Fréttablaðið - 06.01.2005, Síða 30
F2 4 6. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
Á dögunum kom út bókin 200 Best Ad
Photographers Worldwide sem gefin er
út af Lürzer´s Archive í Þýskalandi.
Eins og nafnið gefur til kynna er um
að ræða 200 bestu ljósmyndara heims
og í þeim hópi eigum við Íslendingar
einn fulltrúa, Hermann Smára Ás-
mundsson, sem hefur verið búsettur í
Boston síðastliðin fjögur og hálft ár og
rekið þar eigið ljósmyndafyrirtæki.
Hermann Smári lærði ljósmyndun
í Santa Barbara og eftir að hann út-
skrifaðist starfaði hann í fimm ár hjá
öðrum ljósmyndurum og aflaði sér
víðtækrar reynslu áður en hann hóf
eigin rekstur.
Í 200 Best Ad Photographers
Worldwide eru myndir úr herferð sem
Hermann Smári myndaði fyrir teppa-
deild fyrirtækisins BASF þar sem lögð
er áhersla á náttúruleg efni. Ísland
varð fyrir valinu þegar tökustaður var
valinn.
„Mér finnst ég gríðarlega heppinn
að hafa komist í þessa bók. Ég hef
reyndar fengið viðurkenningu í
Bandaríkjunum en það er gaman að fá
viðurkenningu á Evrópumarkaðnum.
Skemmtilegast fannst mér þó að her-
ferðin var mynduð á Íslandi en ég er
alltaf að reyna að kynna landið eins
mikið og ég get,“ segir Smári. Mynd-
irnar sem hann fékk viðurkenningu
fyrir eru allar landslagsmyndir en her-
ferðin var ætluð Bandaríkjamarkaði.
Hann myndar þó ekki bara teppi út í
eitt því hann hefur tekið mikið af
myndum fyrir bílafyrirtæki eins og
Lexus, Volkswagen og Land Rover.
Hann segist þó alls ekki vera með
neina bíladellu.
„Ég er miklu meiri útivistarkarl og
það var fyrir algera slysni að ég fór að
mynda svona mikið fyrir bílafyrir-
tæki,“ segir Smári. Þó hann hafi fasta
búsetu í Boston er hann sjaldnast í
verkefnum þar því hann er alltaf á
flakki.
„Bandaríkjamarkaður er allt annað
dæmi en Ísland því þar er markaðurinn
svo miklu stærri. Þarna úti get ég sér-
hæft mig miklu meira en ég hefði
getað gert hér heima. Ég kem samt
alltaf reglulega til Íslands því hér líður
mér vel. Það er alltaf jafn gaman að
koma heim.“ Hann segir ljósmyndun-
ina alltaf vera jafn spennandi starf.
„Mér finnst flakkið sem fylgir starfinu
mjög skemmtilegt og svo er ég alltaf að
kynnast nýju fólki. Það eru alltaf ein-
hver vandamál sem koma upp á sem
maður þarf að leysa sem gerir starfið
ögrandi um leið. Svo er það ósköp góð
tilfinning að sjá myndirnar sínar á síð-
um tímaritanna.“
Það gustar um tímaritaútgáfuna Fróða.
Í síðustu viku var Knúti Signarssyni
framkvæmdastjóra fyrirtækisins sagt
upp störfum eftir að ljóst var að Fróði
hafði ekki skilað nægilegum hagnaði að
mati stjórnar fyrirtækisins. Knútur var
búinn að starfa hjá móðurfyrirtæki
Fróða, Odda, í tvo áratugi en hann tók
við starfinu hjá Fróða síðasta sumar.
Þetta var mikið áfall fyrir starfsfólk
Fróða enda Knútur ákaflega vel liðinn
meðal þess. Stjórn Fróða leitar nú log-
andi ljósi að nýjum framkvæmdastjóra
en á meðan stýrir Páll Gíslason, stjórn-
arformaður Fróða, fyrirtækinu. Í vik-
unni var haldinn starfsmanna-
fundur þar sem greint var frá
stöðu fyrirtækisins. Þar kom fram
að Oddi vildi í raun ekki eiga
Fróða og fyrirtækið væri falt fyrir
rétt verð. Á fundinum kom ein-
nig fram að skuldunum hefði ver-
ið reddað. Fróði fékk nýja kenni-
tölu og nýtt nafn á dögunum og heitir
nú Tímaritaútgáfan Fróði. Gamli Fróði
skipti hins vegar um nafn og heitir nú
Hugi, en það félag hefur verið úrskurð-
að gjaldþrota. Í lok fundarins var starfs-
fólki boðið að stinga upp á nýjum fram-
kvæmdastjóra. Ekki stóð á svörum og
rétti fólk upp hönd og stakk upp
á ýmsum merkismönnum. Sum-
ir vildu Sigurð G. Guðjónsson
fyrrum forstjóra Norðurljósa
meðan aðrir stungu upp á
Þórólfi Árnasyni fyrrum borg-
arsstjóra.
Að sögn
Páls Gíslasonar
komu ekki fleiri nöfn
upp á fundinum
og hefur hvorki
verið rætt við
Þórólf né Sig-
urð.
Morgunverkin: Reyna vera svolítið
árrisul og ekki með allt á hælunum
svona í byrjun dags. Hella upp á með
kaffi frá Te og kaffi, hlusta
á morgunútvarpsþættina
og vera fær í flestan sjó
þegar mætt er í vinnuna.
