Tíminn - 29.05.1974, Blaðsíða 9

Tíminn - 29.05.1974, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 29. mai 1974. TÍMINN 9 tJtgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.), Jón Helgason, Tómas Karlsson, Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Rit- stjórnarskrifstofur I Edduhúsinu við Lindargötu, slmar 18300-18306. Skrifstofur I Aðalstræti 7, simi 26500 — af- greiðslusimi 12323 — auglýsingasimi 19523. Blaðaprent h.f. *-■ y Það verður kosið að nýju Úrslitin i sveitastjórnarkosningunum komu mönnum viða á óvart. 1 sveitarstjórnar- kosningum er kosið um önnur mál og aðra menn en i alþingiskosningum. Þó er vitað, að meira var kosið um landsmál i nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum en oft áður. Er það álit margra að óvæntur byr Sjálfstæðisflokks- ins i sveitarstjórnarkosningunum hafi að verulegu leyti byggzt á afstöðu manna til varn- ar- og öryggismála. Hin mikla sundrung á vinstri væng islenzkra stjórnmála hefur og greinilega orðið vatn á myllu ihaldsaflanna. Að sjálfsögðu hljóta úrslit sveitastjórnar- kosninganna að hafa nokkur áhrif á málflutn- ing stjórnmálaflokkanna i þeirri baráttu fyrir kosningar til Alþingis, sem nú er að hefjast. Afhroð J-listans i Reykjavik, sem hvorki meira né minna en fimm stjórnmálasamtök stóðu að, eru vissulega ekki uppörvandi fyrir klofnings- og sundrungaröflin á vinstri vængn- um. Magnús Torfi og hans lið i Samtökunum, Möðruvallahreyfingin og Samtök jafnaðar- manna, gáfu út áskorun til fylgismanna sinna fyrir kosningarnar og báðu þá að kjósa J-list- ann i Reykjavik, hinn sameiginlega lista Alþýðuflokksins og Samtaka frjálslyndra og vinstri manna. I rauninni máttu aðstandendur þess lista þakka fyrir, að tapa ekki nema ein- um manni. Þeir héldu einum fulltrúá inni með mestu naumindum. Þeir ætluðu sér þó að fá þrjá og sumir sögðu fjóra, þvi að þarna var á ferðinni „hið nýja afl” i islenzkum stjórnmál- um!! í niðurstöðum sveitastjórnakosninganna fel- ast þvi lærdómar fyrir ýmsa,sem til stjórn- málaframa hugðu. Enginn vafi er og á þvi, að kjósendur sjálfir munu draga sinar ályktanir af niðurstöðum sveitastjórnakosninganna. Ekki er ósennilegt að i ýmsum byggðarlög- um átti menn sig betur á þvi hinn 30. júni,að vert sé að hafa i huga valdatima viðreisnar- flokkanna og ekki er ósennilegt, að i ýmsum byggðarlögum átti menn sig betur á þvi hinn 30. júni, að vert sé að hafa i huga valdatima viðreisnarflokkanna og hin miklu umskipti, sem orðið hafa siðan þeir hrökkluðust frá völd- um. íhaldsandstæðingar hafa einnig lært þá lexiu i þessum kosr.ingum, að varast þá lukkuridd- ara, sem efna til sundrungar og óeiningar und- ir vigorðum sameiningar og einingar. Timi slikra manna er liðinn. Hannibal og Björn gjalda þess, að þeir slitu tryggð við vinstri stjórn. Bjarni Guðnason, sem reið á vaðið, á sér ekki viðreisnar von. Hann var þurrkaður út. Höfuðatriðið er, að kjósendur glöggvi sig nægjanlega vel á þeim málefnum, sem raunveruiega er verið að kjósa um 30. júni. Þeir þurfa að gaumgæfa aðdraganda þingrofs- ins og ástæðurnar fyrir þvi að Ólafur Jó- hannesson visaði málum undir þeirra dóm fyrr en ætlað var. Framsóknarflokkurinn er stoltur af verkum sinum i rikisstjórn. Hann leggur málin i dóm kjósenda i þeirri von að þeir kynni sér þau og meti af hlutlægni. — TK. ERLENT YFIRLIT Glíma Bumpers og Fulbrights Gyðingavaldið og bankavaldið ósammála i GÆR fór fram i Arkansas i Bandarikjunum prófkjör vegna þingkosninganna, sem eiga að fara fram i nóvember- mánuði næstkomandi. Próf- kjörið snerist m.a. um það, hver ætti að verða frambjóð- andi demókrata við kosningu til öldungadeildarinnar i haust. Það sæti, sem nú losn- ar, hefur J. William Fulbright skipað um 30 ára skeið. Hann sækir um framboð að nýju, enda þótt hann sé orðinn 69 ára og myndi verða orðinn 75 ára gamall við lok kjörtima- bilsins, en öldungadeildar- þingmenn eru kosnir til sex ára. Fulbright hefur sem for- maður utanrikismálanefndar öldungadeildarinnar verið einn af þekktustu stjórnmála- mönnum Bandarikjanna um alllangt skeið. Keppinautur hans er Dale Bumpers rikis-' stjóri i Alabama, sem er rétt- um 20 árum yngri en Ful- bright. Úrslitanna i viðureign þeirra hefur verið beðið um skeið með verulegri óþreyju, þvi að skoðanakannanir hafa sýnt, að Bumpers væri stórum