Tíminn - 28.06.1974, Page 11
Föstudagur 28. júni 1974.
TÍMINN
11
Otgefandi Framsóknarflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson (ábm.), Jón Helgason, Tómas
Karlsson, Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Rit-
stjórnarskrifstofur i Edduhúsinu við Lindargötu, simar
18300-18306. Skrifstofur i Aðalstræti 7, simi 26500 — af- -
grciðslusimi 12323 — auglýsingasimi 19523.
Blaðaprent h.f.
íhaldið vill atvinnuleysi
1 sjónvarpsumræðum flokksforingjanna,
neyddi Ólafur Jóhannesson Geir Hallgrimsson til
að skýra litillega frá þvi hver væri stefna Sjálf-
stæðisflokksins i efnahagsmálum, en talsmenn
Sjálfstæðisflokksins hafa reynt að forðast það á
allan hátt. Geir reyndi lika að komast undan með
efnislausu gaspri, eins lengi og hann gat, en
neyddist að lokum til að leysa örlitið frá skjóð-
unni.
Svör Geirs Hallgrimssonar voru i stuttu máli
þau, að flokkurinn vildi draga stórlega úr lánveit-
ingum fjárfestingasjóða, eins og fiskveiðasjóðs,
og að flokkurinn vildi draga úr erlendum lántök-
um. í veruleikanum þýðir þetta, að flokkurinn
vill draga úr uppbyggingu atvinnuveganna og
ibúðabygginga, þvi að öll lán fjárfestingasjóð-
anna renna til slikra framkvæmda. Jafnframt
vill flokkurinn hætta við stórframkvæmdir, eins
og byggingu orkuvera og annarra fjárfestinga i
þágu atvinnulifsins, en öll erlend lán, sem hafa
verið tekin i tið núv. rikisstjórnar, hafa runnið til
slikra framkvæmda.
Af þessu má öllum vera ljóst, að það, sem fyrir
Sjálfstæðisflokknum vakir, er að koma á sam-
drætti i framkvæmdum og atvinnurekstri og
skapa svokallað hæfilegt atvinnuleysi, eins og
átti sér stað á viðreisnarárunum.
Það var gott, að Geir var neyddur til að upplýsa
þetta. Kjósendur vita það betur eftir en áður á
hverju þeir eiga von, ef Sjálfstæðisflokkurinn fær
völdin.
Varið land
Sjálfstæðisflokkurinn biðlar nú ákaft til þess
fólks, sem skrifaði undir undirskriftarskjal Var-
ins lands. Mbl. segir, að þetta fólk og Sjálfstæðis-
flokkurinn eigi samleið. Slikt er höfuðfölsun. í
undirskriftaskjali Varins lands segir aðeins, að
varað sé við ótimabærri brottför hersins, en
stefna Sjálfstæðisflokksins er að hafa hér varan-
lega hersetu og aukið herlið. Jafnvel forustu-
menn Varins lands telja svo ærumeiðandi fyrir
sig að vera bendlaðir við þessa stefnu Sjálf-
stæðisflokksins, að þeir hafa höfðað skaðabóta-
mál vegna þeirrar aðdróttunar, að þeir vilji
varanlega hersetu.
Enn siður munu fjölmargir þeirra, sem skrif-
uðu undir umrætt skjal, vilja vera bendlaðir við
Sjálfstæðisflokkinn eða telja sig eiga einhverja
samleið með honum. Eðlilegt svar þessa fólks við
liðsbón Sjálfstæðisflokksins er að það gerist enn
fráhverfara honum.
