Fréttablaðið - 06.01.2005, Blaðsíða 6
STJÓRNMÁL Mikill meirihluti lands-
manna er á móti því að Ísland sé á
lista hinna „staðföstu þjóða“ sem
lýstu yfir stuðningi við innrás
Bandaríkjanna og Bretlands í
Írak. Þetta er niðurstaða skoðana-
könnunar Gallups sem gerð var í
lok síðasta árs. 84% sögðust
andsnúin því að Ísland væri á list-
anum. Aðeins14% þeirra sem
svöruðu sögðust vilja að Ísland
væri á listanum, 2% töldu það
ekki skipta máli.
„Þetta staðfestir það sem við
höfum lengi haldið fram, að yfir-
gnæfandi meirihluti sé á listanum
og gegn því sem það inniber“, seg-
ir Ólafur Hannibalsson, einn
talsmanna Þjóðarhreyfingarinnar
sem berst gegn stuðningi Íslands
við aðgerðir Bandaríkjamanna og
Breta í Írak. „Þjóðin situr við
sama keip og andstaðan hefur
frekar aukist en minnkað.“
Sólveig Pétursdóttir Sjálfstæð-
islokki, formaður utanríkismála-
nefndar, segir niðurstöðuna vissu-
lega athyglisverða en hins vegar
skipti listinn litlu máli í dag nema
sem siðferðisleg skylda til að taka
þátt í uppbyggingunni í Írak. „Það
berast oft skelfilegar fréttir af
átökum í Írak þar sem saklausir
borgarar falla. Ég býst við að að
niðurstaðan endurspegli hvaða
áhrif þær fréttir hafa.“
Siv Friðleifsdóttir Framsókn-
arflokki, varaformaður utanríkis-
málanefndar, segir að Ísland hafi
skuldbundið sig til að leyfa afnot
af Keflavíkurflugvelli, yfirflug í
lofthelgi og þátttöku í uppbygg-
ingu í Írak með því að vera á
listanum. „Aðeins uppbyggingin
stendur nú eftir, en fólk virðist
ekki átta sig á því.“
Mun fleiri konur en karlar eru
á móti verunni á listanum. 93%
kvenna eru á móti en 74%, karla.
23% karla er fylgjandi stuðningi
við innrásina en 5% kvenna.
Enginn fylgismaður Vinstri
grænna styður innrásina og örfáir
samfylkingarmenn. Afgerandi
meirihluti framsóknarmanna eða
80% vill Ísland burt af listanum og
58% sjálfstæðismanna. 16% fram-
sóknarmanna eru sáttir við stuðn-
inginn og 40% sjálfstæðismanna.
Könnun Gallups var gerð í des-
ember. 62% þeirra rúmlega 1.200
sem voru í úrtakinu svöruðu.
a.snaevarr@frettabladid.is
6 6. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
Ákæra gegn Hákoni Eydal þingfest:
Þrengdi að hálsi Sri með belti
ÁKÆRA Hákon Eydal er ákærður af
ríkissaksóknara fyrir að hafa myrt
Sri Rahamawati barnsmóður sína
og fyrrum sambýliskonu en ákæran
á hendur Hákoni verður þingfest í
dag.Hann er sagður hafa slegið
hana með kúbeini í hnakkann
þannig að hún missti meðvitund og
síðan hafi hann endanlega ráðið
henni bana með því að þrengja að
hálsi hennar með belti.
Ákært er fyrir manndráp af
ásetningi eða samkvæmt 211.
grein almennra hegningarlaga. Í
ákærunni er farið fram á bætur
fyrir þrjú börn Sri sem Hákon gerði
móðurlaus.
Í lok júlí játaði Hákon að hafa
ráðið Sri bana á heimili sínu sunnu-
daginn fjórða júlí en þá hafði hann
setið þögull í gæsluvarðhaldi í þrjár
vikur. Um viku síðar eða þann
þriðja ágúst benti Hákon réttilega á
hvar lík Sri væri að finna í hraun-
sprungu sunnan við Hafnarfjörð.
Áður sagðist hann hafa hent líki
hennar í sjóinn við Presthúsatanga
á Kjalarnesi og hafði þar farið fram
umfangsmikil leit lögreglu og
björgunarsveita. - hrs
Þorri landsmanna
vill af Íraks-listanum
84% Íslendinga vill Ísland burt af lista hinna „staðföstu þjóða“ sem studdu inn-
rásina í Írak. Í þeim hópi eru 80% framsóknarmanna og 58% sjálfstæðismanna.