sigurvænlegri. Þó hefur hlutur Fulbrights farið heldur batn- andi siðustu vikurnar, en þó vart nóg til þess, að hann sigri að lokum. Munurinn var þó samkv. siðustu könnun vart meiri en það, að óháðir kjós- endur gætu ráðið úrslitum. Úrslitin verða kunn i dag, og mun fall Fulbrights þykja verulegur stjórnmálaatburð- ur, ef af verður. ÞAÐ hefur dregið aukna at- hygli að þessari viðureign, að báðir keppinautarnir virðast hafa nægilegt fjármagn til þess að heyja dýra kosninga- baráttu. Talið er að Bumpers hafi fjármagn sitt frá Gyðing- um, sem eru mjög andvigir Fulbright sökum þess, að þeir hafa talið hann of hliðhollan Aröbum. Hins vegar styðja stórbankarnir Fulbright og munu leggja fé i kosningasjóð hans. Það er þó ekki gert vegna þess, að þeir telji hann einhvern sérstakan taismann sinn eða fulltrúa. Astæðan er sögð sú, að falli Fulbright, mun John Sparkman, öldungadeildarþingmaður frá Alabama, erfa sæti hans sem formaður utanrikismála- nefndarinnar. Sparkman myndi þá láta af störfum sem formaður bankamálanefndar öldungadeildarinnar. Eftir- maður hans þar yrði þá Willi- am Proxmire öldungadeildar- maður frá Wisconsin, en hann hefur oft þótt óþægur banka- valdinu. Þess vegna vilja stór- bankarnir koma i veg fyrir, ef hægt er, að Proxmire verði formaður nefndarinnar. Siðustu ágizkanir blaða- manna herma, að búið sé að koma málum þannig fyrir, að Sparkman muni afsala sér formennskunni i öldunga- deildinni, ef til kemur, og verða áfram formaður banka- málanefndarinnar. Mike Mansfield er næstur i röðinni, en talið er að hann vilji ekki bæta við sig formennsku i utanrikismálanefndinni, þar sem hann hefur ærið að gera sem leiðtogi demókrata i öldungadeildinni. Liklegur formaður utanrikismála- nefndarinnar, ef Fulbright fellur, er þvi talinn Frank Church frá Idaho, en þeir hafa oftast verið skoðanabræður hann og Fulbright, og þykir liklegt, að Church yrði engu áhrifaminni sem formaður utanrikismálanefndarinnar en Fulbright. Fulbright Bumpers FULBRIGHT, sem var p^ófessor, áður en hann tók sæti i öldungadeildinni, hefur oft haft andspyrnu að mæta i prófkjörum, en jafnan verið sigursæll. Keppinautar hans hafa þó gagnrýnt hann fyrir ýmsar skoðanir hans, en þær hafa oft verið umdeildar. T.d. var hann meðal þeirra fyrstu, sem snerust gegn Vietnam- styrjöldinni. Hann gagnrýndi á sinum tima hina misheppn- uðu innrás, sem gerð var á Kúbu. Hann var talsmaður bættrar sambúðar við Kina, löngu áður en aðrir gerðust það. Hann hefur verið tals- maður þess, af> ísrael afhenti herteknu landsvæðin aftur. Þannig mætti lengi telja. A siðustu árum hefur hann verið framarlega i hópi þeirra, sem hafa gagnrýnt vaxandi völd forsetaembættisins á kostnað þingsins. Sambúð hans og Nixons hefur þvi oftast verið erfið, en hins vegar hefur þeim Fulbright og Kissinger komið vel saman. I innan- landsmálum hefur Fulbright þótt umbótasinnaður og frjálslyndur, en þó farið sér hægt i réttindamálum svert- ingja. Talið er, að Kennedy myndi hafa gert Fulbright að utanrikisráðherra sinum, ef hann heföi ekki verið frá Suðurrikjunum. BARATTAN, sem Fulbright hefur þurft að heyja i sam- bandi við prófkjörið að þessu sinni, er ólik öllum fyrri. Keppinautur hans að þessu sinni, var litið þekktur lög- fræðingur, unz hann vann þann frægðarsigur að fella Winthrop Rockefeller i rikis- stjórakosningu, en Rockefell- er hafði þá verið rikisstjóri i Arkansas i tvö kjörtimabil. Rockefeller hafði á sinum tima unnið athyglisverðan sigur, þegar hann bauð sig fram fyrir republikana og náði kosningu sem rikisstjóri. Bumpers hefur unnið sér gott orð sem rikisstjóri, en þvi starfi hefur hann gegnt i tvö kjörtimabil. Hann þykir geð- þekkur maður og nýtur al- mennra vinsælda. 1 kosninga- baráttunni nú lýsir hann sig samþykkan Fulbright i flest- um málum og hælir honum óspart. Hins vegar heldur hann þvi fram, að öldunga- deildin sé yfirleitt skipuð of gömlum mönnum og þar sé þörf fyrir endurnýjun. Endur- kjör Fulbrights muni ekki tryggja endurnýjun, nema siður sé. Meðal almennings fellur það ekki i ófrjóan jarð- veg, að gagnrýna þingið, en skoðanakannanir sýna, að þótt Nixon njóti takmarkaðs trausts sem forseti, nýtur þingið minna trausts. Það reynir lika Nixon að notfæra sér i glimu sinni við það. Þ.Þ.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.