót mun bandariskt fyrirtæki hafa tekið að sér að ná tiu stærstu skipa- flökunum upp úr Súez-skurðinum, en i allt munu 55 skipsflök vera i honum. Fyrirtækið hefur gert um þetta samning við bandariska flotann og mun stjórnin i Washington borga kostnaðinn. minnast 1100 ára landsnámssögu landsins, en ennfremur til að minna á „nýtt landnám” er skátar hyggjast hefja við Úlfljótsvatn. Þar eiga skátar að kynnast náttúrunni og útilifi i enn rikara mæli en verið hefur. Umsóknarfrestur er til 1. júni, og þarf þá að vera búið að greiða 1000 kr. i tryggingargjald, en alls er þátttökugjald kr. 4800 fyrir einstakling i skátabúðum allan mótstimann. Innifalið i gjaldinu er t.d. allur matur, mótshandbók og mótsmerki. Fjölskylduaf- sláttur verður veittur, en annað systkini eða fjölskyldumeðlimur greiðir 75% gjaldsins, þriðji aðili 50% og fjórði 25%. Sérstakar fjöl- skyldubúðir verða, en ekki mun fæði innifalið I þvi, gjaldi, sem er kr. 700 fyrir fyrstu nóttina en kr. 300 fyrir hveja nótt eftir það. En i f jölskyldubúðunum verður matarverzlun opin, og einnig verður starfræktur þar barna- leikvöllur. — Dagskrá mótsins er fjöl- breytileg klukkan átta á morgn- ana verður farið á fætur farið verður i keppni af ýmstu tagi, leikir og þrautir, göngu- og bilferðir, svo eitthvað sé nefnt, og á hverju kvöldi verður varðeldur, en kyrrð skal komin á kl. 23.30. í mótsstjórn eru Bergur Jónsson formaður, Unnur Sch. Thor- steinsson aðstoðarfor- maður, Jarl Jónsson fjármála- stjóri, Magnús Hallgrimsson tæknistjóri, Sigurjón Mýrdal dag- skrárstjóri og Inga Jóna Þórðar- dóttir útbreiðslustjóri og ritari. — Aðstaðan við Úlfljótsvatn er öll hin bezta. Skátarnir munu meðal annars hafa banka þjónustu á vegum Landsbankans, sérstakt dagblað verður gefið út mótsdagana almenn póst- og simaþjónusta verður einnig, og svo verður reynt að hafa sem allra fullkomnasta sjúkrahjálp með lækni og hjúkrunarkonu. Sjálfboðaliðsferðir verða farnar um hverja helgi fram til móts, þvi nóg er að gera við undirbúning. Bandlag isl. skáta skorar á alla skáta 15 ára og eldri að koma til vinnu. Ferðir eru þátttakendum að kostnaðarlausu, drykkir og ein heit máltiðádag. Sjálfboðaliðar eru beðnir að skrá sig á skrifstofu BIS að Blönduhlið 35. Sýning Vilhjálms opin til laugar- dagskvölds SJ—Reykjavik. Sýning Vilhjálms Bergssonar i kjallara Norræna hússins hefur verið framlengd til laugardagskvölds. Vilhjálmur sýnir nú 39 oliumálverk, auk all- margra teikninga. Mikil aðsókn hefur verið að sýningunni, og eru 11 myndir seldar. Sýningin er opin kl. 3-10. PV9* r Mótsmerki landsmóts skáta. Kissinger í 13. skifti til Damaskus Damaskus NTB — í gær kom Henry Kissinger i þréttánda skipti á einum mánuði til Damaskus til að gera allra siðustu tilraun til samninga milli israels og Sýrlands um vopna- hléslinuna viö Golan-hæðirnar. Áður hafði veriö áætlað, að Kissinger færi til Washington i gær um Kairo og London, en að Joseph Sisco færi ti! Damaskus. Eftir tveggja tima viðtal vi israelska ráðamenn i Jérúsalem gær, ákvað Kissinger að hitt Hafez Assad einu sinni enn, e Kissinger var svo væntanlegur t baka til Jerúsalem i gærkvölc Israelskar og Sýrlenskar hei sveitir skutu hver á annan Golonhæðunum i gær, 78. daginn röð og eftir þvi sem tsraelar segj særðist einn hermaður.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.