Fréttablaðið - 06.01.2005, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 06.01.2005, Blaðsíða 8
DANSfjörið er í Magad ans Bollyw ood Afró Salsa Fun kJazz Magad ans ll l Natasja Edna Maria Dianne Carlos Yesmine Maher Ta ngóFlame ncól Minerva Hany & Bryndís Kramhúsinu www.kramhusid.is Símar: 551-5103 551-7860 Námskeiðin hefjast 10. janúar 2004 Breakd ans Hip ho p Karabí skir dansar : Balkan dansar l Veska Höfðabakka 1 - sími 587 50 70 stór humar ath opið laugardaga 10-14.30 8 6. janúar 2005 FIMMTUDAGUR Atvinnuleysi undir þremur prósentum: Atvinnuhorfur eru að skána ATVINNUMÁL Rúmlega sexhundruð fleiri voru með atvinnu í desember en á árinu á undan. Atvinnuleysi jókst milli nóvember og desember. Í gær voru 4.656 án atvinnu, 2.148 karlar og 2.508 konur. Friðrik Friðriksson, hagfræð- ingur hjá Vinnumálastofnun, segir atvinnuleysi jafnan aukast í desem- ber og janúar: „Nóvember var óvenju góður. Atvinnuleysi minnk- aði þá hlutfallslega miðað við sama tíma á árinu á undan.“ Atvinnuleysi hefur verið undir þremur prósentum síðustu mánuði ársins, 2,6 prósent í september og nóvember en 2,7 í október. Friðrik segir nákvæmar tölur ekki ljósar fyrir desembermánuð. „Atvinnuhorfur eru að skána, þá sérstaklega á höfðuborgarsvæð- inu,“ segir Friðrik. Búast megi við minna atvinnuleysi með vorinu. Það geri árstíðarsveiflur í atvinnu- málum. Atvinnuleysisbætur hækkuðu frá 1. janúar um þrjú prósent. Há- marksbætur atvinnuleysistrygg- inga verða 4.219 krónur hvern virk- an dag. - gag HEILBRIGÐISMÁL Samdráttaraðgerð- ir sem nú eru hafnar á Vogi vegna fjárskorts bitna verst á fólki sem er mikið veikt og á erfitt með að halda sér frá vímuefnum, að sögn Þórarins Tyrfingssonar yfirlækn- is. Hann óttast að grípa þurfi til enn frekari aðgerða til að koma til móts við kostnað viðhaldsmeð- ferða ópíumfíkla, sem ríkið hafi enn ekki lagt krónu til. Þórarinn lagði línurnar með starfsfólki sínu á fundi í fyrradag. Dregið verður úr innlögnum og bráðaþjónustu. „Það verður einungis unnið út frá biðlistum eins og þeir liggja fyrir,“ sagði Þórarinn. „Allir þeir sem eru 16 ára og fram að tvítugu eiga greiðan aðgang að spítalan- um, svo og þeir sem ekki hafa verið í meðferð áður.“ Viðhaldsmeðferðin fyrir ópíum- fíkla heldur áfram fyrir þá sem þegar voru í hana komnir, en nýir verða ekki teknir inn. „Við erum ekki farnir að sjá neina peninga í hana enn þá, ekki einu sinni þá sem við áttum að fá á síðasta ári,“ sagði Þórarinn. Jón Kristjáns- son heilbrigðis- ráðherra sagði við Fréttablaðið nýlega, að hann vildi eiga sam- skipti við SÁÁ á grundvelli gild- andi þjónustu- samnings. For- r á ð a m e n n sjúkrahúss ins gætu sent form- lega beiðni til ráðuneytisins um viðræður um endurskoðun samningsins ef þeim byði svo við að horfa. Þórarinn segir að það hafi enn ekki verið gert. „Það má minna á hvernig göngudeildin á Akureyri var fjár- mögnuð á árinu 2000, að mig minnir, þegar þurfti að færa fjár- magn vegna þeirrar þjónustu sem við vorum með á Akureyri,“ sagði Þórarinn. „Það fjármagn var tekið af rekstrarfénu á Vogi. Þá var skilgreint að hluti af fjárveitingu Vogs ætti að fara til Akureyrar, sem þýddi að við urðum að draga saman. Mér heyrist ráðherrann vera að gefa upp boltann með það að hann ætli að leysa kostnaðinn við viðhaldsmeðferð ópíumfíkla með því að draga úr meðferð á Staðarfelli eða Vík. Ef hann ætlar ekki að fjármagna hana með því að taka upp þjónustusamninginn, eða bæta aukalið við hann, þá hlýtur hann að ætla sér að taka peninga sem eru í öðrum með- ferðarþáttum í þetta. Það þykir mér leiðinlegt að heyra.“ jss@frettabladid.is ATVINNULEYSI 4. JAN. 2005* Karlar Konur Samtals Höfuðborgarsvæðið 1.459 1.519 2.978 Vesturland 67 98 165 Vestfirðir 20 61 81 Norðurland vestra 65 44 109 Norðurland eystra 274 318 592 Austurland 41 84 125 Suðurland 105 189 294 Suðurnes 117 195 312 Samtals: 2.148 2.508 4.656 *Heimild: Vinnumálastofnun Smáauglýsingasíminn er 550 5000 auglysingar@frettabladid.is YFIRLÆKNIRINN Vandinn leystur með því að draga úr meðferð. RAFORKA Tilkynnt var í gær að al- mennur taxti hjá Orkuveitu Reykjavíkur muni nú 1. febrúar hækka um 3,89 prósent. Gjald á almennum taxta mun lækka um 3,5 prósent, en fastagjaldið mun þess í stað hækka um 3.204 krón- ur á ári, sem er um helmings- hækkun. Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitunnar, segir þessa hækkun eingöngu koma til, til að mæta verðhækkunum sem Orkuveitan verður fyrir hjá Landsvirkjun og Landsneti hf. vegna breytinga á raforkulögum nú um áramót. Nú verða til dæm- is dreifikerfi sjálf að standa undir sér. Alfreð Þorsteinsson, stjórnar- formaður Orkuveitunnar, sagði að þrátt fyrir þessa hækkun verði verð á rafmagni til heimila lægst á landinu hjá Orkuveitunni. Hitaveita Suðurnesja, sem oft hefur haft lægstu raforkugjöldin, er nú einnig að hækka orkuverð sitt. Ákveðið hefur verið að í Hafnarfirði og á Suðurnesjum muni orkutaxtinn hækka um 4,8 prósent. Þá munu fastagjöldin á öllu svæðinu hækka um 3.600 krónur á ári, sem er rúm helm- ingshækkun. Orkutaxtinn í Vest- mannaeyjum og í Árborg munu lækka um 3,5 prósent. - ss Rafmagnsverð: Fastagjaldið hækkar RÁÐHERRANN Endurskoðun þjónustusamnings stendur til boða. ,,Meðferðin fyrir ópíum- fíkla heldur áfram fyrir þá sem þeg- ar voru í hana komn- ir, en nýir verða ekki teknir inn. Óttast frekari sam- drátt í starfi SÁÁ Yfirlæknirinn á Vogi óttast að til enn frekari samdráttar komi í starfi SÁÁ vegna kostnaðar við viðhaldsmeðferð ópíumfíkla. Ríkið hefur enn ekki lagt krónu til hennar. Ástandið sagt bitna mest á bráðveiku fólki. MIRALE Grensásvegi 8 108 Reykjavík sími: 517 1020 Opið: mán. - föstud. 11-18 laugard. 11-15 Glös Bollar Kertastjakar 50% afsláttur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.