Tíminn - 28.06.1974, Blaðsíða 15
Föstudagur 28. júni 1974.
TÍMINN
15
Landhelgismálið
í Ijósi staðreynda
Landhelgismálið er ótvirætt
mesta hagsmunamál íslendinga.
öllum,sem muna samning Dana
og Breta frá 1903, er i minni,
hvernig Bretar höguðu sér með
veiðar sinar hér við land um ára-
tuga skeið, og virtu þann samning
takmarkað. Þótt Danir gerðu sitt
til að halda uppi gæzlu vegna er-
lends veiðiágangs, var það erfitt i
framkvæmd.
Er Framsóknarflokkurinn
komst i stjórn 1927, gjörbreytti
hann og jók landhelgisgæzluna
stórum. Nokkrir menn höfðu
ástundað það að senda veiðiþjóf-
um dulskeyti um ferðir varð-
skipta. Er dómsmálaráðherra tók
fyrir þessa starfsemi, þótti þess-
um mönnum sem gengið væri á
sinn hlut, er þeir urðu að láta af
þessari iðju. Þá gerðist Sjálf-
stæðisflokkurinn málsvari þeirra
i dulskeytamálinu. Sjómenn um
land allt fundu og mátu vel þá
breytingu, sem varð, þegarLand-
helgisgæzlan fékk meira bolmagn
til að gæta þess að þær reglur, er
giltu.væru betur virtar.
Næsti áfangi var sá, að beinar
grunnlinur voru dregnar frá
punktum utan við yztu tanga.
Ekki voru allir sjálfstæðismenn
þar einhuga.
Það var undir forustu
Framsóknarflokksins, sem fært
var út i 12 milur, en það var næsta
skrefið. öllum ætti að vera ljóst
og muna, hver afstaða sjálf-
stæðismanna hefur verið i fram-
kvæmd, og samningar þeirra við
Breta og Þjóðverja frá 1961 var
þjóðinni til óheilla. Samt er Sjálf-
stæðisflokkurinn mjög sæll 1
þeirri trú sinni, að þar hafi hann
gert mikið heillaverk. Gæti hugs-
azt, að þeir væru reiðubúnir að
gera nýja samnipga á borð við
þessa, ef þeir fengju aðstöðu til?
Lokaáfanganum er enn ekki
náð. Útfærslan i 50 milur og sú
barátta, er þjóðin hefur átt i fyrir
að fá þá framkvæmd viöurkennda
af öðrum þjóðum, er mönnum
enn i fersku minni. Ekki hefur
Eingöngu:
VÖRUBÍLAR
VINNUVÉLAR
Ford Bronco — VW-sendibflar
Land-Rover — VW-fólksbflar
BÍLALEIGAN
EKILL
BRAUTARHOLTI 4, SÍMAR: 28340-37199
Sjálfstæðisflokkurinn staðið þar
heill að verki, þótt 60 hendur væru
á lofti, þegar útfærslan var sam-
þykkt á Alþingi. Ef taka ætti
saman allt það, er birzt hefur i
aðalmálgagni flokksins, Morgun-
blaðinu, yrði það langt mál. Sá
óhróður,er þar hefur flætt um þá
menn, er staðið hafa i fylkingar-
brjósti i baráttunni fyrir land-
helgismálinu, hefur verið það
lágkúrulegur, að það er auðskilið,
að handauppréttingar á Alþingi
hafa ekki verið gerðar af heilum
hug.
Atburður sá, er gerðist i sam-
bandi við togarann Everton, þeg-
ar landhelgisgæzlan var i sinum
fulla rétti að starfi,er öllum ljós,
Og þær eru ekki gleymdar yfir-
lýsingarnar, sem þeir félagar
Geir Hallgrimsson og dr. Gylfi Þ.
Gislason gáfu um þann atburð i
fjölmiðlum. Þá héldu þeirað sitt
gullna tækifæri væri komið til að
taka við stjórn landsins.
Nú eru kosningar á næstunni,
og gætið þið þá að þvi, kjósendur
góðir,að hvert atkvæði, sem Geir
og Gylfi fá, getur orðið til þess, að
það dragist að fullur sigur vinnist
i landhelgismálinu. Að forustu-
menn flokka skuli vera svo djarf-
ir, áð gefa út svona yfirlýsingar,
sýnir bezt hverjir þeir eru i raun
og veru. Kjósið þá, sem eru
heilsteyptir i þvi máli og gera
aldrei undansláttarsamning, eins
og gert var 1961.
Ef þeir komast til valda Geir og
Gylfi er þeim ekki treystandi,
samanber Everton-yfirlýsingar
þeirra. Þótt þeir tali nú fagurt, er
það ekki af einlægni gert. Þetta
ætti þjóðin q,ð muna á kjördegi.
Siguröur Stefánsson,
frá Stakkahlfð.
Átján lúðrasveitir í lands-
sambandi
ÁRSÞING Sambands fslenzkra
lúðrasveita var haldið að Hótel
Loftlciðum, laugardaginn 22. júnl
s.l.
Innan vébanda landssam-
bandsins eru um 18 starfandi
lúðrasveitir viðs vegar um landið
og eru þær yfirleitt snar þáttur i
tónlistar- og félagslifi sinna
byggðarlaga.
Mörg mál voru rædd á þinginu,
og bar þar einna hæst árlegar
styrkveitingar til lúðrasveitanna
úr rikissjóði, sem eru mjög rýrar,
og hafa staðið óbreyttar f yfir tug
ára. Stjórn sambandsins var falið
að leita til næsta alþingis, með
möguleika á niðurfellingu tolla af
hljóðfærum, og ræddir voru sér-
stakir gjaldtaxtar fyrir lúðra-
sveitir.
Næsta landsmót lúðrasveita
verður haldið i júni-mánuði 1975,
á Húsavik og hafa Húsvikingar nú
þegar hafið undirbúning þess.
Hin nýja stjórn Sambands is-
lenzkra lúðrasveita er skipuð
eftirtöldum mönnum: Formaður
Halldór Sigurðsson, varafor-
maður Sverrir Sveinsson, ritari
Helgi Helgason, gjaldkeri Pétur
Björnsson og meðstjórnandi
Ævar Karl Ólafsson.
Húseigendur -
Bændur
Tökum að okkur alls konar viðgerðir og
viðhald, utanbæjar sem innan. Vanir
menn. Simi 3-76-06 kl. 8-10, annars skila-
boð.
Æbílaleigan
felEYSIR
CARRENTAL
«24460
í HVERJUM BÍL
PIONEER
ÚTVARP OG STEREO
CASETTUTÆKI
LOFTLEIÐIR
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
21190 21188
StokÍR bGRRO
Dokkcírz
úr Ter^yLene
AUáLÝSINGADEILD TIMAN £.
glæsiíegC. úuual
IJtsölustaðir:
GEFJU\, Austurstræti
KEA, Akurejri
HERRA TÍZKA\, Laugavegi
1RK\I
Veijið í |
VEGGFÓÐRIÐ
OG MÁLNINGUNÁ
-
m
ieldhús
böð og
herbergi
6-700 veggfóður-munstur
10.000 litamöguleikar i
málningu
Opidtil kl.
10 í KVÖLD
LOKAÐ A LAUGARDOGUM
Samkvæmt síðustu kjarasamningum undirritaðra aðila verða verzlanir
lokaðar á laugardögum frá 22. júni
Verzlunamannafélag Kaupmannasamtök islands Vinnumálasamband Samvinnufélaganna
Reykjavikur Vinnuveitendasamband islands Kaupfélag Reykjavikur og nágrenuis