Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.01.2005, Qupperneq 56

Fréttablaðið - 06.01.2005, Qupperneq 56
Á dögunum tók Helgi Bernódus- son málfræðingur við stöðu skrifstofustjóra Alþingis af Friðriki Ólafssyni sem hætti störfum fyrir aldurs sakir. Það vakti athygli að einhugur var um ráðningu Helga en hann hefur verið aðstoðarskrifstofu- stjóri seinustu ár. Staða skrif- stofustjóra er ekki ýkja gömul. Fram að stjórnarskránni 1874 var enginn skrifstofustjóri en forseti þingsins hafði skrifara. Frá 1874 var þetta hlutastarf, og einungis sinnt meðan þingið sat en varð fullt starf 1915. Fyrstur til þess að gegna því var Einar Þorkelsson, bróðir Jóns forna þjóðskjalavarðar. Næstur var svo Jón Sigurðsson frá Kaldaðarnesi. Þá tók Friðjón Sigurðsson við og loks Friðrik Ólafsson. Helgi Bernódusson er því fimmti maðurinn sem gegn- ir embættinu frá stofnun þess. Tímamótin tóku hinn nýbak- aða skrifstofustjóra tali. Tíma- mótamaður er gamall þing- fréttaritari og hefur oft velt því fyrir sér hvað skrifstofustjór- inn hafi fyrir stafni þegar hann situr til hliðar við forseta í önd- vegi þjóðþingsins. „Það er nú rétt að ítreka enn einu sinni að störf þingsins fara ekki fram í þingsalnum nema að litlu leyti. En á þingfundum erum við forseta til aðstoðar og veitum honum ráðgjöf um allt sem snertir þingsköp, þingvenj- ur og afgreiðslu mála. Við verð- um líka að halda utan um við- veruskrána og sjá til þess að menn viti þegar að þeirra mál- um kemur í dagskrá. Þingmenn sitja stundum við störf annars staðar í þinghúsinu. Við höldum líka utan um dagskrána, röðum skjölum í rétta röð og svo fram- vegis. Þetta er sérstaklega mik- ilvægt í afgreiðslum og at- kvæðagreiðslum. Þá sjáum við um utandagskrárumræður, röð- um upp ræðumönnum eftir samkomulagi sem tíðkast við þær. Allt fer þetta fram eftir ákvörðunum forseta. Utan að komandi fólk gerir sér enga grein fyrir öllu því kvabbi sem er á forseta og er óhjákvæmi- legur fylgifiskur þingstarfanna. En þarna fer fram mikilvægt starf og ekki mega vera ann- markar á því.“ Tímamótin óska hinum nýja skrifstofustjóra Alþingis vel- farnaðar í starfi. ■ 24 6. janúar 2005 FIMMTUDAGUR CARL SANDBURG, (1878-1967) eitt frægasta ljóðskáld Bandaríkjanna, fæddist þennan dag. Hvað gerir hann? HELGI BERNÓDUSSON: NÝRÁÐINN SKRIFSTOFUSTJÓRI ALÞINGIS „Ég er hugsjónamaður. Ég veit ekki hvert ég stefni en ég er á leiðinni.“ - Hann sagði líka (í þýðingu Steins Steinarr) „Ég er gras. Og ég græ yfir spor ykkar“. timamot@frettabladid.is HELGI BERNÓDUSSON SKRIFSTOFUSTJÓRI ALÞINGIS Mikilvæg aðstoð við forseta. Þennan dag árið 1942 kynnti Franklin D. Roosevelt forseti þing- inu að hann hefði staðfest áætlun um mestu hernaðaruppbyggingu í sögu Bandaríkjanna. Bandaríkin hófu formlega þátttöku í styrjöld- inni eftir árás Japana á Pearl Harbor en þar sökktu þeir og eyðilögðu nánast allan Kyrrahafs- flotann. Bretar knúðu mjög á um aukna framleiðslu hergagna í Bandaríkjunum. Forystumenn þeirra, með Beaverbrook ráðherra birgða í borddi fylkingar, höfðu hitt bandaríska ráðamenn og sagt þeim frá aðferðum Breta. Beaverbrook notaði aðferðir sem hann kunni úr blaðaútgáfunni og tókst að stórauka framleiðslu Breta á hergögnum. Til dæmis náðu þeir að smíða 500 orrustuflugvélar á mánuði, og veitti reyndar ekki af. Taldi hann að Bandaríkjamenn gætu ekki verið eftirbátar Breta í þessum efnum. Roosevelt varð fyrir áhrifum af Bretum, bæði Beaver- brook og Churchill, og tilkynnti markmiðin í framleiðslunni þetta fyrsta ár. Framleiða skyldi 45.000 flugvélar, 45.000 skriðdreka, 20.000 loftvarnabyssur og skip sem væru samtals 8 milljónir rúm- lesta. Þingmenn voru sem þrumu lostnir og vantrúaðir á að þetta mundi takast. En Roosevelt gaf ekkert eftir og sagði þessa fram- leiðslu og ótalinn fjölda annarra hergagna sýna óvinum Bandaríkj- anna, Japönum og nasistum, hverju þeim hefði tekist að koma til leiðar. 