Leiðbeining til íhalds-
andstæðinga
I Morgunblaðinu i gær er sérstaklega ráðizt á
frambjóðendur Framsóknarflokksins i Reykja-
vik, en næstum alveg sleppt að minnast á aðra
andstæðinga Sjálfstæðisflokksins. Þetta sýnir, að
Mbl. telur Framsóknarmenn nú sem fyrr aðal-
andstæðinga ihaldsins og þvi verði að beina
höfuðsókninni gegn þeim. fhaldsandstæðingum
ætti að vera þetta góð leiðbeining. Þeir eiga að
svara þessum árásum Mbl. með þvi að fylkja sér
um B-listann og tryggja glæsilega kosningu Ein-
ars Ágústssonar i Reykjavik.
Þ.Þ.
AAogens Kofoed-Hansen, Berlingske Tidende:
íran er að taka við
hlutverki stórveldis
Vanþróaðar þjóðir leita aðstoðar keisarans
Reza Pahlevi transkeisari
IRAN er að taka við hlut-
verki stórveldis og skýrasta
dæmi þess má sjá á þvi, hve
mikilvægi þess fyrir fátæku
vanþróuðu rikin eykst afar
ört. Sendinefndir frá þeim
rikjum i Afriku og Asiu, sem
hvað harðast hafa oröið fyrir
barðinu á oliuhækkuninni,
hafa streymt til Teheran til að
sækja um aðstoð. Og fáir hafa
farið bónleiðir til búðar. Sumir
hafa auk heldur fengið meira
en þeir fóru fram á.
Reza Pahlevi Iranskeisari
hefir jafnframt gert aðrar
ráðstafanir til að standa við
það loforð sitt, að nota hluta af
margfölduðum oliutekjum
rikisins til þess að stuðla að
aukinni þróun I heiminum. Sú
aðstoð hefir einkum farið
fram fyrir milligöngu stofn-
ana Sameinuðu þjóðanna, og
verður keisarinn ekki i þvi efni
vændur um að ota sinum tota,
nema hvað slik aðstoð eykur
velvild að sjálfsögöu.
ALÞJOÐABANKINN er
ávallt á hnotskóg eftir fjár-
magni til aðstoðar vanþróuðu
rikjunum. Hann fékk nýlega I
Iran lán sem svarar tæpum 17
milljörðum isl. króna, og það á
góðum kjörum. En þetta var
aðeins upphafið. Iranskeisari
hefir heitið aö leggja fram ár-
lega I nýjan alþjóðlegan
þróunarsjóð upphæð, sem
nemur um 94 milljörðum Isl.
króna. Þessi sjóður á að bæta
úr greiðsluerfiðleikum van-
þróuðu rikjanna og veita þeim
lán, en vextirnir eiga ekki að
vera nema 2,5 af hundraði á
ári. Slikt mega i raun og veru
kallast gjafir.
Iranskeisari á sjálfur hug-
myndina að þessum sjóði.
Hann hefir lagt til, að oliurikin
og auðugu iðnaðarrikin leggi
sjóönum sem svarar 315
milljörðum isl. króna á ári.
Þetta er um það bil fjórðungur
allrar annarrar aðstoðar við
vanþróuðu þjóðirnar og ein-
mitt þaö framlag, sem sér-
fræðingar Sameinuðu þjóö-
anna telja nauðsynlegt til þess
að geta hafið alvarlega glimu
við fátæktarvandann, sem
Iranskeisara hefir tekizt
heima fyrir.
ÞESSI aðstoð var einmitt
möguleg vegna oliunnar. Til
eru þeir meira að segja, sem
ekki telja þetta neina sérstaka
gjafmildi. Iransstjórn lét sinn
hlut ekki eftir liggja viö oliu-
hækkunina og hefir aukið árs-
tekjur sinar af þessarri vöru
úr 282 milljörðum Isl. króna I
1500milljarða. Þetta er æriö fé
fyrir riki, sem taldist meðal
hinna allra fátækustu fyrir að-
eins einum mannsaldri.
