Tíminn - 28.07.1974, Síða 10

Tíminn - 28.07.1974, Síða 10
10 TÍMINN Sunnudagur 28. júii 1974. Sturlunga var honum einkar kær. Hann haföi i sér fræðimennsku og skrifaði sitt hvað, sem til er i handriti. Þá hafði hann mikinn áhuga á ættfræði og skrifaði bók um ættir Strandamanna, sem prentuð var sem handrit. Þór- hallur sonur minn hefur erft þennan áhuga föður sins. Tryggvi hvildi sig frá stjórnmálum við iðkun þessarar fræðimennsku og naut hennar. Tryggvi var sonur biskups, vigöur prestur og kominn af prestum I marga ættliði, en for- lögin höguðu þvi svo, að hann gegndi preststörfum aðeins I um 4 ár. Oft vann hann þó prestverk: skfrði öll sin börn, og flest börn systra sinna og annarra ættingja. Gifti vini sina og skirði börn þeirra, gifti stúlkur, sem höfðu verið á heimili okkar, o.fl. o.fl. Stundum þegar mikið gekk á i stjórnmálum, sagði hann bros- andi: „Æ, þvi varð ég ekki prest- ur i Grimsey?” Við stjórnarskipti vorið 1932 varö Asgeir Asgeirsson forsætis- ráðherra og þau Dóra fluttu i Ráðherrahúsið, en við aftur i Laufás. Fengum við þá allt húsiö til umráða. Tryggvi tók við bankastjórastöðu við Búnaðar- bankann, en þá átti hann aðeins 3 ár eftir ólifuð. ■ — Máii minu fer nú að ljúka. Við þessa upprifjun hefur verið stiklað á stóru, margt ósagt frá viðburðarikri ævi. Oft nefi ég ver- ið hvött til að skrifa endurminn- ingar minar. Nokkuð er til skrifað og á segulböndum, — gert fyrir afkomendur mina. Minnast mundi ég vilja og þakka öllum þeim úrvalsstúlkum, — svoköll- uðum vinnustúlkum, — stétt, sem nú er liðin undir lok — sem hjálp- uðu mér og voru margar svo frá- bærar, og hefðu átt skilið sérstak- an þátt frá minni hendi. — Ég hef frá upphafi búskapar mins fært bókhald yfir öll útgjöld heimilisins og geri enn. Oft hafa börnin stritt mér á, hve nákvæm ég hefi verið i þessu, og lagt vinnu I ,,að kassinn stemmdi”. Svo að lokum ein gamansaga: A árum okkar i Ráðherrahús- inu barst mér bréf frá manni i Astrallu. Ekki skal ég fara að orðlengja innihald bréfsins, nema hvað, að hann fullyrti, eftir að hafa séð mynd af mér i blaöi — Laufás — húsið, sem Þórhallur Bjarnason, prestssonurinn frá Laufási viA Eyjafjðrð, lét byggja árið I896sunnan við höfuðstaðlnn eins og hann var þá. Endanum, sem nær er trjánum, var aukið viö 1908 er Þórhallur varö biskup. Ég tel mig hafa verið gæfu- Skrifborð önnu f Laufási. Myndirnar á veggnum yfir skrifborðinu eru gamiar myndir af Laufási. A þeirri neðri sést hlaöa og fjós. Efri mynd- in er málverk eftir Jón biskup Helgason, gert áriö 1913. Þar sést hluti Laufástúns, sem iá aö suðurenda Tjarnarinnar, þar sem nú er Hljóm- skálagaröur og suöur aö iinu, þar sem nú er Njarðargata. hvernig sem hann nú hefur kom- izt yfir það — að ég mundi hafa veriö móðir hans i fyrra lifi. Börnunum var tiðrætt um þennan hálfbróður sinn þarna hinum megin á hnet.tinum, en ég bar nokkurn kviðboða fyrir þvi, að hann mundi birtast einn góðan veöurdag. Bréfið fékk ég I hendur hinni merku konu, frú Aðalbjörgu Sigurðardóttur, sem hafði áhuga á þessum málum um þetta leyti, og margt fleira var i þessu bréfi um þau mál. Tryggva var skemmt við „uppljóstrun” þessa „sonar mins”. konu, fyrst og fremst fyrir að hafa haft samfylgd — þó ekki lengri væri — við frábæran eigin- mann, og fyrir sérstakt barnalán. Og einnig fyrir að hafa átt þess kost, aö halda minu góða heimili i Laufási i yfir 50 ár og fyrir góða og trygga vini, allt frá æsku og fram á þennan dag. Verölaunabikar Þorláks i Skriöu I Hörgárdal er meöai margra skemmtilegra gripa I búi Önnu I Laufási. Þetta er silfurbik- ar frá landbúnaöarfélaginu danska, veittur fyrir ræktunar- störf. A bikarnum stendur: „Til Dannebrogsmand Thorlak Halgrimson af Skrede paa Is- land for udviist Flid ved Have- dyykning. Fra det Kongelige Landhuus holdnings Selskab.” En noröur i Hörgárdal hefur trjálundurinn heima i Skriöu lengi veriö minnisvaröi um Þorlák Hallgrimsson. ÚTBOÐ Knattspymufélagið Valur, Reykjavik ósk- ar eftir tilboðum i að fullgera grasvöll á iþróttasvæði félagsins við Flugvallar- braut. Otboðsgögn verða afhent á Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen s.f., Ármúla 4, Reykjavik gegn 2.000.- kr. skilatryggingu.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.