Tíminn - 28.07.1974, Qupperneq 20

Tíminn - 28.07.1974, Qupperneq 20
20 TÍMINN Sunnudagur 28. júli 1974. Aldargömul minning 1000 ára byggðar kallað það blitt eða stritt, er þó ekki annað en náðarhandleiðsla guðlegrar forsjónar, og þvi betur sem vjer þekkjum sögu lands vors frá þvi það byggðist, þvi bet- ur getum vjer lesið út úr henni hina dásamlegu handleiðslu guð- legrar forsjónar á oss fram á þennan dag. Vjer getum sjeð það á henni að drottinn gleymdi aldrei aö ala önn fyrir þeim, sem ekki gleymdu að ákalla hann, heldur var hinn eilifi náðarbrunnur hans jafnan opinn fyrir öll hans börn, sem þar vildu leita svölunar sál- um sinum. Og eins og drottinn var og hefur verið, þannig er hann enn, og verður til eilifðar, hann, sem var vort athvarf frá kyni til kyns, hann er vor guð frá eilifð til eilifðar. Vér stöndum hjer á mikilvæg- um timamótum, þúsund ára timamótum þeim, sem drottinn af náð sinni ljet oss auðnast að lifa. Og látum oss þvi allir af hjarta biðja á þessa leið við þetta hátiðlega tækifæri: Kenn oss, drottinn, svo að telja vora daga, að vjer veröum forsjálir. En til þess vjer þvi betur getum lært að telja vora daga, svo við verðum forsjálir verðum vjer nákvæm- lega að hugleiða handleiðslu guð- legrar forsjónar á oss frá vögg- unni til grafarinnar. Og þegar vjer gjörum það hlutdrægnislaust og með þeirri hreinskilni og eptir- þanka, sem oss ber að gjöra það, þá komumst vjer aö raun um það, að drottinn leiddi oss opt öðruvisi, en vjer vildum, að hann hefði leitt oss. Jeg veit, að þú, kristinn mað- ur, getur ekki haft á móti þvi, þvi reynsla þin sannar það. Eða hve margir eru þeir af oss, sem hjeldu áfram hinn sama veg og að- ur höfðu ásett sjer að fara, og þó að vegurinn i raun og veru væri hinn sami, hversu mikið öðruvisi varð hann þá ekki yfirferðar en vjer fyrirfram gátum imyndað oss, að hann yröi? Hve margar lifsreglur gáfu aðrir oss ekki, og hve margan góðan ásetning tók- um vjer ekki sjálfir fyrir oss á ungdómsárum vorum, þannig ætluðum vjer að nota og telja daga vora, þannig ætluðum vjer að vinna oss inn vort daglegt brauð, þannig ætluðum vjer að afla oss heiðurs og hamingju. En drottinn hafði ef til vill ætlað oss aðra vinnu, hann hafði ætlað oss að reyna heiminn allt öðruvisi en vjer höfðum hugmynd um, hann hafði ætlað oss allt aðrar unaðs- semdir og allt aðrar sorgir. Hve margir af oss eru nú á þeim stað og i þeirri stöðu, sem þeir áður imynduðu sjer, að þeir mundu verða i? Eða þó einhver sje þar, sem hann var, og hagur hans sje að nokkru leyti samboðinn þvi, sem hann gjörði sjer hugmynd um, hversu margar eru samt ekki þær vonir i hjarta hinna ungu, sem aldrei fá uppfyllingu? Hversu miklu öðruvisi verður ekki allt lif vort, heldur en þær myndir voru sem vonin og óttinn áður sköpuðu i sálu vorri? Og eins og guðs handleiðsla á oss var opt öðruvisi en vjer höfðum búist við, þannig var hún öðruvisi, en vjer vildum, að hún væri. bað voru ef til vill einhver gæði, sem vjer á ungdómSárum vorum höfðum þá hugmynd um, að án þeirra hvorki gætum vjer eða vildum lifa, en hvert árið leið svo eptir annað, að vjer hlutum seint eða aldrei þessi gæöi. Það var ef til vill einhver vegur, em vjer vild- um og ætluðum að komast til veg- semdar og sælu, en hann var svo lokaður fyrir oss, að vjer kom- umst hann ekki, vjer sáum aðra komast hann, og vjer þóttumst hafa eins mikinn rjett til að kom- ast hann eins og þeir, en vjer gát- um ekki fylgt þeim, þótt vjer neyttum allra krapta vorra og þó vjer beiddum guð heitt og hjartanlega, þá kom það fyrir ekki. En hin mildirika föðurfor- sjón