Fréttablaðið - 06.01.2005, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 06.01.2005, Blaðsíða 22
Dúnkoddar og sængur Dúnkoddar og -sængur duga lengur því sjaldnar sem þau eru þrifin. Sjáðu til þess að alltaf séu hrein sængurföt utan um koddann og sængina til þess að vernda þau gegn óhreinindum. Koddann skaltu fara með í hreinsun einu sinni á ári en sængina á þriggja til fimm ára fresti.[ Gersemar frá álfum Margir eiga margra áratuga stafla af ljósmyndum sem þeim hrýs hugur við að skoða og flokka. Það þarfa verkefni getur orðið að skemmtilegri dægra- styttingu. - Byrjaðu á að flokka myndirnar í myndir til að geyma og myndir sem á að henda. EKKI henda myndum þar sem fólk er asnalegt á svipinn eða illa fyrirkallað, með tilkomu digitalvélanna verða slíkar heimildir um lífið sjálft æ sjaldgæfari. Hentu hins vegar hreyfðum myndum eða þeim sem eru ekki af neinu sérstöku - Flokkaðu myndirnar sem eftir eru eins og þér finnst skemmtilegast, sumir vilja flokka eftir árum en aðrir hafa öll frí saman, afmæli eða jól - Keyptu falleg myndaalbúm sem passa vel heima hjá þér og settu myndirnar í þau - Hafðu svo alltaf eitt albúm á stofuborðinu fyrir gesti. Þó aldrei fleiri en eitt. Skiptu þeim svo út þannig að þeir sem koma oft að heimsækja þig fái alltaf eitthvað nýtt að skoða - Finndu myndir af frændsystkinum þínum og vinum frá ýmsum aldursskeiðum og haltu til haga fyrir at- burði eins og stórafmæli eða brúðkaup en þá get- urðu glatt alla viðstadda með myndunum og sögun- um á bak við þær (sjá lið 1 um að geyma misheppnað- ar myndir) - Búðu til myndavegg af vinum og vandamönnum til að hafa alltaf fólkið þitt í kringum þig. ■ Mynd er minning Gamlar ljósmyndir gera heimilið skemmtilegra. Gaman er að hafa mynd af ömmu þegar hún var ung uppi á vegg til að finna líkindi með henni og afkomendunum. Það er hægt að búa til skemmtilega umgjörð um gömlu ljósmyndirnar. Útsalan er hafin. Góður afsláttur af föndur og gjafavörum. DecoArt Garðatorgi 3 Garðabæ 555 0220 Kringlunni - sími : 533 1322 Útsalan er hafin! Mörg góð tilboð Vandaðar heimilis og gjafavörur Nú er það svart Fréttablaðið vill beina þeim tilmælum til lesenda að auðvelda blaðberum okkar að bera út blaðið. Vinsamlegast mokið frá útidyrahurðum og hafið kveikt á útiljósum. ] Álfkonudúkurinn fagri frá Burstarfelli. Hann er úr gulu vaðmáli og er alsettur rósum og fiðrildum, auk þess sem tvö sælleg englabörn prýða hann og tvær fagrar konur. Dúkurinn er almenningi til sýnis á Þjóðminjasafninu. Álfabarnið sem var að hjálpa fjölskyldu sinni í Dýrafirði að flytja var dauðþreytt á að rogast með þennan pott svo það lagði hann frá sér og hljóp til mömmu sinnar. Nú er potturinn til sýnis á Þjóð- minjasafninu. Bikar sem talinn er vera frá álfum kominn er í eigu kirkjunnar á Breiðabólsstað í Fljótshlíð. Margir hafa bergt af honum til að fá bót meina sinna. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /M YN D IR : ÞJ Ó Ð M IN JA SA FN IÐ O G G U N . Nú er glatt í hverjum hól, hátt nú allir kveði. Hinstu nótt um heilög jól, höldum álfagleði. Þetta syngjum við á þrettándanum þeg- ar við dönsum kringum brennurnar og höldum gleði hátt á loft því þá má búast við álfum, huldufólki og fleiri vættum landsins á kreiki, samkvæmt hinni ís- lensku þjóðtrú. Margar sögur finnast um álfana og samskipti þeirra við menn og til eru líka áþreifanlegir hlutir sem taldir eru frá þeim komnir. Oft voru þeir laun fyrir veittan greiða. Dæmi um slíkan dýrgrip er álfkonudúkur á Þjóð- minjasafninu sem er frá Burstarfelli í Vopnafirði. Sagan segir að sýslumanns- kona á Burstarfelli gengi í draumi í stein þann sem í rauninni var álfabær og greiddi hag sængurkonu er lá á gólfi og var þungt haldin. Í þakklætisskyni gaf álfkonan henni dúk „mjög dýran úr guðvef, allan gullofinn“ eins og segir í bókinni Gersemar og þarfaþing. Hafði enginn séð svo fagran dúk áður enda var hann hafður fyrir altarisdúk í kirkj- unni að Hofi í Vopnafirði uns Sigurður Vigfússon fékk hann handa Forngripa- safninu árið 1890. Á Þjóðminjasafninu er líka pottur úr messing sem safnið eignaðist árið 1882. Honum fylgir sú sögn að vestur í Dýra- firði hafi hjátrúarlaus maður að nafni Pálmi Guðmundsson séð hóp af fólki á ferð fyrir neðan hlaðvarpann í Litla- garði, berandi ýmsa muni. Aftast fór barn, fjögurra til fimm ára sem kallaði stöðugt á móður sína og á göngu sinni lagði það eitthvað frá sér til að flýta sér til hennar. Hluturinn reyndist vera pott- ur og fór Pálmi með hann heim og varð- veitti vel enda fylgdi honum lækninga- máttur því gott þótti að sverfa ofurlítið úr pottinum til að leggja við brjóst- og fingurmein. Þriðja gersemin sem nefna má er álfabikar sem er í kirkjunni á Breiða- bólsstað í Fljótshlíð. British Museum sendi út leiðangur til að falast eftir hon- um og buðu annan nákvæmlega eins úr gulli. En það kom ekki til greina af hálfu sr. Sveinbjarnar Högnasonar sem þá var prestur á Breiðabólsstað og er það vel. gun@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.