Fréttablaðið - 28.12.2004, Blaðsíða 17
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 8
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki xx stk.
Keypt & selt xx stk.
Þjónusta xx stk.
Heilsa xx stk.
Skólar & námskeið xx stk.
Heimilið xx stk.
Tómstundir & ferðir xx stk.
Húsnæði xx stk.
Atvinna xx stk.
Tilkynningar xx stk.
Reykjavík 11.22 13.29 15.38
Akureyri 11.36 13.14 14.52
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Dofri Hermannsson, leikari og nemi í
hagfræði, leggur land undir fót með
fjölskyldunni þessi áramót.
„Við förum stundum út á land til tengda-
fjölskyldunnar þar sem eru engir flugeld-
ar því það myndi hræða hrossin,“ segir
Dofri Hermannsson leikari og nemi. „Ann-
ars erum við svona til skiptis hérna í bæn-
um og má í raun segja að hefðin sé að það
er engin hefð á áramótunum hjá okkur,“
segir Dorfi, en í ár fer hann með fjölskyld-
una til vinafólks í Gautaborg þar sem sæn-
skt jólahlaðborð verður á borðum á
gamlárskvöld. „Við komum með eitthvert
góðgæti frá Íslandi, eitthvað svona dæmi-
gert sem Íslendingar í útlöndum vilja fá,“
segir Dofri. Hann hlakkar mikið til ferðar-
innar en hefur pínulitlar áhyggjur af fjöl-
skylduhundinum sem verður skilinn eftir
á Íslandi. „Það á eftir að ákveða hvar hann
verður, en ég hugsa að flugeldarnir eigi
ekki eftir að fara vel í hann,“ segir Dofri.
Hann segist ekkert vera sérstaklega
óður í flugelda en á hverju ári sé hann
þakklátur þeim sem kaupa flugeldana. „Ég
stórgræði á hinum og er alltaf jafn glaður
að sjá hvað margir eru til í að borga fyrir
þetta,“ segir Dofri hlæjandi.
„Öll áramót eru eftirminnileg eftir að
maður hætti að fara niður í bæ að
djamma,“ segir hann aðspurður hvort ein-
hver áramótin standi upp úr í minning-
unni. Hvað áramótaheit varðar segist hann
yfirleitt ekki strengja nein formleg heit.
„Ég lofa stundum svona inni í mér að ég
ætli að verða betri maður á næsta ári en
passa mig að segja það ekki upphátt,“ seg-
ir Dofri sem er viss um að næsta ár verði
gott ár.
Hefðin er engin hefð
heilsa@frettabladid.is
Bólusetning barna var til um-
ræðu á Útvarpi Sögu á dögunum,
þar sem fólk var varað við að
bólusetja börnin sín. Þessi um-
ræða hefur verið talsvert lifandi í
Bandaríkjunum þar sem skiptar
skoðanir eru um ágæti þessara
bólusetninga, en skólar þar í
landi taka
ekki við börnum nema þau séu
bólusett. Á vefsíðunni landlaekn-
ir.is má sjá viðbrögð við umræð-
unni á Útvarpi Sögu þar sem
Landlæknisembættinu þykir
ástæða til að að réttar upplýsing-
ar um árangur barnabólusetninga
séu ítrekaðar enn einu
sinni. Þar kemur meðal
annars fram að ein af
meginástæðunum fyrir
auknu langlífi Íslendinga á
liðinni öld er sú að ungbarna-
dauði minnkaði verulega og þar
réði mjög miklu að alvarlegir
barnasjúkdómar á borð við
barnaveiki og mislinga voru
kveðnir í kútinn með bólusetn-
ingum.
Dofri Hermannsson ásamt dætrum sínum Kolfinnu og Katrínu, öll fjölskyldan fer til Gautaborgar um áramótin. Tíkin Æsa þarf hinsvegar að vera eftir heima.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
LIGGUR Í LOFTINU
í heilsu
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TILBOÐ NEYTENDUR o.fl.
Þú getur pantað
smáauglýsingar á
www.visir.is
KRÍLIN
Það sem er lífrænt og
hollt, það dó sjálft en
var ekki drepið!
Húsdýr í sprengjuregni
BLS. 5
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Góðan dag!
Í dag er þriðjudagur 28. desember,
363. dagur ársins 2004