drottins hafði þá búið oss aðra leið eða annan veg, og þá leið vildum vjer ekki fara. Það getur verið, að hún hafi byrjað með skilnaði við nákomna vini og oss hafi virst hún eins dimm og leiðin til grafarinnar. En það var eins og eitthvert ósýnilegt vald, er vjer gátum eigi á móti staðið, sem vildi, að vjer færum einmitt þessa leið, og vjer máttum til, hvort sem vjer vildum eða ekki. Það er undarleg tilfinning, sem hreyfir sjer i hjörtum vorum, þegar vjerr horfum til baka yfir það, sem liðið er af lifsleið vorri, þegar gamlar, hálfgleymdar endurminningar rifjast upp fyrir oss, þegar vjer likjum þvi um- liðna við það, sem nú er, og gáum að þvi, hvernig það varð svona. Mörg sorgblandin tilfinning vaknar þá á ný. En mörg gleðirik hugmynd lifnar þá einnig i sálum vorum, þvi það hljóta þó i sann- leika að vera margir á meðal vor, sem viðurkenna, að guð hefur gjört betur við þá en þeir höfðu vit á að biðja hann um. Vjer sjáum það nú, að margar óskir vorar á æskuárum vorum voru heimskulegar, og nú erum vjer glaðir yfir þvi, að þær uppfylltust ekki. Já, vjer ættum að þakka hinni alvisu forsjón fyrir það, og álita það eitt af hinum föður- legustu velgjörningum hennar við oss, að hún heyrði ekki hina heimskulegu bæn vora, og leyfði oss ekki að sökkva i þá glötun, er vjer sjáum nú, að bæn vor hefði getað steypt oss i ef vjer hefðum fengið hana uppfyllta. En að hinu leytinu varð opt sá vegurinn, Hér birtist stólræða, sem séra Jón Benediktsson í Görðum d Akranesi flutti í Garðakirkju 2. dgúst 1874, er þúsund dra byggðar norrænna manna í landinu var minnzt á Akranesi Bæn! Lof og dýrð sje þjer, himneski faðir, að þú hefur auðsýnt oss náð á náð ofan, þú hefur verndað oss, og viöhaldið lifi voru fram á þennan dag, svo vjer, nú i auömýkt getum minnst allra þinna velgjörða. Fyrir þjer eru þúsund ár sem einn dagur, þvi þú ert hinn sami frá eilifð til eilifðar, sami faðirinn, sem aldrei þreytist á aðvaka yfir hinum vanþakklátu börnunum, og reyna til að leiða þau til þin. Bæöi blitt og stritt hefur þú sent oss i sama visdómsfulla og gæðskurika tilgangi. 1 þúsund ár hefur hinn mildirika forsjón þin leitt oss og verndað oss. Æ vertu framvegis vor verndari, vor huggari og vor sáluhjálpari. Kenndu oss að telja vora daga svo vjer verðum forsjálir. Kenndu oss að fylgja viljuglega hinni náðarriku handleiðslu þinni, og gefa þér einum dýrðina fyrir öll þau hin andlegu og timanlegu gæðin, er þú lætur oss falla i skaut. Kenndu oss að athuga vora bresti og ráða bót á þeim, svo vjer getum verið duglegir meðlimir þins rikis hjer á jörðunni, og siðan verðugir borgarar þins eilifa rikis á himnum. Blessa þú oss þessa hátið og láttu hana hafa þau áhrif á hjörtu vor, a"b vjer hjer eptir á hinum næstu þúsund árum sam- huga höfum velferð þjóðar vorrar fyrir augum, og vinnum það upp aptur, sem vjer á hinum siðast liðnu 600 árum höfum glatað og vanrækt. Efl þú drottinn vorn dug og vertu sjálfur i verki með oss, svo verk vor geti blessast bæði sjálfum oss og fósturjörð vorri. Blessa þú oss þinar gáfur og láttu þær verða oss að sönnum notum og bera oss bléssunarrika ávexti, bæði hjer og siðarmeir. Þinn er mátturinn og dýrðin. Heyr vora bæn i Jesú nafni Amen. 1 sjerhverju trúuðu hjarta hljóta i dag að hreyfa sjer marg- háttaðar og viðkvæmar tilfinn- ingar, þegar vjer gáum að þvi i hvaða tilgangi þessi dagur er lög- boðinn sem hátiðisdagur. Það er oss öllum kunnugt, að nú eru liðin 1000 ár siðan hið fámenna og kalda land vort, Island, byggðist fyrst. Það eru 1000 ár siðan forfeður vorir fluttu sig búferlum frá Noregi til