6. JANÚAR 1942 kynnti Franklin D. Roosevelt áætlun um gífurlega hervæðingu Bandaríkjanna. ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR 1066 Haraldur konungur Guð- inason krýndur konungur Englands. 1838 Samuel Morse sýnir ritsím- ann í fyrsta sinn opinber- lega. 1923 Halldór Kiljan Laxness skírður til kaþólskrar trúar í klaustrinu í Clairvaux. 1925 Finnski hlauparinn Paavo Nurmi setur tvö heimsmet innanhúss á sama klukku- tímanum, í 5.000 m hlaupi og míluhlaupi. 1949 Fæðingardeild Landspítal- ans flytur í nýtt hús. 1950 Bretar viðurkenna Kín- verska alþýðulýðveldið. 1994 Skautadrottningin Nancy Kerrigan verður fyrir lík- amsárás. Seinna kom í ljós að eiginmaður keppinautar hennar í bandaríska ólympíuliðinu stóð að baki árásinni. Bandaríkin hervæðast Okkar góða móðir og tengdamóðir, Guðrún Jakobsdóttir frá Grund í Svínadal, andaðist á Héraðssjúkrahúsinu á Blönduósi að morgni miðviku- dagsins 5. janúar. Fyrir hönd vandamanna, Lárus Þórðarson, Valdís Þórðardóttir, Brjánn Á. Ólason, Ragnhildur Þórðardóttir, Sigurður H. Pétursson og Þorsteinn Tr. Þórðarson. Verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju föstudaginn 07. janúar kl. 13.00. Fyrir hönd aðstandenda, systkinabörn hins látna. Þórður Elíasson Frá Saurbæ, fyrrverandi leigubílstjóri. Áður til heimilis að Hraunbæ 103. Okkar ástkæri frændi, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 7. janúar kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. Soffía M. Sigurjónsdóttir, Bragi Ólafsson, Sigrún Pálsdóttir, Helga Ólafsdóttir, Helgi Björn Kristinsson, Sigurjón Ólafsson, Arna Kristjáns- dóttir og barnabörn. Ólafur Stefánsson lögfræðingur Engihjalla 1, Kópavogi, Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki hjúkrunarheimilisins Víðihlíðar í Grindavík og Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Við óskum ykkur öllum gleðilegs nýs árs. Guttormur Arnar Jónsson, Sigurbjörg Arndís Guttormsdóttir, Harald- ur Auðunsson, Harpa Guttormsdóttir, Orri Brandsson, Soffía Guttormsdóttir, Sighvatur Halldórsson, Alma Björk Guttormsdóttir, Björgvin Björgvinsson, Elfa Hrund Guttormsdóttir, Einar Ásbjörn Ólafsson og barnabörn. Hrefnu Einarsdóttur Reykjanesvegi 16, Ytri-Njarðvík. Hjartans þakkir til þeirra fjölmörgu sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför elskulegrar eigin- konu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, Maríus Sigurjónsson Háteig 2b, Keflavík, Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þriðjudaginn 4. janúar. Jarðarförin auglýst síðar. Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, Sigtryggur Maríusson, Drífa Maríus- dóttir, Erlingur Jónsson, Sigurjón Maríusson, Alba Lucia Aluarez, Jóhann Maríusson, Þyrí Magnúsdóttir, Jón Þór Maríusson, Alda Haf- steinsdóttir, Jón Þór Haraldsson, barnabörn og barnabarnabörn. Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík, s: 587 1960, www.mosaik.is MOSAIK Veljið fallegan legstein Vönduð vinna og frágangur Sendum myndalista Legsteinar ANDLÁT Almut Alfonsson, fædd Andresen, Brúnalandi 16, lést miðvikudaginn 29. desember. Einar Rúnar Stefánsson vélfræðingur lést fimmtudaginn 30. desember. Svava Vigfúsdóttir lést föstudaginn 31. desember á hjúkrunarheimilinu Eir. Þórunn Sveinsdóttir, Fljótakróki, Skaft- árhreppi, lést sunnudaginn 2. janúar. Ingólfur Arnar Þorkelsson, fyrrv. skóla- meistari, Espigerði 4, Reykjavík, andaðist mánudaginn 3. janúar. JARÐARFARIR 13.00 Einar Rúnar Stefánsson vélfræð- ingur. Bálför hans fer fram frá Fossvogskirkju.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.