Fréttablaðið - 06.01.2005, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 06.01.2005, Blaðsíða 23
Þeir sem eru fyrir rómantískan sveitastíl ættu að hafa gaman af því að kíkja inn í verslunina HomeArt á neðri hæð Smáralindar. Þar hitta þeir fyrir Brynhildi Helgadótt- ur, framkvæmdastjóra verslunarinnar, og hún getur sýnt þeim ýmislegt fallegt til heimilisins eða í sumarbústaðinn. „Við erum mest með danskar vörur, svona heimilis- og gjafavörur í bland. Þetta eru bæði vörur í skandinavískum sveitastíl en svo eru einfaldar og klassískar vörur inn á milli.“ Þarna má finna ýmislegt til að búa til hlýlegt heim- ili, rúmteppi og ljósakrónur í léttum og rómantískum stíl. „HomeArt er þekkt vörumerki um alla Skandinavíu og Þýskaland. Reyndar eru ekki margar búðir sem eru ein- göngu eða mestmegnis með vörur frá þessu merki en það er algengt að sjá HomeArt merkið inni í stærri húsbúnað- arverslunum, til dæmis á Strikinu í Kaupmannahöfn.“ En hvað skyldi fólk nú vera mest að skoða þessa dagana? „Vinsælastar núna eru ljósakrónurnar sem eru bæði til úr málmi og kristal og svo líka púðar og rúmteppi úr skjanna- hvítu blúnduefni.“ ■ 3FIMMTUDAGUR 6. janúar 2005 Mán. - fös. 10.00 - 18.00 • Laugard. 11.00 - 16.00 • Sunnud. 13.00 - 16.00 t m h u s g o g n . i s ÚTSALA ú ts a la ú ts a la 10% afsláttur af öllum vörum sem ekki eru sérmerktar sem útsöluvörur 1. Vestergaard sjónvarpsskápur spónlaður, hlynur, kirsuber, 210x115x60 cm.................... Ver›dæmi: 2. Sófar New Line 3+2, svart leður...................................................... 3. Sófi Lind 237 tau áklæði, brúnt, drappað.................................. 4. „Tungu“ sófi Megara tau áklæði, grátt, drappað........................................... 5. Náttborð m/ 1 skúffu hlynur, kirsuber melamin....................................... 92.500 kr. Ver› á›ur 329.000 kr. 131.000 kr. 6. Fataskápur 41090 beyki, hlynur, kisruber melamin, 145x60x200.............................. 7. Skrifborð 80231/2 m/yfirhillu hlynur/grátt melamin, 155x70x150................................................ 98.000 kr. 6.000 kr. 57.500 kr. 229.000 kr. 79.000 kr. 18.000 kr. 19.500 kr. 8. Eldhús- og borðstofustólar.................................................. 9. Jensen rúm, Ambassador og Comfort á 30% afslætti, afgr.frestur um.þ.b. 3 vikur frá 1.500 kr. 59.000 kr. 3.500 kr. Ver› nú Op i› E N N E M M / S IA / N M 14 7 11 Rómantískur, skandinavískur sveitastíll Íburðarmiklar ljósakrónur, púðar og skjannahvít blúndurúmteppi. 1. Brynhildur Helgadóttir hefur rekið HomeArt í rúm tvö ár. 2. Englahöfuðin seljast upp jafnóðum og þau koma í búðina. 3. Ljósakrónurnar renna út eins og heitar lummur. 4. Rúmteppi, rúmföt og púðaver úr skjannahvítu blúnduefni. 5. Ýmis falleg stell eru á boðstólum. 6. Skemmtilegar glasamottur. 1 2 3 4 5 6 „Það eru svo margir staðir þar sem mér líður vel hérna heima en ég eyði sennilega mestum tíma mínum í tölvuhorninu þar sem ég er oftast við vinnu,“ segir Kolbrún og bætir við að hún taki vinnuna ansi oft með sér heim, það virðist aldrei ætla að eldast af henni. „Það sem er gott við tölvu- hornið er að þar er ég með glugga þar sem ég get horft út á hafið. Ég gleymi mér oft við að horfa á ölduganginn og sjávarföllin og mun skemmtilegra að horfa á það en skjávarann á tölvuskjánum,“ segir Kolbrún og hlær. Hún fær þó ekki alltaf tæki- færi til að sitja ein við tölvuna því á tölvuhorni heimilisins eru hvorki meira né minna en þrjár tölvur. „Bekkurinn er oft þétt- setinn hérna enda er tölvan búin að taka við af nánast öllu. Hægt er orðið að horfa á sjónvarpið í tölv- unni og hlusta á útvarpið. Fjöl- miðlar eru ekki lengur með hefð- bundnu sniði og les ég orðið bara Moggann á vefnum,“ segir Kolbrún sem ekki er mikið heima við þegar þingið stendur sem hæst en hefur náð nokkuð góðu fríi heima yfir hátíðarnar. „Þetta er búið að vera frábært frí og ég er bara bjartsýn á nýja árið. Reyndar er ég hrædd um að pólitíkin verði átakamikil en eins og einhver sagði: lítið er gaman að guðspjöllunum ef enginn er í þeim bardaginn,“ segir Kolbrún. ■ Horfir á hafið Kolbrún Halldórsdóttir, alþingiskona og leikstjóri, eyðir miklum tíma á heimilinu við tölvuskjáinn en hefur útsýni yfir hafið handan tölvunnar. Kolbrún Halldórsdóttir tekur vinnuna gjarnan með sér heim og situr þá við tölvuna. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Nú eru útsölur í fullum gangi í vefnaðarvöruverslunum eins og annars staðar. Þá er kjörið að kaupa nokkra metra af fallegu efni á vægu verði, spotta í stíl og láta hugmyndaflugið svo ráða. Ef til er gardínustöng er til dæmis frekar einfalt að búa til gardínur með því að falda efnið uppi og niðri og stinga stönginni svo í gegnum efri faldinn. Nokkur púðaver er einnig einfalt að sníða og sauma úr sama efni og svo má búa til borðdúka úr sama efni með því að falda allan hringinn. Þetta er góð lausn fyrir þá sem hafa ekki mikið milli handanna en vilja samt eiga fallegt heimili. ■ Púðar, dúkar og tjöld í stíl! Mikilvægt er að huga að litasamsetningum. Hægt er að gerbreyta útliti heimilisins með því að gera púða og gardínur úr sama efni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.