þessa lands, sem þá var nýfundið og i eyði. Það eru þessvegna 1000 ár sem drottinn hefur haldið sinni verndarhendi yfir oss, sem búið höfum á þessu afskekkta landi, norður undir ishafinu. Þúsundfaldar þakkir ber oss þvi að greiða honum i dag fyrir þá óþreytandi og óendan- legu föðurgæðsku, er hann jafnan hefur auðsýnt oss eins i bliðu sem striöu, fyrir þá óumræðilegu náð og miskunnsemi, er hann jafnan hefur látið oss og feðrum vorum i tje, er mest lá á, fyrir þann óendanlega kærleika, að hann ljet ljós sannleikans sigrast á myrkr- um villunnar, er þúsund ár voru liðin frá fæðingu frelsara vors Jesú Krists. Hver fær talið allar þær náðarvelgjörðir, sem drott- inn daglega hefur veitt sérhverj- um af oss? Hver fær talið allar þær náðarriku ráðstafanir, sem drottinn daglega i 1000 ár hefur gjört fyrir óss og ættjörðu vora? Allt það, sem fram við oss hefur komið, hvort sem vjer höfum sem oss i fyrstu virtist svo skuggalegur, miklu bjartari og skemmtilegri en vjer höfðum búist Við, og það hefur jafnvel opt komið fyrir, að það, sem i fyrstu var mest á móti vilja vorum, ein- mitt það hefur orðið undirrótin til hinnar mestu hamingju og sælu i lifi voru. Að sinni getum vjer ekki enn þá skilið að öllu leyti hand- leiðslu þina á oss, himneski faðir! og margt er það, sem vjer eigi getum skilið til fulls fyr en himumegin grafarinnar, en hjernamegin hennar lætur þú þig ekki heldur án vitnisburðar fyrir þá, sem nákvæmlega taka eptir þinum vegum: þú gafst þeim svo opt tilefni til að viðurkenna, að þú einn hefur ráð og vit á að stjórna kjörum vorum þú ljest svo opt hinar heimskulegu og vantrúar- fullu áhyggjur vorar sjer til skammar verða: þú bjóst oss svo opt hamingju og blessun, þar sem vjer sist vonuðumst eptir þvi. Þú bauðst svo opt jafnvel sorginni að tilbúa oss sanna gleði. En guðs handleiðsla á oss miðar engan veginn einungis til þess, að vjer skulum verða hamingjusamari, heldur til þess að vjer verðum vitrari, og betri, að vjer verðum forsjálir, og ein- mitt til þess að vjer getum orðið það, er það svo opt nauðsynlegt, að drottinn leiði oss öðruvisi en vjer sjálfir viyum. Þvi enginn getur þó girnst sorg og armæðu. Vjer biðjum allir, að hinn beiski kaleikur verði tekinn frá oss, og jafnvel þótt vjer bætum þvi við: ef það er mögulegt, og gagnlegt, jafnvel þótt vjer biðjum guð, að gefa oss sinn heilaga anda, og hvað mikið sem það kostaði oss, að verða tilbúnir vi§ þvi að taka á móti honum æ, þá er þvi samt svo varið, að' á freistingar- stundinni kysum vjer eigi armæðu og sorg, ef vjer ættum annars úrkosti. En mundi það þá vera gagnlegt fyrir oss, að vjer gætum fleygt af oss byrðinni undireins og vjer vildum, að leið vor væri sljett og auðveld, að allar þjáningar væru á enda, undir eins og vjer sjálfir imynd- uðum oss, að nú værum vjer orðnir nægilega æfðir og reyndir i mótlætinganna skóla? Æ! þakkir sjeu allgóðum og alvisum guði fyrir það, að hann vill oss opt betur en vjer sjálfir, og að hann hættir ekki að reyna að kenna oss að telja vora daga, svo vjer verðum forsjálir, undir eins og oss sjálfum virðist, að Garðar á Akranesi — mynd frá árinu 1969. Hvita húsiö á myndinni elzta hús landsins, þar sem steinsteypa var viðhöfð. Nú er I byggingu f Görðuai my.ndarlegt hús, þar sem byggðasafniö veröur varðveitt. Séra Jón Benediktsson fæddist árið 1830, var fyrstur aðstoðarprestur i Hvammi i Döl- um, en fekk siðan Sanda i Dýrafirði, og flutt- ist þaðan að Görðum árið 1865. Siðast var hann prestur á Saurbæ á Hvalfjarðarströnd árin 1886-1900.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.