Fréttablaðið - 06.01.2005, Side 10
10 6. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
HERINN SÆKIR HJÁLPARGÖGN
Boeing CH-46, þyrla bandaríska hersins,
sækir hjálpargögn í Medan-borg á norður-
hluta Súmötru. Verið er að flytja ýmsar
nauðþurftir til þeirra byggða í Indónesíu
sem fóru hvað verst út úr náttúruhamför-
unum 26. desember.
Forstjóri Vinnumálastofnunar:
Náið fylgst með Impregilo
KJARAMÁL Búast má við að Vinnu-
málastofnun veiti Kínverjunum 54,
sem Impregilo hafði sótt um und-
anþágu fyrir, atvinnuleyfi á næstu
dögum.
Impregilo hefur 250 lausar
stöður og hefur fyrirtækið auglýst
eftir starfsmönnum innan Evrópu-
sambandsins og á Íslandi. Umsókn-
arfrestur rennur út um miðjan jan-
úar og í framhaldi af því verður
ráðið í störfin. Ef ekki tekst að
manna allar stöðurnar verður sótt
um atvinnuleyfi fyrir 100 Kínverja
í viðbót.
Íslendingar hafa verið tregir til
að ráða sig til Impregilo og segir
Gissur Pétursson, forstjóri Vinnu-
málastofnunar, að Impregilo bjóði
bara laun samkvæmt taxta, erfiðar
aðstæður séu að Kárahnjúkum að
vetri til og mikil eftirspurn sé eftir
því fólki, sem til greina kemur, í
önnur verk. Þá hafi neikvæð um-
ræða verið um fyrirtækið sem sé að
hluta til óverðskulduð og að hluta til
eðlileg en hart verði gengið eftir því
við Impregilo að leit „á innlendum
markaði sé í alvöru“ og Íslendingar
verði ráðnir til starfa. - ghs
Ekki stætt á að veita Kín-
verjunum atvinnuleyfi
Alþýðusamband Íslands telur ekki neinar forsendur fyrir stjórnvöld til að afgreiða beiðni Impregilo um
atvinnuleyfi fyrir allt að 300 Kínverja með jákvæðum hætti. 4.700 Íslendingar leiti eftir atvinnu sam-
kvæmt skrám. Ekki sé stætt á því að veita fyrirtæki atvinnuleyfi sem snuðar erlent starfsfólk.
KÁRAHNJÚKAR Halldór Grönvold,
framkvæmdastjóri ASÍ, segir að
ASÍ hafi upplýsingar um all-
nokkra einstaklinga sem hafa fyrr
eða síðar og sumir nýverið haft
uppi fyrirspurnir um starf hjá
Impregilo en þeim ekki verið
sinnt og sama gildi um íbúa ann-
ars staðar í
Evrópu.
ASÍ telur að kínversku verka-
mennirnir, sem sótt er um at-
vinnuleyfi fyrir,
uppfylli ekki skil-
yrði laga um rétt-
indi, t.d. meira-
próf, og spyr
hvort stjórnvöld
hafi gengið úr
skugga um
að fyrirtækið hafi
brugðist við
þeirri gagnrýni
sem sett hafi
verið fram um vinnuskipulag og
starfsaðstæður að Kárahnjúkum
sem geri fyrirtækið samkeppnis-
fært á íslenskum vinnumarkaði
og skapi aðstæður sem Evrópubú-
ar sætti sig við.
ASÍ gagnrýnir fyrirtækið fyrir
að virða ekki lágmarkslaun kjara-
samninga og brjóta þar með lög.
„Þetta er fyrst og fremst pólitísk
spurning sem lýtur almennt að
vinnumarkaðnum, stöðu hans og
þróun. Þar liggur ábyrgð ráðherra
og stjórnvalda. Þetta fyrirtæki
starfar ekki á íslenskum vinnu-
markaði við þau skilyrði sem hér
hafa gilt. Önnur fyrirtæki eru
farin að óska eftir sambærilegri
meðhöndlun og þá reynir á hvort
stjórnvöld eru tilbúin til að verja
með okkur þann vinnumarkað og
þá sátt sem hér hefur gilt,“ segir
Halldór.
Í yfirlýsingu frá Impregilo er
þvertekið fyrir að ásakanir ASÍ
eigi sér stoð í raunveruleikanum.
