Tíminn - 28.07.1974, Side 18

Tíminn - 28.07.1974, Side 18
18 TtMINN Sunnudagur 28. jlill 1974. A Frank Usher: (§) TÆPU VAÐI hjarta hans. Hann horfði f raman í Stanislov. — Þetta var happaskot. — Nei, það var það ekki, sagði Stanislov. — En hvað hefðum við annars átt að gera? Hann ætlaði að þvinga okkur til að fara með sér til Kaltenburg. Þaðan hefðum við öll verið send til Moskvu. Ég efast stórlega um að nokkurt okkar hefði sézt aftur. Það varð stundarþögn. — Þá sýnist allt vera í lagi, sagði Amanda. — Hann fékk það sem hann átti skilið, þótt hann gerði raunar aðeins skyldu sína. — Já, það var einmitt það sem hann gerði, sagði Stanislov. — Þakka þér fyrir hjálpina Óskar. Þú ert handfastur maður. — Að sjálfsögðu, sagði Amanda. Óskar beygði sig niður og lyfti líkama Brodys. — Ég legg hann þarna á bakvið stóru steinana, sagði hann, — c.nnað getum við víst ekki gert. — Ertu nú alveg viss? spurði Amanda. — Já, hann er steindauður. — Hann fékk auðveldari dauða en við mundum hafa f engið, sagði Stanislov á meðan Óskar var að bera Brody bak við steinana. Amanda sendi Stanislov alvöruþrungið augnakast. — Vegurinn að baki okkar er stráður líkum. — Já, og mér líkar það ekki. — En við fáum ekki að því gert, sagði hún. — Það verður bezt að leggja strax af stað. Hann hristi höfuðið. — Fyrst verðum við að athuga okkar gang ofurlítið. Óskar kom nú til þeirra og dustaði rykið af höndum sér, andlitið var sviplaust. — Það var nú það, sagði hann. — Vesalings garmurinn. Eigum við ekki að halda áfram? — Hlustið nú á mig, bæði tvö, sagði Stanislov. Hann var náfölur í framan. — Aldrei skal ég gleyma því, sem þið hafið gert fyrir mig í dag. — Við höf um enn ekki náð takmarkinu, Nickolai, sagði Amanda. — Það hættulegasta er vissulega framundan, sagði Stanislov. — Það er ekki nema f immtán mínútna akstur að landamærunum. Þið haf ið alveg sérstaka pappíra f rá félaga Gabelsberger, sem tryggir ykkur greiða ferð yf ir landamærin. Hann hefur landamæraverðina í vasa sínum, og þegar þeir sjá undirskrift hans munu þeir ekki svo mikið sem líta inn í bílinn ykkar. — Ef kráreigandinn er þá ekki búinn að f inna hann og segja til hans sagði Óskar. — Þá áhættu verðum við að taka, sagði Stanislov. — En hvað ætlar þú að gera? spurði Amanda. — Þú hefur enga pappíra. — Það er undir ykkur komið — hvort þið viljið taka frekari áhættu. — Við höf um tekið margar áhættur, svo ein f rá eða til ætti ekki að skipta máli, sagði Amanda. — Áætlun mín er ofur einföld, sagði Stanislov. — Ég skríð inn í farangursgeymsluna. Hún er alveg nógu stór. — Ertu viss um að þeir opni hana ekki? — Gabelsberger er ekki meiri maður en það að hann auðgar sig á smyglinu sem alltaf á sér stað yfir landa- mæri Vestur- Austur-Þýzkalands. Bílar með pappíra eins og þið hafið eru aldrei rannsakaðir. Þetta eru samantekin ráð. Landamæraverðirnir sjálfir fá sinn part af ágóðanum. Eina hættan er sú að Gabelsberger sé kominn fram í dagsljósið. — Við tökum áhættuna, sagði Amanda. — Óskar, taktu farangurinn út úr geymslunni og settu hann á baksætið í bílnum. Stanislov fannst mjög til um það hvað Óskar hlýddi stúlkunni fljótt og skilyrðislaust. Hún hafði hann full- komlega á valdi sínu. En þessi hugsun fór eins og leiftur gegnum huga hans, en aðeins eitt augnablik. Nú var það hinn taugaæsandi flótti yfir landamærin það eina sem skipti máli. Hann fylltist allt í einu ægilegum hugboðum. Eini Ijósi punkturinn var sá að hann gat fyllilega treyst þeim tveim, sem með honum voru, þó alveg sérstaklega stúlkunni. Hann hafði valið vel. — Þegar við erum komin yf ir landamærin hérna meg- in, sagði hann, eru þrír fjórðu úr