Bókin: Til hinstu stundar
er mögnuð frásögn Traudl
Junge af árum sínum sem
einkaritari Adolfs Hitler og
þá er sérstaklega frásögnin
af síðustu dögunum í byrg-
inu í Berlín ótrúleg.
Geisladiskurinn: Nú þegar jólapopp-
flóðinu er lokið er hægt að snúa sér að
alvörutónlist. Ladies Sing Jazz er meðal
annars með Ellu Fitzgerald, Söruh
Vaughan og Billie Holiday. Sígild tónlist
sem hægt er að setja á við öll tækifæri.
Drykkur: Trönuberjasafi er víst vatns-
losandi og mjög hreinsandi. Hann er
því tilvalinn drykkur eftir allan
matinn um hátíðarnar.
Útiveran: Það er frí í enska bolt-
anum um helgina, þannig að að-
dáendur hans ættu að bæta upp
fyrir maraþonið
yfir hátíðirnar með
góðum göngutúr í
Öskjuhlíð og bjóða
upp á heitt kakó
og með því í
Perlunni.
Sjónvarpið: Njála en
þátturinn var valinn sá
besti á Eddu-hátíðinni nýverið. Er sýnd-
ur í sjónvarpi allra landsmanna á
sunnudaginn klukkan 20.00.
Kvikmyndin: Kvikmyndin Alfie, um
kvennabósann ógurlega, verður frum-
sýnd föstudaginn sjöunda janúar. Þetta
er endurgerð myndar frá 1966 sem
skartaði Michael Caine, en er nú með
engum öðrum en Jude Law, sem ætti
að kæta kvenþjóðina. Strákarnir ættu
síðan að geta lært brögðin af meistar-
anum.
Góðverkið: Það er
hægt að fara með
allar flöskurnar sem
söfnuðust fyrir
heima um áramótin
í endurvinnslu og
gefa síðan allan
ágóðann til styrktar
hrjáðum fórnalömbum jarðskjálftans í
Asíu.
Myndbandið: The Eternal Sunshine
of a Spotless Mind var mynd sem ekki
fór mikið fyrir í bíóhúsunum. Handritið
að henni er meðal annars skrifað af
Charlie Kaufmann, hinum sama og
skrifaði handritin að Adaptation og
Being John Malkovich. Í aðalhlutverk-
um eru Jim Carrey og Kate Winslet.
Mögnuð mynd sem lætur engan
ósnortinn.
Skyndibiti: Niður-
skornir ávextir kann að
hljóma sem leiðinlegur
skyndibiti, en ef valið
er rétt, þá er þetta
ótrúlega góður og
hollur matur.
velurF2
F2 er viku-
rit sem fylg-
ir Frétta-
blaðinu á
fimmtudög-
um.
Útgefandi
Frétt hf.
Ritstjórn
Jón Kaldal
Höfundar efnis í þessu hefti
Borghildur Gunnarsdóttir, Freyr Gígja
Gunnarsson, Kristján J. Kristjánsson,
Marta María Jónasdóttir,
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík
Aðalsími: 550 5000
Netfang: f2@frettabladid.is
Auglýsingar Auglýsingadeild Frétta-
blaðsins, Jón Laufdal, Einar Logi Vignis-
son, Ólafur Brynjólfsson.
Forsíðan Ólafur Egill Egilsson leikari sjá
viðtal bls. 10
Ljósmynd: Teitur Jónasson
Þetta og
margt fleira
06 Göturnar í lífi Péturs Gauts list-
málara
08 Góð ráð til að sigra útsölurnar
10 VIÐTAL
Lítillátur en
lofi hlaðinn
Kristján J. Kristjánsson ræðir
við Ólaf Egil Egilsson leikara
sem brillerar í söngleiknum
Óliver Twist
12 VIÐTAL
Kúreki
norðursins
Vilhjálmur Björn Sveinsson
hreindýrasmali í Norður-Noregi
segir Frey Gígju frá ævintýrum
sínum
14 Japanskir grillpinnar og matgæð-
ingurinn Eyjólfur Kristjánsson
útgáfustjóri Vöku-Helgafells
16 3 dagar: Það helsta sem er á seyði
um helgina
18 Bolir með húmor - Böddi klippari
Smári - einn af 200 bestu auglýsingaljósmyndurum heims ■ Göturnar í lífi Péturs Gauts málara ■ Japanskir grillpinnar
■ Matgæðingurinn Eyjólfur Kristjánsson ■ Það sem er að gerast um helgina ■ Böddi klippari ■ Súr bolahúmor
F29. TBL. 2. ÁRG. 6. 1. 2005
Íslenskur hreindýra-
smali í Noregi
Ólafur Egill
Slær í gegn fyrir norðan
Hermann Smári er einn af 200 bestu ljósmyndurum heims:
Teppaherferð kom
honum á heimskortið
Starfsmenn Fróða látnir stinga upp á nýjum framkvæmdastjóra:
Sigurður G. eða Þórólfur?
Ein af myndum Hermanns Smára sem tryggðu honum tilnefningu í hóp bestu auglýsingaljósmyndara heims.
Myndin er úr auglýsingaherferð fyrir fyrirtækið BASF og var mynduð hér á landi.
Hermann Smári Ásmundsson
ljósmyndari
Forsíðan af bókinni 200 Best
Ad Photographers Worldwide
LJ
Ó
SM
.:
AM
Y
ED
EN
J
O
LL
YM
O
R
E