Tíminn - 29.05.1974, Blaðsíða 17

Tíminn - 29.05.1974, Blaðsíða 17
Miðvikudagur 29. mai 1974. TÍMINN 17 Umsjón: Alfreð Þorsteinssoini BRIDGESTONE-CAMEL opna golfkeppnin, verður haldin hjá Goifklúbbi Suðurnesja um næstu helgi. Leiknar verða 36 holur á Leiru-vellinum, sem er i mjög góðu ásigkomulagi núna. Keppnin verður með og án for- gjafar, og verður keppt á laug- ardag og sunnudag, eða 18 holur leiknar á dag. Sérstök verðlaun verða veitt fyrir að slá holu i höggi. Þeir kylfingar, sem hafa hug á að vera með, eru beðnir að láta skrá sig fyrir kl. 10 á fimmtudagskvöld. Keppendur geta svo fengið að vita rástima á föstudagskvöldið i sima (92)- 2908. Júlíus þotumeistari: Július R. Júliusson sigrði i þotu- keppninni i golfi, sem var háð á Hvaleyrarvellinum i Hafnar- firði um sl. helgi. Július sigraði bæði án og með forgjafar, en það er mjög óvenjulegt i eins stóru móti og Þotukeppnin var. Þrir efstu kylfingarnir urðu þessir, án forgjafar: Július R. Júliusson 150 Jóhann Benediktsson 155 Loftur óiafsson 155 Jóhann sigraði Loft i „bráða- bana”. Einar sigraði í //Dunlop open" Einar Guðnason, GR, varð sigurvegari i „Dunlop open” keppninni, sem fram fór á veg- um Golfklúbbs Suðurnesja fyrir stuttu. Leiknar voru 36 holur, og lék Einar á 153 höggum. Þrir efstu Jiylfingarnir urðu þessir: Einar Guönason, GR 153 Þorbjörn KjærboGS 155 Ragnar ólafsson, GR 156 Þorbjörn Kjærbo jafnaði vall- armetið, þegar hann lék fyrri 18 holurnar á 72 höggum. Björgvin 2 höggum frá úrslitum tslandsmeistarinn i golfi, Björgvin Þorsteinsson, komst ekki i úrslitakeppnina i golfmót- inu úti i Sviþjóð. Björgvin lék 36 holurnar á 162 höggum, en leika þurfti á 160 höggum til að kom- ast i úrslitakeppnina. I MYNDIN hér til hiiðar er af Steinari Jóhannssyni, marka- kóngi i Keflavik, sem skoraði 34 mörk á síðasta keppnistimabili. Steinar hefur nú skorað 9 mörk á keppnistimabilinu, og hann á örugglega eftir að senda knött- inn oftar inetið. isumar. Það er ætlun okkar, að birta myndir af okkar beztu knattspyrnu- mönnum hér á siðunni I sumar, og er þetta fyrsta myndin i þeim flokki. Það er óþarfi að kynna Steinar, þvi að það er ekki langt siðan viðtal við hann birtist i sunnudagsblaði Timans. En framvégis verða leikmenn kynntir um leið og myndir birtast af þeim. I Gunther Netzer, Þjóðverjar mæta sterkir til leiks í HM-keppninni Helmut Schön hefur valið 22 leikmenn, sem fá það hlutverk að færa V-Þjóðverjum heimsmeistaratitilinn í knattspyrnu HELMUT SCHÖN... ein- valdur landsliðs Vestur- Þýzkalands í knattspyrnu, hefur nú valið 22 leikmenn, sem fá það hlutverk að færa V-Þjoðverjum heims- meistaratitilinn í knatt- spyrnu í sumar. Schön hefur náð frábærum árangri með v-þýzka landsliðið síðan að hann tók við því 1964 af Sepp Herberger. Hann kom v- þýzka liðinu f úrslit i HM í Englandi 1966 og v-þýzka liðið varð í 3ja sæti 1970 í Mexíkó. Undir stjórn hans tryggðu V-Þjóðverjar sér Evrópubikar landsliða 1972. Þá byrjaði Schön að byggja upp nýtt Ijð, tak- mark hans er, að gera V- Þjóðverja að heims- meisturum 1974. Eftir spá- dómum, þá ætti hann að geta náð því takmarki, þvi að landslið V-Þjóðverja er geysilega sterkt í dag og frábærir leikmenn skipa öll sætin í 22 manna hóp Schön. Aöeins 7 ieikmenn, sem léku HELMUT SCHÖN....hefur valiö HM-liö V-Þýzkalands. með v-þýzka liðinu i Mexikó 