Hitt verður þó að játa, að
Iran er eina oliurikið, sem hef-
ir viöurkennt ábyrgö gagnvart
sinni eigin þjóð, sem enn býr
viö mikla vanþróun og einnig
gagnvart öðrum. Leiðtogar
arabisku olíurlkjanna hafa
hins vegar synjaö beiðni um
riflega aðstoð frá þeim rikj-
um, sem einna harðast urðu
úti. Þetta gerðist um daginn á
fundi leiðtoga Einingarsam-
taka Afrikurikja.
Munurinn er þó enn meiri ef
athuguð er sú aðstoð, sem Iran
hefir veitt beint og án milli-
göngu Sameinuðu þjóðanna.
Indverjar fengu beina tilhliðr-
un i olfuverði og auk þess lán,
sem svarar 50 milljörðum isl.
króna. Féð á meðal annars aö
nota til að efla járn- stál- og ál-
iönaðinn, en samtlmis fengust
samningar til langs tima um
sölu málma, sements og
iðnaðarvara. Þetta er óneitan-
lega rifleg næringarsprauta.
ENN merkilegri er þó að-
stoðin, sem tran hefir veitt
þeim Arabarikjum, sem ekki
eiga oliu, en þau hafa ekki
fengið teljandi skerf frá hinum
riku bræöraþjóðum ef frá eru
talin fögur orð. Þetta á eink-
um við um Egypta, en efna-
hagslif þeirra er i lamasessi
eftir styrjöldina. Iran hefir
veitt Egyptum loforð um lán
og styrki sem svara 82
milljörðum isl. króna og á að
nota féð til uppbyggingar, iðn-
væðingar og umbóta I land-
búnaði. Þetta kann að draga
Sadat að landi ásamt þeirri
aðstoð, sem hann fær frá
Bandarikjunum.
Sudan er meðal þeirra
Arabarikja, sem njóta aðstoð-
ar frá Iran. og fær auk þess
þaðan þá oiiu, sem á þarf að
halda. Súdan er bláfátækt og
Khalid utanrfkisráðherra var I
vetur ákafur talsmaður þess,
að Arabar beittu oliuvopninu I
stjórnmálabaráttu sinni. Þaö
má þvi heita kaldhæöni örlag-
anna, að Súdanbúar hafa
hvorki fengið efnahagsaöstoð
né oliudropa i þakklætisskyni
fyrir veitta aðstoð.
TORTRYGGNIR rýnendur I
rikjunum fyrir botni Mið-
jarðarhafsins segja, að Irans-
keisari hjálpi engum öörum en
þeim, sem hann vilji gera að
vinum sinum. Rýnendur á
Vesturlöndum minna hins
vegar á, að Iran hagnist mjög
vel á oliunni og muni ekki
mikið um gjafmildina. Báðir
hafa nokkuð til sins máls.
Hinar gifurlegu tekjur eru
auðvitaö forsenda aðstoöar
við önnur riki og Pakistanir og
Afghanir hafa fengið aðstoö
ekki siður en aðrir.
Oliuauðurinn og aðstoöin við
aðra eru mikilvægustu horn-
steinar öflugra innanlands-
framfara, umsvifa i utanrikis-
stefnu og efldra varna, sem
hiö nýja stórveldi Iran ætlar
að reisa framtið sina á.
Keisarinn hefir bent á, að oliu-
verðiö hafi ekki hækkað I
tuttugu og tvö ár. Allt annaö
hafi hins vegar margfaldazt i
verði, en aðstoðin viö vanþró-
uðu ríkin hafi þó minnkað sið-
ustu árin og oliukreppan hafi
orðið til þess að rjúfa víta-
hringinn i afstöðu háþróuðu
rikjanna til hinna vanþróuðu.
Robert S. McNamara forseti
Alþjóðabankans hefir nefnt
hjálpsemi íranskeisara ,,nýja
Marshall-aðstoð, sem nú nái
til allra þjóða og komi þeim
fátækustu að mestu gagni.”
Hverju þessi aðstoð getur
fengið áorkað kemur gleggst
fram heima fyrir I Iran.