Fréttablaðið - 06.01.2005, Blaðsíða 65
33FIMMTUDAGUR 6. janúar 2005
■ TÓNLEIKAR
Kjalarvogi • 104 Reykjavík • Sími 458 8000 • Fax 458 8100 • samskip.is
458 8000
Nýtt símanúmer
a
rg
u
s
–
0
4
-0
8
1
0
Hin nýja bygging hýsir aðalskrifstofur fyrirtækisins á Íslandi, Landflutninga-Samskip
og Jóna Transport. Samskip þakka viðskiptavinum sínum þolinmæði og skilning
meðan á flutningum stóð og hlakka til samstarfs á nýju ári í nýju húsi.
eru flutt í nýjar höfuðstöðvar við Kjalarvog
Háskólabíó er komið í hátíðar-
búning eins og jafnan á þessum
árstíma í tilefni af Vínartónleik-
um Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands. Réttara væri þó kannski
að segja felubúning, því starfs-
fólk Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands hefur reynt eftir bestu
getu að fela sælgætissöluna og
annað sem minnir á bíórekstur í
Háskólabíói.
Prúðbúnir tónleikagestir
gengu inn á rauðum dregli í
gærkvöld þegar fyrstu tónleik-
arnir voru haldnir. Alls verða
Vínartónleikarnir í ár haldnir
fjórum sinnum og er nánast
uppselt öll kvöldin, sem þýðir að
um það bil fjögur þúsund manns
leggi leið sína í
Háskólabíó þetta árið til að
hlýða á létta og töfrandi Vínar-
tóna leika um salinn.
Þessi aðsókn er þó hreint
ekkert eindæmi heldur fastur
liður í byrjun hvers árs. Ekkert
lát er greinilega á vinsældum
Vínartónleika Sinfóníunnar.
„Ég held að þetta sé bara góð
upplyfting í skammdeginu. Jólin
og áramótin eru búin og þá er
gaman að gera eitthvað
skemmtilegt í framhaldinu,“
segir Ingveldur Ýr Jónsdóttir
sópransöngkona þegar hún er
spurð hvort hún kunni einhverja
skýringu á þessum vinsældum
Vínartónlistarinnar.
„Þetta er skemmtileg hefð
sem hefur myndast út um allan
heim. Vínarfílharmónían er
alltaf með sína tónleika á þess-
um árstíma og þetta hefur smit-
að út frá sér.“
Ingveldur er einsöngvari tón-
leikanna í ár, en á sínum tíma
lærði hún söng í Vínarborg og
þekkir því vel til þessarar tón-
listar. Stjórnandi hljómsveitar-
innar er Michael Dittrich, sem
er sjálfur Vínarbúi og hefur yf-
irburðaþekkingu á tónlist þeirra
Strauss-feðga og annarra Vínar-
tónskálda sem ómissandi er að
leika verk eftir á Vínartónleik-
um.
„Við hljómsveitin skiptumst á
um að spila Vínarvalsa og
syngja Vínarljóð. Hljómsveitin
spilar líka mikið af forleikjum
úr óperettum svo syng ég arí-
urnar úr þeim. Þetta verður
mjög létt og skemmtileg dag-
skrá eins og alltaf.“
Sjálf setur Ingveldur Ýr með
ótvíræðum hætti mark sitt á
tónleikana með líflegri sviðs-
framkomu og ýmsum óvæntum
uppákomum, auk þess sem hún
hefur að hluta valið lög á efnis-
skrána. ■
INGVELDUR ÝR Hún er einsöngvari á
Vínartónleikum Sinfóníunnar þetta árið.
Skemmtileg hefð
í skammdeginu