Óhapp í Hrútafirði:
Matvaran
utan vega
BÍLVELTA Flutningabíll með tengivagn
valt á hliðina ofan í skurð í Hrúta-
firði. Bíllinn var á leið til Ísafjarðar
fullur af matvöru.
Bjarni Gunnarsson bílstjóri
flutningabílsins segir atvikið hafa
átt sér stað þegar hann mætti
öðrum flutningabíl á einbreiðu slit-
lagi um tíu kílómetrum vestan við
Borðeyri. Snjóföl hafi verið á
veginum þegar þeir mættust á
lítilli ferð. Hann hafi því ekki séð
hve sleipt var:
„Ég hef trú á því að bíllinn sé
ökufær,“ sagði Bjarni sem var á leið
á staðinn í gær með öðrum flutn-
ingabíl að sækja varninginn. - gag
Þjóðarhreyfingin:
Söfnun
nærri lokið
SÖFNUN Söfnun Þjóðarhreyfingar-
innar fyrir auglýsingu í New York
Times er nærri lokið. Í auglýsing-
unni er stuðningi Íslands við innrás-
ina í Írak mót-
mælt og íraska
þjóðin beðin af-
sökunar.
Hans Krist-
ján Árnason,
einn af for-
svarsmönnum
söfnunarinnar
segir að búið sé
að panta aug-
lýsingapláss í
tímaritinu og ráðgert er að yfir-
lýsingin birtist einhvern tímann
milli 17. og 21. janúar. Hans Krist-
ján segir að búið sé að safna nægu
fé fyrir auglýsingunni sjálfri sem
kostar um 2,8 milljónir króna, en
auk þess hafi fallið til kostnaður
vegna auglýsinga og kynningar á
málinu hérlendis. - bs
25 LÉTUST Í ÁRÁSUM Tuttugu og
fimm manns létust í árás upp-
reisnarmanna í Írak í gær. Bíl-
sprengja varð 15 íröskum lög-
reglumönnum að bana í borginni
Hilla skammt suður af Bagdad.
Sex lögreglumenn létust í sjálfs-
morðsárás í Baquba og fjórir
borgarar létust í átökum í
Ramadi. Vaxandi átök hafa verið
í landinu undanfarið og er óttast
að þau eigi enn eftir að magnast
fyrir kosningarnar 30. janúar.
ÞÚSUNDIR HERMANNA HAFA
SÆRST Meira en tíu þúsund
bandarískir hermenn hafa særst í
átökum í Írak síðan innrásin var
gerð í mars árið 2003. Samkvæmt
bandaríska varnarmálaráðuneyt-
inu hafa fimm þúsund af hinum
særðu slasast það alvarlega að
þeir hafa ekki getað snúið aftur
til starfa. Yfir 1.300 bandarískir
hermenn hafa látist í Írak.
■ ÍRAK
Hafdís
Halla
Lella Margrét
Einar
Auður
Ásta A. Ásta B.
www.kramhusid.is
Opið
og
Yogakort
Námskeiðin hefjast 10. janúar 2004
Leikfim
i
Símar:
551-5103
551-7860
Guðný
leikfimi-
Leikfim
i Lei
kfimi S
tott
Pilates
Tai Ch
i
:
Ashtan
ga
Yoga Kripal
u
Yoga Kripal
u
Yoga
Kripal
u
Yoga
Kripal
u
Yoga
Áslaug
Ægir
Streitu
-
stjórnu
n
og Yog
a
Heyrnartæki:
Biðtími stytt-
ist verulega
HEILBRIGÐISMÁL Biðtími eftir heyrn-
artækjum hjá Heyrnar- og tal-
meinastöðinni fór úr átta mánuðum
í þrjá til fjóra mánuði á árinu 2004,
að því er segir í
frétt frá heil-
brigðisráðuneyt-
inu.
Fyrir ári biðu
um 700 manns
eftir heyrnar-
tækjum en nú eru
250 manns á
biðlista.
Á árinu 2004
voru seld 2.004
heyrnartæki til
1260 einstaklinga
og eru í þeim hópi
bæði þeir sem eru að endurnýja
tæki og þeir sem eru að fá ný tæki.