„Impregilo hefur frá upphafi
greitt laun samkvæmt gildandi
kjarasamningum á Íslandi og svo
mun vera áfram svo lengi sem
félagið starfi á Íslandi,“ segir í
yfirlýsingunni.
ASÍ hefur takmarkaðar upplýs-
ingar um þá Portúgali sem hafa
verið snuðaðir hjá Impregilo og
því takmarkaða möguleika á að
höfða mál fyrir þeirra hönd. „Að
ýmsu leyti er skaðinn skeður og
spurning hve mikið við getum
bætt úr því. Þetta hlýtur samt að
vera eitt af því sem ráðherra
tekur til álita þegar hann veltir
fyrir sér atvinnuleyfum: Er stætt
á því að veita fyrirtæki, sem verð-
ur uppvíst að svona hlutum,
atvinnuleyfi?“
Ósk Impregilo um atvinnuleyfi
fyrir Kínverja er til umfjöllunar
hjá Vinnumálastofnun.
ghs@frettabladid.is
Impregilo:
Vill fólk sem
þolir veður
VINNUMARKAÐUR Impregilo auglýs-
ir eftir reyndum bílstjórum og
tækjamönnum í krefjandi verk-
efni 120 kílómetra frá næsta þétt-
býli. Ráðning til sex mánaða. Í
boði er ókeypis flugmiði heim,
matur og húsnæði á staðnum,
einkaherbergi, 60 klukkutíma
vinnuvika.
Áhugasamir umsækjendur
þurfa að hafa öll vottorð í lagi,
vera við góða heilsu. Þeir verða að
vera viljugir til að lifa og vinna á
fjarlægum, vindasömum, norð-
lægum slóðum. Þriggja ára
reynsla af starfi við svipaðar að-
stæður er skilyrði. - ghs
,,Önnur
fyrirtæki
eru farin að
óska eftir
sambæri-
legri með-
höndlun...
Jóhann G. Bergþórsson:
Stjórnvöld
eru lin
KÁRAHNJÚKAR Jóhann G. Bergþórs-
son verkfræðingur telur að gera
megi ráð fyrir að launakostnaður
Impregilo vegna
framkvæmdanna
við Kárahnjúka sé
ekki nema um
þriðjungur af því
sem gera megi
ráð fyrir sam-
kvæmt íslenskum
kjarasamningum.
Það sé því ljóst að
Impregilo byggi
starfsemi sína á
„ódýru, innfluttu
vinnuafli, ekki
íslensku.“
Jóhann telur
að ríki og sveitar-
félög hafi ekki
þær góðu tekjur af virkjanafram-
kvæmdunum sem þau búist hafði
verið við. „Ekkert af þessu virðist
vera að skila sér,“ segir hann og
bendir á að vélar og efnisaðdrættir
kosti það sama, sama hver verktak-
inn er. Eini munurinn sé því launin.
Jóhann telur linku stjórnvalda
gagnvart Impregilo gefa fordæmi
fyrir komandi framkvæmdir. Þetta
sé bara fyrsta skrefið því að aðrir
vilji auðvitað fylgja í fótsporin.
„Maður spyr hvort þetta verði eins
og í kaupsýsluflotanum þar sem
íslenskir sjómenn eru of dýrir,“
segir hann.
„Ef stjórnvöld vildu taka harka-
lega á þessu þá væri það stoppað.“
- ghs
! "#
!
"!# $%%
&
' (
!#) $%%***+ GISSUR PÉTURSSON
Forstjóri Vinnumálastofnunar segir að
hart verði gengið eftir því við Impreg-
ilo að Íslendingar verði ráðnir til starfa
að Kárahnjúkum.
FRÁ KÁRAHNJÚKUM
Í ljós hefur komið að Impregilo hefur snuðað portúgalska starfsmenn um allt að 300
milljónir króna. Framkvæmdastjóri ASÍ telur því ekki stætt á því að veita fyrirtækinu at-
vinnuleyfi fyrir allt að 300 Kínverja.
JÓHANN G.
BERGÞÓRSSON
Jóhann telur að
launakostnaður
Impregilo nemi
aðeins þriðjungi af
því sem hann
hefði átt að nema.