1970, eru eftir i því. Uppistaða liösins er nú byggð i kringum leikmenn E vrópumeistaranna Bayern Munchen, en það eru 7 Bayerar i liðinu. Borussia Mönchenglad- bach á 5 leikmenn þar og fyrrum fyrirliðið liðsins Gunther Netzer, sem nú leikur með spánska liðinu Real Madrid, er einnig i lands- liðshópnum. En nú skulum við lita á leikmennina, sem skipa 22 manna hópinn: MARKVERÐIR: Sepp Maier, Bayern Munchen Wolfgang Kleff, Mönchengladb. Norbert Nigbur, Schalke 04 Varnarmenn: F. Beckenbauer, Bayern Munchen G. Schwarzenbeck, B. Munchen Paul Breitner, B. Munchen Berti Vogts, Mönchengladbach Rainer Bonhoff, Mönchengladb. H. Kremers, Schalke 04 Horst-Dieter Höttges, Bremen B. Cullmann, 1. FC Köln Miðvallarspilarar og framlínumenn: J. Kapellmann, B. Munchen Gerd Muller, B. Munchen Uli Hoeness, B. Munchen B. Hölzenbein, Frankfurt J. Grabowski, Frankfurt J. Heynches, Mönchengladb. H. Wimmer, Mönchengladbach G. Netzer, Real Madrid W. Overath, 1 FC Köln Heinz Flohe, 1. FC Köln Herzog, Dusseldorf Schön ætlaði að velja Wolfgang Weber, 1. FC Köln í liðið, en i læknisskoðun kom fram, að Weber, sem hefur leikið með v- þýzka iiðinu i HM 1966 og 1970, var með hjartagalla. Þá var Erwin Kremers, tvíburabróðir Helmut Kremers, nær öruggur i 22 manna hópinn, en hann hefur verið fastur landsliðsmaður að undanförnu. Það var geysilegt áfall fyrir Erwin, þegar hann frétti að hann væri ekki valinn en ástæöan fyrir þvi var, að hann Framhald á bls. 19 Svíar búnir að velja lið sitt Sex atvinnumenn leika með sænska liðinu í HM GEORG„Aby" Ericsson, sænski einvaldurinn í knattspyrnu, hefur valið 22 manna landsliðshóp Svíþjóðar, sem tekur þátt i HM i Vestur-Þýzka- landi. „Aby" tilkynnti lið sitt á mánudaginn, og í því eru n leikmenn, sem léku með sænska liðinu í Mexicó 1970. Þá leika 6 atvinnumenn með liðinu og tveir fyrrverandi at- vinnumenn. Svíþjóð leik- ur í riðli með Uruguay, Hollandi og Búlgaríu, en sá riðill er sá sterkasti í HM. Sænski hópurinn er skipaður eftirtöldum leikmönnum: MARKVERÐIR3 Göran Hag- berg, öster, Ronnie Hellström, Hammarby, og Gunnar Lars- son, örebro. VARNARMENN: Björn Andersson, öster, Jörgen Agustsson, Atvidaberg, Roland Grip, Sirius, Kent Karlsson, Atvidaberg, Claes Crongvist, Landskrona, Bo LarssonMalmö (áður VB Stuttgart), Björn Nordqvist, PSV Eindhoven (Hollandi) og Jan Ólsson. Atvitaberg. MIÐVALLARSPILARAR: Ole Grahn, Grasshoppers (Sviss). Ove Kindvall.Norrköping (áður Feyenoord), Sven Lindman, Djurgarden, örjan Persson, Örgryte, Staffan Tapper. Malmö FF, Conny Torstensson, Bayern Munchen (V-Þýzka- landi). FRAMLINUSPILARAR: Thomas Ahlström, Elfeborg, Ralf Edström PSV Eindhoven (Hollandi) Inge Ejderstedt, öster, Benno Magnusson, 1. FC Kaislerslautern (V-Þýzkalandi) og Roland Sandberg, 1 FC Kaiserslautern. Þar sem nöfn leikmanna eru feitletruð, þýðir það, að þeir léku með sænska liðinu i HM i Mexicó 1970. HM-lið Búlgariu vann Norður- Kóreu i vináttulandsleik i knatt- spyrnu. Leiknum iauk 6:1, og skoraði hinn 27 ára gamii Khristo Bonev „Hat-trick”, þrjú mörk i leiknum. Liðin, sem leika i ursiitakeppni HM i Vestur-Þýzkalandi i sumar, leika nú hvern æfingaleikinu á fætur öðrum. Hollenzka liðið AZ 67 vann HM-lið Haiti 3:1 i æfingaleik fyrir Haiti-menn á mánudags- Framhald á bls. 19

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.