Rúmlega 2% Íslendinga nota heyrn-
artæki en ef tekið er mið af erlend-
um rannsóknum má gera ráð fyrir
að allt að 15% þjóðarinnar sé heyrn-
arskert. ■
Hagstofa Íslands:
Meira gist á
hótelum
HÓTEL Gistinóttum á hótelum
fjölgaði í nóvember síðastliðnum
um rúm 6 prósent milli ára, sam-
kvæmt nýjustu tölum Hagstofu
Íslands. Þá kemur fram að gistinótt-
um á hótelum fyrstu ellefu mánuði
síðasta árs hafi fjölgað um tæp 9
prósent frá árinu 2003.
Nóvemberaukningin er mismikil
eftir landshlutum, langmest á Suð-
urlandi, 32 prósent. Á höfuðborgar-
svæðinu nam fjölgunin 3,9 prósent-
um og um 8 prósentum á Suðurnesj-
um, Vesturlandi og Vestfjörðum. Á
Austurlandi stóð fjöldi gistinátta í
stað. Sé landið skoðað í heild kemur
í ljós að gistinóttum Íslendinga
fjölgaði um tæp 12 prósent milli
nóvembermánaða, en útlendinga
um rúm 3 prósent. - óká
Hefur þú gefið til hjálparstarfs
vegna flóða í Asíu??
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Drekkur þú orkudrykki?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
48%
52%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
ÍRAK Aldrei hafa fleiri fjölmiðla-
menn látist við störf en árið 2004
að sögn International News
Safety Institute (INSI)Ins.
Hundrað og sautján létust við
störf í þágu fjölmðila, flestir í
Írak. „Írak var hættulegasti stað-
ur heims fyrir blaðamenn og sam-
starfsmenn þeirra“, segir í
skýrslu stofnunarinnar.
Fjörutíu og tveir létust í Írak,
allir nema 6 heimamenn. Filipps-
eyjar voru næsthættulegasti stað-
ur blaðamanna en 12 voru drepnir
þar, átta á Indlandi og fimm í
Brasilíu, Mexíkó og Bangladesh.
Næsta mannskæðasta ár blaða-
manna var 1994 en þá voru 157
blaðamenn- og konur drepin við
störf í Rúanda, Bosníu, Téténíu,
Sómalíu og Angóla.
INSI telur ekki aðeins blaða-
menn heldur einnig starfsmenn
þeirra á borð við túlka og bílstjóra.
Nefnd til varnar blaðamönnum í
Bandaríkjunum gaf nýlega út lista
yfir drepna blaðamenn við störf og
sagði 54 hafa látist við skyldustörf
á árinu og var sammála INSI að
þetta væri mannskæðasta ár frá
því farið var að taka saman fjölda
látinna blaðamanna. ■
HEYRN
Gera má ráð fyrir
að allt að 15%
þjóðarinnar séu
heyrnarskert.
Árið 2004 var blóðugt fjölmiðlaár:
Mesta mannfall blaðamanna
ÍRAK ER HÆTTULEGASTI STAÐURINN
Langflestir fjölmiðlamannanna sem drepnir voru við skyldustörf voru í Írak.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
HANS KRISTJÁN
ÁRNASON
Fram-
sóknar-
flokkur
Sjálf-
stæðis-
flokkur
Vinstri-
grænir
Sam-
fylkingin
16%
80%
40%
58%
0%
99%
2%
96%
Heimild: RÚV
KAFARAR VIÐ LEIT
Hákon villti um fyrir lögreglu og sagðist hafa losað sig við lík barnsmóður sinnar í sjóinn
við Presthúsatanga.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
HERSETA BANDARÍKJAMANNA Í ÍRAK
Gallup spurði: „Á Ísland að vera á lista með þeim þjóðum, sem styðja hernaðaraðgerðir Banda-
ríkjamanna og Breta í Írak, eða á Ísland ekki að vera á listanum?“ 84% landsmanna sögðu nei.
ÞJÓÐARPÚLS GALLUP
„Á Ísland að vera á lista með þeim þjóðum, sem styðja hernaðaraðgerðir Bandaríkja-
manna og Breta í Írak, eða á Ísland ekki að vera á listanum?“
Nei 84%
Já 14% Skiptir ekki máli 2%
ALLT LANDIÐ