kílómeter til vestur- þýzku landamæranna. Ég bið ykkur að stanza mitt á milli landamæranna og hleypa mér inní bílinn. Ég hef vegabréf í vasanum sem gildir í Vestur-Þýzkalandi. — Heldurðu að þeir sjái þig ekki þegar þú kemur uppúr farangurshólfinu? spurði Óskar. — Við verðum að taka þá áhættu, sagði Stanislov. — Aðalatriðið er að komast gegnum landamæraeftirlitið hérna megin. Vestur-Þjóðverjarnir mundu að vísu sleppa mér í gegn sem flóttamanni í farangursgeymsl- unni. En ég vil vera laus við endalaus formsatriði og um- ræður, sem slíkt mundi hafa í för með sér. Það mundi einnig þýða að f lótti minn yrði heyrum kunnur, og hver einasti K.G.B.-maður í öllu Þýzkalandi á hælum mér. — Við gerum allt sem við getum fyrir þig, Nickolai, sagði Amanda. Óskar var að f lytja töskurnar í aftursæti bílsins. Stanislov skreið inní farangurshólfið, en varð að liggja alveg tvöfaldur. Amanda fékk honum púða undir höfuð- ið og breiddi yfir hann teppi. Síðan lokuðu þau geymsl- unni og óku af stað. •iVELU G E I R I D R E K I K U B B U R II Iliiiiil Sunnudagur 28. júli 7.00 Morgunútvarp Létt morgunlög, umferöaþættir o.fl. Fréttir kl. 7.30 og 8.15. Morgunandakt kl. 8.00: Séra Pétur Sigurgeirsson vlgslu- biskup flytur ritningarorö og bæn. tJtdráttur úr forustugreinum dagblaöanna kl. 9.00 Veöur- fregnir kl. 10.10. 10.25 tslensk hátföartónlist 10.50 Frá þjóöhátiö á Þingvöllum — Beint útvarp 10.57 Blásiö til hátlöar. 11.00 Hringt klukkum Þing- vallakirkju. 11.02 Þingfundur settur aö Lögbergi. — Þings- ályktunartillaga um land- græöslu og gróöur- verndaráætlun til minningar um ellefu- hundruö ára búsetu þjóöarinnar I landinu tek- in til annarrar umræöu, og endanlegrar af- greiöslu. Einn þingmaöur frá hverjum flokki tekur til máls og talar I fimm minútur. —Hlé— 12.15 Dagskráin. Tónleikar. 12.25 Fréttir og veöurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.15 Frá þjóöhátlö á Þing- völlum — Framhald 13.20'Lúörasveitir leika á Kastölum. Stjórnendur: Páll P. Pálsson. Sæbjörn Jónsson og Ólafur Kristjánsson. 13.30 Blásiö i lúðra. 13.32 Setning þjóöhátiöar. — Matthías Jóhannessen skáld, formaður þjóð- hátíöarnefndar 1974, flyt- ur inngangsorð. 13.40 Karlakórar syngja. Söngstjóri: Haukur Guð- laugsson. 13.43 Biskupinn yfir Islandi, herra Sigurbjörn Einars- son, flytur ávarpsorð 13.53 Karlakórar syngja. Söngstjóri: Haukur Guö- laugsson. 13.55 Þjóðarganga og leikur lúðrasveita á Kastölum. 14.10 Blásið i lúðra. 14.12 Forseti Islands, herra Kristján Eldjárn, flytur hátlðarræðu. 14.35 Karlakórar syngja. Söngstjóri: Jón Asgeirs- son. 14.40 Hátlöarljóö eftir Tómas Guömundsson. Höfundur flytur ljóöið. 14.47 Sinfóníuhljómsveit Is- lands flytur verölauna- verkiö „Tilbreytni” eftir Herbert H. Agústsson: Páll P. Pálsson stj. 15.05 Blásiö I lúöra. 15.07 AVörp gesta. 16.01 Karlakórar syngja. Stjórnendur: Jón As- geirsson og Eirlkur Sig- tryggsson. 16.15 Skólahljómsveit Kópa- vogs leikur „Rimna- dansa” eftir Jón Leifs. Stjórnandi: Björn Guðjónsson. 16.20 Halldór Laxness rithöf- undur flytur ávarp i minningu bókmenntanna. ’ 16.30 Sinfóniuhljómsveit Is- lands flytur verölauna- verkiö „Ellefu hugleiö- ingar um landnám” eftir Jónas Tómasson: Páll. Pálsson stjórnar. 16.45 Karlakórar syngja. Stjórnendur: Jón As- geirsson og Páll P. Páls- son. 16.55 Sinfóniuhljómsveit Is- lands leikur „Minni ís- lands” eftir Jón Leifs. Páll. P. Pálsson stjórnar. 17.10 Veöurfregnir. Fréttir. Tónleikar. 17.25 Barnatimi: Þetta er landiö þitt Bryndls Vlg- lundsdóttir og fleiri flytja hugleiöingar um land og þjóð. 18.00 Stundarkorn með Stefáni tslandí Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.